Helgarpósturinn - 05.09.1985, Qupperneq 5
^^^^ieðal alþýðubandalags-
manna hefur verið óánægja með
„frjálsa" ritstjórnarstefnu Ossurar
Skarphéðinssonar ritstjóra Þjóð-
viljans, einkum þó í verkalýðsang- j
anum og borgarmálaanganum. Pótt
ekki hafi verið talað mikið á opin-
berum vettvangi um þessi mál að
undanförnu fer víðs fjarri, að staða
ritstjórans sé trygg. Þó mun Svavar
Gestsson formaður hafa lagt sig
fram um að sætta menn og herma
heimildir HP, að formaðurinn sé í
sjálfu sér ánægður með blaðið, en á
hinn bóginn mótfallinn því, að á síð-
um blaðsins fari fram naflaskoðun á
Alþýðubandalaginu. Þau mál vill
Svavar ræða á sellufundum. En hon-
um mun vera ljóst, að verði látið til
skarar skríða gegn Össuri gæti svo;
farið, að öll ritstjórnin gengi út með
ritstjóra sínum. Á slíkt vill Svavar
ekki hætta.
En spjótin standa á Össuri. Borg-
armálaráðið vænir Össur um að
hann komi í veg fyrir málflutning
ráðsins í blaðinu. Hins vegar höfum
við góðar heimildir fyrir því, að Öss-
ur stefni að virkri þátttöku í borgar-
málastörfum Alþýðubandalagsins.
Hann ætlar nefnilega að hasla sér
völl í stjórn Strætisvagna Reykjavík-
ur og ýta Gudrúnu Agústsdóttur í
burtu. Frá SVR heyrum við, að þeim
Sigurjóni Fjeldsted og Sveini
Björnssyni, formanni stjórnar og
forstjóranum, lítist illa á að fá her-
skáan ritstjóra Þjóðviljans í stjórn-
ina. Öll munu þessi mál skýrast bet-
ur í haust. Össur hefur verið á Eng-
landi að undanförnu og ekki fengið
frið vegna hringinga að heiman, þar
sem honum hefur m.a. verið hótað
sparki af Þjóðviljanum. ..
V
ið Háskóla Islands var til
skamms tíma sérstakur byggingar-
stjóri, sem hafði með höndum allt
eftirlit með byggingarframkvæmd-
um á háskólalóðinni. í þessu starfi
var dr. Maggi Jónsson arkitekt.
Það var einmitt sá hinn sami Maggi,
sem teiknaði Odda, hið nýja hugvís-
indahús Háskólans. Þar sem hann
teiknaði það þótti að sjálfsögðu
ófært að hann gegndi áfram emb-
ætti byggingarstjóra og hefði þann-
ig eftirlit með eigin byggingu. Og
þess vegna hætti hann sem bygging-
arstjóri. Hins vegar hefur enginn
verið ráðinn í hans stað. Sjálfur ber
nú Maggi titilinn „sérlegur ráðu-
nautur rektors í byggingarmálum"
og eftir því sem HP kemst næst hef-
ur hann enn sömu skrifstofu í gömlu
háskólabyggingunni. Þá situr hann
jafnframt í ráðgjafarnefnd um bygg-
ingarmál á háskólalóðinni. Þar hef-
ur að undanförnu verið lagt á ráðin
um nýtt líffræðihús og verður ekki
annað séð en að það hafi komið sér
vel fyrir dr. Magga því nú er hann að
hanna nýja líffræðihúsið.
Þeir sem til þekkja segja að starfs-
svið og titlamál Magga séu maka-
laus sýndarmennska, því hann haldi
áfram völdum sem byggingarstjóri
þótt nafni starfsins hafi verið breytt.
Og nú sé hann í raun bæði sjálfstæð-
ur arkitekt og byggingarstjóri. . .
lEins og fram hefur komið í
fréttum hefur Listamiðstöðinni ver-
ið lokað og mun ástæðan hafa verið
slök fjárhagsstaða fyrirtækisins. HP
hefur fregnað, að húseigandinn hafi
verið orðinn langeygur eftir húsa-
leigunni og gripið til þess ráðs að fá
lögfræðing í lið með sér. Sá tvínón-
aði ekki við hlutina heldur mun
hann hafa látið brjóta upp staðinn
og hirða þaðan út flest málverk í
húsnæðinu til tryggingar greiðslu.
Jóhann G. Jóhannsson hjá Lista-
miðstöðinni mun ekki hafa minnstu
hugmynd um hvar öll málverkin eru
niðurkomin...
N
■ tSI ú eru flokkarnir farnir að
pæla í kandídötum á framboðslist-
ana vegna væntanlegra sveitar-
stjórnakosninga næsta vor. Úr her-
búðum Alþýðubandalagsins heyr-
um við, að kvennadeildin hvggist
beita sér fyrir því, að Kristín Olafs-
dóttir verði í öruggu sæti fyrir
næstu kosningar...
LAUSNA
SKAKÞRAUT
3.
1. h8+ Kxh8 2. f8D+ og mát.
Lítil gletta til að minna mann á
að hægt er að vekja upp aðra
menn en drottningu.
4.
Ætti svartur leik, gæti hann leik-
ið riddaranum eða tekið hvorn
riddara hvíts sem er með kóngin-
um. Hvítur á aðeins kost á að máta
í einu þessara tilvika:
1. — Kxh8 2. f7+ og mát. Þetta
gefur vísbendingu um lausnina:
1. Ha8 Ra6 (c6 eda d7) f7+ og
mát. Nú valdar hrókurinn Rf8.
1. — Kxf8 2. Hxb8+ og mát.
1. — Kxh8 2. f7 + og mát eins og
áður.
t. : t
willllli
14®^^
UED CTPACT
V1ER ■
HLUTIR^^B
LAUGARDALSHÖLL
SÝNING • AAARKAÐUR • SKEMMTUN
Sýningin stendur til 8. september - ath. aðeins 11 daga í stað 17 áður - opið virka daga frá kl. 16:00 - 22:00
og frá kl. 13:00 - 22:00 laugardaga og sunnudaga.
HELGARPÖSTURINN 5