Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 05.01.1984, Qupperneq 26

Helgarpósturinn - 05.01.1984, Qupperneq 26
HELGARDAGSKRAIN Föstudagur 6. janúar 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna Hrólfsdóttir. 20.45 Munkarnir þrír. Kinversk teikni- mynd <21.05 Kastljós Þáttur um innlend og er- lend málefni. Umsjónarmenn Ingvi Hrafn Jónsson og Ög- É mundur Jónasson. |R2.10 Loftsiglingin (Ingenjör Andrées luftfárd) Ný, sænsk blómynd geró eftir samnefndri heimilda- skáldsögu eftir PerOlofSund- man.Leikstjóri og kvikmyndun: . JanTroell. 00.30 Dagskrárlok Laugardagur 7. janúar 14.45 Enska knattspyrnan Umsjónar- maður Bjarni Felixson. 14.50 Enska bikarkeppnin Fulham — Tottenham — Bein útsending frá leik liöanna sem hefst kl. 15.00. 16.45 Enska knattspyrnan — frh. Oxford — Manchester United. 17.30 Fólk á förnum vegi. 8. Tölvan Enskunámskeið I 26 þáttum. 17.45 íþróttir Umsjónarmaður Ingólfur Hannesson. 18.30 Engin hetja. Annar þáttur. Breskur framhaldsmyndaflokkur I sex þáttum fyrir börn og ung- linga. Þýðandi Guðrún Jörunds- dóttir. 18.55 íþróttir — frh. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 í lífsins ólgusjó (It Takes á Worri- ed Man) Nýr flokkur — 1. þáttur. Breskur gamanmyndaflokkur. 21.00 Glæður Um dægurtónlist sfð- ustu áratuga. 5 . þáttur: Gömlu dansarnir Hrafn Pálsson ræðir við Árna isleifsson, Ásgeir Sverr- isson og Jónatan Ólafsson og hljómsveitir undir þeirra stjórn á leika gömlu dansana og dixlland. Stjórn upptöku: Andrés Indriða. |21 -45 Fjarri heimsins glaumi (Far Fröm the Madding Crowd) Bresk bló- mynd frá 1967. Leikstjóri John Schlesinger. Aðalhlutverk: Julie Christie, Peter Finch, Alan Bates, 00.05 Dagskrárlok. Sunnudagur 8. janúar 16.00 Sunnudagshugvekja 16.10 Húsið á sléttunni. Presturinn á biðilsbuxum. Bandarískur fram- haldsmyndaflokkur. Þýðandi Óskar Ingimarsson. 17.00 Stórfljótin Nýr flokkur — 1. Dóná - Franskur myndaflokkur I sjö þáttum um jafnmörg stórfljót heimsins. 18.00 Stundin okkar Umsjónarmenn: Ása H. Ragnarsdóttir og Þor- steinn Marelsson. Stjórn upp- töku: Elln Þóra Friöfinnsdóttir. 18.50 Hlé 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Sjónvarp næstu viku. Umsjónar- maður Magnús Bjarnfreðsson. 20.50 „Ameriski drengjakórinn" - Bandarlski drengjakórinn, (The American Boy Choir), 21.15 Jenný Lokaþáttur. Norsk sjón- varpsmynd gerð eftir samnefndri sögu eftir Sigrid Undset. Aöal- hlutverk Liv Ullmann. 22.35 Dagskrárlok. FÖSTUDAGUR 6. janúar ,12.20 Fréttir - 12.45 Veöurfregnir - Til- kynningar - Tónleikar. 14.00 „Brynjólfur Sveinsson biskup“ eftir Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm Gunnar Stefánsson les (9). 14.30 Miðdegistónleikar 14.45 Nýtt undir nálinni Hildur-Eirlks- dóttir kynnir nýútkomnar hljóm- plötur. 15.30 Tilkynnlngar - Tónleikar 16.00 Fréttir - Dagskrá - 16.15 Veöur- fregnir 16.20 Siðdegistónleikar 17.10 Siðdegisvakan 18.00 Tónleikar - Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir - Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir • Tilkynningar. 19.50 Við stokkinn Stjórnendur: Guó- laug Marla Bjarnadóttir og Mar- grét Ólafsdóttir. 20.00 Lög unga fólksins - Þóra Björg Thoroddsen kynnir. 