Helgarpósturinn - 01.11.1984, Blaðsíða 5

Helgarpósturinn - 01.11.1984, Blaðsíða 5
l slenska útvarpsfélagið hélt mik- inn og veglegan stofnfund s.l. þriðjudagskvöld. Forsvarsmenn fé- lagsins hafa verið ötulir undanfarn- ar vikur og safnað undirskriftum hluthafa um stofnun hins nýja fyrir- tækis sem hefur verið hugsað sem almenningshlutafélag í stíl við Eim- skipafélagið á sínum tíma. En fæð- ing hins nýja óskabarns þjóðarinnar hefur ekki gengið átakalaust fyrir sig. Það vakti nefnilega mikla at- hygli að fjórir af aðalhvatamönnum að stofnun íslenska útvarpsfélags- ins og miklir áhugamenn um frjáls- an útvarpsrekstur gáfu ekki kost á sér í stjórnina og hyggjast draga fyr- irhugað hlutafé sitt til baka. Þeir eru Einar Kristinn Jónsson, Gísli Baldur Garðarson, Olafur Hauksson og Skafti Harðarson. Astæðan fyrir útgöngu fjórmenn- inganna er óánægja þeirra með þátt Jóns Olafssonar (i Skífunni) við söfnun hlutafjár. Frumkvöðlarnir hafa allir tekið að sér að safna sem flestum nöfnum, en rétt fyrir stofn- fundinn kom í ljós að hugmyndir Jóns voru síður en svo þær að gera félagið að virku almenningshlutafé- lagi. Megnið af hlutafé því sem Jón hafði safnað var í höndum Jóns sjálfs eða aðila sem standa honum nærri. Þegar valdahlutfall hinna tæplega 300 hluthafa var athugað, kom nefnilega í ljós, að Jón og hinir fáu vinir hans höfðu yfir að ráða 50—60% hlutafjárins. Jón Olafsson var ekki til viðræðu um að breyta þessum valdahlutföllum „almenn- ingshlutafélagsins” og endaði sú rimma með að fjórmenningarnir gengu út úr íslenska útvarpsfélag- inu sem stofnað var síðar um kvöld- ið og varð að hlutafélagi. Stjórn hins nýja félags skipa: Jón Olafsson, Magnús Axelsson, Hjörtur Örn Hjartarson, Sigurður Gísli Pálmason og Jón Aðalsteinn Jónasson. Hlutaféð er 4,6 milljón- ir, en er allt ógreitt og búist er við að margur almenningshluthafinn dragi nafn sitt út úr hlutafélaginu þegar hann sér hvernig hlutafjár- söfnuninni er hagað. Fjórmenning- arnir hyggja nú á stofnun annars út- varpsfélags og hafa þegar hafið samstarf og viðræður við ýmsa að- ila með samstarf í huga... islenskir fiskframleiðendur eru stöðugt að uppgötva nýja markaði fyrir afurðir sínar. Cargolux flaug tvær ferðir í september fyrir Bæjar- útgerðina vestur um haf til vestur- strandar Bandaríkjanna. Farmur- inn var í hvort skipti 10—15 tonn af ýsu og karfa, og flaug vél Cargolux frá Luxemburg til íslands þar sem fisknum var lestað í vélina og síðan flogið til San Fransisco og loks til Seattle þar sem fiskafurðirnar voru affermdar. Flutningafyrirtækið Cosmos sem er dótturfyrirtæki Haf- skips sá um alla pappírsvinnuna varðandi þessa flutninga. Er nú í bí- gerð að Bæjarutgerðin haldi þess- um fiskútflutningi áfram í samstarfi við sömu aðila. . . c ^^P'tuðningur hins almenna borgara við verkfall ríkisstarfs- manna var með ýmsu móti, svo og ýmissa fyrirtækja sem sýndu því velvild. Má geta að öll dagblöðin nema Morgunblaðid buðu verk- fallsfólkinu ókeypis áskrift út þetta ár. Einnig er vert að geta framlags eins hjólbarðaverkstæðis í borginni til ríkisstarfsmanna. Það bauð fólk- inu nýja hjólbarða og umfelgun á vetrardekk út á krít, sem ekki þarf að greiða fyrr en komið er fram á næsta ár. Að vísu munu ekki margir BSRB-menn hafa notað sér þessa greiðvikni hjólbarðamannsins enda höfðu margir þeirra á orði að þeir hefðu hvort eð er ekki efni á að kaupa sér bensín