Helgarpósturinn - 02.04.1987, Blaðsíða 41

Helgarpósturinn - 02.04.1987, Blaðsíða 41
HP fer á stúfana og leitar uppi nokkur gömul og virðuleg hús í Vesturbœnum og miðborginni, hús sem standast tímans tönn og bera höfundum sínum verðugt vitni. né neinn leyfis um eitt né neitt. Þú getur sagt það sem þér sjálfum sýnist um menn og mál- efni, nítt skóinn af nágranna þínum án þess að eiga á hættu að hann komist að því að þú hafir þessar skoðanir. Þú hittir hann svo kannski á sumardegi, báðir að vökva garðinn og eruð hinir kurteisustu en þegar í griðastaðinn kem- ur geturðu aftur tekið til við að rægja og sverta. Hér áttu heima og gerir það sem þér er skapi næst. Hús hafa því margháttuðu verndarhlutverki að gegna í tilverunni, þau eru kassar með ýmsa lögun sem fólk lokar sig inni í, tvö og tvö og í nútímanum tvær og tvær eða tveir og tveir, eftir því sem hverjum hentar. Oftlega má sjá fólk í blóma lífsins ganga til hússins þar sem það ætlar að eyða ævinni, innan tíðar verður vart við að það fjölgar íbúum og litlir angar skríða út úr húsinu og skoða heiminn, þyrstir í að kanna hvort hann nær lengra en út að garðshliðinu. Þegar þau hafa fengið það stað- fest að heimurinn er stærri en svo að hann rúmist í einu húsi vilja þau komast burt og ein- hverjum árum síðar skríða ungarnir úr hreiðr- inu og vilja í eigið hús og koll af kolli. Húsið, sem var svo fullt af fjöri og lífi og gæti sagt svo ótal skemmtilegar sögur ef það fengi mál, verður hljótt og úr skotum og skápum mætti lesa lífshlaup kynslóðanna, breytingarnar, barnslega gleði eða alvöru fullorðinsáranna, ástina og hatrið, stríðið og friðinn, en hróp hússins er andvana fætt, bara þögnin til vitnis um að einhverntíma var lífið með öðrum hætti en það er nú. Þannig eru húsin safn til sögu okkar sjálfra um leið og þau eru safn til sögu okkar menningar og mennta, stóru húsin lýsa stórhuga mönnum sem voru stórir til orðs og æðis, litlu húsin lýsa hógværum mönnum sem kannski töldu ekki að saman færi efni og andi og vildu hugsa stórt í litlu húsi. Ótal gerðir af húsum lýsa ótal gerðum af fólki — þangað til margir fara að búa saman í einu húsi, hver of- an á öðrum og undir þeim næsta. Skrýtið að loftið hjá honum sé gólfið hjá mér, hugsar ein- hver og sprenglærðir sálarfræðingar í mann- mörgu löndunum handan við hafið þykjast sjá að nútíma „frústrasjón" hjá manninum sé ámóta og ef dýr er sett í búr. Eitt búr ofan á öðru og fast við hlið hins næsta. Þannig hafa húsin breyst í gegnum tíðina. PSIIIÍ w feá wiii iii Ægissíða 88. Byggingarár: 1950. Eigandi: Halldór H. Jónsson, arkitekt, og kona hans Margrét Garðarsdóttir. Arkitekt: Halldór H. Jónsson. Stærð: Grunnflötur 135 fm., efri hæð 90 fm. 1 | iii ,-|a \M 0 \ií - 1111 IIII si >| jllll. . ani rí mmmu ii || Stýrimannastígur 12. Byggingarár: 1926. Eigandi: Sigurður Hálfdánarson. Arkitekt: Ókunnur. Kristinn Markússon, Kristinn í Geysi, mun hafa látið byggja húsið. Stærð: Grunnflötur 90 fm. á öllum þremur hæðum. HELGARPÓSTURINN 41

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.