Helgarpósturinn - 05.04.1984, Síða 10
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar: Árni Þórarinsson
og Ingólfur Margeirsson
Ritstjórnarfulltrúi:
Hallgrímur Thorsteinsson
Blaðamenn: Egill Helgason
og Sigmundur Emir Rúnarsson
Útlit: Björgvin Ólafsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Hildur Finnsdóttir
Útgefandi: Goögá h/f
Framkvæmdastjóri:
Guömundur H. Jóhannesson
Auglýsingar:
Áslaug G. Nielsen
Skrifstofustjóri:
Ingvar Halldórsson
Innheimta:
Jóhanna Hilmarsdóttir
Afgreiðsla: Þóra Nielsen
Lausasöluverð kr. 30.
Ritstjórn og auglýsingar eru
aö Ármúla 36, Reykjavík, sími
8-15-11. Afgreiðsla og skrif-
stofa eru að Ármúla 36. Sími
8-15-11.
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaöaprent h/f
Glæpur og refsing
Helgarpósturinn fjallar í
dag um mál ungs manns
sem á sér Ijóta fortíð. Allt frá
því hann var barn hefur
hann verið ,,með annan fót-
inn hjá lögreglunni,“ eins og
hann orðar það sjálfur. I
fyrstu voru þetta mest
óknyttir en eftir því sem
hann eltist urðu brotin alvar-
legri og undir lokin var hann
farinn að gerast sekur um
líkamsárásir.
Það vildi honum til happs
að hitta unga konu sem
hann stofnaði heimili með
og hefur nú í tvö ár hvorki
bragðað áfengi né eiturlyf,
heldur stundað sína vinnu af
samviskusemi, í rauninni
byrjað alveg nýtt líf. En nú
hafa gamlar syndir náð hon-
um og hann hefur verið
dæmdur í tíu mánaða fang-
elsi.
Margir eru sammála um
að fangelsi sé, í sjálfu sér,
ekki heppilegt sem refsing
eða lausn á þeim vanda sem
afbrotamenn eru. Par á móti
kemur að löghlýðnir borg-
arar eiga skilyrðislausan
rétt á vernd gegn þessum
mönnum, og í mörgum til-
fellum er eina verndin, sem
að einhverju gagni kemur,
að loka þá inni.
Ungi maðurinn sem Helg-
arpósturinn fjallar um í dag
er tvímælalaust einn af þeim
sem þjóðfélagið átti rétt á að
væri lokaður inni. Hann
bætti í engu ráð sitt, framdi
afbrot eftir afbrot og þau
urðu alvarlegri eftir því sem
á leið. Tíu mánaða fang-
elsisdómur yfir honum fyrir
þessi afbrot verður alls ekki
talinn ströng refsing.
Nú eru hinsvegar að-
stæður gjörbreyttar hjá hon-
um. Hann er að reyna að
skapa sér nýja framtíð með
sinni nýju fjölskyldu. Það er
auðvifað engin trygging fyrir
að hann haldi áfram á þeirri
braut. Hann hefur áður sýnt
að tilraunir til að rétta sig af,
og það með aðstoð góðra
manna, hafa ekki borið
árangur. Hann hefur hins-
vegar aldrei hagað sér
skikkanlega svona lengi og
aðstæður hans hafa aldrei
verið jafn góðar og núna.
Það má því segja að tölu-
verð von sé til þess að hann
hafi endanlega snúið við
blaðinu og verði hér eftir
nýtur og góður þjóðfélags-
þegn. Mál hans er nú til at-
hugunar hjá fullnustumats-
nefnd og það verður metið á
næstu vikum hvort þjóðfé-
lagið á að gefa honum enn
eitttækifæri.
BRÉF TIL RJTSTJÓRNAR
Réttur barns
— skylda for-
eldrisins
í síðustu viku beindi rannsóknar-
blaðamaður Helgarpóstsins frétta-
ljósi sínu að málefnum forræðis-
lausra feðra. Undir fyrirsögninni
,3ÖRN NOTUÐ í HEFNDARSKYNI"
beindust spjótin fyrst og fremst að
bamalögunum frá 1981 og þau tal-
in gagnslítil. Málinu til frekari
sönnunar voru birtar reynslusögur
þriggja forræðislausra feðra um
baráttu þeirra við „svifaseint"
dómsmálaráðuneyti og fyrrver-
andi eiginkonur/sambýliskonur.
