Helgarpósturinn - 04.07.1985, Qupperneq 6
HP
HELGARPÖSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Blaðamenn: Edda
Andrésdóttir, Jóhanna
Sveinsdóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson
Útlit: Elin Edda
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea Matthíasdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Steinþór Ólafsson
Innheimta:
Garðar Jensson
Afgreiðsla: Guðrún Hásfer
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sfmi
8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Stefnulaus
tvískinnungur
Starfsmenn Orkustofnunar
vinna um þessar mundir að
verkefni fyrir landmælingar
bandaríska hersina Þeir safna
gögnum til mælinga á þyngd-
arsviðinu yfir íslandi, en þær
upplýsingar eru einkar mikil-
vægar í herfræðilegu tilliti, og
þá fyrst og fremst sem leið-
sagnartæki fyrir herskip og her-
flugvélar, og síðast en ekki síst
fyrir langdrægar og meðal-
drægar kjarnorkueldflaugar.
Aðdráttarafl jarðar ræður miklu
um það, hversu marksækni eld-
flauganna er mikil, hversu vel
þær hitta skotmarkið.
Þessi mál eru til ítarlegrar
umfjöllunar í Helgarpóstinum í
dag. Þar er velt upp siðfræði-
legum spurningum í þessum
efnum. Spurningum á borð við
þessa: Er siðferðilega rétt að ís-
lenskir aðilar stuðli að og jafn-
vel framkvæmi sjálfir rannsókn-
ir, sem miða að því að mann-
drápstæki á borð við kjarnorku-
eldflaugar hitti í mark?
Islensk stjórnvöld hafa enga
stefnu í þessum málum aðra en
þá, að ef íslenskir aðilar geta
hugsanlega haft gagn af störf-
um erlendra rannsóknaraðila
hér á landi, þá er heimild til
rannsókna veitt. Þannig er það
t.a.m. í því dæmi sem hér er
vakin athygli á. Orkustofnun
hefur í sjálfu sér gagn af þess-
um rannsóknum á sviði jarð-
hitamála. Ennfremur gat stofn-
unin vel þegið aukaverkefni á
erfiðum tímum, þegar sam-
dráttur í virkjunarmálum hefur
að sjálfsögðu valdið verkefna-
skorti á Orkustofnun.
En hversu þungt vega þessi
sjónarmið íslenskra yfirvalda,
byggð á þröngum hagsmunum,
á móti þeirri staðreynd, að ís-
lendingar, að eigin sögn friðar-
ins fólk og friðflytjendurnir
mestu, eru, með aðild að rann-
sóknum af þessu tagi, þátttak-
endur í hernaðarbrölti stórveld-
anna? Og ekki því veiga-
minnsta í þeim efnum; nefni-
lega að varða leið gereyðingar-
vopna að skotmarkinu. Geta ís-
lendingar kinnroðalaust gerst
beinir eða óbeinir þátttakendur
í þeim hildarleik? Svari hver fyr-
ir sig.
I þessu máli dugir enginn
kattarþvottur, eins og sá að
þykjast ekki vita um notagildi
,Bandaríkjamanna af þeim rann-
sóknum sem Orkustofnun
vinnur nú að. Staðreyndirnar
tala sínu máli og umfjöllun
Helgarpóstsins í dag sýnir þær
og opinberar. Talsmenn Banda-
ríkjanna reyna meira að segja
ekki að draga fjöður ýfir þær
meginstaðreyndir, þótt íslensk-
ir embættismenn slái úr og í og
reyni að drepa málinu.á dreif.
Það er annað hvort eða í
grundvallarmálum af þessu
tagi: Viljum við gerast virkir
þátttakendur í vígbúnaðar-
kapphlaupinu, eða viljum við 1
standa utan við þann hildarleik
stórveldanna? Það er ekki bæði
hægt að halda og sleppa. .
BRÉF TIL RITSTJÓRNAR
Fagurgali og
staöreyndir
14. júní 1985.
Hr. ritstjóri HP.
