Helgarpósturinn - 05.09.1985, Page 16
jólabókamarkaði eru farnar að leka
út. Samtalsbækur verða að sjálf-
sögðu ofarlega á baugi eins og
endranær. Ein þeirra bóka verður
eftir bókmenntagagnrýnandann
Matthías Viðar Sæmundsson og
mun innihalda viðtöl við fimm
skáld. Þau eru Matthías Jóhann-
esson, Álfrún Gunnlaugsdóttir,
Thor Vilhjábnsson, Þorsteinn frá
Hamri og Indriði G. Þorsteins-
son. Upprunalega mun Matthías
Viðar hafa ætlað að hafa Þorgeir
Þorgeirsson í bókinni en hann
heltist úr lestinni og var þá Indriði
G. gripinn glóðvolgur og fenginn
inn í staðinn. . .
S.... _
hærra, að Magnús Gunnarsson
framkvæmdastjóri VSÍ sé á förum
frá sambandinu og hyggist hverfa til
annarra starfa og hefur þá flug-
bransinn verið nefndur. HP getur
hér með skýrt frá því, að Magnús er
ekki á förum frá V5I í bráð. Hins vegar
má gera ráð fyrir því, að Magnús
verði ekki lengi enn hjá VSÍ, því eins
og hann lýsti sjálfur yfir einhvern
tímann þá hyggst hann ekki verða
„ellidauður" hjá vinnuveitendum.
HP spáir því, að Magnús fari á ról
einhvern tímann á næsta ári...
SÝNINGAR
Árbæjarsafn
Sumarsýningin er farandsýning frá þjóð-
minjasafni Grænlendinga og lýsir græn-
lensku bátunum „qajaq" og „umíaq". Hún
er hingað komin á vegum Útnorðursafnsins,
en svo nefnist samstarf nokkurra menning-
arsögulegra safna í Færeyjum, á Grænlandi
og á íslandi. Sýningin er opin á opnunartíma
safnsins frá kl. 13.30 til 18 alla daga nema
mánudaga.
Ásgrímssafn
Sumarsýning: Úrval verka Ásgríms. Opið
alla daga nema laugardaga kl. 13.30—16.
Gailerf Borg
Pósthússtræti 9
Daði Guðbjörnsson sýnir olíumálverk, dúk-
ristu og steinþrykk 5.—16. september. Opið
kl. 12—18 virka daga, 14—18 um helgar.
Gallerí Langbrók
Amtmannsstíg 1
Sýning á fellistólnum Sóley eftir Valdimar
Harðarson arkitekt. Sýndar verða ýmsar út-
gáfur af stólnum auk Ijósmynda af frum-
gerðum hans. Þá verða á sýningunni úr-
klippur úr fjölda erlendra blaða og tímarita.
Jafnframt verða sýnd verðlaunaskjöl sem
Valdimar Haröarson hefur hlotiö vegna
þessa stóls. Sýningin er öllum opin ókeypis.
Virka daga er opið frá 10—18 og laugar- og
sunnudaga frá kl. 14—18.
Gallerí Salurinn
Vesturgötu 3
,,Óður til islands": Gunnar Karlsson sýnir
olíumálverk og skúlptúr til 13. september.
Opið kl. 13—18 alla daga, fimmtudaga til 22
en lokað mánudaga.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Sýning Septemhópsins í Austursal og í Vest-
ursal sýnir Jón Reykdal. Opið kl. 14 — 22 alla
daga.
Listasafn ASÍ
Grensásvegi16
Bjarni Jónsson sýnir Ijósmyndir í Listasafni
alþýðu 7.-22. september frá kl. 14—22 alla
daga.
Listasafn Einars Jónssonar
Hnitbjörgum við Njarðargötu
Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá
kl. 13.30—16. Höggmyndagarður safnsins
er opinn daglega frá kl. 11—17.
Listmunahúsið
Á laugardaginn kl. 14 opnar Karl Kvaran list-
málari sýningu á verkum sínum í Listmuna-
húsinu. Sýningin verður opin daglega frá kl.
10—18, laugardaga og sunnudaga frá kl.
14—18. Sýningunni lýkur 22. september.
Mokkakaffi
v/Skólavörðustíg
Erla Ólafsdóttur sýnir Ijósmyndir.
Norræna húsið
Á laugardag, 7. september kl. 14, verður
opnuð sýning finnsku listakonunnar Ullu
Sangervo-Lappalainen í anddyri Norræna
hússins. Sýningin verður opin daglega kl.
