Helgarpósturinn - 24.05.1984, Page 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar: Árni Þórarinsson
og Ingólfur Margeirsson
Ritstjórnarfulltrúi:
Hallgrímur Thorsteinsson
Blaðamenn: Óli Tynes, Ómar
Friðriksson og Sigmundur
Ernir Rúnarsson.
Útlit: Björgvin Ólafsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Hildur Finnsdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Guðmundur H. Jóhannesson
Auqlýsingar:
Steen Johansson
Markadsmál, söíustjórn og
dreífing: Hákon Hákonarson,
Sigþór Hákonarson.
Innheimta:
Jóhanna Hilmarsdóttir
Afgreiðsla: Ragna Jónsdóttir
Lausasöluverð kr. 30.
Ristjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, simi
8-15-11. Afgreiðsla og skrif-
stofa eru að Ármúla 36. Sími
8-15-11.
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Óviðeigandi hæli
Meðferð geðsjúkra af-
brotamanna hér á landi er í
armasta ólestri og hefur ver-
ið það lengi. Öðru hverju er
vakin athygli á ófremdar-
ástandinu, skrifaðar nokkr-
ar greinar í Morgunblaðið og
málið rætt í beinni útsend-
inqu í sjónvarpinu, en ekkert
gerist.
Dómsmála- og heilbrigð-
isyfirvöld skella skolla-
eyrum við þeirri hrópandi
þörf sem margsinnis hefur
komið í Ijós að er á einhvers
konar athvarfi fyrir geðsjúkt
fólk sem fremur afbrot en er
dæmt ósakhæft.
Þetta ógæfusama fólk á á
hættu að lenda í fangelsi,
þrátt fyrir að það hafi verið
sýknað af ákærum á hendur
sér vegna heilsu sinnar. í
Helgarpóstinum í dag rekur
kona á fimmtugsaldri rauna-
sögu sína af þessum mál-
um. Henni var haldið inni í
Síðumúlafangelsinu í
Reykjavík í næstum eitt og
hálft ár áður en hún fékk not-
ið þeirrar aðhlynningar sem
hún á, landslögum sam-
kvæmt, rétt á. Orðalagið,
sem notað er i dómum hlið-
stæðum þeim sem hún
hlaut, er á þessa leið: Við-
komandi skal vistast á við-
eigandi hæli. Auðvitað ætl-
ast lögin til þess að viðkom-
andi sé komið fyrir á geð-
sjúkrahúsi til lækninga.
Engum hugsandi manni
dettur í hug að löggjafinn
hafi hér ætlað geðsjúku af-
brotafólki að dveljast á Litla-
Hrauni eða í Síðumúlafang-
elsinu.
En konan sem rekur hið
sorglega lífshlaup sitt í
Helgarpóstinum er síður en
svo einsdæmi. Því er nú
verr. Eftir 16 mánaða vist í
Síðumúlafangelsinu var
loks fundin fyrir hana vist á
geðsjúkrahúsi í Svíþjóð.
Ekki eru allir jafnheppnir. ís-
lenska dómskerfið ber nú
ábyrgð á að minnsta kosti
þremur einstaklingum sem
svipað er ástatt fyrir og
dveljast á óviðeigandi hæli.
Einn af þessum einstakling-
um dvelst nú á Litla-Hrauni.
Hverju er dómskerfið bætt-
ara að vista hann þar, mann
sem eflaust þarf á geðhjálp
að halda?
Geðlæknar virðast ekki
ætla að hvika frá því höfuð-
sjónarmiði sínu í þessum
málum að neita að ganga
erinda dómskerfisins. Þeir
telja að slíkt samrýmist eng-
an veginn starfsreglum sín-
um og skyldum við sjúklinga
sína. Þessi mál hafa alltof
lengi verið í sömu sjálfheld-
unni. Mál er að linni.
Nk
fl WBikil reiði og forundran
ríkir nú meðal starfsmanna Ríkis-
endurskoðunar. Nýverið var aug-
lýst starf ríkisbókara og sóttu
margir hæfir og reyndir starfs-
menn um stöðuna. Meðal umsækj-
enda var Þorvaldur Ingi Jónsson
sem allflestir álitu að fengi stöðuna
í Ijósi menntunar og fyrri starfa.
