Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 08.11.1984, Qupperneq 2

Helgarpósturinn - 08.11.1984, Qupperneq 2
FRÉTTAPÓSTIIR Samiö í deilu ASÍ og VSÍ Nýr kjarasamningur milli aðildarfélaga Alþýðusam- bands íslands og Vinnuveitendasambands íslands var und- irritaður klukkan að ganga 19 á þriðjudaginn. Þá hafði samningafundur staðið samtals í um 32 klukkustundir eða frá klukkan tíu á mánudagsmorgni. Samningurinn gerir ráð fyrir liðlega 24% launahækkunum yfir samningstíma- bilið sem gildir til loka næsta árs með uppsagnarákvæði í byrjun september 1985. Með samningnum verður unnt að afnema hið svokallaða tvöfalda launakerfi, sem Alþýðu- sambandið lagði mikla áherslu á að hægt yrði. Breytingar á ríkisstjórninni Miklar umræður hafa verið um styrk og stöðu ríkis- stjórnarinnar eftir nýgerða kjarasamninga, og hefur meðal annars verið ýjað að því að umræður hafi orðið milli stjórn: arflokkanna og Alþýðuflokks um að sá síðastnefndi kæmi inn í stjórnarsamstarfið. Alþýðuflokksmenn bera slíkar sögur af sér. Vantrauststillaga á ríkisstjórnina verður bor- in fram af stjórnarandstöðuflokkunum á Alþingi í dag. Eng- ar líkur eru taldar á að hún verði samþykkt. 200.000 lesta þorskafli á næsta ári Fiskifræðingar Hafrannsóknastofnunar lögðu' til á mánudag að þorskafli íslendinga yrði ekki meiri en 200.000 tonn á næsta ári. Það er sama magn og þeir lögðu til í fyrra, en rúmlega 20% minna en áætlað var að veiða á þessu ári. Þessar tillögur fiskifræðinga ollu miklu róti á Fiskiþingi sem sett var sama dag og þær komu fram. Hall- dór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra sagði á því þingi að þessar tölur f iskif ræðinganna yrðu metnar í ljósi aðstæðna, en ef farið yrði eftir þeim yrði um verulegan samdrátt að ræða hjá þjóðarbúinu. Tillögur Hafrannsóknastofnunar um afla á öðrum fisktegundum eru sem hér segir: Ýsa 45.000 tonn, ufsi 60.000 tonn, karfi 90.000 tonn og grálúða 25.000 tonn. Mælt meö aukningu loðnuveiða Nefnd á vegum Alþjóða hafrannsóknastofnunarinnar hefur mælt með aukningu á loðnuveiðum. Samkvæmt nið- urstöðum skýrslu sem hún hefur unnið um þetta efni, fengju íslendingar sinn loðnukvóta rýmkaðan um allt að hundrað prósentum. Álsamningur undirritaður Samningur milli ríkisstjórnar íslands og Alusuisse var undirritaður í Zúrich á mánudag. Með honum er endi bund- inn á áldeiluna svonefndu sem hófst í desember 1980 og snerist um viðskipti álversins í Straumsvík, skattgreiðslur álversins og raforkuverð til þess. Samkvæmt samningnum hækkar raforkuverð úr 9,2 mill í 12,5 til 18,5 mill eftir ál- verði. Frumvarpi um staðfestingu á álsamningnum var dreift á Alþingi í gær og verður tekið til fyrstu umræðu í dag. Sverrir Hermannsson iönaðarráðherra væntir þess að frumvarpið komist í gegnum þingið ekki seinna en á mið- vikudag, og tekur þá samningurinn gildi. Rækjusjómenn mótmæla Rækjusjómenn ætla ekki að ráða sig i skiprúm nú í haust nema rækjuverð verði hækkað að mun frá því sem nú er. Þeir telja það ekki taka því að standa í þessum veiðum leng- ur með því verði sem nú fæst fyrir rækju. Málið hefur borist inn á borð sjávarútvegsráðherra sem hyggur á skjótar að- gerðir í þessu máli. Undanþágur söluskatts kosta ríkið mikið Albert Guðmundsson fjármálaráðherra upplýsti á þriðju- dag að ef öll þjónusta og allar vörur aðrar en endursöluvör- ur, hráefni og