Helgarpósturinn - 01.11.1984, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 01.11.1984, Blaðsíða 15
bandstæki, og var hvorttveggja lélegt. Var ann- aS grænt, en hitt svart - og tækin þar af leiðandi kölluS Græni djöfullinn og Svarti djöfullinn. En þrátt fyrir frumstæðan tækjakost náði ég með þessu móti ýmsu efni í þættina sem fram að því hafði ekki heyrst á þeim vettvangi. Máttu ekki lognast útaf En upp úr þessu fór að færast í vöxt að tekið væri upp útvarpsefni utan veggja stofnunarinn- ar. Ég man eftir því að Guðrún Helgadóttir, - sem þá var ritari í Menntaskólanum í Reykjavík, en var jafnframt með þátt í útvarpinu - fór út með annan djöfulinn í því skyni að taka fólk tali. Svo skemmtilega vildi til að hún rakst á hífaðan sjóara, heldur betur kátan og fjörugan, sem lét dæluna ganga og sagði mergjaðar sögur. Guð- rún hugði gott til glóðarinnar - eflaust þætti hlustendum matur í frásögnum þessa málglaða viðmælanda. En djöflamir köfnuðu ekki undir nafni; þeir voru sannkallaðir viðsjálsgripir. Lík- lega hefur mér einnig orðið á í messunni þegar ég var að kenna Guðrúnu á bandið. Að minnsta kosti hafði henni láðst að ýta á mikilvægasta takkann! Spjcillið við sjóarann var því rokið út í veður og vind, en hann sjáifur orðinn edrú og óskemmtilegur næst þegar til hcins náðist." - Ætli Örnólfur Thorlacius hafi ekki gegn- um tíðina fyrst og fremst skipað sess í huga þjóðarinnar sem umsjónarmaður sjónvarps- þáttarins rómaða, Nýjasta tækni og vísindi? „Þannig var að sjónvarpinu bárust snemma myndir um vísindalegt efni frá Frakklandi; þetta var lítið í fyrstu og þurfti því ekki að hafa mikið við. Þegar frá leið fjölgaði þessum þáttum, og var bent á mig til að sjá um þá og raða þeim saman. Aðallega var þetta þó þýðingarstarf. Ég aflaði til viðbótar bandarísks efnis, en hvort tveggja voru þetta fyrirmyndarþættir, að mín- um dómi. En þar kom að þættimir fóm í gegn- um krísu og var hætt að framleiða þá; hins vegar kom ekkert í staðinn. Við Sigurður Richt- er, sem sá um þættina með mér, vorum á snöp- um eftir nýju efni í kringum sjötíu og fimm. Eftir nokkra leit, sem ekki hafði borið þann árangur sem skyldi, tilkynntum við sjónvarpinu að við hygðumst leggja árar í bát. En sjónvarpinu var mikið í mun að þættimir lognuðust ekki út af, það tók sjálft að sér að útvega efnið - og hækkaði meira að segja dálítið við okkur kaupið. Seinna dró ég mig svo út úr þessu starfi, og Sigurður sér nú einn um Nýjustu tækni og vísindi “ Públísítet í sjónvarpi Fyrsta árið eftir að þættimir hófu göngu sína birtist ég jafnan á skjánum og kynnti efnið. Ég skildi nú reyndar aldrei hvers vegna það var talið nauðsynlegt. En af þessum sökum fékk ég smjöi'þefinn af því hversu sterkur miðill sjón- varpið er - það þekktu mann bókstaflega allir. Ég man eftir því að ég fór á þessum árum í ferðalag um Vestfirði, en þar var þá enn ekki komið sjónvarp. Það var hreint eins og að vera í útlöndum að því leyti að maður véir algerlega óþekkt andlit - til cillrar hamingju! Annars hafði 'ég gaman af públísítetinu í aðra röndina. Oft vom krakkar að víkja sér að mér og spyrja mig um eitt og annað í ríki náttúmnnar sem þá fýsti að vita og héldu að ég kynni öll svör við. Einu sinni í sundlaugunum kom að máli við mig óvenju spurull strákur, sem sagðist halda mikið upp á þættina, en aftur á móti færi systír sín ævinlega út þegar þeir byrjuðu því hún þyldi ekki pöddur. En fullorðið fólk var líka ódeigt að hafa sam- band við mig, ef á það leituðu spumingar um tækni og vísindi. Otrúlega margir virtust þeirrar skoðunar að ég væri eitthvað annað og meira en réttur og sléttur þýðandi þáttanna, og hægt væri að fletta upp í mér eins og alfræðiorðabók. Fyrir kom að hringt var í mig á nóttunni; það vom þá kannski einhverjir karlar á fylleríi