20.40 Kvöldvaka 21.10 Lúðrasveitin Svanur leikur í ut- varpssal Stjórnandi: Kjartan Ósk- arsson. 21.40 Við aldarhvörf Þáttur um braut- ryöjendur I grasafræöi og garö-' yrkju á islandi um aldamótin. V. þáttur: Georg Schierbeck; fyrri hluti Umsjón: Hrafnhildur Jóns- dóttir. Lesari meó henni Jóhann Pálsson (RÚVAK). 22.15 Veðurfregnir - Fréttir - Dagskrá morgundagsins - Orð kvöldsins. 22.35 Djassþáttur Umsjónarmaður: tGerard Chinotti. Kynnir: Jórunn Tómasdóttir. .15 Kvöldgestir - þáttur Jónasar Jónassonar WMMMMMMMMMMMMM, Val Gunnars Gunnarssonar „Mér finnst gott að sofna á löngum tíma með því að hlusta á upphafið þruglið í Jónasi á föstudagskvöldum," segir Gunnar Gunnarsson rithöf- undur. „Nú, svo eru þessir kvöldgestir hans venjulega það hálir og sleip- ir að maður rennur bent inn í næsta dagskrárlið sem er næturútvarp. A laugardag ætla ég að hlusta á kvöldfréttir; ég meðtek allar mínar frétt- ir gegnum útvarp. Þær eru margfalt ítarlegri og betur unnar en t.d. í sjónvarpinu. Síðan verður fróðlegt að heyra samantekt Sverris Hól- marssonar um George Orwell. Á sunnudag langar mig að hlýða á þátt- inn um Spán á tímum borgarastríðs, og bókvitið síðar um kvöldið. Ætla síðan að reyna að sofna út frá píanótónum Svíans Jan Johanssons sem ég kannast eilítið við. í sjónvarpi vekur áhuga minn sænska kvikmyndin Loftsiglingin; vonandi verður hún jafngóð og bókin. Á laugardag mun ég horfa á Fjarri heimsins glaumi í annað sinn. Mig dauðlangar enn- fremur að horfa á ensku knattspyrnuna og^rínþættina en þá stend ég nú yfirleitt við eldavélina eða uppvaskið. Eg horfi aldrei á sjónvarp á sunnudögum." 00.50 Fréttir - Dagskrárlok. Næturútvarp frá RÁS 2 hefst með veðurfregnum kl. 01.00. LAUGARDAGUR 7. janúar 14.00 Listalif Umsjón: Sigmar B. Hauksson. 15.10 Listapopp — GunnarSalvarsson. (Þátturinn endurtekinn kl. 24.00). 16.00 Fréttir - Dagskrá - 16.15 Veöur- fregnir. 16.20 Islenskt mál Jón Aóalsteinn Jónsson sér um þáttinn. 16.30 Nýjustu fréttir af Njálu Umsjón: Einar Karl Haraldsson. 17.00 Siðdegistónleikar |l8.00 Tónleikar - Tilkynningar. 8.45 Veöurfregnir- Dagskrákvöldsins. 9.00 Kvöldfréttir - Tilkynningar. 9.35 Lifað og skrifað: „Nitján hundruð áttatiu og fjögur" Fyrsti þáttur: „Hver var George Orwell?“ 20.00 Ungir pennar Stjórnandi: Dóm- hildur Siguröardótitr (RÚVAK). 20.10 Útvarpssaga barnanna: „Nikulás Nickleby" eftir Charles Dickens Þýöendur: Hannes Jónsson og Haraldur Jóhannsson. Guðlaug ■ Marla Bjarnadóttir les (2). 20.40 í leit að sumri Jónas Guðmunds- son rithöfundur rabbar viö hlust- e,ndur. 21.15 Á sveitalinunni Þáttur Hildu Torfadóttur, Laugum I Reykjadal (RÚVAK). 21.55 Krækiber á stangli Fyrsti rabb- þáttur Guömundar L. Friðfinns- sonar. Hjörtur Pálsson flyturörfá formálsoró. 22.15 Veöurfrengir - Fréttir - Dagskrá morgundagsins - Orð kvöldsins 22.35 Harmonikuþáttur Umsjón: Bjarni Marteinsson. 23.05 Danslög 23.50 Fréttir - Dagskrárlok. SUNNUDAGUR 8. janúar 3.30 Vikna sem var Umsjón: Rafn f Jónsson. ■ 14.15 „Þu dýrmæta blóð Spánar“ ■ Brot frá dögum borgarastriðs. Um- sjón: Berglind Gunnarsdóttir. Lesari með henni: Ingibjörg Har- aldsdóttir. 