Helgarpósturinn - 13.12.1984, Page 16

Helgarpósturinn - 13.12.1984, Page 16
Valdimar Jóhannsson hjá Iðunni: Fyrsta bókin seldist upp á þremur dögum Valdimar Jóhannsson í lðunni, nestor íslenskra bókaútgefenda, tók á móti blaðamanni í látlausu skrifstofuherbergi sínu í Iðunnar- húsinu. Herbergi hans minnir frem- ur á vinnuherbergi fræðimanns en skrifstofu önnum kafins fram- kvæmdastjóra. Skrifborðið og sófa- borðið bæði hlaðin bókum og blöð- um og við fyrstu sýn virðist manni að þarna inni ríki óreiðan ein. En þegar maður hefur setið um stund í hægindastólnum og hlýtt á Valdi- mar, tekur maður eftir því að þarna ríkir reglusemi og reiða, að hinn vani verkmaður veit nákvæmlega hvar hver hlutur á sér stað, hann veit hvaða bækur og blöð hann hef- ur í kringum sig og þarf sjálfsagt ekki annað en að rétta hönd inn í staflann til að finna það sem hann vantar. Hann hallar sér aftur í stólnum, talar hægt, er ögn glettinn þegar hann rifjar upp sitthvað úr fjörutíu ára ferli við bókaútgáfu, talar um bækur og höfunda af hlýju og vænt- umþykju. BÆKUR — GLEÐIGJAFfNN „Ætli það hafi ekki verið ýmsar tilviljanir sem ollu því,“ segir Valdi- mar, þegar ég spyr hann hvernig á því hafi staðið að hann varð bókaút- gefandi. „Ég var í byrjun hjálpar- maður annarra sem fengust við út- gáfú og komst þannig í snertingu við þetta svið. Bækur stóðu mér alla tið nærri — þær voru mér gleðigjafi. Þau eru orðin liðlega fjörutíu, árin sem ég hef fengist við bókaútgáfu. Og útgáfumálin á Islandi hafa geng- ið með ýmsu móti. Mér er það þann- ig minnisstætt frá þessari tíð, hversu margir hafa byrjað, en orðið síðan frá að hverfa. Og þeir sem voru fyrirferðarmestir fyrr á árum, eru nú horfnir eða orðnir fyrirferð- arlitlir. Bókaútgáfa á íslandi, þ.e. í þeirri mynd sem við þekkjum hana nú, á sér í raun ákaflega skamma sögu. Það var ekki fyrr en í kringum stríðsárin að hér hófst útgáfa sem var undanfari þess sem nú er. Ég hafði ekki neina sérstaka drauma þegar ég fór af stað með eigin út- gáfu. Ekki aðra en þá að standa mig. Svo stækkaði þetta jafnt og þétt. Og þannig hefur þetta þróast nánast fram á þennan dag. Núna, þegar tal- að er um samdrátt í bókaútgáfu, þá minnist ég þess að það kom heil- mikill afturkippur í bókaútgáfu upp úr 1950 og stóð framundir '60, þá jókst bóksalan aftur. Bókaútgáfa og sala bóka tók mikinn fjörkipp gegn- um stríðsgróðann. Allt í einu hafði fólk efni á að kaupa bækur. Þetta vaxtartímabil hefur eiginlega staðið síðan með þessari undantekningu á sjötta áratugnum." MARKAÐINUM OFGERT Valdimar segist þess fullviss að bækur verði áfram bæði skrifaðar og lesnar og vill ekki gera of mikið úr umtöluðum samdrætti í útgáf- unni. „Mér finnst að útgefendur hafi verið of tilætlunarsamir við mark- aðinn. Honum hefur verið ofboðið. Við erum ekki fleiri en við erum. Hluti af samdrættinum síðustu ár stafar einfaldlega af því að það var gefið út of mikið magn. Og þá sýnir það sig, að það er ekki titlafjöldinn sem gerir útgáfufyrirtæki stórt. Ein bók getur vegið jafnþungt og hundrað kver. Utgáfan verður að vera nokkuð breið. Það er mjög erf- itt að sérhæfa sig í útgáfu hér, það er að segja ef útgáfan á að vera ein- hver rekstur. Það er einfaldlega þannig að sumt gengur vel, annað ekki. Sumar útgáfubækur eru vel til þess fallnar að styðja aðrar og gera þannig eftirsóknarverða útgáfu mögulega. Það er víst, að bókin blívur. En við getum vitanlega ekkert um það vitað hvernig, eða með hvaða hætti. Það er ekkert einboðið með það að bókin standi eins og nú er. Hagur bókarinnar getur mætavel þrengst enn. En aðeins tíminn og reynslan geta gefið svör við slíkum spurningum og vangaveltum. Oneitanlega yrði það mikill stuðn- ingur við bókaútgáfu, ef söluskattur yrði felldur niður. En stjórnvöld, eöa þeir sem halda um ríkiskassann hafa ekki verið viðræðugóðir varð- andi það mál.