Frásagnir þeirra voru hinar athygl-
isverðustu, en verða að sjálfsögðu
að skoðast í því ljósi að þær segja
aðeins frá annarri hlið málanna.
Hinni hliðinni eru engin skil gerð.
Með skrifum sínum vekur Helg-
arpósturinn athygli á málum, sem
fengið hafa of litla umræðu í fjöl-
miðlum. Það er því miður hve um-
fjöllunin var einhliða, auk þess
sem hún einkenndist af vanþekk-
ingu á málefninu og þeim laga-
ákvæðum, sem um það gilda.
Barnalögin eru mikil réttarbót
fyrir feður óskiigetinna bcima. Með
lögunum var foreldrum óskilget-
inna bama, er búa í óvígðri sam-
búð, falin forsjá bama sinna sam-
eiginlega og jafnframt ákveðið að
við slit á óvígðri sambúð þyrfti að
ákveða hvort foreldrið fengi for-
sjána og hinu foreldrinu tryggð
umgengni. Mjög veigamikil ný-
mæli, því áður var forsjáin ein-
göngu í höndum móður og feðum-
ir áttu engan rétt til umgengni.
Ef til sambúðarslita kemur (og
hér er orðið notað sem samheiti
slita á vígðri sem óvígðri sambúð)
þarf að ákveða hvort foreidrið fari
með forsjá barnanna og kveða á
Rakarastofarv Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Tímapantanir
13010
t GEYSIR SS
f |E2Slr r-
Borgartún 24 (hom Nóatúna) Sími 11015, ákvöldin 22434.
Sækjum — Sendum — Aðeins að hringja — Nýir og sparneytnir bílar.
Tegund og árgerd daggj. Kmgj.
Lada 1500 station árgerð 1984. 500 5,00
Opel Kadett (framdrif) árgerð 1983. 600 6.00
Lada Sþort jeppar árgerð 1984. 800 8.00
| Allt verð er án söluskatts og bensins.
um umgengni hins. Sem betur fer
tekst foreldrum oftast að ná sam-
komulagi um þessi atriði. Náist
það hins vegar ekki vísar dóms-
málaráðuneytið ágreiningnum til
umsagnar viðkomemdi barna-
vemdamefndar. Nefndin kannar
hagi og aðstæður beggja aðila og
byggir umsögn sína til ráðuneytis-
ins á því, sem fram kemur. Á
gmndvelli umsagnar bamavemd-
arnefndar tekur dómsmálaráðu-
neytið ákvörðun í forsjár- og/eða
umgengnisdeilunni. í undéuitekn-
ingartilvikum er þó einnig óskað
álits barnaverndarráðs á ágrein-
ingnum.
Þá er komið að þeim þætti, sem
aðallega er fjallað um í grein Helg-
arpóstsins, framkvæmd ákvæða
um umgengni. Hér er rétt að taka
fram og hafa hugfast, að bamalög-
in skilgreina umgengnisréttinn
sem rétt bamsins og skyldu for-
eldrisins. Foreldri með forsjá, sem
tálmar umgengni hins foreldrisins
við barnið, er því að brjóta rétt á
barninu, jafnframt því sem það
kemur í veg fyrir að hið forsjár-
lausa foreldri geti ræktskyldursín-
ar við bcimið.
Vissulega geta sérstök atvik
valdið tregðu foreldrisins, t.d. að
það telji hitt foreldrið einhverjum
annmörkum háð vegna sálsýki,
eiturlyfjaneyslu, óreglu eða því um
líks og umgengnin baminu því
óheppileg. Ef mál er þannig vaxið
er foreldri með forsjá bæði skylt og
rétt að óska endurskoðunar á um-
gengninni og láta dómsmálará'öu-
neytinu eftir að ákveða hvort rétt-
lætanlegt sé að takmarka, eða jafn-
vel fella niður umgengnina.