Fór enda svo að skrifstofustjóri
fjármáláráðuneytisins og ráðu-
neytisstjóri mæltu með Þorvaldi.
Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra sem veitir stöðuna kall-
aði engan umsækjenda í viðtal
heldur skipaði nokkru síðar fyrir-
varalaust mann að nafni Torben
Friðriksson. Torben sem er af
dönsku bergi brotinn en hefur öðl-
ast íslenskan ríkisborgcirarétt,
vann áður hjá Innkaupastofnun
ríkisins. Ráðuneytisstjóri hafði
ennfremur lagt til að maður yrði
ekki ráðinn strax í starfið heldur
settur til reynslu í eitt ár áður en
gengið yrði frá fastráðningu. Albert
mun hafa fúlsað við þeirri tillögu
og skipað Torben þegar í æviráðn-
ingu...
^Eins og komið hefur fram í
fréttum í dag, hefur Seðlabankinn
lækkað endurkaupahlutfall afurða-
lána í sjávarútvegi. Þetta þýðir í
raun að cifurðalánin lækka úr 73%
niður í 66,5% með þeim afleiðing-
um að greiðsluþrot blasir við fisk-
vinnslunni í landinu. Nú er enn-
fremur ljóst að sömu sögu er að
segja um landbúnaðinn. Lækkun
afurðalána SeðlabankcUis til land-
búnaðar mun vera sambærileg og
í fiskvinnslunni. Að sögn fróðra
manna jafngildir þetta hruni í land-
búnaðargreinum með gjaldþroti
margra bænda og kaupfélaga...
wssu
Litlu Opel Corsa bílarnir eru engin leikföng heldur
alvörubílar. Stæröin er aö vísu í lágmarki en akst-
ursmöguleikarnir í hámarki. Og svo er eins og
vélin viti hve dýr bensínlítrinn er hjá okkur, því
sérhver Corsa bíll er Opel í hverju smáatriði.
rir sundiðkendur
alveg
frábært
ECVITAL
BALSAM
ELVITAL
VOLUMEN
SHAMPOÍJ
Laugaveg 178 - P.O. Box 338- 105 Reykjavík- lceland
SHAMPOO
L'ORÉAL
Ekkert shampoo jafnast á við
EL’VITAL
frá
L’ORÉAL
Símaskráin
1984
Afhending símaskrárinnar 1984 til símnotenda hefst
fimmtudaginn 24. maí.
j Reykjavík veröur símaskráin afgreidd á Póststof-
unni, Pósthússtræti 5, gengiö inn frá Austurstræti, og
póstútibúunum Kleppsvegi 152, Laugavegi 120,
Neshaga 16, Ármúla 25, Arnarbakka 2 og Hraunbæ
102.
Afgreiðslutími mánudaga til föstudaga kl. 9 til 17.
í Hafnarfirði veröur símaskráin afhent á Póst- og
símstööinni, Strandgötu 24.
í Kópavogi verður símaskráin afhent á Póst- og sím-
stöðinni, Digranesvegi 9.
Varmá í Mosfellssveit veröur símaskráin afhent á
Póst- og símstööinni.
Þeir notendur sem eiga rétt á 10 símaskrám eöa
fleiri, fá skrárnar sendar heim.
Símaskráin veröur aöeins afhent gegn afhend-
ingarsedium, sem póstlagöir hafa veriö til símnot-
enda.
Athygli skal vakin á því aö símaskráin 1984 gengur í
giidi frá og meö föstudeginum 1. júní 1984. Þó gildir
þetta ekki hvað varðar ný 6 stafa símanúmer á Sel-
tjarnarnesi, sem gert haföi verið ráö fyrir aö kæmi í
gagniö um leið og símaskráin. Þau veröa ekki tilbúin
fyrr en í lok júní nk. Þangað til gilda gömul símanúm-
er þar, en þaö eru raunar sömu númerin og eru í nýju
skránni aö frátöldum fyrsta staf, sem er 6.
Aö ööru leyti fellur símaskráin 1983 úr gildi fra 1. júni
1984. Póst- og símamálastofnunin.
10 HELGARPÓSTURINN