Helgarpósturinn - 02.04.1987, Blaðsíða 10
HP
HÉLGARPÓSTURINN
Ritstjóri:
Halldór Halldórsson
Ritstjórnarfulltrúar:
Helgi Már Arthursson
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Blaðamenn:
Anna Kristine Magnúsdóttir
Friðrik Þór Guðmundsson
Gunnar Smári Egilsson
Kristján Kristjánsson
Jónína Leósdóttir og
Óskar Guðmundsson.
Ljósmyndir: Jim Smart.
Útlit: Jón Óskar Hafsteinsson
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson.
Skrifstofustjóri:
Garðar Jensson.
Auglýsingastjóri:
Hinrik Gunnar Hilmarsson
Auglýsingar:
Sigurður Baldursson
Sveinbjörn Kristjánsson
Dreifing:
Garðar Jensson
(heimasími: 74471)
Guðrún Geirsdóttir
Afgreiðsla:
Bryndís Hilmarsdóttir
Ritstjórn og auglýsingar
eru að Ármúla 36, Reykjavík sími
681511. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36, sími 681511.
Útgefandi: Goðgá h/f
Setning og umbrot:
Leturval s/f.
Prentun: Blaðaprent h/f.
LEIÐARI
Að verðlauna skattsvikara
Á nokkrum dögum hefur orðið til nýr
stjórnmálaflokkur á Islandi, stjórnmálaafl, ef
marka má skoðanakannanir, sem gerðar voru
um liðna helgi. Raunar er vissara að taka
þessum könnunum öllum með fyrirvara, því
það liggur í augum uppi, að allt annað en
ígrundun hefur ráðið því, að fólk lýsti yfir
stuðningi við þennan nýja flokk.
Stjórnmálaflokkar verða fyrst og síðast til
vegna málefna þótt ekki verði dregið úr mikil-
vægi pólitískra persónutöfra. Þegar þjóðin
var spurð álits á stjórnmálaflokkunum var nýi
flokkurinn svo nýr, að engin stefnuskrá lá fyrir
og raunar var ástandið svo þágt, að framþjóð-
endur flokksins og kosningastjóri áttu ekki
svör við grundvallarspurningum um pólitík.
En samt rakaði þessi flokkur að sér fylgi í
skoðanakönnunum.
Hvernig má það vera?
Sumir vísa í persónuvinsældir Alberts
Guðmundssonar, aðrir í það, að Albert hafi
svifið á samúðarskýi o.s.frv.
Hvað sem þessum skýringum líður, þá
hlýtur hver einasti þenkjandi maður að velta
fyrir sér þeirri spurningu hvort verið geti, að
stór hluti þjóðarinnar skelli skollaeyrum við
uppljóstrunum þess efnis, að einn helsti ráða-
maður þjóðarinnar hafi gerst sekur um skatt-
svik?
Getur verið, að rösklega 20% þjóðarinnar
séu að lýsa yfir því, að skattsvik séu ekki af-
brot, að skattsvik skuli ekki flokka með ann-
ars konar afbrotum og í raun eigi að verðlauna
þá, sem slíkt stunda?
Helgarpósturinn telur, að meðal Islendinga
sé það enn fullgild afstaða, að það sé í stak-
asta lagi að stunda skattsvik. Hitt er jafnframt
staðreynd, að þessi afstaða á í vök að verjast.
Þó má vel vera, að Albertsmálið verði þess
valdandi, að lina suma ( afstöðu sinni til af-
brota af þessum toga.
Sé litið á málið í hnotskurn liggur fyrir, að
Borgaraflokkurinn og Albertsmálið eru órofa
tengd. Þannig má segja, að Borgaraflokkur-
inn sé byggður á þeim grunni, að það sé
ómaklegt að krefjast afsagnar ráðherra, sem
gerst hefur sekur um skattsvik — og það á
meðan hann var fjármálaráðherra!
En kannski, að málið sé mun flóknara.
Það gæti a.m.k. verið þarflegt fyrir þá, sem
vinna við fréttamiðlun og fréttaskýringar, að
spyrja sjálfa sig hvort verið geti, að þeir hafi
brugðist í starfi. Klikkuðu fjölmiðlarnir? Tókst
þeim ekki að koma skammlaust þeim upplýs-
ingum til þjóðarinnar, að Albert Guðmunds-
son fv. iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra
hafi þegið fjármuni hjá hinu margfræga fyrir-
tæki Hafskipi beint í eigin vasa og það út af
leynireikningi í öðru tilvikinu? Mistókst að
skýra nógu greinilega frá þv(, að maðurinn
átti ekki einu sinni rétt til 100 þúsund króna
greiðslu, sem hefði átt að renna til ÁTVR og
í báðum tilvikum hafi hann fengið fylgiskjöl
með greiðslunum hvað svo sem ráðherrann
fyrrverandi og sonur hans segja nú? Hafa
menn gleymt öðrum greiðslum, sem runnu til
sama manns og voru ekki taldar fram til
skatts? Hafa menn gleymt því, að Hafskip gaf
sama manni væna summu til að halda af-
mælisveislu á Hótel Sögu? Hafa menn gleymt
því, að sami maður fékk sömu utanferð
greidda hjá Hafskipi, ríkissjóði og hjá opin-
berum aðiljum í Frakklandi? Fyrir utan svo allt
annað, sem grafið hefur verið upp?
