Helgarpósturinn - 17.07.1986, Síða 34

Helgarpósturinn - 17.07.1986, Síða 34
 w.vAwvA^wA-7'^'rif?;^*V‘’<s^w>; i * » uacaiKCCf Samdráttur á sumrin? Fækkar gestum listasafna og sýn- ingarsala á sumrin? Eru landsmenn latari við að berja myndlistina aug- um eftir því sem dagarnir eru lengri? Svörin eru já og nei. Svarið við fyrri spurningunni er frekar nei- kvætt, því þá koma útlendingarnir. Svarið við síðari spurningunni er frekar jákvætt; Islendingar virðast þá í einhverjum mæli hliðra til fyrir túrhestunum. Annars má heita athyglisvert hversu ólík viðbrögð talsmanna safna og sýningarsala voru þegar of- antaldar spurningar voru lagðar fyrir þá. T.d. sagði Anna Þóra Karls- dóttir hjá Gallerí Langbrók að að- sóknin dytti mikið niður á sumrin. „Það er varla að manni finnst taka því að hafa opið á sumrin, en samt þorum við ekki að loka. Það er alltaf leiðinlegt. Nú eru sumarfrí hjá fyrir- tækjunum, þar sem annars tíðkast að fólk slái saman í myndir, en það liggur niðri, sem og gjafir vegna út- skrifta í skólunum. Utlendingarnar kíkja vissulega inn — en það er hrein undantekning að þeir versli hjá okkur." Viðbrögðin voru allt önnur hjá Úlfari Þormódssyni í Gallerí Borg. „Samdráttur? Nei, nei, það er bull- andi aðsókn hjá okkur, hingað koma erlendir gestir, innlendir ferðalangar og almennir njótendur listarinnar. Sýningarnar breytast dag frá degi því við erum alltaf að selja af veggjunum. Utlendingarnir? Já, þeir versla talsvert og kaupa helst íslenska landslagið." Hladvarpinn á Vesturgötunni er nú opinn sitt fyrsta sumar og þar hefur aðsókn verið mjög góð og gestir að mestu innlendir. Góð að- sókn hefur líka veriö þar sem aðal- lega er opið á sumrin. Við nefnum Árbœjarsafnid og ÍMxdalshús á Ak- ureyri. Nýlistasafnid sker sig hins vegar nokkuð úr um þessar mundir, að sögn forstöðumannsins Níelsar Hafstein, því þar í portinu standa yf- ir miklar framkvæmdir. „Almennt má segja að þetta dragist eitthvað saman á sumrin, en það fer þó eftir því hvaða sýning er í gangi. Aðsókn- in jókst talsvert í vor, en nú er það svo að síðustu þrjár vikurnar hafa þessar framkvæmdir verið í gangi og fólk leggur hreinlega ekki í að stökkva yfir skurðina," sagði Níels. í Ásmundarsafni varð fyrir svör- um dóttursonur listamannsins, Ás- mundur Helgason. Hann sagði að- sóknina svipaða hjá íslendingum, en að aukningin væri talsverð hjá útlendingum. „Það er kannski minna um að ísiendingar komi einir, þeir koma á sumrin frekar með er- lendum gestum. Hér koma svo út- lendingar í hópum, en þeir láta gjarnan nægja að skoða úti í garði en koma síður inn,“ sagði Ásmund- ur. Svipuð var sagan hjá Listasafni íslands. Karla Kristjánsdóttir sagði aukninguna fyrst og fremst vera hjá útlendingum. „Það er alltaf meira á sumrin, en þó finnst mér að frekar megi tala um árssveiflur en ártstíða- sveiflur. Fyrir nokkrum árum dró mjög úr aðsókn, en hún er orðin betri aftur. Aðsóknin fer svo og mjög eftir tilefnum og hún eykst um helgar," sagði Karla. Svipuð svör var að fá hj áListasafniASÍ: Fækkun inn- lendra gesta jafnast út með aukn- ingu útlendinga, en frekar að að- sóknin fari eftir sýningunum sjálf- um. Við ljúkum þessari yfirferð með tilvitnun í Örn Inga, forstöðumann Laxdalshússins á Akureyri: „Hjá okkur er þetta sumarævin- týri. Þá verða hlutirnir að gerast með einhverjum hætti. Við látum þetta ganga nógu hratt fyrir sig og höfum hraðar skiptingar þannig að fólk segi sem svo, að ef það fer ekki strax þá missi það af viðburðinum. Það er of mikið um að listin sé í dróma á sumrin — að ástæðulausu. -FÞG Stella í orlofi: langt komnar Tökur Hér birtum vid nokkrar flunkunýj- ar myndir frú tökum myndarinnar Stella í orlofi sem nú eru langt komn- ar og fara fram í Reykjavík og Kjósinni á vegum kvikmyndafélags- ins Umba. Þetta er gamanmynd sem sér ýms fyrirbrigdi delluþjóðfélags- ins íslenska í spaugilegu Ijósi, þ.