Helgarpósturinn - 13.12.1984, Blaðsíða 15

Helgarpósturinn - 13.12.1984, Blaðsíða 15
BÓKMENNTIR Myndin og Ijóölínan eftir Heimi Pálsson Kristján Karlsson: KVÆDI 84. 90 tölusettar síður. Almenna bókafélagid, Rvík 1984. Það er ekki algengt að ljóðskáld kveðji sér fyrst hljóðs þegar komið er yfir miðjan aldur og gerist þá nýjungamenn og landnemar á áður lítt könnuðum gresjum orðsins. Þetta gerðist þó í dæmi Kristjáns Karlssonar. Hálf- sextugur gaf hann út fyrstu ljóðabók sína (Kvœbi, 1976) og hefur síðan bætt við þrem bókum — að mér sýnist í öruggri og jafnri þróun og framför. (Kvœði 81, New York. Kvœdi, 1983 — og nú Kvœbi 84) Auðvitað hafði Kristján haft mikil og kunn afskipti af bókmenntum um langt skeið, bæði sem ritstjóri, gagnrýnandi og ekki síst ráðunautur bókaforlaga. Merkar ritgerðir hafði hann skrifað t.d. um Stein Steinarr og Tómas Guðmundsson, svo eitthvað sé nefnt. Þekkingu hans á íslenskri og engilsaxneskri bókmenntasögu var við brugðið. Sú þekking setur augljós spor í verk hans sjáifs. Hann hefur margt lært og hann kann að nota þekkingu sína til Jjess að fága eigin hugsanir og ljóðmyndir. i krafti hennar verða ljóð hans sælgæti sem ljóðaunnandinn getur leit- að í hvað eftir annað, fundið eitthvað sem hentar flestum geðbrigðum, gert sér glatt í skapi ef því er að skipta — ellegar horfið á vit einsemdarinnar og tómleikans í góðum and- legum félagsskap. Kristján Karlsson hefur aldrei verið há- vært ljóðskáld. Miklu fremur að textar hvísli að lesandanum, andi til hans óræðum en umfram allt fallegum ljóðmyndum, dular- fullum ljóðlínum sem ekki gefa neina sjálf- krafa merkingu, línum þar sem fjarska fátt er sagt en þeim mun meira liggur að baki. Nú er þetta vitaskuld aða! margra góðra ljóða, en fá skáld sýnist mér um þessar mundir rækta myndir sínar og ljóðlínur til eins mikillar fullnustu og Kristján. Þar með gera ljóð hans auðvitað miklar kröfur til les- endanna, andstætt því sem sjálflesinn kveð- skapur hefur einatt gert. Ungur lesandi Kristjáns hafði í mín eyru þau orð um New York að lestur hennar væri eins og ganga um expressjóníska málverkasýningu: Mað- ur vissi strax af hverju myndin væri, en svo kæmi bara eitthvað alltannað í ljós við nán- ari skoðun — og tengsl myndanna óljós, ó- rökræn en samt af því tagi að maður væri sannfærður um þau. Sumt er mjög í þessa áttina í Kvœbum 84. Þannig hefst bókin með sautján tengdum ljóðmyndum, númeruðum í kafla sem ber yfirskriftina Gubríbur á vori. Hver svosem Guðríður er þá miðlar hún okkur þarna af sýn sinni á lífið og umgjörð þess, hamingju- söm og glöð í sorg sinni og einsemd af því vorið kemur — með minningar sem ekki verða eins sárar og ella: „Mín vör er sæt af salti í dag./Ég sakna einskis. Lífið kom." (11. kvæði) I veröld Guðríðar eru litirnir næst- um að segja forsenda allra myndanna. Þeir eru oft óvæntir: „mitt haf er grænt“ (I. kvæði) „djúp þögnin grænkar" (IV. kvæði) eða: í kvöld er máninn blár og blátt hans brot í tómri hendi mér. Grænt ljóshvolf mánans hvílir heilt á háum skuggum yfir mér. Ég sit í skugga skuggi sjálf sem skynjar fögnuð meðan er. (XI. kvæði) Um sumt minnir raunar litanotkun bókar- innar á Stein Steinarr — og er ekki leiðum að líkjast. Litmyndir Kristjáns fá mikinn stuðning af hagmælsku hans og valdi á ljóðlínunni, ef hægt er að orða það svo. Ég bendi hér t.d. á kvæðið Stundum reis hús, þar sem hver lína skapar nýja mynd og gæti þess vegna verið sjálfstæð eining: Stundum reis hús og stóð hátt það skein hálfur máni á vatn dimmt var sjálft grasið og grænt en gulbrúnn stofninn á tré eitt sinn kom einhver sem gekk þvert yfir blettinn og hvarf yfirhöfuð var haustið rautt. Auk Gubríbar á vori skiptir Kristján bók sinni í fjóra kafla og bera aðeins tveir þeirra heiti, III. kaflinn sem nefriist Úr anecdotia pastoralia (og kallast á við kafla með því nafni í Kvœbum 81) og lokakaflinn, hinn