Helgarpósturinn - 05.01.1984, Side 20

Helgarpósturinn - 05.01.1984, Side 20
BOKMENNTIR Tvöfalt minningarrit Kristján Eldjárn: Arngrímur málari. 247 tölus. sídur, þar af „bókarauki", skrár og fleira á 40 síöum. Iöunn, Rvík 1983. Þegar sá sem þetta ritar var að vaxa úr grasi í Reykjadal norður þótti honum ekkert tiltökumál þótt þar væri að finna fiðlur og önnur hljóðfæri á flestöllum bæjum og hvar- vetna virtist einhver kunna með slík tæki að fara. Þetta var barninu sjálfsagður partur til- verunnar. Seinna varð að vísu Ijóst að svona hafði þetta ekki verið allstaðar og átti sér merkilegar skýringar. Mér finnst nú að það hafi einmitt verið í sambandi við fiðluleikinn sem ég heyrði fyrst fljúga fyrir nafnið Arn- grímur málari — og þá líklega tengt nafni Voga-Jóns. Síðar vaknaði talsverð forvitni um þennan dularfuila Arngrím þegar mér gafst unglingi færi á að sýsla með öðrum við að safna munum til Byggðasafns Þingeyinga að Grenjaðarstað. En margt sýndist ekki. verða vitað. Sögur mátti að vísu heyra sagð- ar til sanninda því að Arngrímur hefði verið listamaður af guðs náð, en líklega ekki í alla staði holl fyrirmynd ungmennum. Það var mikil gæfa fyrir menningarsögu okkar að Kristjáni Eldjárn skyldi endast tóm til að Ijúka sem næst alveg því mikla riti um Arngrím Gíslason málara sem nú er komið út. Gæfa ekki einasta vegna þess að höfund- urinn var frábær fræði- og vísindamaður, heldur ekki síður vegna þess að hann var listamaður sjálfur og sýnir í verki sínu næm- an og fagran skilning á listamannseðlinu, þessari óstýrilátu náttúru sem Ieitar út hvörsu sem hún er lamin með lurk. I stuttri blaðagrein verður ekki rakið ævintýralegt lífshlaup Arngríms og undirrit- aður finnur sig með öllu ófæran til að leggja sagnfræðilegt eða listfræðilegt mat á verk dr. Kristjáns. Hann veit einfaldlega að svo vandvirkur maður varð vandfundinn og treystir því rannsóknum hans fyllilega, enda eru þær á bókinni geysivel studdar heimild- um og þess vandlega gætt að fullyrða ekkert nema óyggjandi sé. í höndum Kristjáns varð saga Arngríms það sem óvenjulegt er: spennandi vísindarit. Spennandi vegna þess mannlífs sem höfund- inum tókst að höndla og miðla lesanda, ekkert síður en vegna hins að þarna er fjall- að um vanrækta þætti menningarsögu okk- ar: myndlistar- og tónlistarsögu. Og helst að manni þyki lítillæti dr. Kristjáns (sumpart fyrir hönd Arngríms) fullmikið þegar hann segir í niðurlagsorðum: ... Áhrif hans (Arngríms) á samtíð sína voru þau að vekja hjá mönnum í norðlenskum sveitum gleði og aðdáun, listræna nautn. eftir Heimi Pálsson.Sigurð Svavarsson og Gunnlaug Ástgeirsson Flestir íslendingar vissu ekki að hann væri til og hafa ekki til skamms tíma vitað að hann hafi nokkurntíma verið það. í sögu íslenskrar myndlistar markaði hann varla nokkur spor. Enginn tók upp merki hans eða gerðist lærisveinn hans, utan einn fátækur vinnumaður norður í Kelduhverfi. Eigi að síður stendur verk hans og standa mun sem vitnisburður um mann og mannlíf á einum punkti í sögu vorri. (BIs. 203) I ljósi þess sem á var minnst í upphafi þessa greinarstúfs má vel hugsa sér að þarna sé of „Með þessu verki eignumst við hvort tveggja ( senn minningarrit um merkilegan lista- mann og minnis- varða um ástsælan fræðimann og for- seta,“ segir m.a. I ritdómi Heimis Pálssonar um bók dr. Kristjáns Eld- járns, Arngrlmur málari. mikið dregið í land. Auðvitað er erfitt að gera sér grein fyrir þeim áhrifum sem það eitt