Helgarpósturinn - 01.11.1984, Blaðsíða 20

Helgarpósturinn - 01.11.1984, Blaðsíða 20
PAQÍé DRAUMUR EÐA DRULLA? eftir Jóhönnu Sveinsdóttur „Við vöðum drullu upp að hálsi - Nous sommes dans la merde jusqu’ au cou!“ er al- gengt tilsvar franska meðal- jónsins í dag, þegar hann er inntur eftir stöðu sinni og þjóð- arinnar t.d. á bar i París. „Drulla, drulla!” má oft heyra túrista æpa úti jaft sem inni þar í borg, rétt eins og Bubba kóng. Þeim sem þekkja París lítt eða ekki dettur yfirleitt ekki drulla fyrst í hug þegar hún er nefnd á nafn, heldur heimsins besti matur og vín, blóðheitir og ridd- aralegir elskhugar, can-can- dansmeyjar uppi á boröum, fal- leg föt og ilmvatnsangan. En ekki eralltsem sýnist... Byrjum á karlmönnunum! DDULLA HINNAQ GESTKOM- ANDI: ELLADNID í PADÍS „Kvenfrelsi" í þeim skilningi sem þekkist á íslandi er óþekkt í Frans. Mín reynsla er sú að karlmanns- laust kvenfólk eigi heldur erfitt uppdráttar á götum úti og á opin- berum stöðum. Það er sama hvort konan er ein eða í hópi kynsystra sinna á gangi úti á götu í París. Þær geta alltaf átt von á að lítill, ljótur, hallærislegur naggur vindi sér að þeim og spyrji: „Eruði bara aleinar úti að spássera, ungfrýr góðar!? Má ekki bjóða ykkur mitt vemdandi kompaní?" Þess vegna er vissara fyrir allt kvenfólk „eitt“ á ferð að koma sér upp ákveðnu göngulagi, gjaman þyngslcúegu, hörðum dálítið kæm- leysislegum andlitsdráttum, um að gera að vera kúl og töff, gjaman púkó líka. Barnalegi undmnar- og sakleysissvipurinn er algjör bann- vara ef flóarfriður á að fást. Gott að ganga alltaf með regnhlíf. Einu sinni barði ég þrjá gaura með regn- hlíf sem áreittu mig á bar, eftir að hafa fyrst reynt að þegja þá af mér, síðan að brúka kjaft. Við þetta urðu þeir auðvitað hlessa og höfðust ekki að, en ég stikaði í burtu á rosabullum. Af þessum sökum þótti mér heldur en ekki fréttir að þær Henríetta og Rósamunda, cilias Edda Björgvinsdóttir og Helga Thorberg, skyldu hafa skipulagt og fararstýrt 3x30 kvenna ferðum sl. sumar til Parísar á vegum Sam- vinnuferða. - Upphaf þessarar ævintýramennsku var að Helga dvafdist fyrir nokkrum ámm 4 daga í París og var eftir það, þótt hún hafi ekki þorað að tala um það opinskátt, síþráandi „þessa gegn- umgangandi rómcintík, fegurð, töfra, sögu“. Hún linnti ekki látun- um fyrr en Edda vinkona og nokkr- ar aðrar börðu dýrðina augum í fyrra sumar. Edda segist ekki hafa upplifað sjarma Parísarborgar samstundis. „Ég hélt að borgin og fólkið væri mýkra og hlýlegra. Ég var rasandi yfir að menn skyldu voga sér að vera með þennan dæmalausa fýlu- pokahátt við útlendinga sem samt sem áður gerðu sér far um að tala þetta fyrrverandi heimsmál, frönskuna." En Helga smitaði Eddu af París- arbakteríunni samt sem áður og þær héldu aftur tii Parísar í vor og vissu svo varla fyrr til en þær vom komnar út í ferðamannabransann. „Hvort við yrðum ekki fyrir ástreitni? O, jú, jú. Samkvæmt róm- anskri hefð heldur hvimleiðri þykir frönskum karlmönnum sjálfsagt að sýna kvenfólki opinskáan áhuga, sem síðan getur breyst í ástreitni eða áreitni eftir aðstæð- um. Þetta vissum við svo sem fyrir. En að ókunnugir kcirlmenn skuli voga sér að halda yfir manni siða- predikcinir við ólíklegustu tæki- færi, það þótti okkur fulllangt gengið." Helga var t.a.m. með tveggja ára son sinn með sér á daginn. Pétur og Páll sáu ástæðu til að stoppa hana og spyrja í þaula: „Hvað er þetta, á barnið engan föður?