15.15 í dægurlandi SvavarGests kynnir tónlist fyrri ára. í þessum þætti: Trompetleikarinn Harry James. 16.00 Fréttir - Dagskrá - 16.15 Veöur- fregnir. 16.20 Um vísindi og fræði ■ Fjölmiðla- rannsóknir og myndbandavæð- ingin. Sunnudagserindi eftir Þor- björn Broddason dósent og Elias Héöinsson lektor. Þorbjörn Broddason flytur. 17.00 Frá tónleikum Sinfóniuhljóm- sveitar íslands í Háskólabiói 5. jan. s.l. Stjórnandi Páll P. Páls- son. Sinfónfa nr. 9 f Es-dúr eftir Dmitri, Sjostakovitsj. Kynnir: Jón Múli Árnason. 18.00 Um fiska og fugla, hunda og ketti og fleiri íslendinga Stefán Jóns- son talar. 18.15 Tónleikar - Tilkynningar. jt8.45 Veöurfregnir- Dagskrákvöldsins. S19.00 Kvöldfréttir - Tilkynningar. f 19.35 Bókvit Umsjón: Jón Ormur Hall- dórsson. 19.50 „Við, sem erum rík“, smásaga ' eftir Guðrúnu Jacobsen Höfund- ur les. 20.00 Útvarp unga fólksins Stjórnandi: Guörún Birgisdóttir. 21.00 Frá tónleikum „Musica Nova“ í Bústaðakirkju 29. nóv s.l.; seinni hluti. 21.40 Útvarpssagan: „Laundóttir hreppstjórans" eftir Þórunni Elfu Magnúsdóttur Höfundur les. (13). 22.15 Veöurfregnir - Fréttir - Dagskrá morgundagsins - Orð kvöldsins. 22.35 Kotra Stjórnandi: Signý Pálsdótt- É ir (RÚVAK). 23.05 Sænski pianóleikarinn Jan Jo- hanson Fyrri þáttur Ólafs Þórðar- sonar og Kormáks Bragasonar. 23.50 Fréttir - Dagskrárlok. SJÓNVARP eftir Árna Þórarinsson í vítahringnum ÚTVARP eftir Gísla Helgason Vandað hátiðarefni „Gleðilegt ár og hvernig fannst þér skaupið?" Þannig hefjast öll mannamót á nýju ári. Og ég neyðist til að svara opin- berlega hér og nú: Ansi fannst mér skaupið slappt. Nú er húmor eitthvert mesta smekksatriði sem finnst, og heyrt hef ég af fólki sem þótti skaupið ókei. En fyrir minn smekk var þetta í heild átak- anlega aum aulafyndni, framsett í þess-’ um óskaplega ófyndna íslenska ýkjuleik- stíl, þar sem mest er lagt uppúr að láta leikara gretta sig og geifla. Áð vísu voru undantekningar innanum, ekki síst þeg- ar stórkanónur í kómík eins og Edda Björgvinsdóttir og Sigurður Sigurjónsson komu nærri. Og þótt skaupið væri að formi til nánast afrit af skaupi síðasta árs þá var hraðinn meiri og betri, skyssurnar styttri og ytri umgjörð var óvenju frísk- leg. En efnið var einfaldlega ekki nógu hnyttið og leikstíllinn afleitur rembingur. Hátíðadagskrá sjónvarpsins var í heild Largo y Largo — smekklegar lausnir prýðilega myndarleg að uppistöðu; inn- lent efni í talsverðu magni og fjölbreytni. En að innihaldi var þetta fastir liðir eins- og venjulega. Hinn hefðbundni skammt- ur af tækifærisræðum: Pétur biskup með sitt mildilega guðsorð, Steingrímur með þjóðlega framsókn, menningarleg íhygli Andrésar útvarpsstjóra og forsetinn með óbilandi trú á andlegt atgervi íslendinga þrátt fyrir öll þau ytri merki sem við blasa um skort á slíku. Við fengum tvær heimildamyndir frá frétta- og fræðsludeild, — hinn árlega einbúa Omars Ragnarssonar og vand- lega samsejtta greinargerð fyrir Thor- valdsen á íslandi. Þetta er þakkarvert efni, en þó á mörkunum að standa undir nafni heimildamynda. Þótt Ómar sé fundvís á sérstæða fulltrúa á útköntum þjóðlífsins er eins og hann fái ekki eða gefi sér ekki tíma til að vinna efnið í botn og skapa