Helgarpósturinn - 01.11.1984, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 01.11.1984, Blaðsíða 8
Símamynd: Jim Smart/HP/UPI Geraldine S. Ferr- aro kemur til Chi- cago mánudags- kvöld. Hún og Mondale heyja nú kraftmikla en von- litla barattu í iön- aðarborgum miö- vesturríkjanna sem venjulega eru sterk vígi demókrata. Ronald Reagan, forseti Bandaríkj- anna, hefur aðal- lega haldið sig í Hvíta húsinu í kosninga- baráttunni. Hann hefur aðeins hald- ið þrjá kosninga- fundi í Penn- sylvaníu og Vestur-Virginíu s.l. mánudag. Engu að síður er honum spáð stór- sigri í kosning- unum n.k. þriðju- dag og sjálfur hef- ur hann sagt að kosningarnar verði söguleg kaflaskipti í bandarískum stjórnmálum. Blysförin hófst meö flugelda- sýningu milli skýjakljúf- anna. Síðan var 10 þúsund fánum og 3—5 þúsund blysum brugö- ið á loft, 50 skreyttir vagn- ar runnu af stað og 20 lúðrasveitir hófu að leika göngumarsa. 8 HELGARPÓSTURINN Þriðjudagskvöld í Chicago. Vika til kosninganna 6. nóvember. Walt- er F. Mondale, forsetaframbjóðandi demókrata, kemur til þessarar vindasömu borgar við Michigan- vatn eftir sérstaklega velheppnað- an kosningaleiðangur um Kyrra- hafsríkin Washington, Oregon og Kalforníu. Nú á að reyna að hamra járnið þar sem það virðist einna heitast fyrir Mondale, í iðnaðarhéröðum Mið- vesturríkjanna þar sem umtalaður efnahagsbati Reagan-stjórnarinnar hefur enn ekki litið dagsins ljós. En að flestra dómi berst Walter Mon- dale nú vonlítilli ef ekki vonlausri baráttu. Nýjustu skoðanakannan- irnar, sem birtust í Chicago-blöðun- um á mánudag og þriðjudag, gefa til kynna, að hann geti alveg eins pakkað saman og haldið heim til Minnisota. Þær sýna að bilið milli frambjóðendanna hefur enn breikkað og að einhvers staðar virðast nú 16—20 af hundraði fleiri ætla að kjósa forsetann heldur en Mondale mótframbjóðanda. Allt út- lit er fyrir stórsigur hins 73 ára gamla forseta. En í stað þess að láta sér fallast hendur, hefur Mondale þvert á móti hert róðurinn í kosningabaráttu sinni. Kosningalið Mondales segir okkur að aðsókn að kosningafund- um hans við Kyrrahafið um og eftir helgina hafi verið meiri en nokkru sinni fyrr í baráttunni og undirtekt- irnar á fundunum á lokasprettinum verði hressilegri með hverjum deg- inum sem líður. Mjög bjartsýnn forseti Ronald Reagan hefur aðallega haldið sig í Hvíta húsinu þessa dag- ana, en hélt þó þrjá kosningafundi í Pennsylvaníu og Vestur-Virginíu á mánudag. Hann er að vonum bjart- sýnn og er farinn að spá því að kosningarnar leiði í ljós söguleg kaflaskipti í bandarískum stjórn- málum, að á kosningadaginn „komi fjöldinn allur af demókrötum yfir í okkar raðir í fyrsta skipti". Mon- dale-fólkið hefur allt aðra sögu að segja. „Sigurgangan er hafin. Hún byrjar hér í Chicago," sagði Edward R. Wrdolyak, formaður demókrata- flokksins í borginni á þriðjudag, á stórkostlega litríkum kosningafundi í Medina Temple, fimmþúsund manna sal í miðborg Chicago. Hvert sæti í salnum var skipað og flestir veifuðu borðum og spjöldum með slagorðum Mondales og Geraldine S. Ferraro, varaforsetaframbjóð- anda demókrataflokksins. Undanfari kosningafundarins í Medina Temple var hefðbundin blysför demókrata um miðborg Chi- cago. Þessi blysför, Torch Light Parade, var síðast farin fyrir forseta- kosningarnar 1976, þegar Jimmy Carter náði kjöri... og Walter Mondale einnig, þá sem varaforseti. Óvæntur sigur eins og 1948? í hugum demókrata hefur þessi blysför táknræna sögulega þýð- ingu. Fyrir rúmum tuttugu árum fór sigursæll frambjóðandi, John F. Kennedy, fyrir göngunni, og síðustu daga hefur Walter Mondale verið óþreytandi að minna fólk á hver gekk hér í broddi fylkingar eftir að- albreiðgötu borgarinnar, Michigan Avenue, í göngunni 1948. Þetta var Harry S. Truman. Truman sigraði frambjóðanda repúblikana, Thomas Dewey, í forsetakosningunum 1948 eftir að skoðanakannanir