Ef svarið við spurningunni um það hvort
fjölmiðlarnir hafi klikkað er jákvætt, þá er ör-
ugglega kominn tlmi til þess að þeir fái einn
á 'ann.
Og kannski, að þeir sem hylla skattsvikin
þessa dagana þurfi líka að fá á 'ann.
Hingað til hafa sumir fjölmiðlar aðallega
verið skammaðir fyrir að ganga of hart fram
ímálum. Kannski, að þeir hafi allsekki gengið
nógu hart fram, heldur þvert á móti.
manni í Þjóðviljanum um dag-
inn. Tómas hefur skrifað greinar um
réttarfarsleg málefni í blöð um langt
skeið, en af greininni í Þjóðviljanum
að dæma, hefur hann nú sett punkt
aftan við þau skrif. Tómas rekur í
greininni ótalmarga þætti í réttar-
kerfinu, sem hann hefur gert at-
hugasemdir við á undanförnum ár-
um. Hann bendir til dæmis á, að
dómstólar fáist við mál sem eðli-
legra væri að bankar og lánastofn-
anir fengjust við, að slakt réttarkerfi
standi í veginum fyrir að koma rétt-
læti á í skattamálum og að lögin um
Rannsóknarlögreglu ríkisins
séu í raun brot á grundvallarrétt-
indum manna. Öllu þessu, og miklu
meira, segist Tómas hafa komið á
framfæri á undanförnum árum í von
um að umræða skapaðist um réttar-
farsleg málefni. Af því hefur hins
vegar ekki orðið. Tómas furðar sig
á því í greininni í Þjóðviljanum að
hvorki Iagadeildin í Háskólanum
né dómarar í Hæstarétti skuli
hafa fundið sig knúna til að svara
BÍLEIGENDUR
BODDIHLUTiR!
, ÖDÝR TREFJAPLASTBRETTI O.FL. Á FLEST-
AR GERÐIR BÍLA, ÁSETNING FÆST A
STAÐNUM.
BILPLAST
Vagnhöfö* 19, simi 6M233.
Póstscndum.
Ódýrir sturtubotnar.
Tökum aö okkur trefjaplastvinnu.
Valjiö istenskt.
m
Áskrift borgar sig
Aðeins
266 kr. á mánuði
skrifum sínum. Tómas segist nefni-
lega hafa gætt þes að hafa greinar
sínar stóryrtar til að vekja viðbrögð.
Þau hafa hins vegar látið standa á
sér og því hefur Tómas lagt penn-
ann endanlega á hilluna. Það virðist
því þurfa mikið til að vekja dómstól-
ana og lögmannastéttina til sjálfs-
skoðunar...
s
^^Þtjórnmálaleiðtogar hafa ver-
ið seinheppnir í ummælum um
Borgaraflokk Alberts Guðmunds-
sonar. Ólafur G. Einarsson mun t.d.
hafa látið þau orð falla um framboð
nýja flokksins, að Albert Guð-
mundsson hlyti að hafa slæma ráð-
gjafa. I þessu sambandi benda heim-
ildarmenn HP á, að einn helsti ráð-
gjafi Alberts sé maður að nafni,
Garðar Jóhann Guðmundsson.
Hann var áður kosningaráðgjafi
Ólafs G. Einarssonar...
l^Ia
I élag kvikmyndagerðarmanna
hélt á dögunum fund, þar sem
Hrafn Gunnlaugsson missti spón
úr aski sínum. Félagið kaus Þráin
Bertelsson, höfund kvikmynd-
anna um Þór og Danna, sem full-
trúa sinn í Bandalag íslenskra lista-
manna í stað Hrafns...
Á
Lrni Stefánsson viðskipta-
fræðingur og fasteignasali hjá fast-
eignasölunni Gimli gerði „smá
skyssu“ fyrir nokkrum árum. Þá
seldi hann sömu íbúðina tvisvar
sinnum sama daginn. Dómur er fall-
inn í því máli og lauk með að hjónin,
sem búið höfðu í íbúðinni frá árinu
1982 urðu að fara á götuna í orðsins
fyllstu merkingu, slypp og snauð.
Fasteignasalinn seldi þessu fólki sér-
fræðiþekkingu sína, en ekki hefur
þótt ástæða til að draga Árna til
ábyrgðar. Árni hefur það hins vegar
gott þessa dagana og rekur fast-
eignasöluna Gimli „af krafti" eins og
hann orðar það. ..
