Helgarpósturinn - 05.01.1984, Page 18

Helgarpósturinn - 05.01.1984, Page 18
ÚTVARP — SJÓNVARP Vanir menn... eftir Pál Baldvin Baldvinsson Ríkisútvarpid — Hljódvarp Möröur Valgardsson eftir Jóhann Sigur- jónsson. Þýðing: Sigurdur Guðmundsson Leikgerð: Bríet Héðinsdóttir. Tónlist: Leifur Þórarinsson. Tœknimenn: Friörik Stefánsson, Hreinn Valdimarsson og Bjarni M. Bjarnason. Leiklistardeildin á rás eitt átti tromp á hendi og spilaði því út á jóladag og var tími til kominn. Leiklistardeildin er stærsta leikhús landsins, á verk hennar geta allir hlustað, kæri þeir sig um að fylgjast með leiklist. Yfirleitt flytur deild- in lítil, snotur smáverk, stundum íslensk, en stöku sinnum ráðast forstöðumenn deildarinnar í stórvirki. Það gerðu þeir á jóladag, þegar fluttur var í útvarpi hér á landi öðru sinni sjónleikurinn Mörður Valgarðsson í útvarpsgerð. Það liggur í augum uppi, að sjónleikir sem samdir eru fyrir sjón og svið falla ekki alltaf óbreyttir í útvarpsmiðilinn. Athöfnin ríkir í sjónleiknum, eða deilir völdum með orðræðu, orðin skila sér en athafnir er erfitt að „sýna" með hljóðum. Leikhljóð eða áhrifshljóð eins og þau eru líka kölluð, hjálpa okkur að sjá atburði og umhverfi fyrir hugskotssjónum, en koma aldrei í staðinn fyrir sjón og raun. Út- varpsleikurinn neyðir okkur til að beita hugmyndafluginu. A jóladag sannaðist enn einu sinni hví- líkt leikskáld Jóhann var, Mörður féll að ýmsu leyti betur við útvarp heldur en svið, ef ég man rétt heildaráhrifin frá sýn- ingu Þjóðleikhússins fyrir nærri þrettán árum. Þá varð líka ljóst að talsverð vand- kvæði eru á því að setja verkið á svið. Þau hurfu í útvarpi. Leikurinn var laus við viðamikinn umbúnað, losnaði undan klafa þess natúralisma sem mótar flestar leiksýningar hérlendis. Eins og Jón Viðar Jónsson rakti í stuttu inngangserindi, litu landar Jóhanns lengi svo á að þessu ástsæla skáldi hefði illa mistekist í endurvinnu á yrkisefnum Njáluhöfundar. Þeir litu á það sem vott um hugmyndaskort og ofdramb, þess lítt minnugir að öll ástsælustu skáld þjóðar- innar sóttu yrkisefni í sögurnar. Hlust- endur sem voru svo heppnir að heyra leikinn á jóladag geta borið vitni um árangur skáldsins í glímunni við við- fangsefni Njálu — Jóhann samdi þrumu- gott verk sem stendur sjálfstætt og getur farið víða kosta sinna vegna, verðugur fulltrúi fyrir leikritun okkar á þessari öld. Jón tæpti líka á kenningunni um Jó- hann sem raunsæismann — andstætt við- teknum hugmyndum manna um piltinn frá Laxamýri sem holdgað afkvæmi rómantisku stefnunnar. Víst er erfitt að skipa Jóhanni svo á bekk — hann er raunsær í persónusköpun sinni, hallur undir ráðandi tísku síns tima í umhverfis- lýsingu, en málið Ijóðrænt og táknríkt. Jón segir hann raunsæismann í hug- myndum, tilvistarskoðun hans sé svo í takt við upplausn samtímans. Ágætt að leiklistardeildin skuli hafa bókmennta- mann fyrir málsvara, meira að segja með skoðanir. Bríet Héðinsdóttir notaði þýðingu Sigurðar Guðmundssonar sem var af- bragðsgóð á sínum tíma og eldist vel. Hún greip það ráð að stytta leikinn nokk- uð, alltaf smekklega, hraðaði framrás og jók spennu, án þess að skerða nokkuð ætlun höfundar. í leikstjórn nam hún burt öll umhverfishljóð, en bjó leikinn í hljómtjöld Leifs Þórarinssonar, volduga smíð og dramtíska. Var það allt gott, hinsvegar leiðist mér tildrið í hérlendum leikstjórum þegar þeir eru að skrifa sig fyrir leikgerðum, eins og það hafi ekki tíðkast frá upphafi að leikstjórar styttu, skeyttu saman og yfirleitt réðu talsverðu um þau verk sem þeir stýrðu, og þætti ekki tiltökumáí. Bríet kallaði til leiks einvalalið: þar var vanur maður í hverju rúmi og lá enginn á liði sínu. Frá upphafi, heitingum og bölvun Valgarðs gráa til lokaorða Skarp- héðins. Var ljóst að þessu sinni hvað sam- stilltur flutningur er mikils megnugur. Helgi Skúlason varaðist að gera of mikið, tjáði brögð Marðar svo sakleysislega og af sannfæringu