Helgarpósturinn - 17.01.1985, Side 18
BRIDGE
eftir Friðrik Dungal
Spilagaldur Garozzos
Nú látum við sjálfan Garozzo,
þann margfalda heimsmeistara,
sýna okkur, hvernig spila á úr spil-
um.
Þannig voru spilin:
S G-9-5-4
H Á-K-D-5
T 8-54-3
L 7
S A-8-7
H 10-74-3
T K-9-6-2
L 54
S D-10-6-3-2
H G-9-8
T G-7
L D-6-3
fauk kóngur suðurs. Þá kom
spaðaátta, nía og tía, sem Garozzo
trompaði. Síðan spilaði hann
hjarta sem hann tók með ásnum í
borði. Laufasjöið úr borði og svín-
að með gosanum. Þá hélt hann
áfram með trompin þangað til að
staðan var þessi:
S G
H Á-K-5
T 8
L -
S K
H 6-2
T Á-D-10
L Á-K-G-10-9-8-2
Að þetta spil skuli vera geymt en
ekki gleymt, er því að þakka að
spilarinn í norður var frú Wei. Hún
er gift höfundi nákvæmnislaufs-
ins. En ef satt skal segja, þá gengu
sagnir alls ekki fyrir sig með
neinni „precision". Frúin hafði tak-
markalausa trú á Garozzo sem
spilamanni og eftir allskonar
krókaleiðum og kúnstum, skellti
hún honum í sex lauf.
Nú skulum við fylgjast með
spilamennskunni.
Vestur lét út spaðaásinn og þar
S -
H 10-74
T K-9
L -
S D
H G-9
T G-7
L -
S
H
T
L
6
Á-D-10
8
Garozzo er illa við svínur og not-
ar þær eins lítið og mögulegt er.
Hefir þú komið auga á hvernig
hann spilaði?
Hann lét siðasta trompið. Vestur
tók þann kostinn að verja hjartað
og kastaði tígulníunni. Þá var
hjartafimminu kastað úr borði.
Svo tók hann ás og kóng í hjarta.
Við skulum athuga útspilið. Eng-
inn með fullu viti spilar ásnum ef
hann á drottninguna líka. Því hlýt-
ur austur að eiga hana. Sé austur
með hjartalengjuna og vestur með
tígulkónginn, eru erfiðleikar á
ferðinni. En samt má vinna spilið.
Þegar vestur tekur þann kostinn
að reyna að verja hjartað þegar
síðasta trompi er spilað, þá er auð-
séð að hann er með þrjú hjörtu.
Þegar svo austur og vestur láta
báðir hjarta í ásinn og kónginn og
gosinn kemur þess utan frá austur,
þegar áttunni er spilað úr borði,
þá veit suður að vestur er með tíg-
ulkónginn. Austur gat ekki átt
hann, því að hann er með spaða-
drottninguna. Vestur hlaut því að
vera með tígulkónginn blankan,
því við vorum búin að slá því föstu
að hann væri með þrjá tígla. En
það eru ekki margir, sem geta
hugsað eins rökrétt í spilum og sá
margfaldi heimsmeistari Garozzo.
Lét tíguláttuna úr borði og lét tíg-
ulásinn. Kóngurinn féll og
Garozzo fékk sína tólf slagi. En þá
vaknar sú spurning: Hvernig gat
Garozzo vitað að þetta var rétta
spilamennskan?
Síöari hluti greinar Friöriks
Dungal „Bridgekeppni aldarinn-
ar‘‘ sem fjallar um keppni bláu
sveitarinnar svonefndu og amer-
ísku meistaranna veröur birtur í
næsta tölublaöi HP. Fyrri hluti
birtist þ. 10. janúar sl.
VEÐRIÐ LAUSN Á KROSSGÁTU
Um helgina er gert ráð fyrir
norðaustlægri átt um allt land
og talsverðu frosti, sem þýðir
þetta 4—8 stig á selsíus. Bjart-
viðri verður sunnanlands og
fyrir vestan en él á Norður- og
Austurlandi.
Okkur á HP er sagt að veður
fari eitthvað hlýnandi í Evrópu,
en nú er Kári semsagt farinn að
klípa okkur smávegis í kinn-
arnar.
A: Andrade (1941)
## > ’A Wi %: ■ I A M B M' fc ^ i., ■ M H §§ P. 'W "W ii
Vlát í öðrum leik. Lausn á bls. 10
o 5 F 6
E K K £ R T l< 'fí T u R '0 H Æ F fí
- p £ N N fí 0 'o R fí N G ú T fí N 'O R fí R
K u F U N 6 fí L £ 5 'fí fí R K fí 5 T 5 /T)
fí m / fí F N t / T fí R K fí 5 K £ / 71 /
B Pí Ð i V fí N € T '0 R / R ■ R fí 5 L fí F
L. u Ð R F) fí fí m L £ S / £> B 'fí T fí
£ / R fí K T fí R fí 5 m / N N K o P fí R
N • o F T fí R 'O T T u S ö N G U R P /
<s f£ r fí K R fí r fí R R G £ L 6 U K
m A K fí L. ’fí T ■ F ’fí R 1 Œ. G / R fí m £ N
Pt R t N • £ U L L fí K 'O P U R £ Ð L. ) V
D 'fí 5 r R fí / /? fí /< fí R ■ 'fí R 1 fí J< /
18 HELGARPÓSTURINN