Helgarpósturinn - 05.04.1984, Side 25
Tommi hefur verið okkur til ama og leiðinda allar götur
síðan hann var fyrst handtekinn, fyrir bílþjófnað, átta
ára gamall. Þará eftir fylgdi tuttugu ára ferill afbrota og
óreglu. Hann lá í dópi og brennivíni. Hann laug og stal
og falsaði og gerðist jafnvel sekur um ljót ofbeldisverk.
Fyrir tveimur árum, þegar Tommi var að koma úr
meðferð, hitti hann unga konu. Þau felldu hugi saman
og stofnuðu heimili ásamt börnum hennar frá fyrra
hjónabandi. Síðan hefur hann verið alger
bindindismaður á áfengi og lyf. Hann er í ágætri vinnu
sem hann stundar af samviskusemi og hefur lokið við
að greiða sektir og skuldir sem söfnuðust á hann í
óreglunni. En við eigum dálítið vantalað við Tomma,
vegna fortíðar hans. Nýlega féll á hann dómur í
Hæstarétti, vegna fyrri synda.Við ætlum að senda
Tomma í fangelsi í tíu mánuði.
Ætli ég færi ekki eitthvað út á land.
Það yrði ekki auðvelt að byrja að
vinna aftur því ég hef haft töluverð-
ar tekjur á þessu ári en litla fyrir-
framgreiðslu á sköttum. Skuldimar
myndu auðvitað safnast saman
meðan ég væri í fangelsinu. Æ, ég
veit það ekki. Við verðum bara að
bíða og sjá hvað setur. Ég veit al-
veg að ég á skilið að hljóta refsingu
fyrir það sem ég hef gert. En núna
er ég nýr maður. Ég verð bara að
vona að þessum nýja manni verði
gefið tækifæri."
Þetta er, í mjög styttu máli, sag-
an af honum Tomma. Þau þrjátíu
og tvö ár sem hann hefur lifað em
ekki mikið til að státa af. Þjóðfélag-
ið hefur haft cif honum ómældan
kostnað og skaða og slfldr menn
eiga að sjálfsögðu að taka út sína
refsingu. Staðan sem nú er komin
upp flækir hinsvegar málið tölu-
vert, eins og sjá má á því að þrír
dómarar af sex (ef sakadómari er
talinn með) em þeirrar skoðunar
að Tommi eigi að fá skilorðsbund-
inn dóm. Hinir þrír telja að hann
eigi að sæta fangelsisvist. Það
verður svo fullnustumatsnefnd
sem, á næstu dögum, svarar
spumingunni: Eigum við að stinga
Tomma í steininn?“
Framleiðum sérhannaðar sjúkradýnur
fyrir bakveika.
Endurnýjum gamlar dýnur samdœgurs
Ragnar Björnsson h.f.
Húsgagnabólstrun
Dalshraun 6
Hafnarfirði
SVÍT DÚ INN í SVEFNINN
Á SPRINGDÝNU