Eg er einn þeirra hluthafa Haf-
skips, sem lásu plaggið þeirra árið
1979; „Af hverju er rétt að gerast
hluthafi í Hafskip hf.?“ Ég ákvað að
kaupa hlutabréf þegar ég las í grein-
argerðinni, að þeir lofuðu mér „eigi
lakari útkomu en spariskírteini rik-
issjóðs."
Hluthafafundirnir voru ánægju-
legir og alltaf skiluðu Hafskipsmenn
gróða nema árið 1980, en það átti
sér sínar eðlilegu orsakir einsog
þeir skýrðu einkar vel á fundinum
þá.
Það var mér því algjört reiðarslag
þegar HP upplýsti, að Hafskip væri
gjaldþrota og ég væri búinn að tapa
öllu mínu hlutafé. Og ekki úrskýrðu
þeir mikið tapið á aðalfundinum því
að þar vildu þeir helst tala um
óþverraskapinn í HP.
Ég fór því til endurskoðanda í fjöl-
skyldunni og bað hann um að út-
skýra fyrir mér hversvegna fyrir-
tæki, sem næstum alltaf hefði sýnt
gróða, væri nú skyndilega eigna-
laust og ég þar með búinn að tapa
öllu.
Þessi velmenntaði endurskoðandi
fékk hjá mér ársreikningana og
færði mér seinna mynd, sem ég læt
hér fylgja með.
Hann sagði, að maður ætti alltaf
að lesa athugasemdirendurskoðand
ans í ársreikningnum, en ekki bara
hvort ársreikningurinn sýndi gróða
eða tap. Hann sagðist hafa lesið at-
hugasemdir númer 1, 8, 6 og 4 árin
1979, 1981, 1982 og 1984 og sam-
kvæmt þeim hefði ekki alltaf verið
gróði á Hafskip heldur stundum tap,
þótt ársreikningurinn sýndi gróða.
Hann sagði, að þarna skakkaði ca.
76 milljónum, sem hann sagði að
væri í dag ca. 200 milljónir. Ég sé
auðvitað núna, að ég hefði betur
lesið athugasemdir endurskoðand-
ans, og vil benda öðrum á að gera
slíkt hið sama, ef þeir kaupa hluta-
bréf. Þau eru greinilega varasamari
en ég hélt þegar ég las plaggið frá
Hafskip hér um árið og lét fagurgal-
ann í þeim tæla mig í að reyna að
græða með þeim peninga.
U mról i ,ér stöðugt slaf. i
veitingabransanum. Potturinn og
pannan, hinn vinsæli staður í Braut-
arholti, hefur nú skipt um eigendur.
Úlfar Eysteinsson hefur selt stað-
inn Jóhanni Bragasyni, fyrrum
kokki á veitingastaðnum Hrafnin-
um. Við höfum heyrt að Potturinn
og pannan hafi farið á litlar 13 millj-
ónir, og eigi þær að greiðast upp á
18 mánuðum. Úlfar hefur hins veg-
ar slegið sér saman við Tómas Tóm-
asson (Tomma í Tommaborgurum)
og hyggjast þeir opna svonefnt Hard
Rock Café í nýja Hagkaupshúsinu
sem rís nú í nýja miðbænum. Þetta
eru þó enginn venjulegur kaffistað-
ur heldur hamborgara- og kókstað-
ur með tónlistarlegu ívafi í ýktum
rokkstíl frá sjötta áratugnum. Hard
Rock Café af þessari tegund hafa ris-
ið víða, beggja vegna Atlantshafsins,
við miklar vinsældir. . .
mM
M ú er Alþýðubandalagið bú-
ið að ákveða landsfund sinn. Verður
hann haldinn í haust, þ. 7. nóvem-
ber. Sumir munu eflaust kannast við
þá dagsetningu, nefnilega sjálfan af-
mælisdag rússnesku byltingarinnar.
Þetta er eflaust viðeigandi dagur,
því margir búast við hallarbyltingu.
