Helgarpósturinn - 17.07.1986, Síða 24
SKÁK
Vestan hafs og austan
Nú eru þrír af fremstu skák-
mönnum okkar, þeir Guðmundur
Sigurjónsson, Helgi Ólafsson og
Jóhann Hjartarson, staddir vestur
í Winnipeg að tefla á öðru helsta
skákþingi Kanadamanna, opna
meistaramótinu, sem er opið tafl-
meisturum annarra þjóða auk
Kanadamanna sjálfra. Þarna eru
ýmsir frægir skákmeistarar meðal
keppenda og má víst fremstan
telja Júsupov sem nú er kominn í
undanúrslit í heimsmeistara-
keppninni. Mótið fer fram í húsa-
kynnum Manitoba-háskóla og búa
keppendur á stúdentagörðum
skólans.
Þetta er í fyrsta skipti að íslend-
ingar héðan að heiman keppa á Is-
lendingaslóðum í Kanada og mun
frumkvæðið komið frá Haraldi
Bessasyni prófessor. Hann benti
löndum sínum vestra á að heima á
Fróni væri óvenjulegt mannval
skákmanna, og spurði hvort ekki
væri ráð að bjóða fulltrúum frá
gamla landinu einu sinni til þátt-
töku. Þessu var svo vel tekið að
innan skamms var tryggður fjár-
hagslegur grundvöllur fyrir ferð-
inni, með svipuðu framlagi frá ís-
landi sjálfu. Ög nú eru þessir þrír
fulltrúar okkar komnir vestur og
farnir að tefla.
Þótt menn af íslensku bergi
brotnir séu fjölmennir í Islend-
ingabyggðum vestra og standi
framarlega í mörgum greinum,
hafa litlar fregnir borist hingað af
taflmennsku þeirra síðan Magnús
Magnússon Smith leið, en hann
var fátækur innflytjandi sem vakti
verðskuldaða athygli um síðustu
aldamót er hann sigraði á ýmsum
mótum og sýndi það að hann var
snjallasti skákmaður í Kanada.
Nokkru eftir aldamót var heims-
meistarinn í skák, Emanúel Lask-
er, á ferð í Kanada og honum Ieist
svo vel á Magnús að hann falaði
hann suður til Bandaríkjanna til
að starfa við skáktímarit sem
Lasker gaf út um skeið. Gils Guð-
mundsson fræðimaður gróf síðar
upp frændsemi Magnúsar við Frið-
rik Ólafsson skákmeistara. Og nú
í sumar er Friðrik Ólafssyni ein-
mitt boðið vestur til Kanada. Þar
verður hann gestur heimamanna
á Íslendingahátíð í Gimli. Og dag-
inn sem þessar línur eru skrifaðar
eru helstu frumkvöðlar unglinga-
starfsins í skák hér á landi að
halda vestur um haf með sveit
tuttugu unglinga sem eiga að
keppa við jafnaldra sína í Banda-
ríkjunum. Þetta samstarf er kennt
við John Collins, bandarískan
áhugamann um skákkennslu, og
hefur staðið í allmörg ár. Annað
árið koma bandarísku unglingarn-
ir hingað með forráðamönnum
sínum, og venjulega koma nokkrir
foreldrar með. Hitt árið fer svo
okkar fólk vestur. Þetta er hollt og
gott samstarf sem veitir hinum
efnilegustu í hópi unglinganna
tækifæri til að spreyta sig við þá
jafnaldra sína sem snjallastir eru í
austurríkjum Bandaríkjanna.
Hér austan hafs er líka sitthvað
að gerast.
Danir og Svíar heyja landsleik í
skák á hverju ári og fór hinn síð-
asti fram nú í maímánuði. Oftast er
þessi keppni tvísýn, en í þetta sinn
tókst Svíum að ná svo góðu for-
skoti í fyrri umferðinni að vonlítið
var fyrir Dani að vinna það upp.
Úrslitin urðu 5'/2: IV2 og 4 : 4, eða
heildarsigur Svía 9’/2 gegn 6/2
vinningi. Því miður eru landsleikir
af þessu tagi nærri óhugsandi fyrir
okkur Islendinga sakir mikils
ferðakostnaðar.
En nú styttist óðum í einvígi
þeirra Karpovs og Kasparovs um
heimsmeistaratitilinn. Fyrrihluta
þess á að tefla í London og hefst
hann í lok júlímánaðar. Seinni
hlutinn verður svo tefldur í Lenin-
grad.
Þetta einvígi er mikið tilhlökk-
unarefni öllum skákunnendum,
því að þeir félagar Karpov og
Kasparov eru ekki aðeins fremstir
heldur langfremstir allra núlifandi
skákmanna. Þeir eru eins ólíkir
skákmenn og hægt er að hugsa
sér. Karpov er maður hinnar rök-
vísu hugsunar, hygginn og gætinn,
Kasparov maður hugarleiftranna,
virðist kunna best við sig þegar
boðarnir rísa sem hæst. En báðir
eru afburðasnjallir og svo jafnir að
ekki má á milli sjá. Úr þeim tveim-
ur einvigum sem þeir hafa þreytt
standa þeir hnífjafnt, ég hygg þeir
hafi unnið sínar átta skákirnar
hvor, en fjölda skáka lauk í jafn-
tefli. Enginn treystist til að segja
fyrir um hvor muni sigra, þegar
þeir reyna með sér í þriðja sinn,
ekki er ólíklegt að líkamshreysti
og tauga ráði úrslitum.
