Helgarpósturinn - 05.04.1984, Blaðsíða 3
■írForvitni manna eru engin
takmörk sett. Þannig datt
okkur á Helgarpóstinum í
hug að fá upplýsingar um
elstu Ijósmynd sem til væri
eftir íslending. Við slógum
upp Ljósmyndasafninu hf. í
símaskránni, því merkafirma
við Flókagötu 35 í Reykjavík,
sem varðveitir flest það elsta
úr Ijósmyndasögu okkar.
Ivar Gissurarson, for-
stöðumaður safnsins, var
svo vinsamlegur að segja
okkur sögu frumkvöðlanna í
stuttu máli. Og hún er þessi:
Helgi Sigurðsson (1815-
1888) lærðijjósmyndun
langfyrstur (slendinga, en
listina nam hann jafnhliða
læknisfræði á námsárum
sínum í Höfn 1840-1846.
Helgi virðist lítið hafa Ijós-
myndað eftir að heim var
komið, og er nú því miður
engin mynd til sem örugg-
lega má eigna honum. Það
má heita merkilegt að þessi
íslend’ingur lagði út í Ijós-
myndanám einungis fjórtán
árum eftir að fyrsta Ijós-
myndin, svo vitað sé, var
tekin, en henni var smellt af
árið 1826.
Síra Siggeir Pálsson á
Skeggjastöðum (1815-
1866) lærði Ijósmyndun í
Noregi veturinn 1856-1857.
Hann er talinn vera höfundur
] Ijósmyndar af-síra Guttormi
Pálssyni í Vallanesi (1775-
1860) sem mun vera elsti ís-
lendingurinn sem til er mynd
af.
Tryggvi Gunnarsson, al-
þingismaður og bankastjóri,
læroi Ijósmyndun í Noregi
jafnhliða búnaðarnámi
1863-1864.
yndin af Kristján Jónssyni
fjallaskáldi sauðdrukknum
undir húsvegg, sem af
mörgum er talin fyrsta
íslenska augnabliksmyndin,
mun að öllum líkindum vera
eftirTryggva.
Sigfús Eymundsson
(1837-1911) lærði Ijós-
myndun í Björgvin og síðar í
Höfn upp úr 1860. Sigfús
kom til Reykjavíkur árið
•&I
0 c
c . ro.
- tt) TD
05 0)
U/.'O
1866, stundaði Ijosmyndun
af miklu kappi og hóf
starfsemi bókaverslunar
þeirrar sem enn starfar undir
hans nafni. Sigfús varð
fyrstur íslendingatil að snúa
sér að utimynaato
einhverju ráði.
Þessari þröngu
^skoðun er þar meí
SELJIÐ EKKIOFAN AF YKKUR EIGNASKIPTI ERU ÖRUGGARI
2ja HERBERGJA:
Kambasel
70 m2. Réttur til að kaupa bílskúr. Verð
1400 þús.
Hamrahlíð
50 m2. Nýstandsett. Verð 1300 þús.
Dalsel
40 m2 einstaklingsíbúð. Verð 1100 þús.
Holtsgata Hafnarf.
55 m2 rishæð, sama og ekkert undir súð.
Verð 1200 þús.
3ja HERBERGJA:
Blöndubakki
Aukaherbergi í kjallara. Verð 1750 þús.
Bólstaðarhlíð
97 m2 kjallaraíbúð. Verð 1500 þús.
Kaplaskjólsvegur
100 m2 3ja herb. + innréttað ris. Verð
1500 þús.
Lindarhvammur Hafnarf.
Risíbúð, mjög gott útsýni, gróið hverfi.
Verð 1500 þús.
Leirubakki
3ja herb. + aukah. í kjallara. Verð 1700
þús.
4ra HERBERGJA
Herjólfsgata Hafnarf.
110 m2 hæð. Bílskúr og ófrágengið ris.
Lindarhvammur Hafnarf.
110 m2 hæð í þríbýli - miðhæð, bílskúr.
Verð 2 millj.
Opið: Mánud. - föstud. kl. 9-18.
Um helgar kl. 13-17.
5 HERBERGJA:
Breiðvangur Hafnarf.
136 m2 + 70 m2. Bein ákveðin saia. Verð
3.1 millj.
Flúðasel
120 m2. Vönduð íbúð. Verð 2.1 millj.
SÉRHÆÐIR:
Urðarstígur
Lítil sérh. í eldra húsi. Verð 1500 þús.
Miðstræti
160 m2 íbúð á 2 hæðum í gömlu timbur-
húsi. Verð 2.5 millj.
Mánastígur Hafnarf.
110m2 + ris. Verð1900 þús.
Ölduslóð Hafnarf.
150 m2 sérhæð + bílskúr. Verð 2.5 millj.