“ POPP-SVIPUR Á ÚTGÁFUNNI Dauði bókarinnar, eða samdrátt- ur í útgáfu á íslandi virðist raunar næsta fjarlægur þanki, þegar mað- ur gengur um ganga Iðunnarhúss- ins. Forlagshúsið stendur á horni Öldugötu og Bræðraborgarstígs, var fyrrum brauðgerð og bakarí Jóns Símonarsonar og ófáir Reyk- víkingar minnast þeirrar brauð- gerðarlyktar sem daglega lagði frá húsinu. Nú angar húsið af bókum — og bókmenntum, á veggjum eru myndir af höfundum sem gefið hafa út bækur sínar hjá Iðunni og skrif- stofa Valdimars er þakin bókum. Á götuhæð hússins er verslun útgáf- unnar og þar inni sér maður dag- lega áhugasama bókamenn og bókakaupendur velja sér eitthvað til lesturs af fyrri útgáfubókum — á afarhagstæðu verði, — annað verð- ur naumast sagt. „Mér sýnist sannast sagna, að það séu uppi núna ýmsar tilhneigingar til að sveigja útgáfuna í neikvæða átt — að mér finnst. Það er að koma á hana óþægilegur popp-svipur. Það er kannski afleiðing af breytt- um aðstæðum. Við stöndum vissu- lega á tímamótum og þau getum við víst ekki metið fyrr en síðar að við horfum á yfirstandandi tímabil úr fjarska. Vissulega hef ég gefið út vin- sældabækur í miklum mæli, ýmiss konar skemmtilestur og afþrey- ingu. Einmitt þess vegna hef ég get- að gefið út sitthvað annað, ánægj- unnar vegna. Það eru ritverk sem mér hefur þá fundist að yrðu að komast út, væru betur út gefin en ekki.“ METIÐ SETT FYRSTA ÁRIÐ „Þegar ég byrjaði með eigin út- gáfu, þá var fyrir hendi mikill þorsti í hvers konar lesefni. Ein af þeim bókum sem ég setti á markað fyrsta árið, var „Kona manns“ eftir Wil- helm Moberg. Þessi saga hafði áður verið birt sem framhaldssaga í dag- blaði. Ég keypti réttinn og gaf hana út. Bókin seldist upp á þremur dög- um. Þetta er sú hraðasta sala sem ég hef vitað um. Ég gaf bókina út aftur og hún seldist þá enn upp. Fólk hafði almennt neitað sér um bækur á þessum tíma, en svo var farið að losna um efnahaginn og þá var ekki að sökum að spyrja — menn fóru og urðu sér úti um bækur. Á þessum árum seldust bækur oft upp í mynd-' arlegum upplögum. Núna gerist slíkt ekki nema þá á lengri tíma. Ég minnist ýmissa bóka sem maður seldi upp á tveimur vikum eða svo og það áður en hin raunverulega jólasala hófst. Þannig var t.d. með ,,Á Kon-Tiki yfir Kyrrahaf" eftir Thor Heyerdahl. Og einnig fyrsta bindið af „Öldinni okkar“. Upplagstölurn- ar hækkuðu mjög á þessum tíma, en hafa svo lækkað aftur. Ég var að heyra sagt í útvarpsþætti um dag- inn að bækur eftir Álistair MacLean hefðu í byrjun selst í fjórtán þúsund eintökum en væru nú komnar niður í um fimm þúsund. Báðar þessar töl- ur eru alrangar og fjarri lagi. Skýr- ingin á því hvers vegna eintaka- fjöldinn hefur farið niður á við er m.a. sú að útgáfumagnið er orðið svo mikið.