á bílana sína, hvað þá meira. En altént var þetta góð viðleitni hjólbarðamannsins og ber vissulega að virða hana... l^Hinangrun gamla fólksins var mikil í nýafstöðnu verkfalli ríkis- starfsmanna, eins og Albert Gud- mundsson fjármálaráðherra minntist réttilega á í tölu sem hann hélt þegar staðið var upp frá samn- ingaborðum á þriðjudagskvöld. Ráðherrann lét þó vera að geta framtaks sem andstæðingar hans í samningalotunni stóðu að síðustu daga verkfallsins með myndarbrag. All margir starfsmenn sjónvarps, út- varps og leikarar tóku sig til og sömdu skemmtidagskrá sem þeir fóru með og fluttu á öllum elliheim- ilum höfuðborgarsvæðisins um síð- ustu helgi, og má nærri geta hver fögnuður gamla fólksins hafi verið. Það var þakklátt og líkaði vel þetta framtak verkfallsfólksins. . . | siðasta blaði greindum við frá forvitnilegri viðtalsbók Eddu Andrésdóttur við Auði Laxdal, eiginkonu Halldórs Laxness. Við höfum nú hlerað að í þessari bók verði að finna all margar sprengjur ef svo má segja, upplýsingar um fer- il Nóbelshafans, skoðanir hans og ritstörf, sem til þessa hafa verið ókunnar mönnum. Meðal annars munu birtast í bókinni all mörg bréf skáldsins til Auðar, svo og nýjar upplýsingar um viðbrögð þess við Nóbelsverðlaununum og skoðanir þar að lútandi... 8^ ftir að Helgarpósturinn ruddi veginn með prentun erlendis í prentaraverkfallinu hafa ýmis blöð og tímarit athugað sömu leið. Rit- stjóri Mannlífs, Herdís Þorgeirs- dóttir lét prenta tímarit sitt í Hol- landi á síðustu vikum verkfallsins og flytja upplagið til landsins þar sem það var geymt í tollvöru- geymslum ríkisins, og mun væntan- lega koma á markað næstu dagana þar sem verkfall BSRB er nú leyst. Mannlíf er því orðið óvenjulega al- þjóðlegt rit, því aðalefni blaðsins er viðtal sem ritstjórinn tók við Jessie Jackson, hinn þeldökka forseta- frambjóðanda demókrata sem varð að víkja fyrir Walter Mondale. .. v W erkefnaskrá leikhúsanna á þessu leikári mun brenglast eitt- hvað vegna nýafstaðins verkfalls. Þannig mun til að mynda Þjóðieik- húsið skipta um jólaleikrit, en fyrir- hugað var að sýna Ríkharð III. eftir Shakespeare. I staðinn er ætlunin að Skugga-Sveinn fari á fjalirnar um jólin, en sýningum á leikriti Shake- speares seinki. Þá er ljóst að söng- leikur vorsins, Chicago, er dottinn út af dagskrá en hins vegar mun 'hinn vinsæli músíkal, Gæjar og pí- ur, verða tekinn upp á nýjan leik í |vor... Hvenær þarft þú ápeningumaó halda í framtíóinni ? * I Kjörbók Landsbankans verða ekki kaflaskil við úttekt. Það getur verið býsna erfitt að sjá nákvæmlega fyrir hvenær þörf er á handbæru fé í framtíðinni. Þá er lítið öryggi fólgið í því að eiga peninga undir innlánsformi þar sem ávöxtunin lyppast niður við hverja úttekt. Kjörbók Landsbankans rís undir úttektum, ávöxtun hennar er örugg og stígandi. Berðu Kjörbókina saman við tilboð annarra banka. Hafðu í huga að innstæður eru ávallt lausar til úttektar og að allt, sem eftir stendur við úttekt, fær stighækkandi ávöxtun. Þú þarft ekki að stofna margar bækur eða reikninga þó að þú þurfir að hreyfa hluta innstæðunnar á sparnaðartímanum. Leitaðu til Landsbankans. Starfsfólk Landsbankans veitir þér skýrar upplýsingar um hvaða sparnaðarform hentar þér best. KJÖRBÓK LANDSBANKANS EINFÖLD BÓK — ÖRUGG LEIÐ LANDSBANKINN Grœddur er geymdur eyrir HELGARPÓSTURINN 5

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.