Helgarpósturinn - 16.08.1984, Side 4
WIRNER HOME VIPEO
VAARNER HOME VJDEO'
WXRNER HOME ViDEO
WXRNER HOME VIDEO
• •
Oryggishnappurinn er á vakt
allan sólarhringinn
☆Fyrirtækið Securitas er að
setja á markaðinn öryggistæki
fyrir gamalt fólk og sjúklinga,
sem að mestu geta séð um sig
sjálfir í heimahúsum en þurfa
að vera undir einhverskonar
eftirliti. Securitas kallar þetta
tæki „Öryggishnappinn".
Tækið er þannig upp byggt
að móttakari er tengdur við
síma viðkomandi en hann er
sjálfur með öryggishnappinn í
bandi um hálsinn eða klemmd-
an á brjóstvasa. Ef eitthvað
kemur fyrir er þrýst á hnappinn
(eða togað í ef hann er í snúru).
Þá kviknar Ijós og kemur hljóð-
merki í stjórnstöð Securitas þar
sem er vakt allan sólarhringinn
og þá fer mikið batterí í gang.
í tölvu Securitas eru geymd-
ar upplýsingar um alla sem eru
með öryggishnappinn og hún
gefur samstundis upplýsingar
um hvort um er að ræða gam-
almenni eða hjartasjúkling eða
eitthvað slíkt. Ráðstafanir eru
svo gerðar í samræmi við það.
„Þessi tæki hafa lengi verið
notuð í Svíþjóð, Noregi og
Danmörku og þar hafa þau
bjargað mörgum mannslífum,"
sagði Jóhann Ó. Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Securit-
as í samtali við Helgarpóstinn.
„Við erum ekki með neitt.
sem ekki er búið að gæðaprófa
í Skandinavíu enda eru þeir þar
í fremstu röð hvað varðar þjón-
ustu í þessum efnum. Að auki
erum við þúnir að fá þetta sam-
þykkt hjá íslenskum
yfirvöldum.
Securitas hefur aðstöðu til
að sinna mjög vel þessu verk-
efni. Við erum með mjög þétt
öryggisnet og til dæmis eru
aldrei færri en sex bílar frá okk-
ur á ferð á nóttunni. öryggis-
verðir okkar geta því verið
komnir á vettvang eftir nokkrar
mínútur og við erum líka með
beina línu til slökkviliðsins.
Opið mánudaga—miðvikudaga kl. 17—22
fimmtudaga — sunnudaga kl. 15—23
VÍDEÓ-ÁRBÆR
Hraunbæ 102
(á móti bensínstöð Shell)
Sími Z5ZOZ
‘DOGSQjMERS^ -GWfiæNFN
uppá sjúkraflutninga.
Það þarf í rauninni ekki að
vera sími í ibúðunum til að
hægt sé að tengja öryggis-
hnappinn. Það er nóg að lagt
sé fyrir síma. Skilaboðin berast
með hátíðnibylgju sem er fyrir
ofan taltíðni og því óháð því
hvort álag er á símakerfinu.
Jafnvel þótt síminn sé lokaður
berast skilaboðin í gegn á sek-
úndubroti. öryggishnappurinn
vaktar líka sjálfan sig, ef svo
má að orði komast. Ef til dæm-
is spenna fellur í rafhlöðunni
sendir hann stjórnstöðinni skila-
boð um það. Þetta kerfi nær
yfir allt landið."
— Hvað með kostnaðar-
hliðina?
„Þetta er því miður nokkuð
dýrt tæki og aldraðir sem ekk-
ert hafa annað en opinberan líf-
eyri ættu erfitt með að standa
undir kostnaðinum. Ég býst við
að tækið kosti 15—16 þúsund
krónur og svo verður eitthvert
mánaðarlegt þjónustugjald. En
það má hugsa sér að börn eða
aðrir ættingjar réttu hjálpar-
hönd og svo einnig hið opin-
bera. Það er jú yfirlýst stefna
að gefa fólki kost á að vera í
heimahúsum eins lengi og
mögulegt er. Eitt legupláss á
sjúkrahúsi kostar nú kr.
