Helgarpósturinn - 17.07.1986, Blaðsíða 14
HELGARPÓSTURINN BREGÐUR UNDIR SIG
BETRI FÆTINUM OG SPYR FÓLK í MIÐBÆ
REYKJAVÍKUR:
Elín Viðarsdóttir: „Flokkarnir hafa allir
meira eða minna sömu stefnuna, en raða
málunum bara í mismunandi forgangs-
röð."
Alþýðubandalagið
„Ekki jafnróttœkur og hann var."
„Það er uppreisn t liöinu og óljóst
hvada stefna verður ofaná. Þetta
Guðmundarmál mun vafalaust
hafa meiri áhrif innan flokksins en
utan hans."
„Það er óttalegur klofningur í Al-
þýðubandalaginu eins og er.“
„Alþýðubandalagið œtti að taka
höndum saman við Alþýðuflokkinn
og BJ og stjórna landinu."
„Þeir eru ómálefnalegir og grípa
hlutina á lofti. Þeir eru líka alltafað
rakka aðra riiður."
„Þetta er óraunhœfur flokkur,
held ég. Stefnan er gjörsamlega
óframkvœmanleg."
„Alþýðubandalagið? Æ, ég veit
svo lítið um stjórnmál."
„Þeir hafa ekki staðið sig nógu
vel."
„Guðmundur J. Guðmundsson
hefur barist vel og hann hafði ekki
hugmynd um hvaðan peningarnir
komu þarna um árið!"
„Þetta er svona róttœkur flokkur,
eða þannig."
Það er svo marglitt í Alþýðu-
bandalaginu."
„Alþýðubandalagið er vinstri
flokkur, en of öfgafullur fýrir minn
smekk."
„Losaralegur flokkur."
„Þeir hafa upplitast á síðari árum
og mér finnst erfitt að átta mig á
þeim nána. Ætli þeir séu ekki að
nálgast miðlínuna."
„Allaballarnir lýsa sér best sjálfir
þessa dagana. Þetta á eftir að verða
lítill sértráarflokkur með einangruð
stefnumál. Maður hefur séð það
gerast erlendis."
Haraldur Karlsson: ,,Já, það er sami
rassinn undir þeim öllum, en þó er
kannski örlltill munur. Kvennalistinn skar-
ar t.d. framúr."
ERU FLOKKARNIR
ALLIR EINS?
ÓFORMLEG KÖNNUN Á SKOÐUNUM FÓLKS OG
ÞEKKINGU Á STJÖRNMÁLAFLOKKUM LANDSINS
Þegar talið berst að stjórn lands-
ins, heyrir maður fólk gjarnan lýsa
þvíyfir að það sé, ,sami rassinn und-
ir þeim öllum." Með þessu er þá
vœntanlega átt við að engu skipti
hvaða stjórnmálaflokkur fari rneð
völd, þvíþeir hagi sér hvort eð er all-
ir eins þegar þeir komast til áhrifa.
Talsmenn flokkanna berjast að
sjálfsögðu hatrammri baráttu til
þess að gera hinum almenna kjós-
anda grein fyrir sérstöðu síns stjórn-
málaflokks, enda er pólitískt líf
þeirra í veði. En að hve miklu leyti
ber þetta streð stjórnmálamanna
árangur? Helgarpósturinn brá sér
niður í miðbæ Reykjavíkur einn
blíðviðrisdag fyrir skömmu og
kannaði hvað fólki fyndist um
stjórnmálaflokkana og hvort það
hefði ákveðnar hugmyndir um
hvaða baráttumál hverþeirra setti á
oddinn.
Það skiptist nokkuð jafnt til helm-
inga hvort fólki fannst flokkarnir
allir eins eða ekki. Þó höfðu þeir
vinninginn, sem töldu að á hinu
pólitíska beitarlandi kenndi ýmissa
ólíkra grasa. Þeir fœrðu hinsvegar
missterk rök fyrir stnu máli, eins og
fram kemur í ummœlunum hér á
opnunni. Grunnt var þó á þeirri
skoðun að flokkarnir hegðuðu sér
svipað, þegar þeir kœmust í valda-
aðstöðu, þrátt fyrir að stefnuskrár
þeirra vœru innbyrðis ólíkar.
