Helgarpósturinn - 01.11.1984, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 01.11.1984, Blaðsíða 9
Mynd: International Communication Agency meðan beðið er eitir niðurstöðum af slíkri rannsókn, er hart deilt um hvort tilvist bæklingsins gefi til kynna, að það sé stefna Reagan- stjórnarinnar að bylta ríkisstjórn Nigaragua og þá um leið forsetans sjálfs. Reagan hefur passað sig og segist ekkert ætla að gefa út um þetta mál fyrr en að lokinni rannsókn. Walter Mondale hefur m.a. gert sér mat úr stefnu Reagans í Mið- Ameríku í almennri gagnrýni sinni á harða hægri stefnu forsetans. Það er þessi almenna gagnrýni af gamla skólanum sem nú er að verða hvað fyrirferðarmest í málflutningi mót- frambjóðandans. Hann ásakar Reagan um skort á mannúð og umhyggju fyrir þeim sem minna mega sín, um eiginhags- munastefnu, „þessa græðgi, þessa keppni í að hugsa eingöngu um sjálfan sig“. (framhaldi af því gagn- rýnir Mondale niðurskurð forsetans á fjárframlögum til almannatrygg- inga, menntamála og málefna aldr- aðra og fatlaðra. Þessi gagnrýni bergmálast svo í gagnrýni Gerald- ine Ferraro, sem notar hvert tæki- færi til að útmála forsetann sem kaldlyndan og afskiptalausan for- seta, sem sé sama um atvinnuleysið og þær raunir sem fólk hafi gengið í gegnum vegna stefnu hans. Reagan hefur einfaldlega sagt að meirihluti Bandaríkjamanna hafi það betra en fyrir fjórum árum. Skoðanakannanir styðja þessa stað- hæfingu forsetans. Könnun sem vikuritið Newsweek birti um síð- ustu helgi leiddi t.d. í ljós, að 60% þátttakenda treysti Reagan betur til að viðhalda velmegun í landinu, en aðeins 32% töldu Mondale hæfari til þess. í sumum könnunum taldi meirihluti fólks að Reagan væri hæfari til að halda Bandaríkjunum utan við stríðsátök og jafnvel til að ná raunhæfum vopnasamningum við Sovétríkin, en á því sviði hafa Mondale og Ferraro hvað harðast gagnrýnt forsetann fyrir fram- taks- og úrræðaleysi. Reagan hefur ekki svarað þessari gagnrýni. Hann fer í flæmingi undan fjölmiðlum og hefur ekki lagt í að halda blaða- mannafund síðan í júlí. En skoðanakannanir gefa til kynna að fólki virðist Reagan á all- an hátt frambærilegri leiðtogi; hann hafi almennt betri skilning á mál- efnum lands og þjóðar, hann auki á sjálfsvirðingu þjóðarinnar og sé ákveðinn og sterkur forseti. Þessum skoðunum á forsetanum vill Mon- dale nú breyta, en möguleikarnir á að honum takist það fara þverrandi, því tíminn hleypur frá honum. Eitt athyglisverðasta atriðið í þró- un kosningabaráttunnar er styrkur þessa aldna forseta, Reagans, með- al yngstu kjósendanna, fólks á aldr- inum 18 til 24 ára. Þar er forskot hans á Mondale stærst. Þrítugur demókrati, sem við hittum hér í Chi- cago, Jeff Grinspan, sem ætlar að bjóða sig fram sem fulltrúa í orku- ráð Chicago-borgar, varpaði fram hugsanlegri skýringu á þessari þró- un og sagði að unga fólkið hefði ekki kynnst annarri pólitík en póli- tík Reagans. „Þetta fólk er líka miklu sérhlífnara en ungt fólk fyrir tíu árum eða svo. Það vill fá sinn part af kökunni. Þetta er ,,líka-ég“- kynslóðin. Nú fara allir í viðskipta- fræði." Það er mál manna hér að Gerald- ine Ferraro hafi komið sterk út úr viðræðuþætti sínum og George Busch varaforseta. Busch hefur átt fremur erfitt uppdráttar, verið mis- tækur á blaðamannafundum og hlotið litla og fremur neikvæða um- fjöllun í fjölmiðlum. Þetta virðist þó ekki hafa haft nein áhrif á vinsældir Reagans. Um Geraldine Ferraro, sem aldrei er kölluð annað en Gerry, gegnir nokkuð öðru máli. I upphafi, þegar hún hlaut útnefninguna á flokks- þingi demókrata í sumar, sagðist fólk fremur myndu kjósa Mondale af því að hún fylgdi með í pakkan- um. Þetta breyttist. Nú