“ AÐ RÆKTA RITHÖFUNDA „Já, það er sjálfsagt ekki vafamál, að bókaútgefendur hefðu getað gert meira af því en var fyrr á árum að rækta rithöfunda. Á það hefur kannski skort. En það er nú þannig, að rithöfundar verða ekki búnir til. Það sem er lífvænlegt meðal höf- unda kemur fram og sprettur eins og gróðurinn — sá gróður sem fær sæmileg skilyrði. Við getum ekki vænst þess að virkilega góðir rithöf- undar spretti fram í stórum fylking- um. Það gerist ekki einu sinni hjá fjölmennum þjóðum; en við eigum í raun og veru marga góða höfunda. Sumir eru að segja að það sé lægð núna; ég held nú ekki. En það má vera að sumum höfundum liggi of mikið á að prenta verk sín — koma þeim út. Þetta á ekki síst við um Ijóðin. Það er nefnilega ekki það sama að birta ljóð sín í skólablaði og að efna til útgáfu á bók. Það er rétt — höfundaröðin hér við forlagsdyrnar mætti að ósekju styttast, en góð handrit er alltaf ánægjulegt að fá í hendur og gefa út. Og ég á von á því að þannig verði þetta í framtíðinni." BÓKMENNTIR Stórfróðleg framsóknarsaga Þetta er ekki enn ein minningabókin, skráð af Vilhjálmi upp úr svo og svo miklu kaffirabbi við sinn gamla leiðtoga, heldur alvöru-œuisoga,, sarnin af Vilhjálmi eftir heimildum sem hann velur og vinnur úr. Hefur hann aðgang að skjölum sem ekki eru opinber, bæði hjá Framsóknarflokknum og Eysteini sjálfum, og birtir eftir þeim margt fróðlegt. Áuk þess kemur fyrir að beint sé haft eftir Eysteini, en þeirri aðferð er beitt mjög hóflega, því að Vilhjálmur lætur þær heimildir gilda sem skráðar voru jafnharð- an, ef þess er kostur. En þegar hann á annað borð spyr Eystein, þá eru svörin líka athygl- isverð, þaulhugsuð, og má mikið vera ef Eysteinn hefur ekki samið þau skriflega, a.m.k. hin lengri. Einna mest eru upprifjanir Eysteins notað- ar í frásögninni af því þegar Jónas frá Hriflu hraktist frá forustu í Framsóknarflokknum (aðall. bls. 53—57). Þarsem endranær er frá- sögn Eysteins skýr og trúverðug, og Vil- hjálmur undirbyggir hana eins og vera ber með því að rekja vitnisburð skjallegra heim- ilda. Versti „skallinn" á þeirri sögu er sá, að ekki kemur fram á hvaða stigi málsins eða fyrir hvaða sakir stöðvuð voru skrif Jónasar í Tímann, en það var úrslitaatriði í deilunni eins og Jónas túlkaði hana sjálfur. Aðrar innanflokksdeilur, sem eru merki- legar og hér miklu skilmerkilegar lýst en ég hef séð áður gert, voru átök Eysteins og Her- manns Jónassonar um þátttöku í ríkisstjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar 1947, en Ey- steinn réð því að Framsókn lét til leiðast. Um þetta er þó fátt eitt haft eftir Eysteini, en af- staða hans á sínum tíma kemur líka svo glöggt fram í fundargerðum að upprifjun eft- ir nærri 40 ár gæti naumast um bætt. Sumar yfirlýsingar Eysteins eru fremur lúlkun hans en að þær geymi nýjar upplýs- ingar. Svo er t.d. um bardagann við Alþingis- húsið 30. mars 1949 og um inngönguna í Atlantshafsbandalagið sem samþykkt var þann dag (bls. 173—176). Líka um stofnun ís- lenskra aðalverktaka og eignaraðild að þeim (304—305). Jafnvel um ópólitísk atriði eins og gildi útivistar (20—22). En allt er þetta skilmerkilegt og eykur gildi bókar- innar, hvað á sinn hátt. Svo bregður Vilhjálmur því fyrir sig að segja frá af eigin raun, drepa á vinarkynni sín af Eysteini, nefna eitt og annað úr flokks- starfinu eins og það horfði við honum sjálf- um á sínum tíma, en einkanlega er það þó kosningabaráttan í Suður-Múlasýslu, sem þeir Eysteinn háðu saman bæði 1949 og ’53, sem Vilhjálmur rifjar