að deila um einhvern f járcinn sem þeir veðjuðu um og vildu að ég kvæði upp úr með. Eins og ég minntist á er sjónvarpið sterkur, en að mínu áliti jafnframt varcisamur miðill. Ég er þeirrar skoðunar að bókstaflega eigi að tak- marka kjörgengi þeirra mcinna sem hafa at- vinnu af því að koma fram í sjónvarpi; það er mjög ójafn leikur hversu þeir eiga auðveldcira með að auglýsa sig en aðrir. Ég segi þetta ekki síst vegna þess að á meðan ég sá um Nýjustu tækni og vísindi lét ég einu sinni hafa mig út í prófkjör. Þess var farið á leit við mig að ég gerði þetta, og ég féllst á það í þeirri trú að ég ætti ekki á hættu að hljóta of mörg atkvæði. Hvorki kynnti ég mig neitt né hafði mig í frammi áður en kjörið fór fram, og litla hugmynd held ég að kjósendur hafi haft um það hvort ég væri ein- hverrar sérstakrar skoðunar eða ekki. Nú, nú, leikar fóru svo að ég lenti í fjórða sæti, og kom sjálfum mér mest á óvart. Þrjú efstu sætin voru bindandi, en innilega var ég þriðja manni þakklátur fyrir að hcifa orðið veildur að því að ég þurfti ekki að fara í framboð. Hugvitsmenn, MR, MH Annctfs fólst starfið hjá sjónvarpinu ekki und- antekningarlaust í þýðingum, þótt svo væri að mestu leyti. Ég tók upp þátt um Jóhannes Páls- son uppfinningamann, sem við höfum núna misst til Danmerkur, þar sem hann hefur getað fundið hljómgrunn fyrir starf sitt. Til dæmis var hann fyrstur til að láta sér detta í hug að hanna öryggislok á Iyfjakrúsir sem ekki eru dýrari í framleiðslu en venjuleg lok. Eftir öðrum hug- vitsmanni man ég sem ég tók upp þátt með. Það er Sturla Einarsson byggingarmeistari, sem byggir með nýrri aðferð, þannig að burðarvegg- ir koma innan á einangrun, en hitasveiflur ná ekki inn á vegginn. Það var oft ansi gaman að vinnu af þessu tagi hjá sjónvarpinu." - Hvernig tilfinning var að koma úr formfest- unni í Menntaskólanum í Reykjavík hingað í frjálsræðið í Hamrahlíðinni? „Það var útaf fyrir sig ósköp auðvelt að koma hingað neðan úr MR, þótt ekki væri nema af því að nokkrir fyrstu kennaramir hér voru þaðan. Þannig voru þetta lítii viðbrigði, þótt auðvitað bættust við fleiri kennarar frá öðrum skólum. Hér hittust því menn með blandaða reynslu, ef svo má að orði komast. Starfið hér í Hamrahlíðinni mótaðist í upp- hafi af því að skólinn var að vissu leyti stofnað- ur sem tilraunaskóli. Hér var bryddað upp á ýmsum nýjungum sem ekki höfðu þekkst áður í íslensku skólakerfi, og má þcir einkum nefna áfangakerfið. Þessir hlutir hafa núna verið inn- leiddir í marga aðra framhaldsskóla, þá aðal- lega fjölbrautaskólana. Það er Guðmundur Amlaugsson sem á heið- urinn af því meira en aðrir að þetta kerfi var tekið upp; ætli það hafi ekki verið haustið 1972. Hann hafði kynnt sér þessi mál erlendis, en lagað svo að aðstæðum hér heima - og ég veit ekki til að nokkurs staðar sé starfræktur menntaskóli með nákvæmlega sama sniði og hjá okkur. Þjóna sinni lund Ekki er að neita að þetta kerfi hefur bæði kosti og galla, en ég held samt sem áður að kostirnir vegi þar þyngra á metunum. í fyrsta lagi er hér fyrir hendi verulega mikið valfrelsi, þannig að nemendur em ekki skyldaðir til að læra allir nákvæmlega það sama, en geta frem- ur þjónað sinni lund, hver og einn, og valið sér fög að meira og minna leyti samkvæmt því sem hugur þeirra stendur til. í hefðbundnu bekkja- kerfi em möguleikamir ekki miklir fyrir valfög; þar þcirf þá að leysa upp bekkina í einstökum kennslustundum. Hér í Hamrahlíðinni var farin sú leið að leysa bekkina einfaldlega upp í öllum kennslustundum, og með því móti er nemend- um gert kleift að setja saman stundatöflu eftir eigin höfði, en auðvitað innan ákveðins ramma. I öðm lagi geta nemendur hér ráðið náms- hraða sínum sjálfir, sem kemur sér bæði vel fyrir þá sem gengur mjög vel að læra og eins