Helgarpósturinn - 20.02.1986, Blaðsíða 37

Helgarpósturinn - 20.02.1986, Blaðsíða 37
Þórunn Gestsdóttir: „Mér finnst það mjög ónotaleg tilhugsun að peningar stjórnuðu manni..." Dóra Einarsdóttir: „Það eru mjög fáir sem kunna að fara með peninga á skemmtilegan hátt.. Kristinn Finnbogason: „Menn fá ekki að existera auralausir í þessu þjóðfélagi... Thor Vilhjálmsson: „Hef ekki áhuga á öðrum peningum en þeim sem ég hef not fyrir. . Baldur Hermannsson: „Ég fyrirlít það fólk sem hefur gróða að keppikefli..." HP SPYR ÞJOÐÞEKKTA ISLENDINGA A LÆVISAN H A T T: HVAÐA MALI SKIPTA ÞEIR I L I F I Þ I N U? Eg á pening. Já, já. Ég á hreint ansi skemmtilegan pening of- an í skúffu hjá mér, einhver- staðar. Mér þykir vænt um hann. Ég vann hann, að mig minnir, fyrir sig- ur í 100 metra hlaupi, sennilega um fermingaraldur. Já, já. Ég var drengjameistari." Svona kemst Thor Vilhjálmsson rithöfundur að orði þegar hann er inntur eftir því hvaða máli peningar hafi skipt hann í lífinu. Þegar hon- um er hinsvegar gerð grein fyrir því hverslags peningar hér verði til um- ræðu á eftir, hristir hann höfuðið og fussar stuttlega .. . ,,Þú meinar þá, já. Nei, ég sé þá aldrei...“ Og síðan eftir nokkra umhugs- un . . . „Það er ekki ætlast til þess að ' listamenn sjái svoleiðis. Hriflu-Jón- as hafði uppi þá kenningu að það fengist mest út úr þeim listamönn- um sem hefðu úr minnstu að moða. Það eimir mikið eftir af þessari skoðun hans. Hún er seig.“ — Hefurdu áhuga á aö eignast pemnga, Thor? „Ég hef akkúrat engan áhuga á peningum ...“ í — Er það mögulegt? „Ja, ég skal orða þetta aðeins öðruvísi. ..“ — Hvernig þá? „Ég hef ekki áhuga á öðrum pen- ingum en þeim sem ég hef not fyrir. Ég met þá peninga sem ég þarf til matarkaupa og húshitunar. Og svo þarf ég vitaskuld að eiga fyrir skött- unum mínum. En ég hef ekki intr- essu fyrir öðru fjármagni. Það skipt- ir mig ekki máli." 1 — Þú hugsar þá lítiö um peninga? I „Já. Og þeir fá mig heldur ekki til [ þess að hugsa. Peningar eru ekkert í sjálfu sér. Þeir hafa ekkert gildi í rauninni." ! ; Skoðanir Kristins Finnboga- sonar fjársýslumanns í þessu efni fara ekki saman við það sem hingað til hefur verið sagt um peninga í þessari grein. Hann er með þetta á hreinu: „Fjármagn er afl,“ og hann kveður fast að effinu í upphafi máls síns, „afl þeirra hluta sem þarf að framkvæma. Án þess geta menn svo sem spekúlerað lengi og hugsað út alla skapaða hluti, en það fer þá aldrei út fyrir höfuðskelina...“ Kristinn hugsar sig aðeins um, en segir svo, allt að því mæðulega: „Ég furða mig oft á því, en það er stund- um eins og menn geti ekki sætt sig við það að allt kostar sitt. Peningar stjórna þessu þjóðfélagi sem við lif- um í. Þeir eru það sem allt snýst um. Ég snýst um peninga og svo er um alla aðra íslendinga. Menn eru bara mishræddir við að viðurkenna það.“ Hann er ekki frá því að hérlendis sé það ríkjandi hugarfar að líta á peninga fremur fjandsamlegum augum. Þeir séu af hinu vonda, komi illu til leiðar, eyðileggi menn ... „fyrir nú utan það sem er alverst: Það er svo voðalega ljótt að græða á íslandi. Svoleiðis gera að- eins vondir menn. í besta falli að eitthvað sé athugavert við þá.