Helgarpósturinn - 17.07.1986, Blaðsíða 15
Sigurður Traustason: „Flokkarnir eru
afar misjafnir."
Hildur Ragnarsdóttir: „Allt sama súp-
an."
Ellý Þórðardóttir: „Hvort það sé sami
rassinn undir þeim öllum? Ég treysti mér
nú ekki til þess að dæma það að óséðu!"
Ragna Sigrúnardóttir: „Þeir eru allir
ósköp Ifkir. Þeir flokkar eiga helst upp á
pallborðið hjá mér, sem vilja lána náms-
mönnum."
Garðar Þórhallsson: „Það er alls ekki
sami rassinn undir þeim öllum."
Alþýðuflokkurinn
,,Petta er svona jafnadarmanna-
flokkur."
,,Mér finnst stefna hans ansi óljós
í dag. Peir virðast reyna að mynda
sér stefnu til þess eins að komast í
ríkisstjórn. Jón Baldvin stjórnar
þessu alveg — hann er aðalstjarn-
an.“
„Petta er voðalegt loft hjá þeim,
finnst mér.“
„Alþýðuflokkurinn er kominn
langt frá uppruna sínum. Petta ætti
að vera stœrsti flokkur landsins,
'ásamt Alþýðubandalaginu og
Bandalagi jafnaðarmanna. Alþýða
þessa lands cetti að flykkja sér um
einn slíkan flokk, því þar er borin
umhyggja fyrir kjörum hennar. Rík-
isstarfsmenn eru t.d. alþýða þessa
lands, eins og kjör þeirra eru nú orð-
in, og þeir eru nœgilega margir til
þess að gera þetta að sterku afli.
Fólk sem vinnur hjá einkafyrirtœkj-
um er hreinlega orðið að forrétt-
indastétt — sjáðu bara afgreiðslu
Kjaradóms!"
„Peir í Alþýðuflokknum tala mik-
ið um húsnœðismál."
„Hefur Alþýðuflokkurinn sér-
stöðu?“
Peir eru ekki jafnlangt til vinstri
og hinir smáflokkarnir."
„Honum er alltaf að fara aftur."
„Petta er sama ruslið og í Sjálf-
stœðisflokknum."
„Mér finnst stefna Alþýðuflokks-
ins ekki hafa verið nógu góð."
„Sama súpan og hjá öllum hin-
um.“
,,Það er meira „showmanship"
hjá krötunum en hinum flokkunum
og þeir eru hœgrisinnaðri en jafnað-
armannaflokkar á hinum Norður-
löndunum."
„Alþýðuflokkurinn er náttúrlega
langbesti flokkurinn, því stefnan er
svo falleg: Frelsi, jafnrétti og
brœdralagl!"
„Mér finnst Alþýðuflokkurinn
ansi hœpinn."
„Flokkur tœkifœrissinna!"
„Kratarnir eru þeir einu sem geta
skaffað þegnunum jafnrétti og jafn-
rœði."
Magnea R. Ögmundsdóttir: „Flokk-
arnir eru ekki allir eins."
Framsóknar-
flokkurinn
„Ekki spyrja mig um hann. . .“
„Framsókn hefur sko haldið sínu
striki og staðið sig vel í stjórnar-
samstarfi við erfiðar aðstœður."
„Framsóknarflokkurinn er ósköp
svipaður og Sjálfstœðisflokkurinn."
„Þeta er afturhaldssamur flokkur,
sem lœtur að miklu leyti stjórnast af
Sambandinu. SIS er stœrsti heildsal-
inn á Islandi og öll vitum við hvernig
heildsalaklíkan er!“
„Sumir framsóknarmenn eiga
frekar heima í Alþýðuflokknum,
þ.e.a.s. þeir sem ekki eru hrifnir af
Sambandinu."
„Ég hefekkert gefið honum gaum
— kannski vegna þess að hann hef-
ur gefið sig í þetta stjórnarsamstarf
með Sjálfstœðisflokknum."
„Úreltur bœndaflokkur."
„Ég hef ekki kynnt mér hann að
ráði."
„Eintómir bændur!"
„Framsóknarflokkurinn er bara
annað heiti á hagsmunasamtök-
um."
„Æ, þetta er allt eins — ég sver
það."
„Flokksviðrini, sem á engan rétt á
sér.,“
„Me-me upp til sveita."
„Framsókn er tímaskekkja. Borg-
arbarn eins og ég hefur alla vega
ekkert að gera við bœndaflokk."
„Hans bíður að verða smáflokk-
ur. Hann er meira að segja búinn að
missa tökin á bœndunum."
„Framsóknarflokkurinn er af-
dankaður flokkur, sem kominn er
langt frá upphafi sínu og á engan
rétt á sér. Pað œtti að senda hann í
andlega endurhœfingu og skipta
um forystu. Hann er meira að segja
búinn að klúðra öllu fyrir bœnda-
stéttinni!"
Þórður Magnússon: „Þettaeru nokkur
vinstribrot og svo Sjálfstæðisflokkurinn."
Kvennalistinn
„Pœr leggja aðaláherslu á barna-
mál og jafnrétti."
