Helgarpósturinn - 04.07.1985, Blaðsíða 24
■
I réttir hafa nú borist um að laun-
þegahreyfingin hyggist koma á lagg-
irnar útvarpsstöð. Hefur verið hald-
inn fyrsti viðræðufundur ASÍ og
BSRB í þessu sambandi. Ennfremur
hafa þessir aðilar ákveðið að ræða
við önnur samtök launafólks, ss.
BHM, farmanna, bankamanna,
bókagerðarmanna o.s.frv. Þetta
kunna að vera nýjar fréttir fyrir
flesta, en sannleikurinn í málinu er
sá, að þekkt fjölmiðlafólk, sém jafn-
framt er forystufólk í iaunþega-
hreyfingunni, hefur staðið að þess-
um undirbúningi í u.þ.b. hálft ár.
Hefur fólk þetta lagt drög að slíkri
útvarpsstöð og jafnframt fest niður
hugmyndir að dagskrá og skipu-
lagningu slíkrar stöðvar. Helstu
hvatamennirnir að launþegaútvarp-
inu eru Ævar Kjartansson, vara-
dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins, Ög-
mundur Jónasson, fréttamaður
Sjónvarpsins, og Helgi Már Art-
húrsson, sem nú tekur við ritstjórn
Alþýðublaðsins.. .
S.
'amkvæmt heimildum HP
stendur nú yfir einhvers konar út-
tekt á rekstri Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna með það fyrir augum
að auka hagkvæmni og spara í
rekstrinum. Hagvangur vinnur
þetta verk og mun fyrirtækið fá 1,3
milljónir króna fyrir skýrsluna, serp
von er á. En undir yfirborðinu
kraumar, og var m.a. mjög mikill
ágreiningur um það hver vinna
skyldi þetta verk og vildu sumir
stjórnarmanna SH, að erlendir ráð-
gjafar kæmu að einhverju leyti ná-
24 HELGARPÓSTURINN
lægt þessari vinnu. Sá grunur hefur
nefnilega skotið upp kollinum, að
skýrslugerð og könnun Hagvangs
sé einungis sviðsetning og í raun sé
búið að panta fyrirfram ákveðna
niðurstöðu. HP hefur frétt, að til-
gangurinn með þessu öllu saman sé
sá, að láta alla eða suma af eftir-
töldum mönnum fjúka: Guðmund
H. Garðarsson, Eyjólf K. ísfeld,
Hjalta Einarsson og Ólaf Gunn-
arsson...
A
morgun, föstudag, hefur
ný útvarpsstöð göngu sína hérlend-
is. Þetta er Útvarp Síríus, sem
stofnað er til í tilefni af „Hunda-
dagahátíð" Akureyringá og annarra
lysthafenda. Sjálfur „karnevallinn"
byrjar á mánudaginn 8. júli og
stendur fram á sunnudaginn 14. júlí.
Alla hátíðisdagana verður útvarpað
af krafti frá tólf á hádegi og til mið-
nættis a.m.k., og mun það fara eftir
stuðinu á mannskapnum. En Útvarp
Síríus skýtur sér fram fyrir hátíðina
og byrjar á föstudagskvöld. HP
hefur hlerað, að fyrirfram sé gert
ráð fyrir því, að vinsælasti þátturinn
á dagskránni verði „Smástirnið", en
þessum þáttum munu stjórna gesta-
dagskrárgerðarmenn. Við höfum
heyrt, að tvö smástirnanna séu
Valur Arnþórsson (númer 3) og
Jón Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri skinnadeildar Sambandssins.
Hann er líka frammari. Útvarps-
stöðin verður til húsa í Eimskipafé-
lagskassanum við Strandgötu. Þar
hafa svokallaðir „Riddarar Hring-
borðsins" húsnæði til umráða, sem
þeir lána Haraldi Inga Haralds-
syni, framkvæmdastjóra hunda-
daganna. Riddararnir munu vera
ungir bissnessmenn ojg umræðu-
menn á Akureyri. Utvarpsstjóri
verður Ólafur H. Torfason, og
honum til aðstoðar margir RÚVAK-
starfsmenn. Þessa dagana eru í
gangi viðræður við bæjarstjórnina
um þátt hennar í „Hundadagahátíð-
inni", m.a. framkomu í Útvarpi
Síríusi, og mun talsvert hafa þokast
í samkomulgsátt. Hins vegar eru
menn enn ekki vissir um hver svör
Helga Bergs bæjarstjóra verða...