Að lokum ein mynd frá landsleik
Dana og Svía.
Björn Brinck-Clausen sem ég
hef fyrir satt að sé af íslenskum
ættum, hefur svart gegn Nils-
Gustaf Renman og á leik. Björn
stendur greinilega betur, hann fór
í drottningarkaup, vann a-peðið
nokkru síðar og skákina.
En félagi hans úr dönsku sveit-
inni, sem horfði á taflið, kom auga
á skemmtilega fléttu sem einnig
vinnur a-peðið.
24 - Hxa6! 25 Dxa6 Dd3 25 Hgl
Re4!
Tvö sverð á lofti í senn! Svartur
hótar Rf2 mát og Dxb3. Hvítur
verður því að láta hrókinn, svartur
hefur þá peð yfir og ágæta stöðu.
GÁTAN
Hvað er svona álíka skrýtið
og að vera í Alþýðubandalag-
inu þessa dagana?
Svar:
ujnu>|>|ogsigæjspe!s ! bjba gy
SPILAÞRAUT
♦ G-9-4 Sagnir:
«2 K-G-6 suður vestur norður austur
❖ Á-6-3 1 hj. pass 2 lauf pass
+ Á-G-4-3 2 hj. pass 4 hj. pass
+ Á-8-3 C Á-D-l 0-7-4 Vestur lætur spaðafimmið. Við
látum lítið úr borðinu. Austur læt-
ur drottninguna, sem við tökum
O 8-7-2 með ásnum.
•í» D-6 Lausn á bls. 10.
LAUSN Á KROSSGÁTU
• L • R. • • • • s • fí • • •
V 0 m P\ N • fí S r / N • fí N G R fí
ló r h Ð l R > T u N G fí N • R fí Z>
• H R U m\p u 5 fí • ’fí R fí N G U R ' s £ F fí
• R fí r / \N N • R ö m fí D / « R fí K /< 1 L
r / F p R\> P) • 1B fí K fí t) / • G R /£ Ð /\R
• K fl R R | / • N J|Ö L. / • s 'fí - R fí Ð fí v\/
r fí L « rt' 5 N ú\' Æ R S L • H Ú r fí • fí\r
£ L L /9 • 5 V Ö ' fí S • K 'fí r J\fí T A N ' \fí
• E • u 5 L £ • J3\L fí /< fí ' £ fí\' fí L fí £\R
£ R B K\£ R\fí L V - fí K fí\L L 1/9 ' / L. L\/
• * H N £ r L\£ / /< fí k £ P\R\N * • / N\/f
• R1/9 U L ' \x R fí • r\fí\u\' [o\v fí N fí\N
hBæt/ KRfEKlfl /YIJÚK RfírV/ Vfíffí- m'ftL! Kj'fíNRR zu JuRT J? "" SflUÐ HLJ'OV F/LRfl l£/k- flRfí S las/nn
SAMHL ÞjoÐ HÖFÐ. /AII<IL h/jREVs
//// 'OLiRIR ofn
SM* [iL S’ERAl-
r\WmiT / JE/NS
'flK- HfiTÍ'Ð //V H'orfíú /R
\ U 2/7 TAL fí A£/</ L/TL/ prútt S0R6/R
GRfírn \ FlQSHfl H'fljU ZB/KS 'OHL/DÍ) T J URT foR ^ HE/Lfí
ys R/í-NU LétS/ SNJERT /NtSU
Si ö£/rr fíR ytrr HJfíRfí HV'/LT<r FoRSK-
HljoTA E/NK. ST. SKÓGRR D9r
L> VJÚP7 HAFN HR R RRKiÐ
‘fíHÚS/ ENJJ.
f, L//Y/ ~ '/TflEKA HERJA V/ 'OUfílR
£/</</ /V/ST/N T
HRÚ6AR SrMAn’ ryRR. HlfíSS 5 TofíVr
HORN FANyTf SKRfíUT
Vt'RPN fíflP
f £ÆZ>. kYflúD fíRÍ/H. sh/lld PUS/ 'ljt/NN
f/QN- AR/ 5TfíRfí AND- VfíRP
HL/ÐUR. KLMSt VENÚ! 'fí L/T/RF DfíNS<r
v/ssft kyn /AFU- HV/LD/
VfíFST u > >
Uftv ELVSN.
'S» þvorr þflTroR ’/LflT 5KOR! > MA5/Ð
V \ sve/FL f)R FóTum \ V. > 1 1
24 HELGARPÓSTURINN