„Mér finnst þœr ekki hafa neina
sérstöðu. . . Jú, annars, þœr hafa
snúið sér mest að kvennamálum og
lagt öðrum góðum málum lið. Mér
finnst þœr líka hafa gætt sín vel á
öllum hœgri- og vinstrisveiflum."
„Kvennalistinn er tákn ójafnréttis-
ins, þarsem körlum er meinuð þátt-
taka."
„Kvennalistinn er hugsaður á
röngum forsendum. Þœr œttu að
hafa „blandaðan brjóstsykur" eins
og aðrir flokkar."
„Pað er margt gott um Kvennalist-
ann að segja, þó mér finnist ýmis-
legt skorta hjá þeim. Þœr takmarka
sig t.d. við of fáa málaflokka."
„Sá flokkur er tímaskekkja."
„Kvennalistinn er ágætur —
þarna eru Ijómandi góðar konur.
Finnst ekki öllum konum sjálfsagt
að konur fái að ráða meiru?"
„Pœr skara fram úr öllum hin-
um.“
„Þetta er góð barátta hjá Kvenna-
listanum."
„Flokkurinn á fullan rétt á sér."
„Þœr hafa haft áhrif."
„Allt gott um Kvennalistann að
segja, nema þeim hœttir til að verða
of öfgafullar. Konur hljóta almennt
að viðurkenna að þœr vilji jafnrétti."
„Kvennalistinn sker sig helst úr.
Þœr eru samkvœmar sjálfum sér."
„Mér finnst ekkert sérstakt til
Kvennalistans koma. Konur eiga
ekki að einangra sig í sérstökum
stjórnmálaflokki."
„Kvennalistinn átti rétt á sér, en
nú er tilgangnum náð."
Hjálmar Gíslason: „Auðvitað er svolítill
munur á stefnunni hjá flokkunum, en það
er svipað upp á teningnum hjá þeim öll-
um þegar þeir eru í aðstöðu til þess að
stjórna. Þeir troða allir sínum mönnum
að."
Bandalag jafnaðar-
manna
„Ég veit ekkert um þann flokk."
„Þar er nú lítið bitastœtt."
„Peirra stefna er að vera á móti
öllum hinum og brjóta upp flokka-
kerfið."
,,Bandalagið er náttúrlega úrsög-
unni. Foringinn féll!"
„Gamall Vilmundarflokkur, sem
hlýtur að deyja út.“
,,Bandalag jafnaðarmanna er
öðruvísi, en ekki að mínum smekk."
„Þeir hafa rétt fyrir sér um spill-
inguna."
„Bandalag jafnaðarmanna finnst
mér sœmilegur flokkur. Hann er lík-
ur Framsóknarflokknum."
„Gvöð, ekki spyrja mig um þá."
„Ég veit ekkert um Bandalagið.
Eg hef ekkert kynnt mér það."
„Peir stela alltof miklu frá Al-
þýðuflokknum. Þetta eru smáþjóf-
ar!"
„Ekki er ég nú hrifin afBJ. Stefnan
er ekki nógu sterk."
„Það er margt gott um Bandalag
jafnaðarmanna að segja. Mér leist
vel áþáá tímabili, en klofningurinn
spillir fyrir þeim."
„Bandalagið hafði ákveðinn lífs-
stíl, en það er löngu búið að yfirgefa
hann."
Ella M. Einarsson: „Stjórnmálaflokk-
arnir eru auðvitað misjafnir."
Sjólfstæðis-
flokkurinn
„Æi. . .“
„Traustur flokkur á traustum
grunni, en auðvitað erþetta sundur-
leitur hópur eins og í öllum flokk-
um. / augnablikinu virðast vera
þarna átök um stefnur."
„Eger ánœgður með hann í þess-
aristjórn. Hann má gjarnan stjórna
áfram."
„Sjálfstœðisflokkurinn er svolítið
íhaldssamur, en ekki þó til baga að
mínu mati."
„Mér finnst hann skásli flokkur-
inn, þó hann sé alls ekki gallalaus.
Peir hafa þó bestu heildarmyndina."
„Pað er minn flokkur!"
„Eintómt rusl."
„Mér fyndist hann ágœtur, ef Al-
bert vœri ekki í honum. Það mál er
hneyksli fyrir Sjálfstœðisflokkinn."
„Eg veit ekki hvað skal segja um
hann — svei mér þá."
„Peir eru í erfiðri aðstöðu og hafa
lengi verið. Peir þurfa sífellt að
fórna helstu stefnumiðum sínum í
samsteypustjórnum."
„Þetta er burgeisaflokkur fyrir þá
sem eiga nóga peninga. Peir sem
efnasl eru heldur ekki lengi að snú-
ast á sveif með Sjálfstœðisflokkn-
um, þó þeir hafi ekki átt samleið
með honum fyrr."
„Ég á enga samleið með þeim
flokki."
„Skástur."
„Þeir hampa einkaframtakinu
þar til illa tekst til og launþegum er
gert að borga brúsann. Pað er engin
ábyrgð í þessu."
Kristófer Þorleifsson: „Mér .finnst
stjórnmálaflokkarnir alls ekki vera allir
eins."
HELGARPÓSTURINN 15