Helgarpósturinn - 02.04.1987, Blaðsíða 7

Helgarpósturinn - 02.04.1987, Blaðsíða 7
ALBERT ENN A RAÐHERRABILNUM Á RÉTT Á AÐ KAUPA MERCEDES BENZ 300 SEL HEFUR ENN EKKI ÁKVEÐIÐ SIG FÆR SEX MÁNAÐA RÁÐHERRA BIÐLAUN Þorsteinn Pálsson, fjármálarábherra og formaður Sjálfstœbisflokksins, átti morgunfund meb Albert Gub- mundssyni á fimmtudagsmorgun fyrir uiku. Albert hafbi þá ekki gefib út yfirlýsingu um sérstakt frambob og sku. heimildum HP rœddu þeir Albert og Þorsteinn þab mál abeins lauslega. Tilgangur fundarins uar sá m.a. ab ganga frá ýmsum atribum er snertu afsögn Alberts Gubmundssonar. ■*Æi : Albert Guömundsson sótti Sigurö Þórð- arson, skrifstofustjóra f fjármálaráöu- neyti, í Arnarhvál s.1. fimmtudag og ók upp í Sigtún eins og myndirnar sýna. Á þeim f undi var fyrrum iðnaðarráðherra að semja um hugsanleg kaup á ráðherrabíln- um. Á fundinum ræddu þeir Albert um kaup hans á ráðherrabifreiðinni R-16062, en bifreiðin er eign for- sætisráðuneytisins. Bifreiðin er Mercedes Benz, árgerð 1986, skráð 8. janúar 1986. Ný bifreið sömu gerðar kostar um 3 milljónir og er endursöluverð árgerðar 1986 talið vera um 2,4 milljónir króna, skv. upplýsingum sem HP aflaði sér. Skv. heimildum HP fór Albert Guð- mundsson þess á leit við fjármála- ráðherra að fá að kaupa Benzinn, og kom það í hlut Sigurðar Þórðarson- ar, skrifstofustjóra í fjármálaráðu- neytinu, að ganga frá samningum við Albert um þetta mál. Festi Gunnar V. Andrésson, ljósmyndari DV á filmu samningafund Álberts og Sigurðar um bílinn si. fimmtu- dag, í kjölfar fundar Þorsteins Páls- sonar og Alberts. Á þeim fundi tók Albert Guð- mundsson sér frest til að ákveða hvort hann keypti þennan bíl, en honum var tilkynnt að bíllinn yrði metinn skv. reglum um bílafríðindi ráðherra. Var Albert gefinn kostur á því að hafa bílinn að láni í vikutíma á meðan hann væri að velta fyrir sér kaupunum og skýrir það þá stað- reynd að Albert ekur um á bifreið frá forsætisráðuneytinu þegar þetta er skrifað. í fjármálaráðuneytinu hefur ekki verið hægt að fá upplýst hvert mats- verð ráðherrabílsins er, en skv. heimildum HP vildi Albert Guð- mundsson kaupa bílinn fyrir lægra verð en matsverðið er. Það er skv. upplýsingum HP 2,1 milljón. Sætti Albert sig ekki við matsverð bílsins verður hann að skila honum í dag, eins og hver annar ríkisstarfsmaður hefði þurft að gera strax. Ástæðan fyrir því að gengið er til samninga við Albert um bílakaup er sú, að skv. reglum um bílafríðindi ráðherra á hann rétt á að kaupa þá bifreið sem hann hafði til afnota í ráðherraembætti. Reglur þessar voru endurskoðaðar árið 1985 og hafa ráðherrar sem veitt hefur verið lausn frá embætti á þessum tíma ekki nötfært sér þessi réttindi. Reyndar er aðeins um að ræða Geir Hallgrímsson, sem kaus að kaupa ekki ráðherrabíl. Það er óneitanlega skondið, að Þorsteinn Pálsson, fjármáiaráð- herra, skuli þurfa að standa í þess- um samningum við Albert og að sumu leyti undarlegt, enda er R-16062 í eigu forsætisráðuneytis. Spurning er hvort gerðir verða sér- stakir samningar við Albert vegna bílakaupanna. DV birti sl. föstudag skemmtilegar myndir af Sigurði Þórðarsyni, skrif- stofustjóra í fjármálaráðuneytinu, síðdegis þann dag sem fundur þeirra Þorsteins og Alberts fór fram. Sagði blaðið frá því er Albert sótti Sigurð Þórðarson í fjármálaráðu- neytið í Arnarhváli og keyrð’ann inn í Sætún. Segir svo í frásögn blaðsins:' „Stöðvaði Albert bílinn í Sætúni og ræddu þeir þar saman í góða stund. Síðan keyrði Albert Sigurð til baka.“ Það var á þessum fundi, sem skrif- stofustjórinn úr fjármálaráðuneyt- inu gekk frá samkomulaginu við Albert. En það var samið um fleira en ráð- herrabílinn á þessum fundum Alberts Guðmundssonar. Það var gengið frá biðlaunagreiðslum til hans vegna lausnar úr embætti iðn- aðarráðherra. Albert Guðmundsson fær biðlaun ráðherra í næstu sex mánuði eftir afsögn sína úr embætti iðnaðarráð- herra. Ráðherralaun eru kr. 161.233 eftir hækkun sem ráðherrar fengu á dög- unum. Ráðherralaun eru samsett úr þingfararkaupi og ráðherralaunum. Er þóknun fyrir ráðherradóm rúm- ar 60 þúsund kr. á mánuði. Albert Guðmundsson fær því fyrir ráð- herradóm samtals um kr. 250.000 þá sex mánuði sem biðlaunasamn- ingur hans við fjármálaráðuneytið gildir. Samkomulagið um biðlaun styðst við ákvæði i lögum frá 1955, en þar segir m.a.: „Nú hefur maður gegnt ráðherraembætti í 2 ár samfleytt eða lengur, og á hann þá rétt á bið- launum, er hann lætur af því starfi. Biðlaun skal greiða í sex mánuði, talið frá 1. degi næsta mánaðar eftir að hlutaðeiganda var veitt lausn frá ráðherraembætti. Biðlaun skulu vera 70% af launum ráðherra, eins og þau eru á biðlaunatímanum." eftir Helga Má Arthúrssoni HELGARPÓSTURINN 7

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.