Helgarpósturinn - 20.02.1986, Blaðsíða 33

Helgarpósturinn - 20.02.1986, Blaðsíða 33
LEIKUST eftir Gunniaug Ástgeirsson Skipt um minningar Nemendaleikhúsiö, Lindarbœ: Ó muna tíd eftir Þórarin Eldjárn. Leikstjóri: Kári Halldór. Leikmynd og búningar: Jenný Guömunds- dóttir. Tónlist: Árni Haröarson. Lýsing: Ágúst Pétursson. Umsjón tœkniuinnu: Ólafur Örn Thorodd- sen. Leikendur: Guöbjörg Þórisdóttir, Valdimar Flygenring, Eiríkur Guömundsson, Skúli Gautason, Bryndís Petra Bragadóttir, Inga Hildur Haraldsdóttir. Sýningartími 2 klst. og 15 mín. Nemendaleikhúsið hefur komið sér upp skemmtilegri hefð, að frumsýna á hverjum vetri nýtt sérpantað íslenskt leikrit. Gott fyrir nemendurna að glíma við frumuppfærslu á verki og gott fyrir leikritun í landinu að einn höfundur a.m.k. fái að setja saman leikrit pantað af leikhúsi. Nemendaleikhúsið valdi að þessu sinni Þórarin Eldjárn til þess að semja fyrir sig leikverk. Þórarinn hefur ekki áður samið leikrit einn og sér, en hann hefur átt hlut að mörgum sýningum, bæði sem þýðandi, söngtextahöfundur og meðhöfundur ann- arra, hann er því hagvanur í leikhúsi enda verður honum ekki skotaskuld úr því að setja saman leikverk. O muna tíð segir frá heldur óvenjulegu fyr- irtæki í borginni sem heitir Minningaþjón- ustan sf. Þar geta menn fengið nýjar minn- ingar í staðinn fyrir þær gömlu, skipt um minningar í heilu lagi eða skipt um einstaka búta. Skötuhjúin sem reka fyrirtækið hafa einhverstaðar náð prófessor á sitt vald sem ræður yfir þessari tækni og nú notfæra þau sér hana með aðferðum sem minna á vís- indaskáldsögu. Sviðsbúnaðurinn er mjög vel gerður með tilliti til þessa, minnir á gamal- dags bíómynd um brjálaðan vísindamann. Hugmynd Þórarins er ágætlega útfærð í textanum og býður hún uppá margar skemmtilegar og óvæntar uppákomur í sam- skiptum þeirra sem reka þjónustuna og við- skiptavinanna sem koma til þess að skipta um minningar. Flest er þar með ólíkindabrag en efnið gefur engu að síður tilefni til að velta vöngum yfir hlut minninganna í tilver- unni og þeim áhrifum sem þær hafa á Iíf manna og líðan. Má kannski segja að verið sé á svolítið absúrd hátt að sýna þá tilhneig- ingu manna að muna fyrst og fremst það sem er þægilegt og passar inn í þá mynd sem menn vilja gera af sjálfum sér, sem yfirleitt er fegurri en efni standa til. Það er þó fyrst og fremst textinn sjálfur í öllum sínum fjölbreytileik, með óvæntum til- svörum og viðbrögðum sem gefur verkinu gildi. Þar nýtur sérstæð kímnigáfa höfundar- ins sín vel. Persónurnar sjálfar eru ekki mjög djúpristar, en það helgast bæði af aðferð höf- undar og efni verksins. Það sem yfirleitt er einna skemmtilegast við sýningar Nemendaleikhússins er hversu gott tóm ieikendur og aðrir aðstandendur sýninganna hafa gefið sér til þess að nostra við smáatriði. Einstakar senur, einstök til- svör og einstakar hreyfingar eru unnar af meiri nákvæmni en maður á oft að venjast í leiksýningum. Þetta gerir það að verkum að áhorfandi nýtur mjög vel margra augnablika í sýningunni jafnvel þótt heildarmynd verks- ins verði ósamstæð. Þetta á við um þessa sýningu. Mér finnst leikstjórinn ekki ná al- veg nógu sterkri heild út úr verkinu, en það kemur lítt að sök vegna vandvirkninnar sem lögð er í einstök atvik. Það er gaman að fylgjast með ungum leik- urum og hvernig þeir taka á viðfangsefnum sínum. Þrátt fyrir að persónur þessa verks séu ekki verulega djúpristar tekst hverjum leikanda fyrir sig að skapa sérstæða týpu og innbyrðis eru þær mjög ólíkar og þeim tekst einnig mjög vel að halda persónugerðinni út alla sýninguna. Það er einnig svolítið gaman að bera þær persónur sem þessi hópur skap- ar nú saman við þær persónur sem þau bjuggu til í síðustu sýningu sinni, Hvenær kemurðu aftur rauðhærði riddari. Þá kemur í ljós að flestir skapa persónur sem eru nán- ast algjörar andstæður við hlutverkin þá og að öllu leyti gjörólíkt. Ekki veit ég hvort þetta er markvisst gert, trúlega þó, en þetta sýnir ljóslega að góð leikaraefni eru í þessum hópi. Umbúnaður sýningarinnar þjónar verkinu vel. Sviðið er í miðjum sal og sitja áhorfend- ur á tvær hliðar. Sviðið er óskipt, mest í hvítu, og leikmunir ekki margir og gefur það gott svigrúm til hreyfinga en undirstrikar um leið absúrdhlið verksins. Tónlistin er ekki áberandi en magnar upp andrúmsloftið, einkum er á líður. Minningaskiptaútbúnað- urinn er sniðugur og ekki má gleyma hug- skotssjónunum, forkunnarþarflegu tæki til að kanna hugsanir og minningar fólks. Hér er á ferðinni enn ein bráðskemmtileg sýning á vegum Nemendaleikhússins sem vel er þess virði að spandera einni kvöld- stund á. GÁst Nú: 33328 París Aðun 43.158 48.700 62.056 Róm 48.673 62180 Annafargjald Amarflugs - styttri og ódýrari ferðir fyrir víðförla viðskiptamenn ANIMAFARGJALD Arnarflugs gerir farþegum kleift að fara í stuttar ferðir til Qölmargra staða í Evrópu og víðar á verulega lægra verði en áður. Arnarflug hefur aðalamboð fyrir hollenska flugfélagið KLM á íslandi og getur því selt far- þegum framhaldsfarseðla út um allan heim frá Amsterdam. Með því að tengja slíka farseðla ANNAFARGJALD- INU er t.d. unnt að ferðast Staður Nú Áður Sparnaður Frankfurt 32.491 41.084 8.953 (26%) Genf 38.908 45.800 6.892 (18%) Vín 45.263 53.382 8.119 (18%) Róm 48.673 62.180 13.507 (28%) París 33.328 43.158 9.830 (29%) Madrid 48.700 62.056 13.356 (27%) Milano 42.442 54.408 11.966 (28%) til neðangreindra staða í miðri viku og spara veruleg- ar fjárhæðir. Þetta eru aðeins örfá dæmi af Qölmörgum. Hafið samband við söluskrifstofur Arnarflugs eða ferðaskrifstofurnar og leitið nán- ari upplýsinga. Imarnarflug Lágmúla 7, sími 84477 HELGARPÓSTURINN 33

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.