segjast mun færri láta framboð hennar ráða því hvort þeir kjósa Mondale eða ekki. Ástæðan fyrir dvínandi fylgi Ferr- aro er tvíþætt. Hún hefur þótt leika tveim skjöldum í afstöðu sinni til fóstureyðinga (er persónulega á móti þeim, en er ekki á móti þeim í atkvæðagreiðslum á þingi) og eins hafa ásakanir um meint misferli í fasteignaviðskiptum á hendur eig- inmanni hennar, John Zaccharo, valdið deilum. Ferraro kom fram í klukkutíma umræðuþætti hjá CBS hér í Chicago á þriðjudag. Þátturinn, Phil Dona- hue Show, höfðar einkum til kvenna og var sendur beint út í Illi- nois, en kom ekki fyrir sjónir ann- arra Bandaríkjamanna fyrr en í gær, miðvikudag. Helgarpósturinn var viðstaddur útsendinguna í sjón- varpssal og að dómi viðstaddra tókst Ferraro vel að berja frá sér ásakanir sem beinast að eiginmanni hennar. Þegar hún var spurð hvaða áhrif þessar ásakanir hefðu haft á fjölskyldu hennar, svaraði hún því til að þær hefðu sært mann hennar og móður. „Ég verð allt mitt líf að bæta manninum mínum þetta upp og mömmu og börnunum," sagði hún. Þegar hún var spurð að því hvort hún sæi eftir því að hafa farið fram, sagði hún: „Ef ég hefði vitað fyrir fram hvernig kosningabaráttan myndi særa ástvini mína, þá hefði ég sennilega sagt nei þegar ég var beðin um að vera með. Repúblik- anar vissu ekki almennilega hvern- ig þeir ættu að bregðast við mér, fyrstu konunni í varaforsetafram- boði, og þeir tóku þann kost að reyna að koma höggi á mig með því að ráðast gegn fjölskyldu minni, en ég held ekki að það hafi skaðað framboð mitt.“ Ferraro gerði ítarlega grein fyrir skattahugmyndum demókrata í sjón- varpsþættinum. Hugmyndirnar miða að því að minnka hallann á fjárlögum og felast einkum í stig- vaxandi tekjuskattsaukningu á há- tekjur. Þeir sem hafa 25 þúsund dollara í árslaun (u.þ.b. 750 þúsund krónur) eða meira þyrftu að borga nokkru hærri tekjuskatt samkvæmt þessum tillögum. Stuðningsmenn Mondales og Ferraros styðja þessar tillögur um tilfærslu á fjármunum frá ríkum til fátækra og telja mikla þörf á þeim." „Ég ætla að kjósa Mondale, það er klárt mál,“ sagði John nokkur Crawford, rúmlega þrítugur blökkumaður sem selur kádiljaka í miðborg Chicago við okkur. „Ég vil heldur borga hærri skatta og lifa þess lengur í staðinn." Kosningabaráttan hefur semsé beinst æ meir inn á hefðbundnar pólitískar brautir, spurningar um hægri eða vinstri. Mondale virðist í sífellt ríkara mæli gefa tóninn fyrir umræðuna. Ronald Reagan segist ætla að halda áfram næsta kjör- tímabil á svipuðum nótum og hing- að til. Hann ætlar að skera niður á fjárlögum, fækka reglugerðum og reyna að semja við Sovétmenn um leið og hernaðaruppbyggingu verð- ur haldið áfram af miklum krafti. Walter F. Mondale leggur nú allt kapp á að ná undirtökunum í stór- iðjuhéruðum miðvestur- og norð- austurríkjanna. Hann er sagður þurfa að vinna í ríkjum eins og Pennsylvaníu, Ohio, Michigan og Illinois til að eiga einhverja mögu- leika. Könnun sem gerð var í Was- hingtonríki, sem einnig er stóriðn- aðarríki, kveikir vonarglóð hjá stuðningsmönnum Mondales. Hún sýndi að bilið milli frambjóðjend- anna hafði mjókkað niður í 6%. Og Mondale hefur vinningin í stórborg- um fyrrnefndra iðnríkja. En hvort þeir yfirburðir koma til með að breiðast út yfir landsbyggðina kem- ur í ljós þegar atkvæði verða talin á þriðjudagskvöld hér vestra. Bandarískir kosninga- fundir eru ótrúlega hömlulausar samkomur. Ræður fram- bjóðendanna drukkna í óp- um og lófataki stuðnings- fólksins. Stemmingin er eins og á íþrótta- kappleik eða rokktón- leikum, fólk sleppir hrein- lega fram af sér beislinu. HELGARPÓSTURINN 9

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.