Helgarpósturinn - 01.11.1984, Side 27
G
erdur Pálmadóttir, kennd
við tískuverslun sína Flóna, hefur
nú haslað sér völl í Skandinavíu með
fataframleiðslu sína og hönnun. Hún
hefur gert samninga um sölu á fatn-
aði sínum til margra bestu tískubúða
Noregs og Svíþjóðar, en þeir komust
á í kjölfar tískusýninga sem Gerður
tók þátt í ytra. Þar vakti hönnun
hennar mikla athygli og var almennt
rómuð. En Gerður lætur ekki við
það sitja að láta aðrar verslanir selja
fyrir sig. Samkvæmt því sem HP hef-
ur heyrt, hyggst hún nú á næstu vik-
um opna glæsilegt útibú Flóarinnar í
miðborg Stokkhólms, r.ánar tiltekið
við Hötorget, þar sem ,iún hefur út-
vegað sér rúmgott húsnæði undir
starfsemi sína. Starfsmenn þessarar
verslunar Gerðar í Svíaríki, verða að
öllum líkindum frá hverj 1 Norður-
landanna fimm, þannig að ekki
verður þessi krafta kaupsýslukona
vænd um að sinna ekki norrænni
samvinnu...
s
^^^ifellt berast fréttir um nýjung-
ar á upplýsinga- og kynningarþjón-
ustumarkaði. Fjölmiðla- og auglýs-
ingafyrirtæki starfsmanna sjón-
varpsins, sem nefnist Myndvarp,
hefur nú í hyggju að gera kennslu-
þætti á myndböndum um stjórnun
fyrirtækja. Inn í kennsluna verður
stungið kynningu á fyrirtækjum í
auglýsingaformi. Snældur þessar
verða sendar 500 stærstu fyrirtækj-
um landsins endurgjaldslaust, en
fjármagnað með auglýsingatekjum
af kynningarinnskotum. Aðal hugs-
uðurinn og höfundurinn á bak við
þessa kennsluþætti er Jóhann
Briem og hyggst hann með þessu
móti auðvelda samstarf minni fyrir-
tækja við hin stóru, ekki síst hvað
varðar auglýsingar. Fyrsta spólan
verður tilbúin um miðjan nóvemb-
ermánuð. . .
K
■ ^^ennarastéttin er ævareið út
í nýgerða BSRB-samninga. Telja
kennarar að það hafi verið til lítils
að færa jafnmiklar fórnir í verkfall-
inu fyrir jafnlitlar kjarabætur. Æst-
astir munu kennarar vera útí for-
mann sinn hjá Kennarasamband-
inu, Valgarð Runólfsson, fyrir að
samþykkja samningana. Funda nú
kennarar stíft um land allt og munu
fjöldauppsagnir í gangi og þær síð-
an sendar trúnaðarmönnum.. .
JL*..............
staddir eftir langvarandi verkfall.
Sjávarútvegurinn hefur þurft að
þolá mikið tjón, ekki síst vegna
loðnuskipanna sem hurfu á erlend-
an markað í verkfallinu. Nú er von
á kjarabótum til sjómanna sem sam-
svara launauppbót launþega í landi.
Samhliða kauphækkun sjómanna
hefur verð á íslenskum fiskafurðum
lækkað á erlendum mörkuðum.
Þannig hefur til dæmis loðnuverðið
lækkað um helming og síldin hefur
einnig fallið í verði. Þessar stað-
reyndir auka enn líkurnar á verð-
bólgu, og þykir ljóst að bráðlega
verði ríkisstjórnin að grípa til mjög
stórvirkra aðgerða ef á að halda
verðbólgunni niðri. HP heyrir nú úr
herbúðum ríkisstjórnarinnar að fyr-
irhugað sé að stöðva allar opinber-
ar framkvæmdir á þessu ári og ef til
vill einnig á því næsta.. .
||
H ■ elgarpósturinn greindi frá
ferð Bubba Morthens á friðarhá-
tíðina í Stokkhólmsóperunni í síð-
asta blaði, en hátíðin var haldin síð-
astliðinn laugardag. Við getum nú
greint frá því að fulltrúi okkar stóð
sig með miklum ágætum í óper-
unni. Að dæma af blaðagagnrýni
eftir „sjóið“ skyggði hann meira að
segja á marga frægustu listamenn
heims sem komu fram þetta kvöld.
Einu útbreiddasta dagblaði Svía,
Expressen, fannst tildæmis ekki
ástæða til þess að geta nema þriggja
atriða á dagskránni í skrifum sínum
um hátíðina, barnasöngflokks,
óperusöngvarans Nicolai Gedda
og okkar manns, Bubba. Sagt var í
blaðinu að framlag hans hefði að
vísu stungið í stúf við annað efni há-
tíðarinnar, en engu að síður hefði
leikur hans verið eitt eftirminni-
legasta atriðið á dagskránni, ein-
kennst af krafti og leikni í þeirri teg-
und tónlistar sem íslendingurinn
hefði haft fram að færa. í sambandi
við þessa friðarhátíð í Stokkhólmi
má svo geta þess að lokum, að
sænska sjónvarpið tók hana upp í
heild og er því ekki að vænta ann-
ars en við fáum að sjá þetta efni í
sjónvarpi okkar, ef marka má hvað
sú stofnun kaupir að jafnaði mikið
af efni úr þeirri áttinni. ..
ÞÚHEFUR ÞRIÁR GULLVÆGAR ÁSEÆÐUR TTLAÐ VEUA
INNLÁNSREIKNING MEÐÁBÓT
TILÁVÖXrUNAR SPARMÁR ÞÍNS:
Þér bjóðast fyllstu vextir, 10,1%, 5trax í fyrsta mánuði eftir 5tofnun reiHningsm
2. Þér býðst fast að 28% ávöxtun á 12 mánuðum.
w'----------;----------------
ö:' Þú mátt taka út hvenær 5em er án þe55 að áunnir vextir sHerðist.
w fiotaleg tilhugsun, eHHi satt?
EKKISTIGHÆKKANDI
InnlánsreiHnigur með Ábót þýðir eHHi stighæHHandi ávöxtun
og þar með margra mánaða bið eftir hámarHinu, heldur fylbtu vexti 5trax
í fyrsta mánuði eftir innlegg.
SKÍNANDIÁVÖXTUN, STRAX.
ÁBÓT
A VEXTI
GULLS ÍGILDI
ÚTVEGSBANKINN
EINN BANKI • ÖU MÓNUSTA
/STURINN 27
Gylmír