Foreldri með forsjá hefur þó
sjaldnast afsakanir af þessu tagi
fyrir tálmunum sínum. Oftast er
verið að „ná sér niðri á“ hinu for-
eldrinu. Það gleymist í ákafanum
að sá aðili, sem mest líður vegna
ágreiningsins er bcimið, sem þráir
það heitast að sættir takist milli
foreldra sinna.
Ekki er hægt að skilja við þessa
umf jöllun um umgengni án þess að
minneist á enn eina hlið þessa
máls. Hér á ég við baráttu foreldris
með forsjá, oftast micðranna, til að
fá föðurinn til að rækja umgengn-
BÖRN NÖTUÐ
[HEFNDARSKY
umgangast bóm < *
siri erhverfaiyí^
isskyldur sínar við bamið. Þess em
nefnilega einnig dæmi að foreldrið,
sem ekki hefur forsjána, hirði ekki
um að umgangast bamið. Hér em
engin úrræði, dagsektum ekki
hægt að beita, a.mJc. skv. orðcinna
hljóðan, því engum tálmunum er
fyrir að fara.
I grein Helgarpóstsins var lítil-
lega minnst á ættleiðingar og vil ég
því að endingu drepa örfáum orð-
um á þær. Skv. ættleiðingarlögum
þarf eingöngu að leita samþykkis
foreldris með forsjá vegna fyrir-
hugaðrar ættleiðingar. Lögin mæla
hins vegar fyrir um að leitað sé
álits hins foreldrisins, sé þess kost-
ur.Ættleiðingarmál em, líktog for-
sjár- og umgengnisdeilur, sendar
barnavemdarnefndum til umsagn-
ar. Hjá bamavemdamefnd Reykja-
vi'kur er ætíð kannað gaurngæfi-
lega hvort leitað hafi verið um-
sagnar hins foreldrisins. í lang-
flestum tilvikum liggur fyrir í ætt-
leiðingarmáli Scimþykki þessa for-
eldris fyrir ættleiðingunni. Liggi
álitið ekki fyrir, eða sé það nei-
kvætt, er sérstaídega á það bent í
umsögninni til dómsmálciráðu-
neytisins. Ég læt þessar athuga-
semdir um meðferð ættleiðingcir-
mála nægja, en um þau mál væri
hægt að skrifa aðra grein.
Dögg Pálsdóttir
formaður
barnaverndarnefndar
Reykjavíkur.
Um stjórnar-
kjör rithöf-
undasam-
bandsins
Vegna fréttar um formanns- og
stjórnarskipti í Rithöfundasam-
bandi íslands í síðasta tbl. Helgar-
póstsins er rétt að bæta því við að
meðal upphafsmanna að framboði
Sigurðar Pálssonar, Birgis Sigurðs-
sonar, Einars Kárasonar og Þor-
steins frá Hamri vom rithöfund-
amir Tlior Vilhjálmsson og Einar
Bragi. Ágreiningur varð hins vegar
um kynningu framboðsins í Frétta-
bréfi sambandsins, sem Thor og
Einar Bragi töldu að túlka mætti
sem um framboð í tengslum við
fráfarandi stjóm væri að ræða, en
ekki framboð hins almenna liðs-
manns Rithöfundasambandsins.
Drógu þeir því nöfn sín til baka af
meðmælendalistanum, en lýstu
hins vegar fyllsta stuðningi við
framboð fjórmenningcinna sem
slíkt.
VERSLUNARMIÐSTÖÐ
VESTURBÆJARIN
. V
N/
1 MÖrur _____
5 á markaðsverði. 2 S
1 Bi /
RAFTÆKJADEILD
II. HÆÐ
Raftæki - Rafljós
og rafbúnaður
JL-GRILLIÐ
Grillréttir allan daginn
MUNIÐ OKKAR
HAGSTÆÐU
GREIÐSLUSKILMÁLA
Innkaupin eru þægileg hjá okkur
Svo geturðu líka slappað af í Kaffiteríunni
OPIÐ:
Mánud.-fimmtud. 9-19.
Föstud. 9-20. Laugard. 9-16.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
10 HELGARPÓSTURINN