Er það einkum formaðurinn Svavar
Gestsson sem mun þurfa að svara
fyrir fallandi gengi flokksins. Eink-
um er búist við hörðum skeytum frá
kvenfylkingu Alþýðubandalagsins,
sem gagnrýnir verkalýðsforystuna
og afstöðuleysi Svavars í þeim mál-
um. Þá er talið fullvíst að varafor-
maðurinn, Vilborg Harðardóttir,
segi af sér. Óvíst er þó hvort Svavar
verður felldur, því enn vantar hæfan
foringja í hans stað. Margir renna
auga til Ólafs Ragnars Grímssonar,
en hann er sennilega of umdeildur í
Alþýðubandalaginu til þess að um
hann náist samstaða...
Ti dæmis um skuldahalann,
sem hefur myndast í „sjávargeir-
anum“ undanfarna mánuði og ár
má geta þess, að skuldir þær sem
hvíla á Sigurfara á Grundarfirði
nema um 280 milljónum króna —
90 milljónum hærri fjárhæð en vá-
tryggingarupphæð togarans. Okkur
er sagt, að dæmið vegna Kolbeins-
eyjar sé nokkuð hliðstætt...
A
Suðurnesjum er ástandið
litlu betra, en þar bjarga menn sér
þessa dagana með því að senda
skipin á markað á Englandi...
o
g fyrst við erum byrjaðir a
„svörtum" fréttum úr sjávarútvegin-
um má geta þess að fram hefur kom-
ið, að tap Síldarvinnslunnar á
Neskaupstað nam 91 milljón króna í
fyrra. Síldarvinnslan er undirstöðu-
fyrirtæki á Norðfirði og fokið í flest
skjól þar í bæ, ef síldarvinnslan er
komin í svona klemmu. ..
HÖFUM OPNAÐ
mDKWURAltf’)
I ' VX>y( IXX3 ' IXX3 1979 ■1980^ 19BI ’M 1962>S< 19B3
88
88
|
SKV.FRAMKV/BDfíSTJDRN. S SKV. ENDURSKQÐANDA.
LAUSN Á SKÁKÞRAUT
Crum:
1. Bd4! Nú er komin fram skemmti-
leg og einföld leikþröng.
1. - Kxd4 2. Df4 mát.
Barnes:
Hvorum riddaranum á að leika og
hvert? Þetta er sú spurning sem þarf
að svara. Eini lykilleikurinn er 1.
Rc3-b5!
1. - Hxd5 2. Da7
1. - Hc7 + 2. Rc4
1. - b3 2. Da4
HELGARPÚSTURINN
Einkaerindi
Þetta heiftar haturs bál held ég teljist efni sorgar. Einkaskóli er einkamál, einkum þegar ríkið borgar. Niðri
NYJA
BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐ
O Gufuþvoum vélar
og felgur
Q Djúphreinsum
sœtin og teppin
O Notum
eingöngu hid
nídsterka
Mjallarvaxbón
BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐIN
V/UMFERÐARMIÐSTÖÐINA - Simi 21845
BIIMEIGA
REYKJAVIK:
AKUREYRI:
BORGARNES:
VÍDIGERÐI V-HÚN.:
BLÖNDUÓS:
SAUDÁRKRÓKUR:
SIGLUFJÖRDUR:
HÚSAVÍK:
EGII.STADIR:
VOPNAFJÖRÐUR:
SEYDISFJÖRDUR:
FÁSKRÚDSFJÖRDUR:
HÖFN HORNAFIRDI
9I-318I5/6869I5
96-21715/23515
93-7618
95-1591
95-4350/4568
95-5884/5969
96-7I498
96-41940/41594
97-1550
97-3145/3121
97-2312/2204
97-5366/5166
97-8303
interRent
FALCON CREST
Frábærir framhaldsmyndaþættir
2 nýir þættir koma á hverium
fimmtudegi
Fást á öllum helstu myndbandaleigum landsins
Dreifing: MYNDBÖND HF.
Skeifunni 8. Simar 686545 — 687310.
6 HELGARPÓSTURINN