14—19 til 19. september.
Kl. 16:30 á laugardag flytur Sven Sandström
prófessor í nútímalistasögu fyrirlestur um
list, merkingu og upplifun.
I sýningarsölum sýna Kaare Espolin John-
sson og Knut Skinnarland frá Noregi mál-
verk og höggmyndir til 10. september. Mun-
iö líka Opna húsið á fimmtudagskvöldum.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg 3b
Sýning á málverkum eftir Tuma Magnússon
af ýmsu tagi frá þessu ári, unnum á íslandi
og Englandi. Tumi hefur haldið nokkrar
einkasýningar og tekið þátt í mörgum sam-
sýningum heima og erlendis. Sýningin er
opin frá 16—20 virka daga og frá 14—20
helga daga.
Þjóðminjasafn íslands
í Bogasal stendur yfir sýningin með silfur-
bjarta nál, íslenskar hannyrðakonur og
handverk þeirra. Á sýningunni eru hannyrðir
íslenskra kvenna undanfarinna alda. Opiö
kl. 13.30—16 daglega.
Þrastarlundur
v/Sog
Sigrfður Gyða Sigurðardóttir sýnir olfu- og
vatnslitamyndir, alls 23 verk. Sýningin
stendur til 8. sept.
BÍÓIN
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ ágæt
★ ★ góð
★ þoianleg
O léleg
Regnboginn
örvæntingarfull leit að Súsönnu
(Desperately Seeking Susan)
★★★
Framleiðendur: Midge Sanford og Sara
Pillsbury. Leikstjórn: Susan Seidelman.
Handrit: Leora Barish. Kvikmyndun: Edward
Lachman. Aðalleikarar: Rosanna Arqueete,
Madonna, Aidan Quinn, Mark Blum, Robert
Joy, Laurie Metcalf.
Þetta er flókið... Og þó ekki: Leikstjórinn
setur þetta efni nefnilega fram af natni,
djörfung og aukinheldur svolitlu kæruleysi.
Þetta er holl mynd. Hún sýnir manni að enn
eru nýjar leiðir fyrir hendi. Köld krumla kvik-
myndaveranna fer hér ekki um. —SER.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15.
Hernaðarleyndarmál
(Top Secret)
★
Framleiðendur: John Davison og Hunt
Lowry. Leikstjórn og handrit: Jim Abrahams,
David og Jerry Zucker ásamt Martin Burke.
Kvikmyndun: Christopher Challis. Tónlist:
Maurice Jarre. Aðalleikarar: Val Kilmer, Lucy
Gutteridge, Warren Clarke, Jeremy Kemp,
Omar Sharif.
. .• .samfellan lítil íTop Secret. Áherslan er öll
á hvern brandara hverju sinni, þeir eru í engu
byggðir upp, heldur skellt bláköldum framan
í áhorfendafésin frammi í sal, sem að sönnu
vita ekkert hvað bíður þeirra næst og allt þar
til flippið endar. Leikendum myndarinnar er
vorkunn... -SER.
Sýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05 og 11.05.
Vitnið
(The Witness)
★★★
Handrit: Earl W. WallaceAA/illiam Kellery.
Kvikmyndataka: John Seale. Tónlist:
Maurice Jarre. Leikstjóri: Harrison Ford,
Kelly McGills, Josef Sommer, Lukas Haas,
Jan Rubes, Alexander Godunov og fl.
Sýnd kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10 og 11.10.
Löggan f Beverly Hills
(Beverly Hills Cop)
★★★
Bandarísk, árgerð 1984.
Aðalhlutverk Eddie Murphy. Þrælgóður að
vanda. Leikstjóri Martin Best.
Sýnd kl. 3.10, 5.10, 9.10 og 11.10.
Atómstöðin
íslenska kvikmyndin eftir sögu Halldórs Lax-
ness. Enskur skýringartexti. (English
subtitles.)
Sýnd kl. 7.15.
Indiana Jones
Aðalhlutverk Harrison Ford.
Bönnuð innan 10 ára.
Sýnd kl. 3, 5 og 7.
Fálkinn og Snjómaðurinn
(The Falcon and the Snowman)
★★★
Fálkinn og Snjómaðurinn er bæði spenn-
andi og skemmtileg mynd, og þaö er ekki
síst að þakka afbragðsleik þeirra Penn og
Suchet, að ógleymdu vönduðu handverki,
sérstaklega klippingu. — IM.
