Helgarpósturinn - 16.08.1984, Síða 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjóri:
Ingólfur Margeirsson
Ritstjórnarfulltrúi:
Hallgrímur Thorsteinsson
Blaðamenn: Óli Tynes, Ómar
Friðriksson og Sigmundur
Ernir Rúnarsson.
Útlit: Björn Br. Björnsson.
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Hildur Finnsdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Guðmundur H. Jóhannesson
Auglýsingar:
Steen Johansson
Markaðsmál, sölustjórn og
dreifing: Hákon Hákonarson,
Sigþór Hákonarson.
Innheimta:
Jóhanna Hilmarsdóttir
Afgreiðsla: Ásdís Bragadóttir.
Lausasöluverð kr. 35.
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
8-15-11. Afgreiðslaog skrif-
stofa eru að Ármúla 36. Sími
8-15-11.
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Ósamrýmanlegir
hagsmunir
Viðskipti með myndbönd
hafa sem betur fer verið að fær-
ast í eðlilegri og sanngjarnari
farveg en þau voru í til skamms
tíma. Þessu ber að fagna.
Stuldur á hugverkum, eins
og tíðkast hefur með útleigu ís-
lenskra myndbandaleiga á
myndum sem tilskilin réttindi
hafa ekki fengist fyrir, á ekki að
eiga sér stað. Þjófnaður er alltaf
þjófnaður.
í grein Helgarpóstsins saka
sumir eigendur myndbanda-
leiga formann Samtaka rétt-
hafa myndbanda, Friðbert
Pálsson, forstjóra Háskólabíós
og varaformann félags kvik-
myndahússeigenda, um vafa-
söm viðskipti með myndbönd,
þar sem nafn Háskólabíós hafi
m.a. verið notað í innkaupum
myndbandaheildsölunnar
Videó Leós, sem er sameignar-
félag í eigu Friðberts Pálssonar
og bróður hans Leós Pálsson-
ar.
Eignaraðild forstjóra Há-
skólabíós að fyrirtæki í hlið-
stæðum viðskiptum og bíóið
stundar þarf alls ekki að þýða
að óeðlileg tengsl myndist á
milli þessara aðila. Hætta á
slíku er þó ávallt fyrir hendi,
þegar hagsmunaþræðir
tveggja fyrirtækja, í þessu til-
felli ríkisfyrirtækis og einkafyr-
irtækis, fléttast saman í sama
manninum.
Þó svo að Friðbert Pálsson
taki ekki þátt í rekstri né þiggi
neina þóknun frá fyrirtæki
þeirra bræðra, og þrátt fyrir að
fyrirtæki þeirra versli með ann-
ars konar myndir en Háskóla-
bíó, þá er þátttaka Friðberts
Pálssonar í fyrirtækinu varla
verjandi frá siðferðilegu sjónar-
miði. Fyrir liggur að forstjóri
Háskólabíós hafi veitt bróður
sínum aðstoð við innkaup á
myndbandaefni í krafti að-
stöðu sinnar hjá þessari opin-
beru stofnun.
Því miður er sá hugsunar-
háttur alltof algengur meðal •
þeirra sem gegna opinberum
stöðum hér á landi, að ýmiss-
konar fyrirgreiðsla sé sjálfsagt
mál. Hún er það ekki. Embætt-
ismenn starfa í þágu alls al-
mennings — ekki ættingja og
vina sérstaklega.
Jafnvel þótt ekkert vafasamt
hafa átt sér stað, og enda þótt
lög banni ekki tengsl af þessu
tagi, þá eru þau engu að síður
ósamrýmanleg stöðu Friðberts
Pálssonar. Embættismaður
hins opinbera skyldi aldrei
koma sjálfum sér í þá stöðu að
hann gæti hugsaniega, í aug-
um annarra, verið að gæta ann-
arra hagsmuna en honum er
ætlað.
BRÉF TIL RITSTJÖRNAR
Stelpurnar í
Hollywood,
KR og Rush
Ég las viðtalið við lan Rush, knatt-
spyrnukappann og markakónginn
frá Liverpool í síðasta Helgarpósti.
Sem knattspyrnuáhugmaður og for-
maður í landssamtökum knatt-
spyrnuhreyfingarinnar les ég flest
sem um þá íþrótt birtist í blöðum.
Ég fagna og þakka þau miklu skrif,
sem knattspyrnan yfirleitt fær. Það
er til framdráttar fyrir fótboltann og
stafar auðvitað af því, að þessi íþrótt
er öðrum vinsælli hér á landi.
Með þessu viðtali við Rush sýndi
Helgarpósturinn af sér snerpu, sem
að mörgu leyti einkennir blaðið.
Blaðamennska er fólgin í því að
vera með fingurinn á þeim málum,
sem efst eru á baugi hverju sinni.