að eng- inn gat annað en trúað honum. Hann dró heldur ekki af sér þegar gríman féll, heift- in svall í honum, föður sínum likur, því ekki var hann síðri. Andstæðingar Marð- ar og leiksoppar voru feðgarnir á Berg- Helgi Skúlason — tjáði brögð Maröar svo sakleysislega og af sannfaeringu að enginn gat annað en trúað honum. þórshvoli, með Þorstein Ö. Stephensen - og Erling Gíslason í eldlínunni. Njáll var vís en breyskur og Skarphéðinn öllum heillum horfinn. Óskýrari persónur eru þeir mágar Kári, Helgi og Grímur, hver rödd samt auðgreinileg og persónubund- in. Unga fólkið, Höskuld og Hildigunni, léku þau Johann Siguröarson og Guö- björg Thoroddsen: Jóhann í háska því hlutverkið er svo auðveldlega væmið, Höskuldur er svo mikið góðmenni, en Guðbjörg bjargaði Jóa, hressileg og þýð rödd, innilegur leikur sem stigmagnaðist fram á síðasta tilsvar. Mögnuð frammi- staða! í því felst list útvarpsins: leik með and- stæður í röddum. Leikstjórinn ætlaði sér greinilega að gefa áheyranda tilfinningu fyrir rými með misháum röddum og tókst það. Eins var talsvert misjafn radd- mátturinn í nálægðri upptöku, hvísl á móti háttkveðnum heitingum og gekk vel upp. Dálítið þóttu mér raddir Þor- steins Gunnarssonar og Hallmars Sig- urössonar hljómlíkar, það verður að huga vel að slíkum líkingum og varast þau. Báðir stóðu sig samt ágætlega. Hall- mar full hátíðlegur, en það er vandratað meðalhófið með lýriska texta. Kvenfólkið var margt í smáum og stór- um rullum: undantekninealaust svo sómi varð að: Guörún Ásmundsdóttir, Helga Jónsdóttir og Helga Bachmann, og - Margrét Helga. Það þyrfti aðeins að end- urtaka þetta sem fyrst, með góðum fyrir- vara og vel auglýst, svo fleiri fái notið þess, en þeir sem sátu við útvarpið á jóla- dag. ...og vidvaningar Ríkisútvarpiö — Sjónvarp Hver er... eftir Þorstein Marelsson Leikstjórn: Hrafn Gunnlaugsson. Myndataka: Örn Sveinsson. Hljóö: Böövar Guömundsson. Klipping: Jimmy Sjöland. Leikmynd: Gunnar Baldursson. Frumsýning 26. desember. Að aflokinni sýningu á síðustu afurð Lista- og skemmtideildar Sjónvarpsins okkar að kvöldi annars jóladags gat öll þjóðin spurt: Hvað átti þetta nú að þýða? Fátt varð um svör, enda var jólaboðskap- ur starfsmanna Hinriks Bjarnasonar heldur óljós að þessu sinni. Hver er... — og mun líkasttil vera málshátturinn Hver er sinnar gæfu smiður. Eftir á að hyggja spyr maður: Er þessi titill rætin athuga- semd um þjónustu Hrafns Gunhlaugsson- ar í þágu Sjónvarpsins? Eða háspekileg glósa um örlög Lista- og skemmtideildar? En svo rifjast það upp að þetta var lítil saga um lítinn kall, ekki ósnortur þegar kjarninn var greindur frá hisminu: lengd- in á myndinni gleymd, leikurinn látinn liggja milli hluta og sögukjarninn einn stóð eftir. Og þá vaknar önnur spurning: Var virkilega ekki hægt að gera úr þess- ari sögu stutta/nanneskjulega sjónvarps- mynd? Saga Þorsteins Marelssonar var fjarri þvi að vera vitlaus ef numdir væru burt úr henni nokkrir ósennilegir þættir: hjónabandsraunir Sveins gátu nægt til að hann leitaði af mölinni, engin ástæða var að blanda inn í söguna tónverkinu mikla, enn síður tilbúningnum um blindu pilts- ins, sem varð reyndar til þess að okkur tókst aldrei að sjá framan í þessa hetju sögunnar. Þarmeð væru úr sögunni tveir harla leiðigjarnir og margendurteknir þættir úr myndmálinu: tónverk í öllum sínum uppköstum, heilt og skorið í sund- ur með flæðandi blóðtaumum — hvílíkar klisjur sem boðið er uppá! — og sólgler- augun, sem urðu reyndar stór hindrun í kynnum okkar af mannræflinum sem ég held allavega að höfundurinn hafi ætlast til að við kenndum eitthvað í brjósti um. Það er nefnilega svo í framreiðslu hverskyns sögu, kvikmyndasaga er þar ekki undanskilin, að byggist hún á mann- lýsingum og reki einhverja þróun í lífi þeirra, þá er eiginlega nauðsynlegt að við kynnumst þeim manneskjum í orð- um og verki. Við verðum að sjá á þeim fleiri en eina hlið, nema einungis