höfðu spáð Dewey sigri fram á síðasta dag kosninganna. Nú segjast demókrat- ar ætla að leika sama leikinn. Blysförin var skrúðganga og hófst með flugeldasýningu milli skýja- kljúfanna. Síðan var 10 þúsund fán- um og 3—5 þúsund blysum brugðið á loft, 50 skreyttir vagnar runnu af stað og 20 lúðrasveitir hófu að leika göngumarsa. Tugþúsundir tóku þátt í blysförinni og gengu að fund- arsalnum, þar sem úti hafði verið komið fyrir þremur risastórum sjón- varpsskermum fyrir þá sem ekki komust inn. „Metþátttaka í sögu blysfararinnar," sögðu skipuleggj- endur. Fremstur fór Walter Mondale, brosandi út að eyrum og veifaði til fjöldans. Brosið lýsti í senn óbilandi og næstum barnslegri bjartsýni og þrjósku. Norskri þrjósku sjálfsagt, því Mondale er af norskum ættum. I fylkingarbrjósti með Mondale voru 18 aðrir leiðtogar demókrata og f kjölfarið komu 300 kjörnir demókratar úr stjórnkerf i borgar og sýslu, auk fjölda verkalýðsforingja og fulltrúa ýmissa borgaralega sam- taka. Öryggisverðir skiptu hundr- uðum. „Þegar Ronald Reagan sér blys- förina okkar er vel líklegt að hann fari að ókyrrast," sagði Walter Mon- dale inni á fundinum. „Hann til- kynnti í dag að hann myndi beina kosningabaráttu sinni hingað næstu daga. Hann heyrir fótatakið í Chi- cago, lllinois!" „ We want Fritz!“ Bandarískir kosningafundir eru ótrúlega hömlulausar samkomur. Ræður frambjóðenda drukkna í óp- um og lófataki stuðningsfólks þeirra á 30 sekúndna fresti. Stemmingin er eins og á íþróttakappleik eða rokk- tónleikum, fólk hreinlega sleppir fram af sér beislinu. „We want Fritz! We want Fritz!" glumdi í salnum hvað eftir annað undir ræðum Mon- dales. Tvisvar stóðu fundargestir upp til að hylla forsetaframbjóðand- ann. Mondale hvetur fólk til að taka ekki mark á skoðanakönnunum núna. „Forsetinn er ekki kosinn í skoðanakönnunum — fólkið kýs forseta," hamrar hann á í hverri ræðunni á fætur annarri. „Við snú- um þessum forsetakosningum við, nákvæmlega eins og Truman gerði í kosningunum 1948,“ sagði hann á fundinum í Chicago. „Mig langar að tilkynna það hér og nú,“ segir hann, „að það er eitthvað á seyði sem skoðanakannanir hafa ekki náð enn. Fólk er að vakna til vitundar, það er farið að hlusta, það er farið að kynna sér málin. Því stendur ekki á sama, það vill hafa áhrif. Fólk ætlar að kjósa og við ætlum að vinna þessar kosningar! Þeir sem standa fyrir skoðana- könnunum og fínu vikuritin eru að reyna að segja okkur að kosningun- um sé lokið, að það þurfi ekki að telja atkvæðin. Þetta er rangt. Skoð- anakannanir telja ekki atkvæðin á kjördag." Ronald Reagan jók á forskotið eft- ir seinni umræðuþátt þeirra forseta- frambjóðendanna í Kansas. Kann- anir á vegum stuðningsmanna for- setans sýndu eftir þann þátt að for- skotið hafði t.d. aukist á einum degi um 8% yfir allt landið. Þá skipti Mondale um taktík í bar- áttunni. Fram að þessu hafði Mon- dale í ræðum sínum einkum ráðist á Reagan fyrir lélega stjórn á sviði efna- hagsmála, en þó einkum fyrir gróf og hættuleg mistök í utanríkismál- um. Fyrr í baráttunni varaði Mon- dale einkum við stórkostlegum fjár- lagahalla sem Reagan-stjórninni hefur ekki tekist að ná tökum á. Reagan hefur aftur á móti hamrað á því með ótvíræðum árangri, að eina lausn demókrata á fjárlaga- vandanum verði að hækka skatta. Til skamms tíma réðst Mondale hvað eftir annað á forsetann fyrir árásina á bandaríska sendiráðið í Líbanon og handbókina, sem CIA lét gera um heppilegustu leiðir til að ráða niðurlögum ríkisstjórnar san- dínista í Nigaragua. í þeirri bók var t.d. lagt til að leiðtogar sandínista yrðu drepnir. Reagan hefur sagst vera andvígur öllu slíku enda sé slíkt andstætt forsetatilskipuninni frá 1981, og hann fullyrðir að þeir CIA-menn sem séu ábyrgir fyrir bæklingnum verði látnir víkja að lokinni rannsókn á málinu. Á I

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.