Helgarpósturinn - 17.07.1986, Blaðsíða 20

Helgarpósturinn - 17.07.1986, Blaðsíða 20
S L Ö KKVISTARFIÐ E R leftir Jóhönnu Sveinsdóttur mynd Árni Bjarnason Ætli sé ekki leidinlegt aö vera slökkviliðsstjóri í borg þar sem aldrei kviknar íöðru en sinu og öskutunnum? hugsa ég með mér þar sem ég hjóla eins og byssubrennd niður Eskihlíðina eldsnemma að morgni, of sein á stefnumót mitt við Rúnar Bjarnason sem gegnt hefur embœtti slökkviliðs- stjóra Reykjavíkur og nágrennis í tuttugu ár. Þegar ég kem löðursveitt inn íanddyri slökkvistöðvarinnar við rœtur Öskjuhlíðar verður fyrir mér mikil- fenglegur skúlptúr, appelsínugulur: tœtt líkamsform konu, kvenímyndin í frostmarki. Á stöplinum miði: sprengdur gaskútur frá því í ísaga-brunan- um 1963. Og ég verð að viðurkenna að stundum brennur í borginni — skemmst að minnast brunans í Iðnaðarmannafélagshúsinu á dögunum. Gaskúturinn hefur unnið það góðverk að vekja mig og ég banka glaðbeitt á skrifstofudyr Rúnars Bjarnasonar. Slökkviliðsstjórinn kemur til dyra, sólbrúnn og brosandi, og það rifjast upp fyrir mér að hann er einn sá fyrsti sem ég man eftir ,,brúnum“ á götum borgarinnar, áður en það komst í tísku að vera sólbrúnn, svona ámóta frísklegur og þeir Valbjörn tugþrautarmaður og Stebbi ,,geit“. Því spyr ég Rúnar fyrst hvort hann sé mikið gefinn fyrir útivist og heilsurækt. Hestarnir besta slökun fró erfiðu starfi ,,Já, hverjum slökkviliðsmanni er nauðsyn- legt að halda sér í góðri þjálfun," svarar Rúnar. „Því syndi ég alltaf hálfa mílu á morgnana og svo hef ég stundað annað sport eftir því sem það hefur hentað mér. Nú hjóla ég t.d. alltaf fjóra kílómetra á morgnana áður en ég fer í sundið, ýmist Langholtsveginn fram og til baka, eða þá bara á þrekhjólinu í kjallaranum. En ég get því miður ekki hjólað í vinnuna vegna þess að ég verð alltaf að vera með embættisbílinn í eftir- dragi ef eitthvað skyldi koma upp á. En hvað þjálfunina varðar þá held ég nú að ég hjóli frem- ur af ánægju en góðri embættisrækslu," segir Rúnar kímileitur. „Þar að auki er ég mikill hestamaður. Ég var lengi í sveit og hef átt hesta frá því aö ég var níu ára gamall; var bara þriggja ára þegar ég byrjaði að fara í útreiðartúra með föður mínum og föð- urbróður, Boga Eggertssyni, en þeir voru báðir þekktir hestamenn. Það hefur alltaf verið snar þáttur í mínu lífi að umgangast hestana mína. Að mínu áliti eru hestar einhver albesta slökun frá erfiðu starfi sem hugsast getur. Ég veit ekkert betra en að vera einn með hestunum mínum eft- ir vinnu.“ Þá berst talið að aldri, Rúnar ítrekar að slökkviliðsmenn þurfi að vera í góðu formi og við góða heilsu, og að þeir ættu að hætta um sextugt. Sú regla sé við lýði víða erlendis. „Það þýðir að ég eigi aðeins fimm ár eftir í þessu starfi" segir hann brosandi, og ég dreg fimm frá sextíu og fæ út að Rúnar sé fimmtíu og fimm ára gamall. „Já, ég er úr þessum fræga stúdentsárgangi sem útskrifaðist ’51,“ segir hann. „Ansi margir úr þeim hópi hafa komist vel áfram. Tveir af nú- verandi ráðherrum tilheyrðu þessum hópi, utan- ríkisráðherrann og dómsmálaráðherrann þar til sá síðarnefndi stakk okkur af í restina. Og við getum státað af því að báðir dómkirkjuprestarn- ir voru í okkar árgangi; þar að auki borgarritari, rafmagnsstjóri, tólf læknar og jafnmargir verk- fræðingar. Þessi árgangur var reyndar merki- lega fámennur, innan við hundrað manns." — Hverja umgekkstu mest á skólaárunum? „Skólafélagana og góða félaga í íþróttunum. Ég stundaði frjálsar íþróttir á sumrin og hand- bolta á veturna. Á þessum árum var mikill áhugi fyrir þessum greinum í MR, skólaliðið í hand- bolta var nær ósigrandi þótt við kepptum við bestu meistaraflokksliðin.” Rúnar segir að íþróttaáhugann megi rekja aft- ur til bernskuáranna. „Ég er alinn upp á Grettis- götu og Snorrabraut, litlum bletti en ansi lífleg- um. Á þeim tíma var mikill keppnisandi og met- ingur á milli gatna. Stundum