sé ætl- ast til að persónurnar verði einhliða skrípamyndir, eins og t.d. skólastjórinn var. Einkum er þetta mikilvægt um per- sónur sem eiga að bera uppi atburðarás í 91 mínútu og 37 sekúndur. Þetta hélt ég að kvikmyndaleikstjóri með reynslu og menntun á borð við Hrafn Gunnlaugsson vissi mætavel. Á þessu flaskaði hann illi- lega í mynd sinni um Svein. Við vorum eiginlega engu nær um hann þegar upp var staðið: hann var tónlistarmaður, skallapoppari, og drykkfelldur í þokka- bót, hafði ekki snefil af sjálfsvirðingu, ó- merkilegur — en virtist gott kennaraefni. Hvernig leið honum? Hvað þótti honum um lífið? Var hann vinalaus? Átti hann enga fjölskyldu? Hvað fannst honum fyndið? Hvað leiddist honum? Af hverju gugnaði hann? Átti þessi langavitleysa kannski bara að vera seigdrepandi kennslustund í mannfyrirlitningu í tilefni hátíðarinnar? Hinrik Bjarnason lofaði áhorfendum á innanhússýningu í Sjónvarpinu að þetta yrði síðasta verkið sem komið hefði út úr rithöfundanámskeiði Hrafns Gunnlaugs- sonar. Hann gat þess að þetta námskeið væri frægt orðið. Nú hefur undirritaður verið fjarri góðu gamni, hefur enga mynd séð af námskeiðsafrakstrinum ut- an þessa og Nauðug/Viljug. Varla trúi ég öðru en höfundar hafi á þessu námskeiði lagt sig alla fram með sínar smáu hug- myndir sem sumar urðu seinna að löng- um myndum; Þorsteinn Marelsson þar á meðal. Ég þykist líka vita að Þorsteinn hafi af kynnum af skólum á landsbyggð- inni þekkt sitt sögusvið mætavel, t.d. vit- að að unglingaskólar á þessum stöðum eru skipaðir fleiri en einum aldurshóp; að agabrot vegna áfengisneyslu eru ekki brottrekstrarsök nema þau séu síendur- tekin; að unglingar sem hafa lent í hönd- unum á vörðum laganna eru komnir undir verndarvæng og eftirlit barna- verndarnefnda, þá er ekki hægt að reka Skólaskemmtunin í Hver er... — átti þessi langavitleysa kannski bara að vera seindrepandi kennslustund i mannfyrirlitningu f tilefni hátíðarinnar? spyr Páll Baldvin m.a. i umsögn sinni. bara sisona, jafnvel þótt skólastjórinn á staðnum sé trékarl, svo gamaldags að hann lætur nemendur syngja Afram Kristsmenn krossmenn! Égþykistlíkavita að Þorsteinn hafi af starfa sínum öðlast nokkra innsýn í sálarlíf kennara og nem- enda sem leita út á land til að finna þar skjól fyrir köldum vindum borgarlífsins. En hversvegna að láta þá starfsmenn Sjó- varpsins fokka upp fyrir sér ágætu tæki-- færi til að fjalla um þessi mál af tilhlýði- legri mannelsku og nærgætni? Þórhallur Sigurösson, Jón Viöar Jóns- son og Ylfa Edelstein eru öll viðvaningar í leiklistinni. Það sést af löngu færi á hreyfingum þeirra, heyrist á tali þeirra og framsögn, skín út úr samleik þeirra. Þórhallur og Ylfa báru hitann og þung- ann í þessari mynd. Hann á margt eftir ó- lært til að geta kljást við túlkun heillar persónu; margt gerði hann snoturlega, en honum var gersamlega um megn að tjá örvæntingu Sveins á trúverðugan hátt. Þá var bara gripið til feiti, hann smurður í framan og svo úðaður með vatni — og sjá — hetjan lá í svitabaði af örvæntingu! Kæri Þórhallur sig um frama á þessu sviði, verður hann að læra framsögn öðru fremur svo hann megni að finna aðalatriði i hverju tilsvari, og komi því til skila. Ylfa naut æsku sinnar í vanmætti þessa unglings og var næst því að hafa tök á sínu stykki. Markvissari leikstjórn hefði getað hjálpað henni á leiðarenda. Jón Viöar ætti að vita að leik- listin er vandnumin. Hann hefur lítt sveigjanlega rödd og ónæma fyrir þeim fjölbreytilegu hljómbrigðum sem leikara eru nauðsynleg. Það er ráðlegast að at- vinnumenn annist þessa hluti, annars endar þetta allt i fúski. Kvikmyndataka og hljóð, klipping og leikmynd í þessu verki virtust mér sam- viskusamlega og snoturlega unnin, en það dugar ekki þegar rauði þráðurinn er hnökróttur, undinn og í sundur á mörg- um stöðum. Úr honum verður ekki ofin nein flík sem skjól er i. 18 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.