“ Og Kristni er illa við þetta viðhorf: „Það er mjög mikilvægt fyrir svona litla þjóð eins og íslendinga að hugsa vel um peninga, láta þá vinna fyrir sig. Og það verður ekki öðru- vísi gert en með réttum hug til þessa afls sem ég nefndi fjármagnið í upp- hafi.“ Annars segist hann hafa kynnst mörgum apaköttum í þessu efni á ævinni, sem hafi orðið það af aurum og þá gjarn- an ekki þolað það álag sem fylgir því að hafa mikla peninga milli handanna. Þetta sé voðalega ein- staklingsbundið. Sumpart líkt vín- neyslu: Sumir þoli mikla peninga án þess að það finnist á þeim, aðrir ekki. Enn aðrir verði háðir þeim og fari jafnvel illa út úr því og loks séu þeir sem þola það að vera háðir pen- ingum. Hvort hann tilheyri síðasttalda hópnum? Hann segist ekkert vilja segja um það, en þó þetta: „Ég þoli mjög vel að umgangast mikla pen- inga. Það er vegna þess að ég finn að ég hef unnið til þeirra og eins vegna þess að ég skynja það vald sem þeir hafa. Ég átta mig fyllilega á þeim sterka krafti sem er fólginn í fjármagni. Ég neita því ekki að oft getur þetta vald orðið svo mikið að maður skynji það sem ógnarvald. Og það getur verið hættulegt." Kristni leiðist aldrei eitt augnablik sem hann ver í hugleiðingar um peninga og fjársýslumál. Hann hef- ur gaman af peningum, gaman af að hugsa um þá og hugsa út í þá. „Pen- ingar örva mig, þeir hvetja mig,“ segir þessi maður sem af mörgum er talinn vera með eitthvert mesta pen- ingavitið á íslandi, altént í saman- lögðum Framsóknarflokknum. Og hvort sú viska sé meðfædd eða á- unnin? „Ég held að mönnum haldist aðeins vel á peningum sakir með- fæddrar visku í þessum efnum. Hún ásamt heppni gerir mönnum svo kleift að græða." Thor Vilhjálmsson segir aftur á móti: „Það sem menn þurfa til þess að eignast peninga er skortur á sjálfsvirðingu fyrst og fremst. Ómanneskjulegheit fylgja gjarn- an...“ Og skáldið heldur áfram á þessari braut: „Ég fæ alltaf svolítið fyrir brjóstið þegar menn eru að reyna að koma að þeirri skoðun sinni að það felist einhverskonar yfirburðir í því að eiga peninga. Þetta er vitleysa. Margt ómerkileg- asta fólk mannkynssögunnar hefur annaðhvort átt eða stjórnað miklum fjármunum nema hvorttveggja sé.“ Svo gerast menn pólitískir: „Ég hef mikla andstyggð á viðhorfum þess- ara kramarakjassara eins og Fried- mans sem vilja verðmerkja allt og alla. Ég held að menn hafi aldrei hugsað það til enda hvað það getur orðið hættulegt ef tekið verður upp á því að meta alla skapaða hluti til fjár." Fólk væri fegið þyrfti það ekki að hugsa mikið um peninga. Og þeim mun meira virðist það hugsa um þá sem það á minna af þeim. Þetta var viðkvæði flestra sem við var talað í sambandi við skrifin í þessum dálkum. Það kom hinsvegar glögglega fram að menn hafa peninga misjafnlega sterkt á heilanum eftir aldri. Undir fertugu virðast menn vera uppfullir af frös- um sem fást um fé og fyrirhöfn varð- andi það, en annað er upp á ten- ingnum hjá þeim sem eru farnir að nálgast fimmtugt og þaðan af hærri aldur. í þeim hópi hugsa menn ann- aðhvort lítið um peninga eða vel til þeirra. Gísli B. Björnsson auglýs- ingastjóri segir til dæmis að viðhorf sitt til peninga hafi mikið breyst eft- ir að hann var