Helgarpósturinn - 17.07.1986, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 17.07.1986, Blaðsíða 9
— ,, Vinabönd verda ad vera gagn- kvœm," segir Albert Guðmundsson idnadarráðherra í viðtali við Morg- unblaðið síðastliðinn sunnudag. Hin margfrægu vinabönd hans og Guðmundar J. Guðmundssonar, aí- þingismanns og verkalýðsleiðtoga, hafa hins vegar endanlega verið slit- in, og það fyrir augum allrar þjóð- arinnar. Vináttu, sem ráðherrann segir hafa verið „báðum til mikillar ánœgju“, er lokið. Undrun manna yfir því að bar- áttumenn jafnólíkra afla og Guð- mundur og Albert voru, skyldu geta viðhaldið nánum vinskap um langt árabil, er löngu útbrunnin. Vinátta oddvita Sjálfstœðisflokksins og verkalýðsfrömuðarins var á allra vitorði. En hvernig vinir voru þessir tveir framámenn þjóðarinnar? Hvað batt þá saman og hvernig voru samskipti þeirra áður en upp úr slitnaði? Hinn margfróði Dagfari DV kallar Albert Gnðmundsson og Guðmund J. Guðmundsson „frægustu vini ís- landssögonnar" — hvorki meira né minna. Réttara væri ef til vill að telja þetta frægustu vinslit íslandssög- unnar, að minnsta kosti á síðari tím- um. Þó virðist það hreint ekki heigl- um hent að henda reiður á því hvor vinanna sleit þessum víðfræga vin- skap. í fyrrnefndu Morgunblaðsviðtali, sem birtist þann 13. júlí, segir AI- bert: „Guðmundur hefur gefið sínar yfirlýsingar, sem eru náttúrulega skilaboð til mín þess efnis að hann vilji ekki að þessi vinskapur, sem ég held að hafi verið báðum til mikillar ánægju, lifi lengur. Það er hans ákvörðun og ég verð að virða hana.“ Daginn eftir birtir DV hins vegar viðtal við Guðmund, þar sem hann segir: „Ég er sár og leiður yfir því að missa gamlan vin. Ég er sleginn yfir þessu.“ ÞJÓÐSAGAN UM ÞINGHOLTIN í umfjöllun fjölmiðla um svoköll- uð Guðmundar- og Albertsmál hef- ur það margsinnis verið staðhæft að vinátta þeirra félaganna spanni að minnsta kosti tvo áratugi. Sú þjóð- saga að Albert og Guðmundur hafi verið æskuvinir hefur líka fengið góðan byr um þjóðfélagið á síðast- liðnum árum. Samkvæmt þessum heimildum áttu þeir að hafa leikið sér saman í Þingholtunum og verið nánast óaðskiljanlegir upp frá því. Það er þó tæpast nokkur fótur fyrir þessari sögu, þó margir hafi viljað trúa henni. Upphaf þess kunningsskapar, sem síðar þróaðist í trygga vináttu, má með öllum líkindum rekja til setu þessara tveggja manna í Hafnar- stjórn. Frá því var sagt á eftirfarandi hátt í ítarlegri umfjöllun um Albert Guðmundsson í Helgarpóstinum í ársbyrjun árið 1982: „Albert segir sjálfur, að hann eigi vini og kunn- ingja víða í þjóðlífinu. Það vakti þó athygli, þegar í Ijós kom að þessi málsvari atvinnurekendavaldsins í landinu var góður vinur Guðmund- ar J. Guðmundssonar, þingmanns Alþýðubandalagsins og varafor- manns Dagsbrúnar. Líkast til hafa þeir félagarnir „fellt hugi sarnan" á löngum fundum í Hafnarstjórn, en þar á G.J.G. einmitt sæti fyrir sinn flokk. Og svo hafa þeir sameinast á þriðja vettvangnum, þ.e. innan Sam- taka áhugamanna um áfengis- vandamálið." Það var sem sagt að öllum líkind- um þessi sameiginlegi áhugi Guð- mundar og Alberts á hafnarmálum, sem m.a. leiddi til vinskapar þess, sem nú er lokið með svo dramatísk- um hætti. Ahugi Guðmundar á þess- um málaflokki er auðskilinn, sökum tengsla hans við hafnarverkamenn í gegnum Dagsbrún, en Albert teng- ist málinu úr gagnstæðri átt. Hann var einn af stofnendum Tollvöru- geymslunnar, sem er einkafyrirtæki í eigu nokkur hundruð innflytjenda. „ÁTAK" í tilvitnuninni hér að framan er þess getið að Albert og Guðmundur hafi einnig tengst í gegnum Samtök áhugamanna um áfengisvandamál- ið. Það er m.