Helgarpósturinn - 01.11.1984, Blaðsíða 28

Helgarpósturinn - 01.11.1984, Blaðsíða 28
A J^T6ðalfundur SAA var haldinn í síðustu viku. Ýmsar breytingar voru gerðar á hinni 36 manna stjórn og hefur margt landsþekkt fólk bæst í stjórnina, svo sem Davíð Scheving Thorsteinsson, iðn- rekandi, Björn Þórhallsson, vara- formaður ASÍ, Jóhanna Sigurdar- dóttir alþingismaður og Stefán Benediktsson alþingismaður. Þrír gengu úr framkvæmdastjórn SÁÁ og í þeirra stað komu þau Valgerð- ur Bjarnadóttir , Friðrik Teó- dórsson, og Þórhailur Þorkell Jónsson endurskoðandi... |k| ■ úverandi formaður BSRB., Kristján Thorlacius, nær sextíu og sjö ára aldri sautjánda þessa mánaðar. All nokkuð er síðan menn fóru að ræða á milli sín um hugsan- legan arftaka þessa dygga liðs- manns samtakanna síðustu 24 ár. Mörg nöfn hafa verið nefnd, en þó eitt oftar en önnur. Það er nafn Ög- mundar Jónassonar, fréttamanns á sjónvarpinu, sem jafnframt hefur gegnt formennsku í Starfsmannafé- lagi sjónvarpsins á síðustu misser- um. Ogmundur þykir hafa allt til að bera sem prýða má formann sam- takanna; hann er mikill mælsku- maður þegar svo ber undir og mál- efnalegur, skeleggur fulltrúi um- bjóðenda sinna, og síðast en ekki síst, þekkt andlit. . . 28 HELGARPÓSTURINN R okamarkaðurinn er nú allur að teygja úr sér eftir hið langa verk- fall bókagerðarmanna og prentara. Ýmsir titlar eru farnir að skjóta upp kollinum sem án efa eiga eftir að vekja áhuga bókaunnenda. Stóra sölubókin í ár verður sennilega við- talsbók Jakobs Ásgeirssonar, blaðamanns á Morgunblaðinu, við Alfreð Elíásson, flugmann, síðar forstjóra Loftleiða og framkvæmda- stjóra Flugleiða. Alfreð var eins og kunnugt er einn af þremur stofn- endum Loftleiða og í bókinni rekur hann sögu fyrirtækisins og samein- inguna við Flugfélag íslands. Bókin er mikill doðrantur og ber nafnið „Alfreðs saga og Loftleiða“. Það er lðunn sem gefur út bókina og búist er við að hún eigi eftir að valda miklum úlfaþyt, því Alfreð Elíasson mun vera mjög óvæginn í sögu sinni. . . O - „ hefur allt frá stofnun verið mjög eignalega sterkt fyrirtæki. Nú mun hinsvegar vera komið svo fyrir fyr- irtækinu, að því er HP hefur eftir heimildum úr innsta hring félagsins, að rekstrarhlið þess er í lamasessi. OLIS stendur nú vægast sagt mjög illa greiðslulega séð, einkum og sér í lagi vegna verkfalls ríkisstarfs- manna og ekki síður vegna ógold- inna skulda ísbjarnarins við það. Föstudaginn 19. október barst fyrir- tækinu orðsending frá viðskipta- banka sínum, þess eðlis að ef það yki ekki hlutafé sitt um 30—35 millj- ónir á næstu mánuðum, myndi bankinn skrúfa alfarið fyrir við- skipti félagsins. Þórður Ásgeirs- son, forstjóri OLÍS, sem komst á toppinn í félaginu vegna tengsla sinna við tvo helstu hlutafjáreigend- ur fyrírtækisins, þá ísbjarnarbræð- ur, þykir nú afar valtur í sessi, enda ekki séð hvernig hann á að geta út- vegað jafri firnamikið hlutafé í fyrir- tækið og banki þess krefst. . . Vetrar hjólbarðar heilsólaöir radial 155x12 165x14 135x13 175x14 145x13 185x14 155x13 185/70x14 165x13 165x15 185/70x13 VEITUM FULLA ABYRGÐ Líttu á okkar verð >tlkflup SÍEXJMÚLA17105 REYKJAVÍK, S.687 377,-ŒlfX 2204. Sími 687377

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.