búinn að koma upp sínu fyrirtæki og fjölskyldu. „Núna reynir maður að búa betur að því sem maður hefur, heldur í horfinu fremur en að bæta við sig. Ég hef það helst til siðs að eiga aldrei pen- inga. Ég eyði frekar en að safna, enda er það svo að ég finn hvað ég fer miklu betur með fjármagn þegar það er takmarkað. Ég verð svo fjári skynsamur peningamaður þegar ég er févana, en annars ekki og þess- vegna leita ég auðvitað uppi þær aðstæður þar sem ég kemst af með sem minnst." Örn Árnason er hinsvegar á aldri sem getur ekki tekið þetta eins ró- lega. Hugsanir hans um peninga eru miklu hörkulegri en Gísla, en Örn segir: „Miðað við mínar aðstæður í dag, væri ég barasta ekki neitt neitt án peninga. Ég er skuldum vafinn húsbyggjandi og væri einfaldlega gerður upp ef ég nyti ekki þess tak- markaða fjár sem ég á möguleika á að afla mér. Og mikið skelfilega hræðist ég þá tilhugsun, ég meina, að vera gerður upp.“ Hann segist ekki geta hugsað sér að vera blank- ur lengur en þær dagstundir þegar ekki er einu sinni hægt að skrapa saman fyrir sígarettum. „Mér finnst það hreint alveg hræðileg tilhugsun að hafa ekki eitthvað af peningum milli handanna dag frá degi. Ég býst við að ég myndi finna til mikillar vanmáttarkenndar án þeirra." Gísla B. Björnssyni finnst það líka alveg óbærileg tilhugsun að vera auralaus í meira en einn dag, og svo er um enn fleiri: „Það er svolítið skrítið til þess að hugsa að allslaus, án eigna og peninga, fær maður ekki tekið þátt í þessu þjóðfélagi. Það er ekkert val. Éf þú þolir ekki peninga ein- hverra hluta vegna, ert hugsjóna- maður og stendur fast á því að vilja ekki eignast neitt, er ekki um neitt annað að ræða en að vera utan- veltu," sagði einn viðmælandinn. Og hér komst Kristinn Finnbogason svo að orði: „Það er mjög erfitt að vera blankur á íslandi. Ef menn hafa hvorki vinnu né peninga, grípur samhjálpin þegar í stað inn í líf þeirra. Menn fá ekki að existera auralausir í þessu þjóðfélagi, þó þeir kannski fegnir vildu!“ órunn Gestsdóttir blaða- maður segir að peningar hafi aldrei stjórnað sér og henni finnst það mjög ónotaleg til- hugsun að þeir gerðu það. „Mér finnst að menn ættu að leggja allt kapp á að innri hvatir og speki stjórni þeim í stað ytri hluta á borð við peninga." Og kynsystir Þórunn- ar, Dóra Einarsdóttir búningahönn- uður, bætir við þetta: „Peningar eru það leiðinlegasta sem ég umgengst í lífinu af því að mér finnst þeir vera svo mótandi. Þeir marka fólk alltof mikið, hafa leiðinleg áhrif. Fólk sem hefur ekki átt mikla peninga, en eignast þá allt í einu, breytist yfir- leitt til hins verra. Það eru mjög fáir sem kunna að fara með peninga á skemmtilegan hátt.“ Þórunn Gests- dóttir segir: „Ég hef kynnst því að þurfa ekki að hugsa um peninga, rýna í hverja krónu. Og ég segi alveg eins og er að mér fannst tilver- an ekki verða neitt sælli fyrir bragð- ið. Ég held það hafi töluvert mikla hættu í för með sér þegar menn þurfa ekki lengur að huga að krón- unum sinum. Þegar svo er komið er oft tilhneiging í þá átt að menn gleymi sér alveg. Ég hef kynnst fólki sem er alveg hroðalega illa leikið eftir of rúm fjárráð." Þarna segir Baldur Hermannsson eðlisfræðingur Þórunni