I ýr forstöðumaður hefur
verið ráðinn til Sjúkrasamlags
Reykjavíkur. Það er Þorvaldur
Lúðvíksson, hæstaréttarlögmaður.
Þorvaldur er móðurbróðir Davíðs
Oddssonar, borgarstjóra. Það var
einmitt Davíð sem skipaði Þorvald í
stöðuna...
F
ramboðsfundir munu vera
heldur einkennilegir þessa dagana
með tilkomu Borgaraflokksins.
Þannig mætir skipulagt klapplið frá
höfuðstöðvunum í Skeifunni í
Reykjavík og klappar fyrir ræðu-
mönnum flokksins — einkum þegar
þeir stama í svörum við einföldum
og erfiðum spurningum. Þannig
heyrðum við, að á framboðsfundi á
Akranesi hefði Ingi Björn Alberts-
son framkvæmdastjóri Alberts
Guðmundssonar, heildverslunar,
verið spurður um afstöðu nýja
flokksins til afnáms tekjuskatts eða
lækkunar hans og jafnframt hvort
Borgaraflokkurinn myndi ekki beita
sér fyrir því, að hart yrði tekið á
skattsvikum. „Eg tel ekki ástæðu til
þess að svara þessari spurningu,"
var svar frambjóðandans. Vand-
ræðaleg þögn varð í salnum í eitt
augnablik, en þá kom klappiiðið að
góðu haldi, því allt í einu upphófust
mikil fagnaðarlæti aftast í salnum á
meðal klappliðsins, sem hefur vænt-
anlega þótt svarið sérdeilis
snjallt...
0,2% heildarinnar, en svo bregður
við að í tryggingastarfseminni er
þessi launaliður 18%. Gjafir trygg-
ingafélaga námu þannig á þessu ári
alls 87,6 milljónum króna af alls 116
milljónum sem öll fyrirtæki í öllum
atvinnugreinum í öllu landinu
„gáfu“ þetta árið. Þeir eru svo sann-
arlega gjafmildir, stjórnendur trygg-
ingafélaganna...
Athugasemd
í tilefni af skrifum Helgarpóstsins
þann 12. þessa mánaðar, þar sem
fjallað er um rekstur ferðaskrifstof-
unnar Útsýnar, og viðskipti hennar
við Flugleiðir, viljum við koma eftir-
farandi á framfæri.
Ferðaskrifstofan Útsýn hefur ver-
ið einn af stærstu viðskiptaaðilum
Flugleiða á íslandi í fjölda ára. Öll
þessi ár hefur Útsýn verið með skil-
vísustu greiðendum og samvinna
þessara tveggja fyrirtækja verið
með ágætum. Þessi ummæli í Helg-
arpóstinum eru því ekki á rökum
reist.
Flugleiðir vona að viðskiptin við
starfsfólk Ferðaskrifstofunnar Út-
sýnar megi verða jafn ánægjuleg
um ókomin ár.
Reykjavík 26. mars 1987
Flugleiðir kynningardeild
LEIÐRÉTTING
í síðasta HP birtist smáfrétt um
mig og er fréttin röng. Ég var stadd-
ur heima hjá mér, þegar frægur
fundur Alberts Guðmundssonar í
Þórscafé var haldinn. Rétt er að
fram komi, að ég er varaborgarfull-
trúi núna, hvað svo sem síðar verð-
ur.
Haraldur Blöndal
LAUSNÁ
SKAKÞRAUT
Þ.
jóðhagsstofnun hefur gefið
út atvinnuvegaskýrslur fyrir árið
1985. Þar er meðal annars að finna
sundurliðun á greiddum launum
fyrirtækja þetta ár eftir atvinnu-
greinum. Alls námu greidd laun yfir
50 milljörðum króna og voru
„vinnulaun" 96,5% heildarinnar
Aðrir liðir voru ökutækjastyrkur,
dagpeningar, risnufé, gjafir, land-
göngufé pg „stjórnun og endur-
skoðun". í sundurliðuninni kemur
ýmislegt fróðlegt fram, t.d. varðandi
„gjafir". Þessi liður er alls aðeins
47 Tuxen
1. Da8 kemur svarti í leikþröng:
1. - Kxc7 2. Dd8
1. - Hxc7 2. Da6
1, - Ha7 2. Dc6
48 Sveinn Halldórsson
1. Bg2 stöðvar g-peðið og lokar
þannig leið kóngsins yfir g3. Og
fljótlegt er að ganga úr skugga um
að þetta er lausnin:
1. - Kgl 2. Hd2 Kh2 3. Rf3
1. • Ke3 2. Rd3 Ke2 3. Hel
1. -Ke2 2. Rd3 Kxdl 3. Bf3
Þrjú kórrétt mát — það er vel af sér
vikið með jafn fáum mönnum.
10 HELGARPÓSTURINN