á. átt við þátttöku þeirra félaga í því sem á sínum tíma kallaðist „Átak“ og var, eins og nafnið gefur til kynna, ákveðið átak til þess að vekja athygli á og leita lausna á áfengisbölinu. í nafni þessa átaks var m.a. auglýst í blöðum og haldnir baráttufundir, en þar að auki var efnt til söfnunar á fé fyrir málstaðinn. Mun ,,Átak“ hafa skilað ágætum árangri og þess má geta að Albert og Guðmundur voru síður en svo einu framámenn þjóðarinnar, sem tengdust þessu verkefni. í aug- lýsingum frá þessum tíma má sjá lista valinkunnra sómamanna og kvenna, sem lagt hafa málstaðnum lið, jafnt hægri manna og vinstri manna, atavinnurekenda og verka- lýðsforkólfa. Á tímum „Átaks" var vinátta verkalýðsforingjans og sjálfstæðis- mannsins þó löngu þjóðkunn. Sá vinahugur, sem á milli þeirra var, kom skýrt í ljós í forsetakosningun- um árið 1980. Fram að þeim tíma höfðu gengið sögur um þessi vina- bönd, en fólk hafði átt bágt með að trúa þeim sökum þess hve áhuga- og baráttumál mannanna tveggja virt- ust ósamræmanleg. Á útifundi stuðningsmanna Alberts fyrir kosn- ingarnar gekk Guðmundur J. hins vegar fram á sviðið og hélt ræðu, þar sem hann hvatti landslýð til þess að kjósa Albert næsta forseta lýð- veldisins. MORGUNKAFFI, STEIKUR OG HEIMBOÐ Upp frá þessum tíma var þessi vin- átta auðvitað á allra vitorði, þó fáir gerðu sér grein fyrir því hve djúp- stæð eða náin hún var. Einhvern tímann mun morgunferðum þeirra félaga á Kaffivagninn hafa verið gerð skil í fjölmiðlum, en þeir hittust þar fyrir allar aldir á morgnana ásamt nokkrum öðrum kunnum persónum, til þess að spjalla saman um þjóðmálin. Ekki er ljóst hvort þeir Albert og Guðmundur héldu þessum sið allt fram á síðustu mán- uði, en á tímabili munu þeir a.m.k. hafa verið þarna daglegir gestir. Þegar færi gafst, fóru þeir félagarn- ir líka saman í sumarbústað Alberts við Þingvallavatn. Voru eiginkon- urnar þá með í förinni og sögur herma að þar hafi gjarnan verið steiktar stórar steikur að amerísk- um sið. Guðmundur og Albert voru einn- ig gestir hvor heima hjá öðrum án þess að það þætti sérstaklega frá- sagnarvert. Ein slík heimsókn varð þó tilefni mikillar umræðu, en hún mun hafa verið að vorlagi árið 1983. Þá bauð Albert til veislu á heimili sínu í tilefni þess að hann hafði tekið við ráðherraembætti í nýkjörinni ríkisstjórn landsins. Guðmundur er sagður hafa komið til fagnaðarins, ásamt konu sinni, sem kannski ætti ekki að vera í frásögur færandi. Ef marka má þrálátan orðróm mun veislan hins vegar hafa verið haldin um svipað leyti og tilkynnt var um þá ríkisstjórnarákvörðun að afnema samningsréttinn. Sé þetta rétt, er ef til vill skiljanlegt að samherjar Guð- mundar í stjórnmálum og verka- lýðshreyfingunni skyldu hneykslast á því að hann þáði boðið. Þeir félagarnir, Albert og Guð- mundur, stóðu hins vegar oft þétt saman í samskiptum verkalýðs og stjórnvalda. Mun það t.d. í minnum haft, þegar þeir gengu frá sérsamn- ingi á milli Dagsbrúnarmanna sem vinna hjá ríkinu og fjármálaráðu- neytisins á tíma svokallaðra febrú- arsamninga 1984. Þá fékk þessi hópur launaleiðréttingu umfram aðra launþega í mikilli óþökk ríkis- stjórnarinnar og ýmissa verkalýðs- foringja. SKÁK OG VALDATAFL