Helgarpósturinn - 05.04.1984, Qupperneq 9
DÖKKT FRAMUNDAN í
ATLANTSHAFSFLUGINU
Mesta ágreiningsmálið inncin
Flugleiða nú er tvímælalaust
hvaða fiugvélar félcigið eigi að velja
fyrir Norður-Atlatnshafsflugið. Um
næstu áramót taka gildi hávaða-
takmarkanir á bandarískum flug-
völlum og félagið hefur ákveðið að
velja ódýrustu lausnina á því
vandamáli. Félagið hefur pantað
„hljóðkúta" á hreyfla DC-8 flugvéla
sinna. Þessi búnaður kemur til
með að kosta félagið um 235 millj-
ónir króna. Þessi lausn er þó ekki
fullkomin: flugmálayfirvöld í
Bandaríkjunum hafa enn ekki lagt
blessun sína yfir þennan búnað, og
það sem meira er, hann verður
ekki kominn á hreyflana fyrr en 1.
apríl á næsta ári. Frciman ai næsta
ári þurfa Flugleiðir því sérstaka
undanþágu til að lenda í Banda-
ríkjunum. Annar möguleiki hefði
verið að skipta um hreyfla í vél-
unum, en dregið er í efa hvort slík
fjárfesting borgi sig. Þriðji mögu-
Ieikinn er að kaupa DC-10 flugvél-
cir. Nýjar DC-8 vélcir sem eru hag-
kvæmari, gætu komið til greina, en
þá yrðu Flugeiðir eina flugfélagið
sem ekki byði upp á breiðþotur yfir
Atlantshafið. Vcmdinn við að kaupa
DC-10 er hins vegar verðið á þeim:
Flugleiðir eiga ekkert eigið fé í slíka
fjárfestingu og þyrftu að taka dýr
erlend lán. Annað vandamál yrði
að ná jafn góðri nýtingu út úr DC-10
vélunum sem taka mun fleiri far-
þega en DC-8. Félagið tók DC-10 í
rekstur á sínum tíma en fórst
óhönduglega. Allt útlit er fyrir að
Flugleiðir hafi nú misst af breið-
þotulestinni í bili og fljúgi enn um
sinn á DC-8.
En fleira veldur Flugleiðamönn-
um áhyggjum í Ameríkufluginu.
Bandaríska flugfélagið TWA byrjar
t.d. að fljúga tvær ferðir daglega
milli Bandaríkjanna og Brússel í
sumar og hið nýja flugfélag People
Express gerir sig líklegt til að bjóða
upp á ódýrar breiðþotuferðir á
sama svæði. Alvarlegasta þróunin í
þessu flugi er þó e.t.v. sú, að flug-
félög beggja vegna hafsins bjóða
nú í æ ríkari mæli flugfargjöld, sém
eru þau sömu yfir Atlantshafið
hvaðem sem er í Evrópu og hvaðan
sem er í Bandaríkjunum. Þetta
gæti haft það í för með sér að
markaðssvæði Flugleiða yrðu að-
eins í kringum viðkomustaði
þeirra. Enda leggur félagið áherslu
á að fjölga þeim.
Nú stefnir í það að áframhald
verði á pílagrímaflugi félagsins á
þessu ári, samkvæmt heimildum
úr röðum flugmanna, þótt stjóm-
endur haldi hinu gagnstæða fram
opinberlega. Þetta flug hefur verið
gullkista félagsins meðan allt áætl-
unarflug, nema Evrópuflugið, hef-
ur verið rekið með tapi. Alag á vél-
ar og starfsfólk í pílagrímaflugi er
mikið þar sem það fer fram á há-
annatíma en jafnerfitt er fyrir félag-
ið að sleppa þessum spóni úr aski
sínum: Hagnaðurinn af þessu flugi
nam tugum milljóna króna í fyrra.
Óvissuþættimir í rekstri félags-
ins em fyrst og fremst tveir: Verð á
eldsneyti og fargjöld á Norður-
Atlantshafsleiðinni. Ekki þyrfti
nema nýtt fargjaldastrið eða 10%
hækkun á eldsneyti til þess að fé-
Iagið yrði ciftur verulega illa statt.
Og þótt nú stefni í svipaðan hagn-
að hjá félaginu og í fyrra, er útlitið,
þegar til lengri tíma er litið, síður
en svo bjart.
ANNAÐ
ÚTBOÐ
RÍKISVÍXLA
IRíkissjóður íslands hefur ákveðið að bjóða út
■ ríkisvíxla, í samræmi við heimildarákvæði fjár-
laga 1984og með hliðsjón af ákvæðum laga nr.
79/1983. Öllum er heimilt að bjóða í víxlana.
2 1 boði verða víxlar að nafnvirði samtals
■ 30.000.000 kr. með útgáfudegi 13. apríl 1984 og
gjalddaga 13. júlí 1984.