útflutningsvörur yrðu gerðar söluskatts- skyldar myndi skattstofn söluskatts lauslega áætlað tvö- faldast. Þetta var svar fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóns Baldvins Hannibalssonar um tekjutap ríkissjóðs vegna undanþága frá söluskatti. Fréttapunktar • Hjálparstofnun kirkjunnar sendi í gær 18,5 tonn af mat- vælum til hjálpar á þurrkasvæðunum í Eþíópíu. • Um þriðjungur smiða á Akureyri hefur fengið uppsagn- arbréf og taka uppsagnirnar gildi fyrsta janúar og fyrsta febrúar. • Um 150 manns eru nú orðnir atvinnulausir vegna lokun- ar fiskvinnsluhúsanna í Ólafsfirði. • Framboð af hreindýrakjöti verður í lágmarki í vetur, enda veiði langt undir leyfilegum kvóta. • Ungur maður lét lífið í umferðarslysi á Miðnesheiði um síðustu helgi er bíll hans fór út af veginum í hálku. • Skipverjar á Svani RE fengu tvo hvali í nót sína norðaust- ur af Straumnesi nýlega, en dýrin losnuðu og syntu sína leið. • Uppboð verður á togaranum Óskari Magnússyni frá Akranesi á næstu dögum og er ljóst að við það missa um 180 manns vinnu sína. • Kúrekar norðursins er nafn á heimildarmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar sem frumsýnd var um síðustu helgi, og lýsir hún kántrýhátíðinni á Skagaströnd síðasta sumar. • Ammoníaksleiðsla sprakk í frystigeymslu Eimskips fyr- ir réttri viku og er ljóst að tjónið nemur milljónum króna. • íslenskir frímúrarar á ferð í Egyptalandi voru hnepptir í stofufangelsi þar vegna þess að þeir þóttu hafa á sér of mikla peninga. Þeir sluppu fljótt. • Smávægilegir jarðskjálftar hristu Suðurlandsundirlendi í síðustu viku. • Landsfundur Samtaka um kvennalista fór fram um síð- ustu helgi og var þar borið lqf á störf þingmanna listans. • SÍS veitti Skíðasambandi íslands 500.000 króna styrk í gær. Vigdís í Operunni ★íslenska óperan heldur ótrauð áfram að frumsýna sígildar óperur og er framlag hennar hið þarfasta í menningarlífi borgarinnar. Á föstudagskvöld í fyrri viku var frumsýning á óperunni Carmen eftir Bizet og voru undirtektir áhorfenda að sýningu lokinni innilegar. Meðal frumsýningargesta var forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, og sést hún hér við komuna í húsið. Á móti forsetanum taka tveir forsvarsmenn islensku óperunnar, þeir Hörður Erlings- son og Þorsteinn Gylfason.* Blöðin og blessuð bókin ★Félag íslenskra bókaútgefenda bauð nýverið ritstjórum og ritstjórnarfulltrúum dagblaðanna til snæðings í Þingholti þar sem rædd voru samskipti blaðanna og bókaútgáfa. Bókaútgefendur hyggja nú á mikla sókn, og hafa kannað ýmsar nýjar leiðir til að hefja bókina til vegs og virðingar á ný. Ýmsar tillögur og hugmyndir komu fram á fundinum, m.a. um jákvæðari umfjöllun blaða um bókina almennt, opnari tjáskipti milli útgefenda og ritstjórna, dreifing bókaútgáfu á allt árið og nýjar framíeiðsluleiðir í bókaútgáfu. Frumlegasta uppástungan kom frá forleggjara Setbergs sem varpaði þeirri hugmynd fram að blöðin hættu að nota hið neikvæða orð „jólabókaflóðið" „nú væri blessuð bókin en skýrðu þess í stað frá því að væntanleg".Á HELGARPÚSTURINN Kaskó, ábót, kjörbók, tromp. Bankarnir eru á eftir mér, aurana mína vilja, mænandi á það sem ekkert er eins og þeir neiti að skilja þau orð sem mér verða til varnaðar um veginn til betri farnaðar: Auður er upphaf sparnaðar. Niðri 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.