A
Úþýðublaðið hefur um
nokkra hríð verið ritstjóralaust eftir
að Guðmundur Árni Stefánsson
sagði upp störfum þar í vor. Nú mun
vera búið að ákveða hver eftirmað-
urinn verður. Það er Heigi Már
Arthúrsson starfsmaður BSRB,
fyrrum stuðningsmaður Vilmundar
heitins Gylfasonar og þeirrar hug-
myndafræði, sem liggur til grund-
vallar stofnunar Bandalags jafnað-
armanna...
kafmagnsveitur ríkisins hafa
átt í miklum fjárhagserfiðleikum.
Víða um land hefur rafmagnskerfið
lítið verið endurnýjað vegna þessa,
og er svo komið að margir eru farnir
að verða uggandi um rafmagnsmál
dreifbýlisins. Allra verst munu málin
standa á Austurlandi, og óttast máls-
metandi menn að allar helstu raf-
magnslínur niður í firðina séu orðn-
ar svo slæmar, að rafmagnið myndi
fara af flestum fjörðunum, ef stór-
viðri skylli á. Verði Rafmagnsveit-
urnar látnar svelta áfram og ekkert
gert til að viðhalda og endurnýja
rafmagnslínur Austurlands, gæti
farið svo að rafmagnið færi af öllu
Austurlandi í fárvirði. Sagt er að
Austfirðingar séu þegar farnir að
kvíða vetrinum...
R
Lafveiturnar funduðu stíft á
Akureyri í síðustu viku, en þar var
haldinn aðalfundur Sambands ís-
lenskra rafveitna. Fjölmenni dreif
að — rafveitustjóra, nefndarmenn
rafveitna og fleiri sérfræðinga.
Reiknað var með 150 manns á fund-
inn og voru makar fundarmanna,
sem einnig var boðið, þar meðtaldir.
En aðsóknin fór fram úr „björtustu
vonum" manna, því hvorki fleiri né
færri en 240 rafveitumenn og mak-
ar þeirra stöldruðu við þá þrjá daga
sem aðalfundurinn stóð yfir á Akur-
eyri. Svo þröngt var setinn bekkur-
inn á fundunum, og meðfylgjandi
veisluhöldum ekki síður, að Sverrir
Hermannsson gat ekki orða bund-
ist, þegar hann ávarpaði samkund-
una og sagðist alveg hlessa á því,
hvernig tekist hefði að draga 240
manns alla leið norður til Akureyr-
ar. Hann vissi samt sem var, að dag-
skrá fundarins var með léttum blæ;
kokteilar og veislur á hverju strái og
það var einmitt þess vegna sem iðn-
aðarráðherra var jafnviss um tölu
fundarmanna og raun bar vitni.
Hann bauð nefnilega til einnar
veislunnar.
Það þarf auðvitað ekki að taka
fram að fjárhagur flestra rafveitna á
landinu er með iakasta móti.
Til fróðlegs samanburðar má geta
þess að stjórnendur sjúkrastofnana
á landinu, en þær eru öllu fleiri en
rafveiturnar, hittust á aðalfundi ekki
alls fyrir löngu. Fundinum tókst að
ljúka á laugardagseftirmiðdegi og
klykkja út með stuttu fræðslupró-
grammi einnig. Þar sátu 30 fundar-
menn og þótti hæfilegt...
IWI
0 V Hikið hefur verið rætt og
ritað um hinn nýja Laugarnesveg,
sem liggja á framhjá húsi Sigurjóns
heitins Olafssonar myndhöggvara.
Hinn nýi vegur á að létta umferðar-
þunganum, einkum þungaflutning-
um Sundahafnar, af íbúum Klepps-
vegar. Menn hafa hins vegar bent á
fornminjar og fagurt umhverfi sem
mun fara forgörðum ef skipulag
þetta nær fram að ganga, auk þess
að hið fyrirhugaða safn Sigurjóns
Ólafssonar fái lítinn frið í umferðar-
niðinum. Skipulagsnefnd hefur nú
stöðvað frekari framvindu skipu-
lagsins og tekið málið upp að nýju.
Mikið er deilt og rætt innan skipu-
lagsnefndar um þetta mál og sýnist
sitt hverjum. Sumir vilja taka breyt-
ingakröfurnar alvarlega og fara eftir
þeim, einkum um að umferðinni
verði beint um Héðinsgötu. Aðrir
segja þetta hina mestu firru og að
allur þessi málflutningur um breyt-
ingar sé rangur. Talsmenn hins síð-
ara munu hins vegar vera að bræða
með sér hugmyndir um að nýta fjör-
urnar norðan við hús Sigurjóns á
Laugarnestanganum undir svo-
nefnt „grænt svæði" í stað þess sem
hverfur ef vegurinn verður lagður í
sinni upprunalegu mynd. Skipulags-
nefnd og umhverfismáianefnd
fjalla um málið í heild en síðan verð-
ur það sent borgarráði. Við fylgj-
umst spennt með...