hefur að gera fátæku bændafólki kleift að skoða fagra list (mikla eða smáa eftir at- vikum), en án manna eins og Arngríms hefðu færri vitað um þær fögru greinar myndmennt og tónmennt (að ekki sé minnst á nytsömu greinina sundmennt) og þá hlýtur að vera til nokkurs unnið. Á bók dr. Kristjáns fræðist ég um það að altaristaflan í gömlu kirkjunni minni, Einars- staðakirkju, sé líklega hin fyrsta sem Arn- grímur málaði. Um þá mynd sagði Jón í Möðrudal að hún væri „líkasta Kristsmynd" sem hann hefði séð. Þá sögu hefur dr. Krist- ján áreiðanlega kunnað, en hún átti ekki erindi í alvarlegt vísindarit. Hér er hennar getið til þess að benda á að til voru þeir sem kunnu að meta list Arngríms. Allt er rit þetta hið vandaðasta og feg- ursta. Mjög hefur verið vandað til mynda- töku, sem Leifur Þorsteinsson hefur að mestu annast, og myndprentun er góð. Þórarinn Eldjárn hefur gengið endanlega frá verki föður síns og ekki er séð annað en hans hlutur sé vandaður. Með þessu verki eignumst við hvort tveggja í senn minningarrit um merkilegan listamann og minnisvarða um ástsælan fræðimann og forseta. Þökk fyrir það. -HP Fallnir englar bernskusporunum í kynlífinu o.fl. Seinna er lýst sambandi Frands og Katrínar sem síðar verður konan hans. Þau kynnast árið 1968 og láta sig fyrst um sinn fljóta með frelsis- flaumnum mikla en kynnast síðar sambúð- arvandamálum og skilja tveimur árum eftir að sonurinn fæðist. Verkið greinir einnig frá sambandi atvinnumannsins Frankes og Rítu, sem var draumadís bernskunnar. Fall fótboltaengilsins er hátt þegar atvinnu- mennsku lýkur en hann nær þó að komast á forsíður blaðanna einu sinni enn þegar fjöl- skylduharmleik hans lýkur. Þegar sögumað- ur skráir atburði býr hann ásamt fleira fólki í kommúnu úti á Ámager. Þar ríkir kreppa vinstrimennskunnar, umræður mótast af frösum og flóknum félagsfræðilegum útlegg- ingum. I nágrenni kommúnunnar búa nokkrir rokkarar sem fá kommúnuliðið til að íhuga stöðu sína: „Við höfum ekki til fulls viljað, eða getað skilið að eftir okkur hefur fjöldi nýrra kynslóða vaxið úr grasi og þeim finnst við og 68 um það bil jafnúrelt og okkur þótti andspyrnuhreyfingin og hernámið á sínum tíma.“ (49) Ég varð geysilega hrifinn af Fótboltaengl- inum þegar ég las hann fyrst fyrir þremur ár- um og ég upplifði þessa hrifningu aftur nú þegar ég las hann á íslensku. Ég get vel ímyndað mér að karlmenn finni til svipaðrar tilfinningar við lestur verksins og konur finna til við lestur s.k. kvennabókmennta. Þrátt fyrir ímugust á kyngreiningu bók- mennta ætla ég því að greina verkið sem karlabókmenntir (vitandi það að slíkt mun vera konum hvatning til lestrarl). Hans Jerg- en lýsir heimi okkar karlmannanna býsna vel og stundum er skrifum hans einmitt beint til kvenna, væntanlega til þess að auð- velda þeim skilning á grobbgaltarhættinum: „Ju, jú, þessi heimur er fullur af bjórvotum rembingi, en fyrir okkur, sem erum þarna, jafnframt reynsla af hlýju, staðfestingu og fé- lagsskap. Það góða sem þó hefur komið til okkar karlmannanna hefur síast í gengum slíka heima, það er ekki hægt að skilja góðu eiginleikana okkar frá þeim slæmu með því að draga bara rautt strik eftir okkur endi- löngum." (109) Fótboltinn er klárlega hluti af þessum karlaheimi (karlamenningu!) og höf- undur fjallar um hann af mikilli þekkingu og skilningi. Kristján Jóh. Jónsson þýðir Fótboltaengil- inn. Það er engan veginn létt verk að snúa verkinu á íslensku, t.d. er stíll