SÉRBÝLI:
Tunguvegur
110 m2 raðhús í skiptum fyrir 3ja herb. í
Austurbæ. Verð 2.1 millj.
Heiðargerði
Lítið einbýli í skiptum fyrir 3ja herb. íbúð í
Austurbæ. Verð 2.5 millj.
FASTEIGNASALAN
Símar: 687520,
ALAN ^
I.
39424,
687521.
Snorri Welding
Árni Þorsteinsson
Ólafur Guðvarðarson
Birna Jónsdóttir
„Ég hef ekki neina tilburði í þá átt. Það var að frum-
kvæði forstjóra og stjórnar Sambandsins sem leitað var
til mín um að taka aðmérþessa stöðu. Ég hef ákveðið að
takaþessu hlutverki. Meiraer ekki um það að segja.
- I hverju verður starf þitt sem aðstoðarforstjóri
SÍS fólgið?
,,Ég mun annast daglega yfirstjórn Sambandsins
ásamt með forstjóra þess. I því felst fyrst um sinn að sjá
um framkvæmd og gildistöku nýja skipulagsins, en síðar
meir að samhæfa hinar ýmsu starfsgreinar SÍS og reyna
þannig að ná betri heildarárangri í rekstrinum."
- Ertu hér með orðinn mjög valdamikill innan
SÍS?
,,Já, það fylgir þessu starfi óneitanlegamikiðvald. Ég
held líka að þetta mikla vald sé nauðsynlegt til að geta
tekið mikilvægar ákvarðanir sem hafa síöan veruleg
áhrif á rekstur og afkomu Sambandsins, en það sem
skiptir líka máli í þessu efni er að umræddu valdi sé beitt
af skynsemi og hógværð og að það sé notað til að vinna
að þeim markmiðum sem fíélagsmenn Samvinnuhreyf-
ingarinnar hafa ákveðið."
- Ástæða þess að þú hlaust þessa háu stöðu er
gagnger endurskipulagning á yfirstjórn SÍS. Þýðir
hún að Sambandið hafi verið illa skipulagt áður?
„Nei. En hinsvegar hefur Sambandiö breyst mjög
verulega á undanförnum árum, úr því að hafa með
höndum tiltölulega einfaldan atvinnutekstur I það að
vera eitt stærsta fyrirtæki landsins með þátttöku í fjöl-
mörgum greinum atvinnulífsins. Þessi breyting ásamt
öðrum breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu gera það nú
að verkum að nauðsynlegt er fyrir SÍS að endurskoða
stjórnskipulag sitt til samræmis við starfsemi, markmið
og leiðir eins og það er á hverjum tíma.“
- í hverju er þessi endurskipulagning einkum
fólgin?
„I fyrsta lagi er gert ráð fyrir því að starf stjórnarfor-
manns SÍS þróist upp í það að verða fullt starf og þannig
muni lýðræðisleg áhrif aukast í stjórn Sambandsins. I
öðru lagi er gert ráð fyrir því að framkvæmdastjórar
hinna ýmsu deilda SÍS verði eftirleiðis ráðnir af forstjór-
anum en ekki af stjórninni eins og hingaðtil hefurverið.
Auk þess muni framkvæmdastjórn, sem áður var hluti af
stjórnskipulagi SÍS, verða lögð niður. I þriðja og síðasta
lagi er gert ráð fyrir aðstoðarforstjóra SÍS sem annist
ásamt forstjóra daglega yfirstjórn Sambandsins'.1
- Allt á þetta náttúrlega að auka á hagkvæmni í
rekstrinum, sem þýðir þá að hingað til hefur verið
bruðlað talsvert og einhverjir starfsmenn fá reisu-
passann?
„Nei, nei. Starfsfólki SÍS verður ekkert fækkað þrátt
fyrir þessa hagræðingu í rekstri. Hinsvegar gerum við
hiklaust ráð fyrir því að þetta nýja skipulag nýti betur
starfskrafta SÍS, um framleiðniaukningu verði því að
ræða. Þvert á móti vonumst við til þess að þetta endur-
skipulag leiði til þess að ný atvinnutækifæri komi til
sögunnar innan SIS og þar með verði um starfsmanna-
fjölgun að ræða.“
Yfirstjórn SÍS hefur nú verið endurskipulögð rækilega.
Meðal breytinga er sú að ný toppstaða er orðin til innan
fyrirtækisins; staða aðstoðarforstjóra. Axel Gíslason fær að
spreyta sig í því hlutverki, en hann var áður framkvæmdastjóri
skipadeildar SÍS. Axel er 38 ára, fæddur á Akureyri, bygginga-.
verkfræðingur að mennt, kvæntur Hallfríði Konráðsdóttur og
eigaþautværdætur.
Ertu að m jaka þér á
Sambandstoppinn?
HELGARPÓSTURINN 3