Helgarpósturinn - 05.09.1985, Side 15
Jón Baldvin heldur áfram að vera
nánast eina rödd Alþýðuflokks-
ins.. .
ifleiklistaráhugi landsmanna
hefur alltaf verið með eindæmum.
Ný leikfélög og jafnvel leikhús
spretta upp um land allt. Við á HP
fengum skemmtilega fréttatilkynn-
ingu um daginn. Þar var greint frá
nýju leikfélagi sem stofnað hefur
verið í Reykjavík. Það ber nafnið
Gaman-leikhúsið og er barnaleikfé-
lag, eins og það er orðað í tilkynn-
ingunni. Aðalhvatamenn að stofnun
leikfélagsins eru tveir ungir menn í
Vesturbænum, Magnús Geir Þórd-
arson og Gottskálk Sigurðsson
og eru þeir báðir leikstjórar að
fyrsta verkefni leikfélagsins, sem
ber nafnið Töfralúðurinn eftir
danska höfundinn Henning Nil-
sen. Þýðandi verksins er Anna
Jeppesen og tónlist eftir 0ster-
g&rd. Aðalhlutverk er í höndum
ungrar stúlku að nafni Tinna
Laufey Ásgeirsdóttir. Efni leikrits-
ins er lýst í fréttatilkynningunni:
„Leikritið fjallar í stuttu máli um
fjóra nágranna sem aldrei eru sam-
mála en dag einn kemur stúlka með
dreka og þá snúast nágrannarnir á
móti henni og drekanum en að lok-
um verða allir vinir og þannig endar
þetta skemmtilega leikrit." Segið
svo að unga fólkið í landinu sé ekki
duglegt, drífandi og hugmynda-
ríkt. . .
^l^minn er afstæður. Rokkið
sem er síungt hefur ennfremur
gamla sögu að baki. Ungu rokkar-
arnir í den eru nú um sextugt þótt
„the beat goes on“. Nú hafa forlögin
uppgötvað hinn mikla kaupmátt
rokkkynslóðanna. Almenna bóka-
félagið stofnaði plötuklúbb í sumar
og var fyrsta verkefni hans Saga
rokksins á um 60 hljómplötum og
snældum. Þar var að finna meira en
þúsund lög um 100 mestu rokk-
stjarnanna á 25 ára tímabili. Fyrsta
sendingin kom til landsins í sumar
— tvöfalt plötualbúm með stjörn-
unum Bili Haley, Little Richard,
Fats Domino og Buddy Holly.
Fjölmargir gengu þegar í klúbbinn
og plötumagnið seldist upp á
skömmum tíma. Nú er því búið að
panta nýja sendingu og mun hún
væntanleg til landsins um 10. sept-
ember. Við ráðleggjum rokkurum
allra tíma að vera viðbúnir. Rock,
rock, rock everybody...
Velux, D-lime,
Pareet, Plötur OG
KLÆÐUiriGAR
hannaðar og sterkar; plötur og
klæðningar til notkunar utanhúss
sem innan, sólbekki og parket í
miklu úrvali.
Alltóbreytt
Við sýnum og seljum
ýmislegt fleira: M.a. Velux
þakglugga, sem reynst hafa
jfburðavel við íslenskar
dðstæður; D-line hurðarhúna og
baðherbergisvörur, sem þykja
?instaklega vel
A klapparstígmum
Prátt fyrir
stækkunina í Skeifunni
er allt óbreytt á
Klapparstígnum.
Par seljum við
eins og áður
mótatimbur og
smíðavið,
allar gerðir
af plötum,
parket,
límtré, lista,
læðningar, glerull,
pappa, þakjárn, saum,
viðarvörn og fjölmargt fleira.
Verið velkomin í
Skeifuna 19 og
á Klapparstíg 1.
TIMBUKVERZLUNIN
VÖLUNDUR HF.
SKEIFUNNi 19, SÍMI 687999
heimilissýningunni, þeim Jóni
Múla, sem reynir að ,,selja“ Ríkisút-
varpið, og Jóni Baldvin, sem reynir
að „selja" Alþýðuflokkinn. Jón Múli
eða „kallinn á kassanum", eins og
hann er víst kallaður á sýningunni
og kratabásinn eru nánast samhliða
og hefur nálægðin orðið til þess að
úr hefur orðið eins konar einvígi á
milli Jóns Baldvins og Jóns Múla. Sá
síðarnefndi hrópar í sífellu „Ríkisút-
varpið, þitt útvarp, útvarp allra
landsmanna" á meðan Jón Baldvin
hrópar á móti „Hver á Island?" Og
þannig kallast þeir félagar á daginn
út og inn. . .
Hinn ein smáfrétt af væntan-
legum jólabókamarkaði. Stefanía
Þorgrímsdóttir (dóttir Þorgríms
Starra og Jakobínu Sigurðardóttur)
sendi frá sér sína fyrstu skáldsögu
fyrir nokkrum árum sem bar heitið
„Sagan um Önnu". Nú hefur Stef-
anía lokið við aðra skáldsögu sem
mun koma út fyrir jól. Ber skáldsag-
an nýja nafnið „Nótt í lífi Klöru Sig“.
Útgefandi er Forlagið...
SJAIST
mcð
endurskini
Umferðarr^ð
BÍLALEIGA
REYKJAVÍK:
AKUREYRI:
BORGARNES:
VÍDIGERDl V-HÚN.:
BLÖNDUÓS:
SAU DÁRKRÖKUR:
SIGLUFJÖRDUR:
HÚSAVIK:
EGIl.STADIR:
91-31815/686915
96-21715/23515
93-7618
95-1591
95-4350/4568
95-5884/5969
96-71498
96-41940/41594
97-1550
VOPNAFJÖRDUR: 97-3145/3121
SEYDISFJÖRDUR: 97-2312/2204
FASKRÚDSFJÖRDUR: 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRDI: 97-8303
interRent
HELGARPÓSTURINN 15