Helgarpósturinn - 02.04.1987, Blaðsíða 25

Helgarpósturinn - 02.04.1987, Blaðsíða 25
eftir Önnu Kristine Magnúsdóttur myndir Jim Smart SELDU BÍLANA KEYPTL PRENTVÉL og prenta nú eldspýtnabréf i þúsundavís Þeir voru vid nám í menntaskóla þegar hugmyndin fœddist. Eins og fleiri höföu þeir séö merkt eld- spýtnabréf erlendis og lengi vel söfn- uöu þeir slíkum bréfum. Agnar Þór Nielsen tók fyrst eftirslíkum umbúö- um þegar hann dvaldi á hóteli í Egyptalandi og Ríkharður Már Ríkharðsson var staddur í Gíneu prentað öðrum megin. Við kom- umst þá í samband við annað fyrir- tæki sem selur bréfin ósamansett og því hægt að prenta beggja megin og síðan heftum við eldspýturnar í. Eft- ir að við höfðum sent þeim bréf og telex tilkynntu þeir okkur að söiu- maður frá þeim væri að koma hing- að til lands til að ræða okkur. Það Rfkharður Már og Agnar Þór. þegar hann geröi sér grein fyrir gildi slíkra eldspýtnabréfa. ÓDÝR AUGLÝSING „Þetta er besta auglýsing sem fyr- irtæki geta fengið," segja þeir félag- ar sem síðastliðin þrjú ár hafa feng- ist við að framleiða slík eldspýtna- bréf, fyrstir íslendinga. Þeir voru 19 ára þegar þeir stofnuðu fyrirtækið og enn í námi eins og komið hefur fram enda segir Ríkharður að starf- semin hafi komið niður á náminu. „Ég komst í kynni við fyrirtæki í Bretlandi sem býr til vélar sem prenta svona eldspýtnabréfsegir Agnar Þór. „Ég las um þetta fyrir- tæki í blaði, kannaði málið og við keyptum vélina. Sá galli fylgdi þó kaupunum að við þurftum að kaupa með henni samansett eldspýtnabréf sem þýddi það að við gátum bara leist okkur nú hreinlega ekkert á, tveir menntaskólastrákar að fá til sín sölumann, svo við sendum telex út og sögðumst ekki geta tekið á móti honum. Svarið frá okkur fór hins vegar of seint af stað þannig að maðurinn var lagður af stað til ís- lands þegar það barst svo það var ekki um annað að ræða fyrir okkur en að taka á móti honum! Við fórum með hann þennan venjulega rúnt á Gullfoss og Geysi og honum leist bara vel á þetta — jafnvel þótt hann leyndi því ekki að honum þætti við frekar ungir!!" 1.200 BRÉF Á KLUKKU- STUND „Til þess að geta keypt vélina þurftum við að selja bílana okkar. Það fannst okkur reyndar alveg í lagi, einkum þegar maður getur fengið pabba bíl lánaðan!" bætir Agnar við brosandi. „Við fengum tilskilin leyfi til að flytja þessi bréf inn en á meðan þau voru samansett þurftum við að borga ÁTVR 1 krónu og 20 aura á hvert bréf. Þá var miðað við sama gjald og borgað var fyrir stokka með 40 eldspýtum í sem var auðvit- að alveg fáránlegt. Við fórum til þá- verandi fjármálaráðherra og feng- um leyfi fyrir innflutningnum og þá lækkuðu leyfisgjöldin." Þeir segja fyrsta viðskiptavininn hafa verið veitingahúsið „í Kvos- inni“. Ástæðan sé ekki sú að eigend- ur þess séu vinir þeirra, heldur hafi þeir frétt af þessari framleiðslu og strax gert sér grein fyrir auglýsinga- gildinu: „Fleiri veitingahús fylgdu í kjölfarið, eins og Veitingahöllin, Lækjarbrekka o.fl. Mörg hótel hafa líka skipt við okkur, s.s. Hótel Borg- arnes og Hótel Stykkishólmur svo einhver séu nefnd." Núna kostar eldspýtnabréfið 5,95 kr. en þeir eru hins vegar vongóðir um að fá tollana fellda niður á næst- unni: „Núna borgum við sömu tolla af þessum bréfum og ef þau væru al- veg tilbúin, áprentuð og með eld- spýtunum í en auðvitað er þetta ís- lenskur iðnaður hjá okkur og því ætti þetta að vera undanþegið tolli. Við erum bjartsýnir á að tollurinn verði felldur niður innan tíðar." Agnar og Ríkharður reka fyrir- tæki sitt, Teron s.f. að Grundarstíg 15 „á nokkurs konar ættaróðali!" Þeir segjast geta prentað hvað sem er á þessi eldspýtnabréf og í næstum hvaða lit sem er. Vélin þeirra getur prentað 1.200 bréf á klukkustund og þeir skiptast á um að prenta því hún er „handknúin". Þeir viðurkenna að það geti verið þreytandi, einkum eftir að fleiri fréttu af þessu og við- skiptin hafa aukist: „Sumir panta þúsund bréf, aðrir tíu þúsund. Við getum prentað einn lit auk grunnlit- ar, en grunnlitirnir eru nú sjö. Ef fólk vill hins vegar fá f jóra prentliti ofan í grunnlitinn eða láta setja ljósmynd á eldspýtnabréf — jafnvel af húsinu sínu — þá getum við látið prenta það fyrir okkur í Englandi. Við er- um með góð sambönd þar." Þeir segja það hafa verið fremur erfitt að koma þessum viðskiptum af stað, enda taki alltaf tíma að kynna nýja vöru. Mörgum þyki dýrt að gefa eldspýtnabréf sem borgað hafi verið nærri 6 krónur fyrir, en á hitt beri að líta að þarna séu á ferð- inni eldspýtur sem fólk hendir ekki frá sér, margir safni þessum bréfum til minningar um góðar stundir. „Maður veit líka ekkert hvar svona eldspýtnabréf enda," segja þeir. „Þau geta verið á ferð um allt land og það er vitað mál að ef maður rétt- ir einhverjum merkt eldspýtnabréf, þá les hann á það. Að auki geta þessi bréf verið mjög falleg á að líta..." Þeir ætla sér ekki að leggja árar í bát, enda hafa viðskiptin aukist gíf- urlega á þessu ári. Meira að segja énda þeir viðtalið á að segja að „draumurinn sé að setja upp verk- smiðju". Hvort sá draumur rætist skal ósagt látið á þessari stundu en með- an svona bjartsýnismenn eru til er engin ástæða að óttast um framtíð íslensks iðnaðar! HELGARPÓSTURINN 25

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.