Sýnd kl. 9.15.
Háskólabíó
Rambó
★★
Framleiðandi: Buzz Feitshans. Leikstjóri:
George P. Cosmatos. Tónlist: Jeffry Gold-
smith. Handrit: Silvester Stalloneúames
Cameron eftir sögu Kevin Jarre. Aðalhlut-
verk: Sylvester Stallone, Richard Crenna,
Charles Napier, Steven Berkoff og fl.
Rambó er geysilega vel gerð mynd, tækni-
lega séð. Hún er vel tekin, vel klippt og hljóð-
ið ásamt tónlist fyrsta flokks. Leikstjórinn
Cosmatos skilar fyrirtaks handbragði. Fyrir
þetta fær myndin fullan pott. Innihaldið og
hugmyndafræðin við Rambó er hins vegar
það ómerkilegasta sem hér hefur lengi
sést... Ég vona bara að ég sé ekki sá eini
sem fær óbragð í munninn þegar horft er á
áróðursmyndina Rambó. — IM
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 16 ára.
Nýja bíó
Steggjapartý
(Bachelor Party)
Með grínurunum Tom Hanks, Adrian Zmed,
William Tapper og leikstjóranum Neal Israel.
Framleiðendur Ron Moler og Bob Israel
(Fblice Academy).
Endursýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bíóhöllin
Salur 1
Ár drekans
(The Year of the Dragon)
Þessi mynd var frumsýnd í New York 16.
ágúst sl. og er nú frumsýnd á íslandi tæpum
þrem vikum síðar. Mickey Rourke leikur lög-
reglumann sem á í höggi við kínversku
„mafíuna" í Kínahverfinu í Nýju Jórvík. Aðal
Kínverjann leikur John Lone.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Gullselurinn
(The Golden Seal)
Ný barnamynd frumsýnd.
Sýnd kl. 3 á laugardag og sunnudag.
Salur 2
Víg í sjónmáli
(A Wiew to a Kill)
★★
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Salur 3
Tvífararnir
(Double Trouble)
Mynd með Trinity-bræðrum: Terence Hill og
Bud Spencer. Leikstjóri E.B. Clucher, sem
geröi fyrstu tvær myndir bræðranna.
Sýnd kl. 5 og 7 (3 um helgina).
Löggustríðið
(Johnny Dangerously)
Grínmynd um löggur og bófa á 3. áratugn-
um. Aðalhlutvork: Michael Keaton, Joe Pis-
coto, Peter Boyle, Dom Deluise, Danny
DeVito.
Sýnd kl. 9 og 11.
Salur 4
Hefnd Porkýs
(Porky's Revenge)
Tónlist í myndinni er leikin af Dave Edmunds
og George Harrison. Aðalhlutverk: Dan
Monahan, Wyatt Knight, Mark Herrier. Leik-
stjóri: James Komack.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Sagan endalausa
Sýnd kl. 3 um helgina.
Salur 5
Rafdraumar
(Electric Dreams)
Laugarásbíó
Salur A
Gríma
(Mask)
Aöalhlutverk: Cher, Eric Stoltz og Sam Elliot.
Leikstjóri: Peter Bogdanovich. (The Last
Picture Show).
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Salur B
Maðurinn sem vissi of mikið.
(The Man Who Knew Too Much)
★★★
Framleiðandi og leikstjóri: Alfred Hitchcock.
Handrit: John Michael Hays eftir sögu
Charles Bennett/D.B. Wyndham Lewis.
Kvikmyndataka: Robert Burks. Tónlist: Bern-
ard Herrmann. Aðalhlutverk: James Stew-
art, Doris Day, Christopher Olsen, Bernard
Miles, Brenda de Banzie, Reggie Nalder,
Daniel Gélin og fl.
Maðurinn sem vissi of mikið er dæmigerð
Hitchcock-mynd, hlaðin öllum þeim smá-
atriðum, fínleika, húmor og spennu sem
gamli meistarinn einn gat matreitt. — im.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Salur C
Morgunverðarklúbburinn
(The Breakfast Club)
★★★
Framleiðendur: Ned Tanen og John
Hughes. Leikstjórn og handrit: John
Hughes. Tónlist: Keith Forsey. Aðalleikarar:
Emilio Estevz, Paul Gleason, Anthony
Michael Hall, Judd Nelson, Molly Ringwald,
Ally Sheedy.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Austurbæjarbíó
Salur 1
Breakdance II
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Hljómleikar Harðar Torfasonar kl. 9 4. sept-
ember. Þann dag er Breakdance í sal 2.