lá við átökum milli Grettisgötu og Njálsgötu. Við gengum öll í Aust- urbæjarskólann þar sem voru margir ágætir kennarar. Haraldur heitinn Björnsson Ieikari kerindi mér t.d. um tíma. Ég hef búið í Reykjavík allt mitt líf, fyrir utan háskólaárin, en ég hélt til Stokkhólms nítján ára gamall og útskrifaðist fjórum árum seinna sem efnaverkfræðingur. Með náminu vann ég dálítið sem aðstoðarkennari og síðan ílentist ég í eitt ár til viðbótar, vann þá við rannsóknarstörf á hag- nýtum notum geislavirkra efna á vegum sænsku atómnefndarinnar. Þessar rannsóknir hafa síð- an þróast í ýmsar áttir, t.d. varðandi aldursgrein- ingar á fornminjum.” Að námi loknu hóf Rúnar störf við Áburðar- verksmiðjuna sem þá hafði nýlega tekið til starfa. Þar var hann fastur starfsmaður í ellefu ár, síðustu árin sem deildarverkfræðingur og staðgengill verksmiðjustjórans. Og allan þenn- an tíma kenndi hann jafnframt við Menntaskól- ann í Reykjavík. „Þaðan á ég ansi góðar minn- ingar. Ég hef alltaf ánægju af að hitta aftur gamla, góða nemendur," segir Rúnar, og heldur síðan áfram að tíunda starfsferilinn; „Síðan fór ég í framhaldsnám til Svíþjóðar til að sérmennta mig í öryggismálum. Upp úr því fór ég að hafa afskipti af slökkviliðinu, aðstoðaði þáverandi slökkviliðsstjóra, Valgarð Thorodd- sen, sérstaklega við rannsóknir á sprengihættu í fyrirtækjum. Þá hafði nýverið orðið stórkostleg sprenging í ísaga 1963 og því brýnt að gera út- tekt á þessum málum. Eg bryddaði svo upp á námskeiðum um þessi mál fyrir slökkviliðs- mennina, varðartdi reykköfun, sprengi- og eitur- hættu. Því fannst mönnum, a.m.k. hér á staðn- um, sjálfgefið að ég tæki við af Valgarð þegar hann varð rafmagnsveitustjóri. Það var fyrir ná- kvæmlega tuttugu árurn.” Ætlaði að verða bóndi — Finnst þér sá tími hafa verid fljótur að líða? „Já, það má segja það. En ef ég rifja þetta upp fyrir mér, þá sé ég að á ýmsu hefur gengið, eink- um fyrstu árin. Þegar ég tók við embættinu hafði slökkviliðið nýverið flutt aðsetur sitt hing- að í Oskjuhlíðina þótt ýmislegt væri enn ófrá- gengið. En allt gekk vel og síðan tók við upp- bygging á tækjakosti. Við höfum ævinlega notið góðs stuðnings borgaryfirvalda." — Nú er það draumur fjölmargra stráka að verða slökkviliðsmenn, ég tala nú ekki um slökkviliðsstjórar. Hverjar heldurðu að séu ástœður þess? „Ég átti mér nú ekki þessa hugsjón þegar ég var lítill. Lengi ætlaði ég mér að verða bóndi. En ég get vel skilið þennan áhuga ungra drengja, það er ýmislegt spennandi við þetta starf. Og margir velja það af hugsjón vegna þess að þeir vilja láta gott af sér leiða. Þeir velja starfið svo sannarlega ekki vegna launanna. Hér bera menn lítið úr býtum, en 64 af þeim 80 mönnum sem hér vinna eru á vöktum þannig að þeir hafa þá möguleika á að drýgja tekjurnar annars stað- ar. Ég held að slökkviliðsmönnunum finnist gaman að vinna saman í hópum, það er mikil hamingja fólgin í því þegar góður árangur næst.“ — En er ekki erfitt að halda mönnum íþjálfun í borg þar sem svo fáir eldsvoðar verða? „Jú, þetta er visst áhyggjuefni hvað þjálfunina snertir. Nú er vaxin úr grasi heil kynslóð sem varla hefur séð eldsvoða. Enda hélt fréttakona sjónvarps að eldurinn í Iðnaðarmannafélags- húsinu á dögunum hefði magnast um allan helming eftir að slökkviliðið kom á vettvang. Síðan spurðu fréttamenn mig hvað ég vildi segja um þá „gagnrýni” sem fram hefði komið á störf slökkviliðsins. Ég sagði bara að viðkomandi stúlka þekkti sennilega lítið til eldsvoöa! En mönnum er fyrst og fremst haldið í þjálíun með æfingum, t.d. með slökkvibílana og reyk- köfunartæki. Síðan tökum við tarnir, látum þá fá alvörueld. Það eru þessir leiðindadagar þegar svartan reyk leggur upp af Öskjuhlíðinni. Það hefur oft verið kvartað undan þessu, einkanlega í tíð vinstri meirihlutans í borgarstjórn. Við borgarverkfræðingur höfum farið út um allt til að leita að hentugri stað, en það hefur ekki