Heimsókn Liverpool-liðsins var í
uppsiglingu og mikill viðburður í ís-
lensku íþróttalífi. Þess vegna var
það vel til fundið að jjrípa Rush
glóðvolgan rétt fyrir Islandskom-
una og spjalla við kappann. Rush er
skærasta stjarna þessa heimsfræga
liðs.
Viðtalið sjálft var hvorki betra né
verra en gengur. Spurningarnar
voru klassískar: Hvernig hefur
Liverpool gengið, af hverju gengur
Liverpool vel, hvernig mun Liver-
pool ganga í vetur? Hvernig ferðu
að því að skora svona mörg mörk?
Svörin voru líka venjuleg og
komu ekki á óvart. En kannski er
það vegna þess að ég hef lesið
svona viðtöl áður og fylgist meira
með knattspyrnumönnum en flestir
aðrir, að ég læt mér fátt um finnast
innihald viðtalsins.
Aðalatriðið er að Helgarpóstur-
inn sló þessu viðtali upp, gerði sér
mat úr heimsókn Liverpool og
beindi athyglinni að því sem máli
skipti. Það er nefnilega þannig með
mig sem KR-ing, að mér finnst allt
skipta meginmáli, sem það gamla,
góða félag gerir.
Ekki var það verra að mínir menn
stóðu sig frábærlega vel. Rush átti
ekki roð í KR-vörnina.'Gárungarnir
segja að stelpurnar í Holly wood hafi
komið KR-ingum til hjáfpar nóttina
áður. Ef það reynist rétt, þá er það
ekki amaleg liðveisla. Það er sama
hvaðan gott kemur, frá Helgarpóst-
inum, stelpunum eða KR-liðinu. Eitt
er víst að Rush var lagður að velli!
Ellert B. Schram
ritstjóri DV
Maðurinn
sem
skorar
fyrir
lan Rush, framherjinn ungi í
er einhver mesti markaskorari
sem sögur fara af
í ensku knattspymunni.
Restir boltar verða að
marki í fótunum á honum.
Fósturheimili
Okkur vantar fósturheimili fyrir tvö börn á aldr-
inum 4ra ára og 8 ára sem þarfnast sérstakrar
umönnunar. Heimilin þurfa að vera á Stór-
Reykjavíkursvæðinu af fyrrnefndum ástæð-
um. Allar frekari uppl. um börnin gefur félags-
málastjóri í síma 53444 á Bæjarskrifstofunum í
Hafnarfirði, Strandgötu 6.
Félagsmálastjórinn
í Hafnarfirði.
Kæru kvikmyndaáhuga-
menn og annað gott fólk
Við leitum stuðníngs ykkar vegna töku kvik-
myndarínnar Hvítir mávar. Okkur vantar
fatnað, skótau, veskí, tímarit, t.d. Fálkann og
Víkuna, og hina ýmsu heimilismuni t.d. í
eldhús og stofu frá árunum 1958—1965.
Einnig vantar okkur bíla að láni eða til leígu
frá sama tíma.
Upplýsingar í síma 14730 og 10825 alla
daga.
Með þökk, búninga- og Ieíkmyndadeíldín.
P.S. Að sjálfsögðu komum víð og sækjum
hlutina.
Fagmennirnir
versla hjá okkur
Því að reynslan sannar að hjá
okkur er yfirleitt til mesta úrval
af vörum til hita- og vatnslagna.
BURSTAFELL
Bíldshöfða 14
Verslun sími 38840
Skrifstofa sími 85950
Athugið
Dagvist barna á einkaheimili
— dagvist barna á einkaheimili
Mikill skortur er á heimilum hér í borginni, sem
taka börn til dagvistar, þó sérstaklega í eldri
hverfum. Eru þeir sem hafa hug á aö sinna því
beðnir aö koma til starfa sem fyrst, til að mæta
þeirri þörf, sem alltaf skapast á haustin.
Vinsamlegast hafiö samband í síma 22360.
Umsjónarfóstrur,
Njálsgötu 9.
Grunnskólinn
á Flateyri
Kennara vantar næsta skólaár. Upplýsingar í
síma 94-7645.
Fjölbrautaskóli
Suðurnesja
Kennara vantar aö Fjölbrautaskóla Suöurnesja
í stærðfræöi og sérgreinum rafiöna.
Uþþlýsingar veitir skólameistari í síma 92-3100
eöa 92-1857.
Skólameistari.
Kennarar — sér-
kennarar,
fóstrur/þroska-
þjálfar
Kennara vantar nú þegar til að sinna
kennslu fjölfatlaðra barna í sérdeild Egils-
staöaskóla. Góö kennsluaöstaöa, fríöindi
og lág húsaleiga í boöi.
Undirritaöur veröur til viðtals í síma
91-40172 laugardaginn 18. ágústkl. 13—15.
---------------------Skólastjóri-
10 HELGARPÓSTURINN