Helgarpósturinn - 02.04.1987, Blaðsíða 34

Helgarpósturinn - 02.04.1987, Blaðsíða 34
fermin blóm Mikið úrval af falle9um, ferskum, afskornum blomum. Tilvalið í tilefni fermingarinnar. Spennandi afskorin blom og fjölbreyttar skreytingar © Blómum interflora VÍðaVeroW 36770.686340 VOPN OG VERJUR Eyðni og smokkar hafa verið mjög til umræðu síðustu mánuð- ina. Vafalaust þörf umræða og um margt athyglisverð og ekki stendur á mönnum — að henda gaman að hlutunum. HP hefur borist skemmtilegt málshátta- safn, sem eignað er Pétri Péturs- syni, héraðslækni í Bolungar- vík, og látum við það flakka. Safnið ber heitið Eyðnihættir og er svona: Agœtis vörn eru apóteksblöðrur Best er að foröast blauta kossa og djúpa Enginn ueit hver eyðni ber — ávallt hafðu gát á þér Fári veldur fjöUyndi Fátt hlýst gott af framhjáhaldi Fjöllyndi er ei til fagnaðar Frœðsla hindrar fár og smit Gikkir forsmá gúmmíverjur Góð er vörn í gúmmísokk Grandar heilsu grúppusex Greindur brúkar gúmmíiö Gúmmí hentar gleðimönnum Gúmmíhólkur garpa klœðir Gúmmívörn skal gestum bjóða Gýs upp smit við gjálífi Holdsins fýsn er hollt að temja Hættan vex ef háttar þú hjá mörgum Illt er aö þekkja eyðnismit Oft er gagn að gúmmíverju Ráö er að eiga rekkjunauta fáa Raun er að mörgum rekkjunautum Sáötröll breiða sóttir út Skömm er ekki skírlífi Smánarlegt er smokkahatrið Smart er smokkavalið Smiti forðar smokkurinn Smokklaus maður smitað getur Smokkur minnkar smithœttu Stafar fár af stóðlífi Töff er gúmmígrœjan Varasamt er verju að gleyma Varast skaltu villtar ástir Voði fylgir vœndi og sukki Vont er að fara verjulaus í bólið 'erS'Ta sem ek* ha'aJ|Qra bóka 1» ^Veislu - og fundaiþjónusta Nemendamót,x árshátíðir, vorfagnaðir, stúdentaveislur, afmæli, brúðkaup, ráðstefnur o.fl. HVERFISGÖTU105 PéturSturluson veitingamaður simi 29670 34 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.