borið árangur. Auk þess hefur starfsemi slökkviliðsins orðið viðameiri undanfarið, ekki síst með þeirri stökk- breytingu sem hefur orðið hér á sjúkraflutning- um síðastliðin þrjú ár, með tilkomu nýrra tækja og náins samstarfs við Borgarspítalann. Menn- irnir í sjúkraflutningunum eiga mjög vandað nám að baki. Ástandið í þessum efnum er eins og best verður á kosið úti í hinum stóra heimi.” Fjölskyldan aðalóhuqa- mólið — Attu þér fleiri áhugamál en starfið, heilsu- rœktina og hestamennskuna? „Já. En mér finnst ástæða til að minnast á að ég á góða konu, börn og barnabörn sem ég hef mikinn áhuga á að umgangast, þótt það setji dá- lítið strik í reikninginn að bæði börnin mín búa núna úti í Danmörku. En samskiptin við fjöl- skylduna eru mitt aðaláhugamál. Þar fyrir utan hef ég mikið yndi af að ferðast erlendis. Ég fann það út þegar ég tók við þessu starfi að ef ég ætlaði að kúpla mig alveg frá því þyrfti ég að fara af landi brott. . .“ — Eru einhver lönd þér hugleiknari en önnur? „Nei. Ég hef t.d. jafn gaman af að fara til Norð- urlandanna, Miðjarðarhafsins og Bandaríkj- anna,“ svarar Rúnar en hugsar sig síðan betur um: „Jú, kannski er Hawaii sá staður sem ég met mest. Og það er svo skrýtið að í bæði skiptin sem ég fór þangað, ’84 og ’85, byrjaði að gjósa. Því veit ég ekki hvort mér verður leyft að koma þangað í þriðja sinn!” segir hann og hlær. —Hvað féll þér svona vel á Hawaii? „Bæði landslagið og veðrið, og svo er fólkið alveg sérstaklega aðlaðandi, vingjarnlegt og gestrisið. Ég hef alltaf áhuga á að kynna mér að- stæður fólks þegar ég er á ferðalögum. Það er merkilegt að á Hawaii skuli búa margir ólíkir þjóðflokkar, fólk af mjög ólíkum uppruna, í sátt og samlyndi svo að aldrei hefur neitt á bjátað. Já, það má eiginlega segja að ég sé alæta á ferðalög erlendis," segir slökkviliðsstjórinn dreyminn á svip. Ég brosi og spyr hvort ég eigi að taka þetta svo bókstaflega að hann sé slíkur mathákur að hann borði sig á milli landa . . . „Nei, ég get ekki sagt að góður matur og drykkur séu sérstök áhugamál mín,“ svarar Rúnar. „Ég hef alltaf verið frekar matgrannur. Mér finnst gott að fá góðan mat, en það veitir mér enga sérstaka lífsfyllingu. Ég get heldur ekki státað af því að vera meistarakokkur eins og sumir af viðmælendum Helgarpóstsins hafa verið. En ég get þó alveg bjargað mér í eldhús- inu.“ — Hvað eldarðu helst þegar þú ert einn heima? „Slátur,” svarar Rúnar án þess að hika. „En í rauninni ætti ég að vera mikið gefinn fyrir mats- eld, ég sem er í sífelldri tilraunastarfsemi í vinn- unni. En sjálfsagt stafar þetta áhugaleysi af því að ég er lítill matmaður." Yndi af fallegum konum — Hvaða skoðanir hefurðu á jafnréttisbarátt- unni? „Jafnréttisbaráttan hlýtur að byggjast á því að hlusta á sjónarmið beggja kynjanna. Og hérna siturðu svo í einhverju mesta karlaríki veraldar," segir hann brosandi. „Það er nefnilega engin kona í slökkviliðinu. Einu sinni kom hingað kona, fimm barna móðir, til að spyrjast fyrir um slökkviliðsstarfið. Ég sagði henni að fólk þyrfti einungis að uppfylla ákveðin skilyrði. Hún taldi sig hafa gilda menntun og vera í tilskildu formi til að geta gengið í slökkviliðið. En þá sagði ég dálítið hvatskeytlega að eitt skilyrði uppfyllti hún örugglega ekki, þ.e.a.s. að vera yngri en 29 ára. En aftur á móti bauð ég henni snarlega starf hér á skrifstofunni sem hún þáði.“ —• Nú heyrist oft að karlmenn afþinni kynslóð eigi erfitt með að tileinka sér ýms jafnréttissjón- armið, sem stundum ganga þvert á þau viðhorf sem þeir tileinkuðu sér í uppvextinum. „Ég veit ekki hvort ég er af þessari alverstu sort,“ svarar Rúnar. „En ég viðurkenni að ég er íhaldssamur. Ég hef alltaf haft yndi af því að dást að fallegum konum og finnst ekkert niðurlægj- andi við það. Jafnréttisbarátta sem gengur út á að banna það höfðar ekki til mín. Hins vegar tek

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.