upp sjálfur, og verður úr því nokkurt bókarkrydd. Þetta eykur líka fjölbreytni í frásögninni, ásamt ailvænum þætti í bókarbyrjun um ferðalög og útivist, öðrum í bókarlok um heimili Eysteins og einkahagi, og ágætri frásögn af ýmsum mál- efnum kjördæmisins sem tengd er við kosn- ingaþáttinn ’49. Annars er bókin auðvitað að meginefni harðsoðin stjórnmálasaga þar sem rauðu þræðirnir eru annars vegar af- staða Framsóknarflokksins til annarra flokka og hins vegar helstu málefnin sem Eysteinn fjallaði um sem flokksleiðtogi eða ráðherra. Því er ekki að leyna að sumt af þessu er ekki beinlínis skemmtilestur, og það einna síst sem segir af ráðherrastörfum Eysteins, hverju viðfangsefninu af öðru; eða af flokka- þrætum þegar svo ber við að reipdráttarstíll blaðanna og Alþingistíðindanna nái að yfir- gnæfa frásagnarhátt Vilhjálms sjálfs, sem annars er einkar lipur og geðfelldur. Að setja saman svona sögu, heilan doðrant (talsvert yfir 300 síður) hlaðinn af fróðleik þar sem koma þarf fjölvíða við, gera skil umdeildum málum og viðkvæmum og setja sig inn í rök- ræður ótal andstæðra viðhorfa, það er eng- inn leikur, en Vilhjálmur sannar sig þar býsna liðtækan, bæði sem rithöfund og sögukönnuð. Þó tekst honum öllu betur upp í fyrri hluta bókarinnar. Vilhjálmur slær að vísu þann varnagla við sagnfræði sinni að það sé „ekki reynt að segja söguna .. . í heild" (bls. 58, auðkennt þar). Heldur segir hann söguna frá sjónarhóli Eysteins, og þá Framsóknarflokksins yfir- leitt. Vitnar jafnan í ræður og greinar Ey- steins til að gera orð hans að sínum, en í and- stæðinga hans til þess að láta vitnisburð þeirra staðfesta sjónarmið Eysteins eða til að leyfa Eysteini að hnekkja málflutningi þeirra. Með þessa frásagnaraðferð sé ég ekki betur en Vilhjálmur fari vel og heiðarlega svo langt sem hún nær. Hún nær kannski ekkert gríðarlega langt, en svo mikið af okk- eftir Helga Skúla Kjartansson ar sagnaritun er nú einu sinni með þessu marki brennt, og það er sannarlega kær- komin viðbót að fá söguna frá sjónarmiði Eysteins Jónssonar, svo myndarlega ritaða sem hér er gert. Hér er naumast vettvangur til að gera at- hugasemdir við túlkun einstakra atriða, en tvö freistast ég þó til að nefna. Annað eru forsetakosningarnar 1952, þar sem Eysteinn studdi dr. Bjarna Jónsson gegn Ásgeiri Ás- geirssyni, af því að Eysteinn vildi þá eins og síðar ópólitískan frambjóðanda, ekki þing- mann og fyrrverandi ráðherra eins og Ás- geir var. Það er eins og hvorki Eysteinn né Vilhjálmur hugsi út í það, að ópólitíska hliðin á framboði sr. Bjarna var fyrirfram eyðilögð með því að það voru stjórnarflokkarnir sem sömdu um að styðja hann og nánast stilltu honum upp. Hitt atriðið er hið rótgróna viðhorf Fram- sóknar- og Sjálfstæðisflokks að líta hvor á annan sem sína höfuðandstæðinga; það kemur fjölvíða við sögu í bókinni og er fróð- lega útskýrt af Eysteini og Vilhjálmi (sjá einkum bls. 306—311). En hér er því við að bæta, að flestir þingmenn Framsóknar- flokksins til 1959 komu úr kjördæmum þar sem samkeppnin var öll við Sjálfstæðisflokk- inn, og sama gilti um fjöldann allan af for- vígismönnum Framsóknar á sviði sveitar- stjórna, búnaðarsamtaka o.s.frv. Þetta hygg ég sé hluti af skýringunni, en hafi svo breyst með vaxandi þéttbýlisfylgi Framsóknar og með breyttri kjördæmaskipan. 16 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.