“ (Undarlegt að móðirin skyldi hafa eintómar konur í kringum sig.) Sér- deilis erfiðir vom þó leigubílstjór- ar. Ævinlega fékk hún frá þeim móralskan fyrirlestur um mikilvægi þess að mæðumcir væm heima hjá börnunum, þótt hún reyndi að benda þeim á að hún væri nú ein- mitt með barnið og reyndar biðu allir ættingjarnir heima í íbúð. trJá, það þarf hvorki meira né minna en 30 íslenskar konur til að lama - köllum það ekki náttúm - heldur ástreitni franskra karl- manna. Þá verða þeir loks heima- skitsmát," segir Helga. „Þegcir við tvær komum t.d. inn á veitingastað í stuttbuxum og með tagl (semsé ekki alveg klæddar á la parisi- énne), fýldu þeir grön og veltu greinilega fyrir sér hverslcigs eigin- lega himpigimpi við værum. En þegar við sögðum hæversklega vera að panta borð fyrr 30 konur, urðu þeir hvumsa en við átórítet." Hins vegcir ríkti eins konar stríðsástand á hótelinu þar sem allur kvennahópurinn bjó. „Þrjátíu konur einar í París, og mennimir heima að passa bömin! Hvemig dirfist þið! Ffvemig þora þeir\“ Já, flestir frcinskir kcirlmenn líta enn á konur sem hluta af umhverf- inu og hafa því sínar skoðanir á því hvernig þær eigi að sitja og standa. Því er það, að vilji konur upplifa þessa dásamlegu borg afslappað með öllum skilningarvitum er æskilegt ef ekki bara nauðsynlegt að vera í fylgd karlmanns. Hann má vera lítill og ljótur, bara ef hann hefur typpi. Þó dugar kcirlmcinnsvemd ekki alltaf til að konur fái að vera í friði fyrir á/ástreitni franskra karl- manna. Sl. september var ég t.d. einu sinni sem oftar á bar ásamt karlkyns vini mínum. Það var alveg óvefengjanlegt að ég var þarna undir hans „vernd". Scimt kom Frakki nokkur og settist óboðinn við borðið hjá okkur eftir að hafa, ásamt fleimm, blikkað mig á leið- inni á klósettið. Hann ávarpaði fylgdarmann minn, benti á mig og sagði: „Það er allt í lagi að þú drekkir kaffi og koníak og reykir sígarettur, en ekki hún!“ Þegar ég stóð svo uppi við skenicinn á sama bar til að borga og spjalla við gömlu hjónin sem áttu barinn og tuttugu ára gamla svarta fressköttinn þeirra sem hafði gert sér sérlega dælt við mig, gaf annar gaur sig á tal við mig með því að gefa í skyn að ég væri mella. Ástæðan fyrir þeirri skoðun hans var einfaldlega sú að ég stæði „ein“ snakkandi við skenk á bar að kvöldlagi. Fylgdarmaður minn sat í seilingarfjcirlægð. N’importe. Þá fylltist ég auðvitað heilagri reiði og hélt fyrirlestur um stöðu kvenna á íslandi og byrjaði að sjálfsögðu á Vigdísi Finnbogadóttur, sem ævin- lega kemur að góðu gagni í Frans. Á endanum fór svo að ég