Edduhótelin ná orðið allan hringinn.
„Ekki gleyma íslandi77
☆,,Það er auðvitað sjálfsagt að
fólk ferðist til annarra landa, en
það má þó ekki verða til þess
að menn hætti alveg að skoða
sitt eigið land," sagði Kjartan
Lárusson, forstjóri Ferðaskrif-
stofu ríkisins, á blaðamanna-
fundi fyrir skömmu.
„Það hefur líka orðið sú
ánægjulega þróun að íslending-
ar eru farnir að ferðast meira
innanlands," sagði Kjartan enn-
fremur, „og sjálfsagt á bætt
þjónusta úti á landsbyggðinni
sinn þátt í því. í sumar rekur
ferðaskrifstofan 18 Edduhótel
víðsvegar um landið og rekst-
urinn er með sama sniði og
undanfarin sumur. Auk Eddu-
hótelanna átján hefur skrifstof-
an umsjón með rekstri Hótel
Borgarness, sem er rekið allt
árið."
Kjartan sagði að á hótelun-
um væri leitast við að veita
sem besta þjónustu hvað varð-
aði mat og gistingu á hag-
stæðu verði og reynt væri að
bjóða uppá ýmsa afþreyingar-
möguleika, svo sem sund, bad-
minton, boltaleiki, hestaleigu,
hjólaleigu og silungsveiði, eftir
því sem hægt væri á hverjum
stað.
Ferðaskrifstofa ríkisins rekur
almenna upplýsinga- og sölu-
starfsemi fyrir innlenda og er-
lenda ferðamenn á tveimur
stöðum í Reykjavík: Söluturnin-
um við Lækjartorg og aðalskrif-
stofunni að Skógarhlíð 6. Það
er hægt að fá allar upplýsingar
um ferðaþjónustu bæði í
Reykjavík og úti á landi.
Alla daga vikunnar er hægt
að panta og kaupa ávísanir á
hótel, gistingu á sveitabæjum,
bílaleigur, hestaleigur, hjólaleig-
ur og bátsferðir og einnig far-
seðla með flugvélum, ferjum,
og langferðabifreiðum, á sama
verði og viðkomandi aðilar selja
beint.
Undanfarin ár hefur og fjöldi
íslendinga farið í hópferðir um
landið á vegum ferðaskrifstof-
unnar. Það eru þá einkum tíu
daga hringferir um landið og
níu daga ferðir um Snæfellsnes
og Vestfirði sem hafa notið vin-
sælda. Allar þessar ferðir eru
svokallaðar hótelferðir, það er
gist á hótelum og reyndir leið-
sögumenn stjórna ferðinni.^
Erum ávallt
með mikið af nýjum
spólum til leigu
.. .í stjórnstöð Securitas þar sem er
vakt allan sólarhringinn. Á myndinni er
Jóhann Óli Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Securitas.
1.780.000 á ári þannig að þó
að ekki væri hægt að losa
nema eitt slíkt þá myndi það
duga til að kaupa yfir eitt-
hundrað svona tæki. Þetta gæti
líka gefið því fólki tækifæri til
að halda áfram að vinna, sem
annars þyrfti að vera heima að
líta eftir sjúklingi eða
gamalmenni."
„Þetta er býsna athyglis-
vert," sagði Ólafur Ólafsson,
landlæknir, þegar HP leitaði
álits hjá honum. „Ég þekki ekki
þetta sérstaka tæki og get því
ekkert sagt um það, en það er
vissulega stefnan að hafa fólk í
heimahúsum eins lengi og
kostur er og í því sambandi
hefur til dæmis verið lögð
áhersla á að gamalt fólk hafi
síma, til að það geti látið vita af
sér.
Auðvitað geta komið upp
þær aðstæður að fólk geti ekki
hringt. Það er, Guði sé lof,
sjaldgæft hér á landi að fólk
liggi hjálparvana langtímum
saman í íbúðum sínum en það
hefur þó komið fyrir. Mér heyr-
ist þetta vera dálítið dýrt en
þetta er möguleiki sem vissu-
lega er vert að skoða nánar."^
4 HELGARPÓSTURINN