höfundar mjög Héraöshöföingi úr Eyjum Fótboltaengillinn (Fodboldenglen) eftir Hans Jergen Nielsen. Þýðandi Kristján Jóh. Jónsson. Mál og menning, Reykjavík 1983, 214 bls. Bókin er gefin út meö styrk frá Norrœna þýöingasjóönum. Hans Jorgen Nielsen hefur sett nokkurn svip á danskt bókmenntalíf síðustu árin. Hann virðist hafa einstakan hæfileika til að fylgja hræringunum i bókmenntasköpun- inni og virðist jafnvígur á prósa og ljóð. Hans Jorgen þykir þó einkum hafa skarað fram úr sem ritgerðasmiður, einkum hvað varðar pólitískar hugleiðingar. Norski gagnrýnand- inn Yngve Finslo lét m.a. hafa eftir sér: „Hans Jorgen Nielsen er den skandinaviske venstresidas kanskje fineste essayist." Ekk- ert af verkum Hans Jorgens hefur þó hlotið jafngóðar viðtökur og Fótboltaengillinn. Þegar bókin kom út árið 1979 vakti hún strax mikla athygli og hlaut mikla umfjöllun i skandinavísku pressunni. Menn gerðu því jafnvel skóna að verkið boðaði upphaf e.k. karlabókmennta, væri svar við þeirri flóð- bylgju kvennabókmennta sem ekkert lát virtist á. Hans Jorgen nýtir ýmislegt úr fyrri skrif- um í þessu verki, m.a. nokkrar greinar sem birst hafa í dagblaðinu fnformation. Hann nýtir einnig annað blaðaefni, t.d. tvær þekktar blaðaljósmyndir sem hann lýsir ná- kvæmlega og fellir haganlega inn í verkið. Bókin þiggur raunar nafn sitt af annarri myndinni sem sýnir Henning Jensen svífa sem engil á Wembley árið 1973. Sögumaður í Fótboltaenglinum hefur orð- ið fyrir sálrænu áfalli og hann er að gera upp sitt fyrra líf í verkinu, að skrifa sig aftur til lífsins. Höfundur hefur sjálfur sagt að þema verksins væri sambandið milli sögu einstakl- ingsins og sagnfræðinnar. Verkið snýst um 3 ólík svið sem höfundur fléttar listiiega sam- an. Þar segir frá baráttu kynjanna, kreppu þeirra vinstrimanna sem finna ekki lengur fyrir eldmóðinum frá ’68 og fótboltanum. Sögumaður er að skilja þegar hann skráir atburðina. Hann stílar frásögnina til Alex- anders, sonar síns. Þeir feðgar fá að hittast annað slagið en þeim veitist erfitt að halda þræðinum; „..„sonur minn, við erum að lenda á spássíunum hvor í arinars sögu." (17) Það er ekki hlaupið að því að greina frá þræðinum í þessu verki, til þess er það of margslungið og flókið að uppsetningu. Hér skal þó reynt að koma brotum til Helgar- póstslesenda. í verkinu er lýst uppvexti Frands (sögumanns) og Frankes (fótbolta- engilsins) úti í verkamannasamfélaginu á Amager. Lýst er einstöku sambandi drengj- anna, fótboltanum og samkenndinni þar, Guölaugs saga Gíslasonar Endurminningar frá Eyjum og Alþingi skráöar af honum sjálfum. (148 bls.) Örn og Örlygur 1983. Guðlaugur Gíslason er einn af þessum dæmigerðu íslensku héraðshöfðingjum sem eftir áratuga störf að sveitarstjórnarmálum, setu í bæjarstjórn og forstöðu fyrir sveitarfé- laginu taka að lokum sæti á Alþingi og ljúka þar sinni starfsævi. Þessir menn verða yfir- leitt ekki þingskörungar á landsvísu, en oft ákaflega góðir fulltrúar sinna héraða og vinna þeim mjög vel. Um þetta er svolítið dæmigert það sem Guðlaugur segir þegar hann er að greina frá ákvörðun sinni um að hætta þingmennsku, að honum þótti sem öll meginhagsmunamál Vestmannaeyinga væru komin í höfn á þeim tuttugu árum sem hann hafði setið á Alþingi. Frásögn Guðlaugs í þessari bók af lífs- hlaupi hans er yfirleitt fremur stuttorð. Er það í rauninni bæði kostur og galli. Er það til dæmis kostur þegar hann er að segja frá æsku sinni. Þá fellur hann ekki