bauð þess- um Ellum upp á rauðvín, skálaði við þá og ræddi um drulluna sem þeir segjast vaða upp að hálsi og kvaddi þá svo með virktum. KLÓSETT — HUNDASKÍTUB - 6ÓDP Frcikkar hafa býsna ólíkan hrein- lætisstaðal þeim sem t.am. hinir sterilíseruðu og bakteríuhræddu Skandinavar hcifa. Hvað eigin líkama varðar „þrífa" margir sig fremur með ilmvötnum og spray- um en vatni og sápu, rétt eins og á dögum Lúðvíks fjórtánda. Jafnframt er nóg af eiginlegri drullu í Pans og öðrum frönskum borgum. Ber þar fyrst að nefna hundaskítinn sem þekur að mestu gangstéttir borgarinnar: gulur, grænn, svcirtur og brúnn, jafnvel rauður. Hundaskítur vex í réttu hlutfalli við fækkandi bameignir. Jacques Chirac borgarstjóri París- ar er að vísu búinn að koma sér upp öflugum hundaskítsiyksugum en þær duga skammt og þær ná heldur ekki niður að Signubökkum þar sem rómantískir elskendur eiga það sterklega á hættu að setj- ast eða leggjast ofcin í vænar hundciskítsslummur... Klósettin eru upp og ofan. Sum koma mjög tyrkneskt fyrir sjónir: gat í gólfinu og tveir fótstöplar beggja vegna við. Salernispappír vantar oft og er vissara að ganga með rúllu á sér. Einn kunningi minn sem hafði búið í Frans í mörg ár, var eitt sinn tekinn í alvarlegt tékk í tollinum í Keflavík. Ekki fundust á honum vímugjafar neinir en hálfa klósettpappírsrúllu bar hann í brjóstvasanum er vakti furðu tollvarða. Vel ef hún var ekki efnagreind. Chirac borgarstjóri og erkigaull- isti má þó eiga að á sl. 3 - 4 árum hefur honum tekist að sorptunnu- væða París. Áður fyrr báru menn rusl úr húsum á hverju kvöldi plastpokum, sumir í loklausum litlum ruslafötum, margir um- búðcilaust. Nú standa hins vegar risastórar gráar ruslatunnur með appelsínugulu loki fyrir utan hvert hús og er að þeim sannkölluð prýði. Chirac hefur líka látið setja upp víða um borgina sérstaka tanka græna undir glerílát. Þannig getur t.d. rauðvínssvelgurinn feng- ið „ökólógískt kikk“ með því að setja tómu flöskuna sína snyrtilega í tankinn og fengið móralskan stuðning við að afmeyja nýja flösku. Síðan eru glerin seld og ágóðinn látinn renna til krabbameinsrann- sókna. Hvers vegna ekki til rann- sókna á lifrarsjúkdómum eðaSÁÁ? DDULLA FDAN6KA MEÐALJÓNSINS Þegæ ég spurði Ellana mína á kaffihúsinu hvaða drullu þeir ættu við, svöruðu þeir fyrst: irJa, þú sérð hana sjálf, út um allt!" Ég svaraði í stríðni: „Þið meinið þá hundaskít- inn!“ Nei, auðvitað meintu þeir útlendingana, aðallega .Jielvítis arabana", farandverkamennina. Þeir vildu ekki viðurkenna að far- andverkamennirnir væru eðlileg afleiðing fyrrum nýlendukúgunar Frakka í Norður-Afríku. Nei, nei, þetta væri bara afleiðing svívirði- legrar undanlátssemi franskra ráðamanna á seinni tímum. „Þetta hefði de Gaulle sko aldrei liðið!" segja þeir og berja í borðið. Hvað sé til ráða? „Styðja Le Pen, auðvitað. Kjósa hann sem næsta forseta helst. Hann er eini maður- inn sem er til í að moka skítinn með skóflum sem duga!“

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.