á m. laxveiði, túrisma, afvötnun og reyk- inganámskeiðin rómuðu. I Stellu í orlofi er mætt til leiks lands- lið íslenskra grínleikara. Stærstu hlutverkin eru í höndum Eddu Björgvinsdóttur sem leikur Stellu, Þórhalls Sigurðssonar (Ladda) sem fer með hlutverk Svía nokkurs sem kemur til landsins og af brambolti hans hlýst ýmisskonar misskilning- ur, og Gests Einars Jónassonar sem leikur eiginmann Stellu. Önnur veigameiri hlutverk eru í höndum Ásu Hlínar Svavarsdóttur, Gísla Rúnars Jónssonar, Sigurðar Sigur- jónssonar, Bessa Bjarnasonar, Hönnu Maríu Karlsdóttur, Sigríðar Þorvaldsdóttur, Arnars Jónssonar, Eggerts Þorleifssonar, Þráins Karls- sonar, Steindórs Hjörleifssonar, Bríetar Héðinsdóttur, Pálma Gests- sonar, Arnar Árnasonar og Kjart- ans Bjargmundssonar. En samtals leika yfir hundrað manns í mynd- inni auk barna, hesta og laxa. Guðný Halldórsdóttir samdi hand- rit myndarinnar, Ingibjörg Briem er 34 HELGARPÓSTURINN framkvæmdastjóri, leikstjóri Þór- hildur Þorleifsdóttir en henni til að- stoðar er Þorsteinn Jónsson leik- stjóri. Kvikmyndatökumaðurinn er sænskur, Jan Person, sá hinn sami og vann með Lárusi Ymi Óskarssyni að síðustu tveimur myndum hans, Andra Dansen og Leoparden. Krist- ín Pálsdóttir sér svo um klippingu og eftirvinnslu myndarinnar og að hennar sögn er stefnt að því að frumsýna 18. október: „Það er ann- að hvort þá eða að bíða fram yfir áramót," segir Kristín. „Það er alveg glatað að frumsýna myndir frá því síðla í nóvember og fram eftir des- ember út af öllu jólastússinu. A þeim tíma fer fólk lítið í bíó. Og um jólin verður svo mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Skytturnar, frum- sýnd, og þar sem markaðurinn hér er svo lítill höfum við kvikmynda- gerðarmenn reynt að þvælast ekki hver fyrir öðrum með frumsýningar til að spilla ekki aðsókninni." Kostnaðaráætlun fyrir Stellu í or- lofi hljóðar nú upp á 14 milljónir en Umbi hlaut 5 milljónir úr Kvik- myndasjóði á þessu ári. Aðstand- endur reikna með að þeir þurfi að fá 45 þúsund áhorfendur til að myndin standi undir sér. JS “Lost in the magic of your kiss, Iforgot the potato salad. Bring home a quart." Sýning á skopteikningum „Takist þér ekki að vera fyndinn, vertu þá áhugaverður," lét Harold Ross hafa eftir sér. Hann stofnaði ameríska tímaritið The New York- er Magazine. Asamt því að fjalla um bókmenntir og birta skáldskap hefur The New Yorker alla tíð skemmt lesendum sínum með skop- teikningum í stað Ijósmynda. Þetta hefur orðið til þess að skopteiknar- ar og grínarar í Ameríku láta sér fyrst detta í hug The New Yorkersem vettvang fyrir sig. Þessa dagana stendur yfir sýning á skopteikningum New Yorker í Menningarstofnun Bandaríkjanna, Neshaga 16. Þessi sýning er nú á sínu fyrsta ferðalagi utan Bandaríkj- anna og á henni eru verk eftir helstu listamenn sem hafa teiknað í The New Yorker síðastliðin 60 ár. Einungis tveir ritstjórar hafa stýrt The New Yorker frá stofnun þess fyrir 58 árum. Fyrst var það stofn- andinn Harold Ross og við ritstjóra- starfinu tók William Shawn árið 1952. Því er það að blaðið hefur enn yfir sér sama yfirbragð og fyrir 58 árum. Allir ættu að geta hlegið eitthvað á sýningunni í Menningarstofnun- inni en hún er opin alla virka daga vikunnar á milli kl. 8.30 og 17.30. Ekki er opið um helgar. Sýningin er í sýningarsalnum á fyrstu hæð húss- ins og eru allir velkomnir. Sýningin stendur út júlímánuð. -gpm

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.