Þegar viðmœlendur okkar voru
beðnir um að gera grein fyrir helstu
baráttu- og stefnumálum hvers
stjórnmálaflokks um sig, urðu við-
brögðin œði misjöfn. Sumir voru
greinilega hrœddir um að koma upp
um vankunnáttu og mikið varslegið
af varnöglum eins og: „Annars hef
ég nú ekkert vit á pólitík" eða „Mað-
ur hefur ansi takmarkaðan áhuga á
þessu." En þegar farið var yfir flokk-
ana, stóð yfirleitt ekki á svörum, þó
auðvitað vœru þau misjafnlega
greinargóð og ígrunduð. Sumir fóru
lítt í launkofa með hvað vœri
„þeirra flokkur" en aðrir héldu
pókerandlitinu í fullkomnum skorð-
um og komu alls ekki upp um sig.
Telja verður að Kvennalistinn
komi einna best út úrþessari óform-
legu könnun og um hann voru við-
mœlendur okkar einna helst sam-
mála. Kvennalistakonur fengu yfir-
leitt lofsamleg ummœli, jafnvel þó
leftir Jónínu Leósdóftur
svo viðkomandi segðist alls ekki
hafa kosið þœr né nokkurn tímann
œtla sér það. Flokkurinn virðist
augljóslega njóta töluverðrar virð-
ingar og álits meðal almennings, ef
marka má það úrtak sem varð á
vegi okkar í miðbænum.
Fólki vafðist einna helst tunga um
tönn þegar skilgreina átti Sjálfstœð-
isflokkinn og Bandalag jafnaðar-
manna — merkilegt nokk. Almenn
vanþekking virtist ríkja á því hvað
BJ hefði sett á oddinn, en svör varð-
andi Sjálfstœðisflokk einkenndust
af „annaðhvort eða" afstöðu. Ann-
að hvort var fólk mjög jákvœtt og
greinilegir kjósendur flokksins, eða
það lýsti algjöru frati á hann. Þar
var lítið sem ekkert um milliveginn.
Lýsing viðmœlenda HP á Alþýðu-
flokknum var vœgast sagt loðin, en
menn höfðu þó frekar hugmynd um
stefnu hans en t.d. Bandalagsins.
Það var einnig erfitt að fá fólk til þess
að lýsa Alþýðubandalaginu og ekki
er hœgt að segja að sá flokkur hafi
fengið tiltakanlegt hrós hjá einum
einasta manni, sem tekinn var tali í
þessu sambandi. Einn vegfarandi
tók spurninguna sem árás á flokk-
myndir Árni BjarnasonHBHHi
inn og brást óðar til varnar Guð-
mundi J. Guðmundssyni, sem alls
ekki stóð til að taka útfyrir sviga í
Alþýðubandalaginu og gera sérstök
skii
Útreið Framsóknarflokksins varð
slœm í þessari könnun, en er
kannski ekki fullkomlega marktœk
þar sem spurt var t hjarta höfuð-
staðarins, sem hefur ekki verið
sterkasta vígi Framsóknar á seinni
árum. Það var því ef til vill fyrirsjá-
anlegt, að ummœli manna um
flokkinn yrðu á þann veg sem raun
bar vitni.
Útdráttur úr svörum viðmœlenda
okkar er hér birtur undir heiti þess
flokks, sem viö er átt. Þar að auki
birtum við myndir af nokkrum veg-
farendum, ásamt svörum þeirra við
spurningunni hvort ,,sami rassinn
sé undir þeim öllum". Þó niðurstöð-
ur þessarar lauslegu könnunar séu
kannski ekki hávísindalegar, má þó
alltént hafa nokkurt gaman af því
að sjá hvað upp kemur í huga fólks
nú á sumamánuðum, þegar það er
beðið um að tjá skoðanir stnar á
stjórnmálaflokkum landsins.
14 HELGARPÓSTURINN