Salur 2
Maðurinn sem gat ekki dáið
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur 3
Blade Runner
Sýnd kl. 5, 9 og 11.
When The Raven Flies
(Hrafninn flýgur)
Bönnuð innan 12 ára.
Sýnd kl. 7.
Tónabíó
Minnisleysi
(Blackout)
★★
Framleiðendur: Les Alexander og Richard
Parks. Leikstjórn: Douglas Hickox. Handrit:
David Ambrose, Richard Smith, Richard
Parks og Les Alexander. Kvikmyndun: Tak
Fujimoto. Tónlist: Laurence Rosenthal. Aðal-
leikarar: Richard Widmark, Keith Carradine
og Kathleen Quinlan.
Eins og vera ber er áherslan öll á það atriði
að viðhalda spennunni. Hér tekst það með
ágætum og reyndar með nokkrum glans ef
þaö er haft í huga að varla fleiri en tveir
menn koma til greina sem fanturinn. Og því
bara annaðhvort, eöa... — SER.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Stjörnubíó
Salur A
Starman
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Líka kl. 3 um helgina.
Salur B
Micki og Maude
Aðalleikarar: Dudley Moore, Richard
Muligan, Anna Renking, Amy Irving. Leik-
stjóri: Blake Edwards.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Prúðuleikararnir
Sýnd kl. 3 um helgina.
VIÐBURÐIR
Lögvernd
Ármúla 19
Fyrst um sinn verður skrifstofan opin á
kvöldin frá klukkan 18 til 21 alla virka daga.
Þar verða félagsmönnum veittar upplýsing-
ar og ráðgjöf í ýmsum málum og reynt að
hjálpa fólki við að ná rétti sínum.
Algengast er að fólk leiti til Lögverndar
vegna ýmissa vandamála sem upp koma í
sambandi við húsnæðiskaup og vaxtamál
og jafnvel okurlán í því sambandi. Samtökin
munu meðal annars aðstoða félagsmenn
við gerð samninga um íbúðarhúsnæði. Sími
Lögverndar í nýju húsakynnunum er
685399.
LEIKUST
Rokk-söngleikur
á faraldsfæti
„Ekkó — Guöirnir ungu" veröur til sýnis á
eftirtöldum stöðum kl. 20.30 (dagskráin
verður birt hér í áföngum): 4. sept. Bolungar-
vík. 5. sept. Hnífsdal, 7. sept. Hvamms-
tanga, 8. sept. Blönduósi, 9. sept. Sauðár-
króki, 10. sept. Siglufirði, 11. sept. Ólafsfirði,
12. sept. Dalvík, 13. sept. Akureyri og 14.
sept. kl. 15:00.
TÓNLIST
Austurbæjarbíó
Afmælistónleikar Harðar Torfasonar, leik-
stjóra og lagahöfundar, verða haldnir í Aust-
urbæjarbíói þann 4. sept. nk. Þar koma fram
auk Harðar, sem í senn heldur uppá tuttugu
ára sviðsferil og fertugsafmælið, þau
Megas, Bubbi Morthens, Bergþóra Árna-
dóttir og Kristln Ólafsdóttir. Þessir fimm
listamenn teljast allir til kynslóðar íslenskra
trúbadúra, en með fyrstu plötu sinni 1971
má segja að Hörður hafi rutt trúbadúrum
braut hér heima. Tónleikarnir hefjast kl. 21
og verður leikarinn Viðar Eggertsson kynnir
á þeim. Sala aðgöngumiða í Austurbæjar-
bíói og Bókabúö Lárusar Blöndal á Skóla-
vöröustíg 2.
langstærsta bifreiðastöð borgarinnar
með flesta 7 farþega bíla
Fljót og góð afgreiðsla. Stæði um allan bæ.
■ ■
Álfheimumó—"Reykjavík sími: 657-455
FJÖLBREYTT
HELGARTILBOÐ
Frá kr. 150,-
Góður matur þarf ekki að vera dýr.
Opið alla daga kl. 11 —22
FREE
STYLE
FORMSKUM
L'OREAL
Íl/U<
33«!
nrrr'y'i r i . v ~ nýía lagningarskúmið
SKUM í hánb? ** LORÉAL
og hárgreiðslan verður
leikur einn.
16 HELGARPÓSTURINN