Þó þeir Albert og Guðmundur hafi vissulega oft hist með eiginkon- um sínum, var þetta fyrst og fremst vinátta þeirra tveggja en ekki fjöl- skyldna þeirra. Þeir sáust iðulega saman; á veitingastöðum (t.d. Skíða- skálanum í Hveradölum), á skákmót- um og í hinni svokölluðu „kringlu" í Alþingishúsinu. Þar sátu þeir gjarnan að tafli á meðan þingfundir stóðu yfir, en kunnugir segja þá ekki hafa setið mikið saman við kaffi- drykkju í þinginu. Það mun sjaldan hafa komið fyrir að Guðmundur J. og Albert Guð- mundsson hafi tekist á úr ræðustól á Alþingi. Samþingmenn þeirra segja þá hafa virst hliðra sér hjá því að deila á þeim vettvangi. Því hefur einnig verið haldið fram af fólki, sem til þekkir við Austurvöll, að þessir ólíku vinir hafi, þegar öllu er á botninn hvolft, rekið afar svipaða ,,fyrirgreiðslupólitík“. Það er kannski sagt meira í gamni en al- vöru, að þegar menn hafi komið í þinghúsið til þess að ná tali af Al- bert, hafi næst verið spurt um Guð- mund ef sá fyrrnefndi var ekki við- látinn — og öfugt. Fyrirgreiðslan náði hins vegar ekki eingöngu til utanaðkomandi aðila, heldur hjálpuðu þeir Guð- mundur og Albert hvor öðrum inn- byrðis, eins og heldur betur er frægt orðið. Fyrir utan hinn umtalaða vinar- eða bjarnargreiða, má m.a. nefna það, að Albert mun hafa stutt konu Guðmundar J„ Elínu Torfa- dóttur, dyggilega á árunum í kring- um 1980. Elín var þá forstöðukona dagheimilisins Laufásborgar, en lenti í mótstöðu við starfslið sitt af einhverjum orsökum. Upp kom þá sú krafa starfsmanna að henni yrði vikið úr starfi. Albert Guðmundsson gekk hinsvegar hart fram í því í Borgarráði að styrkja Elínu og tryggja henni áframhaldandi for- stöðu í Laufásborg. Það skal þó tek- ið fram að málið var aldrei á neinn hátt pólitiskt. DULIR EINFARAR í RAUN Sú staðreynd að sonur Guð- mundar, Guðmundur H. Guðmunds- son, er starfsmaður launadeildar fjármálaráðuneytisins, hefur vakið grunsemdir hjá mörgum af Gróum landsins. Albert Guðmundsson kom hins vegar hvergi nærri þeirri ráðn- ingu, enda var Guðmundur tekinn til starfa um það bil hálfu ári áður en vinur föður hans varð allsráðandi í ráðuneytinu. Hann var ráðinn í tíð flokksbróður Guðmundar, Ragnars Arnalds. Þegar minnst er á fyrirrennara Al- berts í fjármálaráðuneytinu, kemur Þröstur aðstoðarmaður hans Ólafs- son einnig upp í hugann, en hann er sem kunnugt er framkvæmdastjóri Dagsbrúnar og dyggur stuðnings- maður Guðmundar J. í undan- gengnum hremmingum. Albert kom mörgum á óvart með því að stugga ekki við Þresti sem fulltrúa fjár- málaráðherra í stjórn Flugleiða. Gerði hann Þröst meira að segja for- mann nefndar, sem nýverið skilaði af sér tillögum um hertar aðgerðir gegn skattsvikum, og gekk þarmeð framhjá mörgum hagfræðingum í Sjálfstæðisflokknum. Það má lengi velta því fyrir sér, hvaða bönd tengdu þá Guðmund J. Guðmundsson og Albert Guð- mundsson á meðan allt lék í lyndi. Kunnugir segja þó að það sé raunar ekkert skrítið að þeir hafi átt skap saman, þrátt fyrir að fljótt á litið geti þeir virst jafnólíkir og svart og hvítt. Mennirnir eru báðir sagðir einfarar — dulir persónuleikar, sem áttu nokkuð breiðan kunningjahóp, en bundu ekki djúpstæða tryggð við marga. Þetta telja margir að hafi dregið þá hvorn að öðrum og verið grundvöllur þeirrar vináttu, sem átti engan sinn líka í þinginu. leftir Jónínu LeósdótturB HELGARPÓSTURINN 9

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.