3Hver víxill verður 50.000 kr. að nafnvirði og
■ verður innleystur í Seðlabanka íslands á gjald-
daga.
4Gera skal bindandi tilboð í heilt margfeldi af 10
■ víxlum (þ.e. nafnverð 500.000 kr.). Heildartil-
boðsverð þeirra skal tilgreint í heilum hundruð-
um króna. Allir tilboðsgjafar skulu láta fylgja
hverju tilboði sínu gjaldkeratékka, þ.e. tékki sem
gefinn er út af innlánsstofnun, sem tilboðstrygg-
ingu. Tékkinn skal vera að fjárhæð 10.000 kr. og
stílaður á Seðlabanka íslands v/ríkisvíxlaút-
boðs. Gangi tilboðsgjafi frá tilboði sínu, sbr. þó
7. lið, glatar hann fjárhæðinni, ella gengur hún
upp í ríkisvíxlaviðskipti viðkomandi aðila eða
verður endursend sé tilboði hafnað af ríkissjóði.
Tilboð, sem ekki fylgir greind innborgun, skal
meta ógilt.
Undanþegnir greindri innborgunarskyldu eru:
Innlánsstofnanir, fjárfestingarlánasjóðir, lífeyris-
sjóðir, sem viðurkenndir eru af fjármálaráðu-
neytinu, og tryggingafélög, sem viðurkennd eru
af Tryggingaeftirliti ríkisins.
5Tilboð má senda á sérstökum eyðublöðum sem
■ fást í Seðlabanka. Tilboðin ásamt tilboðstrygg-
ingu, ef um hana er að ræða, berist lánadeild
Seðlabankans, Hafnarstræti 10, 101 Reykjavík,
fyrir kl. 14.00 11. apríl 1984 og séu í lokuðum
ómerktum umslögum, að öðru leyti en því að þau
séu sérstaklega merkt orðinu „Ríkisvíxlaútboð".
6Heimilt er að símsenda tilboð í telexi eða stað-
■ festu símskeyti, og skulu þau berast fyrir sama
tíma og getið er í 5. lið hér að framan. Sömu-
leiðis má símsenda tilboðstryggingu, sbr. 4. lið.
7Ríkissjóður áskilur sér rétt til þess að taka eða
■ hafna tilboðum í heild eða að hluta. Breyting
eða afturköllun tilboðs skal hafa borist lánadeild
Seðlabankansfyrir kl. 14.00 hinn 11. apríl 1984.
8Tilboðsgjöfum sem eiga tilboð sem tekið er,
■ verður tilkynnt um það símleiðis fyrir kl. 16.00
hinn 12. apríl 1984. Staðfestingarbréf verða auk
þess send til þeirra.
Tilboðsgjöfum, sem eiga tilboð sem hafnað er
eða eru ógild, verður ekki tilkynnt um það sér-
staklega að öðru leyti en með endursendingu
tilboðstryggingar í ábyrgðarpósti.
9Niðurstöður útboðsins verða kynntar tölulega
■ eins fljótt og hægt er, án vísunar til nafna til-
boðsgjafa, með fréttatilkynningu til fjölmiðla.
Greiðsla fyrir víxla, skv. tilboðum sem tekið
■ verður, þarf að berast Seðlabankanum fyrir kl.
14.00 á útgáfudegi og verða víxlarnir afhentir
eða póstsendir fyrir kl. 17.00 sama dag nema
þess sé óskað sérstaklega að Seðlabankinn
geymi víxlana. Berist greiðsla ekki á réttum tíma
áskilur ríkissjóður sér rétt til að krefjast tilboðs-
gjafa um hæstu lögleyfðu dráttarvexti fyrir þann
tíma sem greiðsla dregst, auk þess sem tilboðs-
gjafi glatartilboðstryggingu sinni.
Ríkisvíxlar þessir eru stimpilfrjálsir og án þókn-
unar. Um skattalega meðferð þeirra gilda sömu
reglur og gilda hverju sinni um innstæður í
bönkum og sparisjóðum.
Útboðsskilmálar og tilboðseyðublöð liggja
frammi í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnar-
stræti 10, Reykjavík.
11
12
Reykjavik, 4apni 1984
RÍKISSJ ÓÐUR ÍSLANDS
fetastandur:
LUNÐÍA hiffi
ótal uppsetr
tgarmá fuieikar.
ótrúlei
"fd tnlnnií
’fðsstó/i
fytfir iétmingamaj
Þ ngholt istræti
Akurevri: Verslunin Kompan. Akranes: Verslunin Amor. ísafjörður: Húsgagnaverslun ísafjarðar. Keflavík: Verslunin Róm. Sauðárkrókur: Hátún Vestmannaeyjar: Verslunin Eijó
TEIKN