fyrir hina sem ai einhverjum sökum þurfa lengri tíma en f jögur ár til að ljúka stúdentsprófi. Áður fyrr var eingöngu hægt að hraða námi sínu með því að hlaupa yfir bekk, eins og kallað er, en það hefur oft reynst helst til stórt stökk. Ég hef sjálfur vissa reynslu af því, þótt ég hlypi ekki beint yfir bekk; eftir tvo vetur í mailadeild skipti ég yfir í stærðfræðideiid, og var það að sjálf- sögðu margháttuðum erfiðleikum bundið. Hérna í Hamrahlíðinni þarí ekki að fara þessa leið, heldur geta menn lagt meira á sig á hverri önn og lokið náminu fyrr. Á hinn bóginn er til í dæminu að sumir ná kannski ekki einu fagi, en gengur prýðilega í öðmm; hér geta þeir haldið áfram í þeim fögum sem þeir hcifa á hreinu, og eingöngu tekið það fcig upp aftur sem þeir féllu í. í hefðbundna bekkjakerfinu hefðu þeir þurft að sitja eftir í öllum fögum. Mér dettur í hug að fyrsta árið sem ég kenndi í MR var þar nemandi sem hafði fallið í stafsetningu og var því nauð- beygður til að fara aftur í sama bekk næsta vetur; ciftur á móti stóð hann sig framúrskar- andi vel í raungreinunum - hafði til að mynda fengið verðlaun sem veitt vom á vegum háskól- ans fyrir eðlisfræðitæki. Ég man hvað mér fannst óréttlátt að þessi piltur skyldi þurfa að beygja sig undir kerfið. En við svona tilvik sleppum við hér. Karlmenn að brasa Vissulega væri gott ef allt væri óaðfinnanlegt hér í Menntaskólanum í Hamrahlíð. Ég minntist áður á að kerfið okkar hefði galla - þeir eru einkum tveir. Anncirs vegar er afleiðing valfrels- isins sú að nemendur eiga á hættu að sitja uppi með slæmar stundatöflur; þær geta verið göt- óttar, mislangar og samhengislausar. Þessu er erfitt að komast hjá, en sífellt er unnið að endur- bótum. Hinn ókosturinn er félagslegi þátturinn; hér em lítil skilyrði til að bekkjcirmórallinn gamcdkunni nái að skapast. Þó er bót í máli að þrátt fyrir að fólk verði að vera hér mikið á milli þess sem það er í tímum, þá em hér rúmgóð húsakynni og aðstaða til félagslífs að flestu leyti ágæt. Ég get nefnt að nemendur hafa einir yfir- ráð yfir svokölluðum Norðurkjallara - rektor hefur ekki svo mikið sem lykil að þeirri vistar- vem... Þegar á heildina er litið held ég að námstil- högunin hér í Hamrahlíðinni hcifi reynst vel;það er svo annað mál að engin knýjandi nauðsyn er að innleiða þetta kerfi okkar í alla skóla á fram- haldsstigi. Það er ábyggilegt að mörgum hefur gengið betur í námi í bekkjakerfinu, og ástæðulaust að afnema það.“ - Víkjum okkur í annað Viðeyjarklaustur, svona í lokin: Miklum sögum fer af þér sem gastrónóm - ekki satt? ,Ætli þær sögur séu þá ekki tilkomnar af því áð ég sá um fáeina matarpistla hjá ykkur á Helgarpóstinum þegar Jóhanna Sveinsdóttir matkráka brá sér einhverju sinni til útlanda! Annars hef ég alltaí haft gaman af matargerð; hér áður fyrr var það talið til tíðinda ef karl- menn vom að fást við að brasa. Ég vann árum saman á vinnustofu í líffræði og þar var vita- skuld minn starfi að vera að blanda saman allra handa efnum. í matargerð er um að ræða ekki ósvipað ferli; það var að minnsta kosti við- kvæðið hjá prófessomum mínum í lífeðlisfræði úti í Svíþjóð. Hann var slyngur matreiðslumað- ur, og hafði þann sið að bjóða heim tíl sín á jólunum í mikinn veislumat sem hann hafði lagað sjálfur. Þama hef ég líklega komist á bragðið, og síðan hef ég einfaldlega fetað mig áfram. Núna er orðið algengara að karlmenn kunni eitthvað fyrir sér í matargerðarlist - ég sker mig ekki úr lengur.“ -Þitt spesjalítet er...? „Drottinn minn dýri! Ég held ég vísi bara á matarpistlana mína í Helgarpóstinum; þar kem- ur greinilega frcim hverjir þessir nokkm réttír eru sem ég kann að búa til. Það ættu að vera hæg heimatökin fyrir þig að fletta þeim upp.“

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.