í þá gryfju margra ævisagnaritara að orðlengja mjög um ýmsa sjálfsagða hluti sem koma fyrir næstum öll börn, heldur bregður hann upp nokkrum svipmyndum, sem draga skýrt fram sérstöðu þess samfélags sem hann elst upp í og um leið sérstöðu þeirra aðstæðna sem hann persónulega býr við. Eru þeir þættir með því eftirminnilegasta í frásögn hans. En þegar fram í sækir finnst mér sjónar- horn hans verða óþarflega þröngt, eiginlega líkara atburðaskrá en persónulegri frásögn. Á það til dæmis við þegar hann er að fjalla um pólitísk afskipti sín, t.d. af þeim nærri 30 árum sem hann situr í bæjarstjórn, þá fær maður fremur takmarkaða hugmynd um út á hvað pólitíkin gengur og um hvað er deilt. Ennfremur verða fáir einstaklingar sem hann umgengst eftirminnilegir í frásögn hans. Hinsvegar greinir hann ítarlega frá þeim framkvæmdum sem hann stendur fyrir sem bæjarstjóri og er þar að finna margan at- hygliverðan fróðleik, t.d. um hugmyndir og könnun sem gerð var á því að setja upp lítið kjarnorkuver í Eyjum til að framleiða eimað vatn úr sjó og raforku. Þegar kemur til þingsetu er frásögnin aftur ágripskennd. Þar greinir hann þó ítarlega frá undirskipaður og setningar oft ansi tyrfnar. Kristjáni tekst þó víðast hvar vel til. Það er helst sú hliðin sem snýr að fótboltanum sem hann ræður ekki við, þar ber talsvert á þýð- ingarfeilum. Oft þýðir hann of beint; þannig að seinni hálfleikur verður „annar hálfleik- ur,” marklínan verður „strikið”, endamörk verða „baklína” o.s.frv. Fleiri slík atriði mætti tína til þó ekki verði það gert hér. Kristján hefði þurft að ganga í smiðju til fót- boltamanna til að leysa þetta vandamál. Hans Jorgen notar fótboltann gjarnan í líkingamáli sínu og þar háir vanþekkingin þýðandanum. Ég læt hér fylgja lítið dæmi: „Tackler ikke mere vores forhold, prover í stedet at bevæge mig driblende i det, i tillid til den bevægelse, det affoder," og „Hættur að reyna að þvinga samband okkar, reyni þess í stað að reka (ætti að vera rekja) bolt- ann í því, í trausti til þeirrar hreyfingar sem af því leiðir." (178) Érásagnir og hugleiðingæ Hans Jorgens Nielsen eiga erindi við marga. Hann samein- ar í verki sínu þarfa umræðu og djörfung í framsetningu án þess að það komi niður á þeirri spennu sem lesandanum er nauðsyn- leg. Góð bók frá góðum manni. -SS vinnu við að koma fram hagsmunamálum síns byggðarlags. Eftirminnilegar eru minn- ingar hans um foringja sína á þingi, þá Ólaf Thors og Bjarna Benediktsson. Ennfremur er hreinskilin frásögn hans af deilum í Sjálf- stæðisflokknum uppúr 1970, um varafor- mannsembættið og greinilegt að hann ber ekki hlýtt hugarþel til þeirra manna sem þá og síðar hafa náð völdum í flokknum. Það sem gerir þessa ævisögu athygliverð- ari og aðgengilegri en flestar ævisögur sem ég hef lesið er uppsetning hennar og frá- gangur. Hún er í fremur stóru broti á vand- aðan pappír og te'xtinn er settur í tveimur dálkum. Inn í textann er síðan hlaðið mynd- um af meira örlæti en ég hef áður séð. Ekki hef ég talið myndirnar en þær nálgast áreið- anlega annað hundrað ef ekki fleiri. Eru þær ákaflega fjölbreyttar. Margar eru gamlar og nýjar svipmyndir úr Vestmannaeyjum, aðr- ar eru persónulegri og enn aðrar af sam- ferðamönnum og úr pólitíkinni. Ég held að það megi fullyrða að með þess- ari bók hafi höfundur og útgefandi beinlínis brotið blað í útgáfu ævisagna og eru báðir fullsæmdir af. — G.Ast. 20 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.