hitta nagl- ann á höfuðið. Baldur er klár á því að peningar séu undirrót hins illa og dragi menn í svaðið. „Ég fyrirlít pen- inga. Ég fyrirlít líka fólk sem hefur það að keppikefli að græða pen- inga. Á hinn bóginn verð ég að segja að peningar hafa töluvert mik- il áhrif á mig, mestmegnis óþægileg og stundum illkvittnisleg: Ég á til dæmis mjög erfitt með að láta pen- ing af hendi rakna. Mér finnst óþægilegt að eyða peningum og sál- rænt til dæmis mjög erfitt að eyða peningum annarra, svo sem hins opinbera. Ég fer næstum því hjá mér ef ég rata í þær kringumstæður að greiða eitthvað úr öðrum vasa en mínum eigin." Baldur heldur síðan áfram þar sem Thor endaði tal sitt um sam- band fjár og skáldskapar. Hann heldur þvi fram að andleg sköpun og fjármál fari alls ekki saman, ann- aðhvort séu menn peningamenn eða andans menn, þetta séu ósætt- anlegar andstæður. Hann rökstyður þetta svona: „Þegar maður kemst upp á lagið með það að vinna sér inn peninga og eygir ágóðavon læt- ur maður það hafa algjöran forgang í lífinu og gleymir öllu öðru. Gróða- tilfinningin verður strax ljúfari en allt annað, ég nefni sæmilegt mann- orð, eða löngun í listir. Menn krækj- ast í þetta eins og eiturlyf." Og svo segir Baldur: „Ég held að andans jöfrum sé það mjög nauðsynlegt að hafa hreina sál, hún sé ekki bundin af allskonar hjómi og hégóma eins og peningum og fasteignum . . .“ Bundin af peningaáhyggjum í staðinn? „Auðvitað er það draumur allra listamanna að þurfa ekki að hugsa um annað en það sem þeir eru að fást við hverju sinni, í stað þess að þurfa að skreppa út í miðri sköpun sinni og borga víxla,“ segir Örn Árnason leikari. Hann tekur undir orð Þórunnar Gestsdóttur hér að framan þar sem hún sagði að sér fyndist það ónota- leg tilfinning að stjórnast af pening- um. En hvað sem því liði, yrðu menn á hans aldri samt að sætta sig við það ríkjandi ástand mála. Peningar í hugum þessa aldurshóps væru númer eitt, tvö og þrjú. „Ég viðurkenni það fúslega að ég stjórn- ast mikið af peningum. Ég stend mig oft að því um þessar mundir að láta ýmislegt sitja á hakanum sem ekkert gefur af sér fjárhagslega. Ég á þar til dæmis við samvistir við konu mína og son. Maður fórnar jafnvel nóttum í skiptum fyrir skuld. Og auðvitað mótast tilfinning manns fyrir peningum af þessum veruleika," segir húsbyggjandinn Örn Árnason. Menn eru yfirleitt samþykkir því að þeir snúist að einhverju leyti í kringum peninga, misjafnlega hratt eins og gengur. Fæstir þeirra sem til- heyra öðrum aldurshópum en hús- byggjendur eru hinsvegar fúsir til þess að viðurkenna að þeir stjórnist af peningum. En það er líka athygl- isvert hvað þessi hópur er opinn fyr- ir því að ræða fjárhagsvandræði sín. Peningar eru vissulega feimnismál í hugum stórs hóps Islendinga enn þann dag í dag, en sá hópur minnk- ar stöðugt, um leið og hinum fjölgar sem uppvægir eru að úttala sig um þessi mál. Peningaumræðan er að opnast, verða einlægari og fólk virðist meira vera farið að hugsa huglægt um peninga en barasta út frá hagkvæmnissjónarmiðinu. eftir Sigmund Erni Rúnarsson myndir Jim Smartl 36 HELGARPÓSTURINN HELGARPÓSTURINN 37

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.