úr því fullnægjandi heild. Þessir þættir bera of mikinn keim af stressuðum flugvélaviðtölum sem ekki komust fyrir í fréttatímanum. Thorvaldsenþátturinn naut afbragðs texta og flutnings Björns Th. Björnssonar og vandaðrar fagvinnu, en galt afturámóti þess að ekki var tóm eða tækifæri til lífrænna innslaga í mynd- efnið, svo sem viðtala við fólk hér eða í Kaupmannahöfn sem þekkingu hefur á lífi og starfi listamannsins. Einnig var smekklega staðið að þeim innlendu tónlistarþáttum sem skreyttu hátíðardagskrána, en án mikilla tilþrifa eða ferskleika. Undantekning var ballett- inn Largo y Largo, sem ég hef ekkert vit á efnislega. En þar var bryddað upp á nokkurri nýbreytni í tökutækni, sviði og lýsingu og rofinn sá vítahringur sem þröng stúdíóaðstaða hefur slegið um svona upptökur í áraraðir. En á nýju ári þætti sjónvarpsáhorfend- um fengur að nýsköpun og ferskum hug- myndum í gerð inníends dagskrárefnis. Lesendum Helgarpóstsins óska ég gleðilegs árs og þakka samskiptin á liðna árinu. Eitthvað mun ég halda áfram með þessa pistla mína; guð og lukkan ræður, hversu lengi það verður. Útvarpið bauð upp á mjög vandað efni um hátíðarnar. Á aðfangadagskvöld hlustaði ég ekki, horfði á litla frænku mína útdeila jólagjöfum til þeirra, sem nær voru staddir. A jóiadaginn heyrði ég frá tónleikum módettukórs Hallgríms- kirkju. Þeir voru skemmtilegir og vel kynntir af Hönnu Sigurðardóttur. Á sama tíma daginn eftir voru svo tónleik- ar Kammerhljómsveitar Reykjavíkur, þar sem m.a. Pétur Jónasson lék einleik á gítar. Þeir voru á engan hátt kynntir, nema þá af þul, og éngar upplýsingar voru gefnar um tónskáldin og flytjendur. Þetta er mjög bagalegt og verður Tónlist- ardeildin að gera bragarbót á. T.d. gefur það þáttum Guðmundar Gilssonar mikið gildi, vegna þess að kynningar hans og fróðleikur er mikils virði. Undanfarnar vikur hefur Erlingur Sig- urðarson haft með höndum þáttinn Dag- legt mál. Þættir hans eru mjög góðir og ábendingar hans beinskeyttar. Fyrir tæpri viku tók hann fyrir máldrauginn þágufallssýki og benti mönnum á, hversu meinlegur sá móri eða skotta er. Það kom því heldur illa út, þegar svo Jórunn Sigurðardóttir kom með þáttinn sinn strax á eftir „Halló krakkar" og sagði, að líklega væri krökkunum farið að hlakka til áramótanna. Það sýnir, að fólk, sem sér um þætti í útvarpinu, þyrfti að gang- ast undir lágmarks málfræðipróf. Fljót- lega þar á eftir kom svo Jón Björgvinsson með þátt um hvenær árið byrjaði. Um þann þátt hef ég ekki mörg orð, hann var ,frábær. Sjálf áramótadagskráin var með betra móti. Heldur þótti mér Eggert Þorleifs- son bregða sér í of mörg hlutverk, ef það var þá hann? og ónefndur dagskrárstjóri hermdi vel eftir yfirmanni sínum. Hann getur fleira en að lesa vel upp og setja saman góða þætti ásamt því að vera með betri skáldum okkar. Stuðmannatónleikarnir frá Þjóðleik- húskjallaranum voru góðir en illa hljóð- blandaðir. Þær Rósamunda og Henríetta voru þær sömu og á Eddunni í sumar sem leið, einkar góðar en lauslátar í viðkynn- ingu. Henrletta og Rósamunda — einkar i góðar en lauslátar I viðkynningu. 26 HELGARPÖSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.