Helgarpósturinn - 17.07.1986, Blaðsíða 11

Helgarpósturinn - 17.07.1986, Blaðsíða 11
heyrt af henni var þegar Albert gaf henni skýrslu sína og tilgreindi hana ásamt öðrum greidslum sem hann hafði fengið frá Hafskip. Albert hef- ur lýst því yfir að hann telji sig hafa þegið þessa afmælisgjöf af Hafskip og nú spyrja menn sig hvaðan í ósköpunum peningarnir fyrir Nizza-ferðinni komu.. . . lEinhverju sinni hélt fróður maður um fjölmiðla því frant að eitt mest lesna efni dagblaðanna væri leiðréttingar þeirra á greinum og fréttum frá því í gær. Þetta má vel vera, því vissulega getur verið gam- an að lesa þessa oftast nær neyðar- legu eindálka neðarlega á síðum. Hérna er til dæmis ein úr Þjóðviljan- um frá því á þriðjudag og takið eftir blábyrjuninni sem er klassísk: „Prentvillupúkinn komst í innsýn- argrein í laugardagsblaðinu þar sem rætt var um Kjaradóm. Millifyrir- sögn á undan kafla þar sem rætt var um þátt fjármálaráðherra í kjara- málum og -dómum BHMR-manna hljóðaði svo: Ábyrgðin er þorsksins. Þarna átti að standa: Ábyrgðin er Þorsteins. Og eru aðilar málsins beðnir velvirðingar.". . . Wlr að var ekki laust við heið- virðir reykvískir borgarar yrðu upp- vísir að töluverðum heimóttarskap og þröngsýni í svokölluðu Teiga- máli, sem margir muna eflaust. Og þá kannski ekki síður fjölmiðlar sem fluttu fréttir af því hvílík óværa heimili fyrir afturbata fanga væri í friðsælu hverfi á borð við Teiga- hverfið. Nú sýnist Helgarpóstinum að nýtt Teigamál kunni að vera í uppsiglingu, raunar í sjálfum Laug- arásnum. Þannig er mál með vexti að hjón, foreldrar fjögurra ungra barna, hafa undanfarin ár rekið heimili fyrir alkóhólista á Seltjarn- arnesi. í fyrra neyddust þau til að flytja sig um set og fundu nokkru síðar mjög ákjósanlegt húsnæði í Laugarásnum. Þar hafa þau búið síðan þá, foreldrar, börn og alkóhól- istar, sem flestir stunda vinnu og reyna að vera nýtir þjóðfélagsþegn- ar. Ekki er heldur vitað til þess að komið hafi til árekstra við nágrann- ana nema síður sé, enda skilja sjálf- sagt flestir að það er ekki nóg að setja alkóhólista á snúru og þerra þá; það þarf líka að tryggja að þeir geti lifað mannsæmandi lífi edrú. Þó eru náttúrlega alltaf einhverjir sem hafa horn í síðu fólks sem hefur orð- ið utanveltu í þjóðfélaginu — eins og þeir ættu ekki síst að vita í Laugar- ásnum, minnugir þess að Klepps- spítalinn var flæmdur þaðan með endurhæfingarheimili hérna um árið. Einhverjir sómakærir nágrann- ar munu sem sagt hafa látið þetta nýja heimili fara nokkuð heiftarlega fyrir brjóstið á sér og síðustu fréttir herma að ákveðinn fjölmiðill sé far- inn að sniglast þarna í Laugarásn- um. Og þá er varla langt í nýtt Teiga- mál.. . M ■ W Wargir hafa velt því fyrir sér hvers vegna rannsóknarlög- reglan sendi ríkissaksóknara engar upplýsingar um afmælisferð Alberts Guðmundssonar sem hann hefur þó þráfaldlega sagst hafa fengið að gjöf frá Hafskip. Ástæðan fyrir því er sú að ekkert hefur komið fram í rannsóknar- gögnum um þessa gjöf. Það eina sem rannsóknarlögreglan hefur • • ;* * ••^N'kR.TISTOFAN « «• Andlitsþöð •* * Litanij^ . Vaxmeðferð Qjgpteel meðferð. Handsnýrtifig < *«e^ide andlitsböð , J >.,# . KKnV«ing * • *• •* -• . JöfAi/r HARic. m ^mr bZZbZU ! „ IftvflÍDð Sigmundsdóttir Framtíðin í viðarvöm frá Jotun í Noregi Fjnir 16 árum komu Jotun, fyrstir allra framleiðenda, með nýja framleiðslu úr olíu og polyackrýl, nefnilega DEMIDEKK ÞEKJUBÆS. DEMIDEKK sem er langmest selda viðarvöm í Noregi, er í dag á yfir 250 þúsund húsum. Frábær gæði — frábær ending, frábært verð. 17 fallegir litir, hátt þurrefnisinnihald, flagnar ekki — þykkfljótandi — lekur ekki. JOTUN efnamiðstOdin hf. Smiðshöfða 12, 687280 HELGARPÓSTURINN 11

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.