fimmti, sem nefnist Frá degi til dags og tel- ur ellefu smáljóð. Sumpart sýnist mér þessi síðasti kafli marka mesta nýlundu og tilraun- ir í meðferð máls og stíls og vera ólíkastur því sem Kristján hefur áður gert. Þar er í upphafi að finna þessa „yfirlýsingu". eftirmynd hins liðna er skáldskapurinn grænn. .. Það er enginn „græningjabragur" á ljóð- list Kristjáns Karlssonar, en á vissan hátt kemur hún til manns eins og „vorið góða, grcent og hlýtt“. Ps.: Hinar dansandi furðuverur Kristjáns Davíðssonar á kápusíðu finnst mér fara eink- ar vel við myndvísi bókarinnar sjálfrar, og allur er frágangurinn fallegur. Sinclair Spectrum 48 F Pínutölvan. Ótrúlega fullkomin tölva bœði fyr leiki, nám og vinnu. Verð kr. 6.990.- Ljósormurínn hefur klemmu á öðrum endanum, Ijósaperu á hinum, með gorm á milli og gefur frá sér Ijós þegar honum er stungið í samband við rafmagn. Verð kr. 575.- Allsherjargrillið frá Philips Grillar samlokur, bakar vöfflur, afþýðir, grillar kjöt, heldur heitu o.s.frv. Dæma- laust dugleg eldhúshjálp. Verð frá kr. 5.680,- Jóla&iafimar fra Heimifistældum Útvarpsklukkur frá Philips Morgunhanann frá Philips þekkja flestir. Hann er bœði útvarp og vekjaraklukka í einu tœki. LW, MW og FM bylgjur. Verð frá kr. 3.143.- ístir frá Philips eru með 8 mismunandi stillingum, eflir því hvorl þú vilt hafa brauðið mikið eða lítið ristað. Verð frá kr. 1.554.- . Rafmagnsrak - vélar frá Philips Pessi rafmagns- rakvél er tilvalinn fulltrúi fyrir hinar vetþekktu Philips rakvélar. Hún er þríggja kamba með bartskera og stillan- legum kömbum. Hún er nett og fer vel í hendi. Verð frá kr. 4.314.- Gufustraujárn frá Philips Laufléttir krumpueyðar sem strauja með eða án gufu. Hitna fljótt og eru stillanleg fyrir hvers kyns efni. Verð frá kr. 2.247.- Philips kassettutæki. Ódýru mono kassettutœkin standa fyrir sínu. Verð frá kr. 4.787.- Kaffivélar frá Philips Þœr fást í nokkrum gerðum og stœrðum sem allar eiga það sameiginlegt að laga úrvals kaffi. Verð frá kr. 2.708,- Teinagrill frá Philips snúast um element, sem grillar matinn fljótt og vel. Grillið er auðvelt í og fer vel á Verð kr. 2.864.- s:Sí>: Útvarpstæki frá Philips fyrir rafhlöður, 220 volt eða hvort tveggja. Mikið úrval. LW, MW og FM bylgjur. kr. 1.780.- Ryksuga frá Philips gœðaryksuga með 830 W mótor, sjálfvirkri snúruvindu og 360° snúningsltaus. Útborgun aðeinsJLþOO.- Verð frá kr. 6.500^- t ' k Philips Maxim með hnoðara, blandara, þeytara, grœnmetiskvörn, hakkavél og skálum. Verð kr. 6.463.- Philips solariumlampinn til heimilisnota. Verð kr. 9.719,- Kassettutæki fyrir tölvur. Ödýru Philips kassttlu- tækin eru tilvalin fyrir Sinclair tölvurnar. Verð kr. 4.841,- Handþeytarar frá Philips með og án stands. Þriggja og fimm hraða. Þeytir, hrœrir og hnoðar. Verð frá kr. 1.257,- Steríó Úrval öflugra PhUips sterríótœkja. Kassettutœki og sambyggt kassettu- og útvarpstœki með LW, MW og FM bylgjum. Verð frá kr. 7.233.- Grillofnar frá Philips. / þeim er einnig hœgt að baka. Þeir eru sjálfltreins- andi og fyrirferðarlitlir. Verð frá kr. 4.485.- Hnífabrýnin frá Phiiips Rafmagnsbrýnin hvessa bitlaus eggvopn, hnífa, skœri o.sfrv. Gott mál. Verð frá kr. 1.290.- Straujárn frá Philips eru afar létt og meðfærileg Verð frá kr. 1.155.- Heyrnatólin frá Philips. Tilvalin jólagjöf handa unga fólkinu i fjölskyld- unni. Heyrnatólin stýra tónlistinni á réttan stað. Verð frá Vasadiskó Þó segulbandið sé lítið þá minnka gœðin ekki. Dúndur hljómur fyrir fótgangandi og aðra sem vilja hreyfanlegan tón listarflutn ing. Verð frá kr. 3.135- Djúpsteikingarpottur frá Philips. Tilvalinn fyrír frönsku kartöflurnar, fiskinn, kleinurnar laufabrauðið, kjúklingana, laukhringina, camembertinh, rœkjurnar, hörpufiskinn og allt hitt. Verð kr. 4.775.- heimilistæki hf Hafnarstræti 3 — 20455 Sætúni 8 — 15655 HELGARPÓSTURINN 15

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.