Helgarpósturinn - 02.04.1987, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 02.04.1987, Blaðsíða 6
ISKOPANAKÖNNUN HELGARPOSTSINSI ÞORSTEINN OG ALBERT MEÐ ALLS 32 ÞINGMENN BORGARAFLOKKURINN STÆRRI EN SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR í KJÖRDÆMI ÞOR- STEINS PÁLSSONAR FRAMSÓKN AÐ VERÐA AÐ ENGU — ÞESSA DAGANA STEIN- GRÍMUR OG JÓN BALDVIN NÁ EKKI KJÖRI 22 NÝLIÐAR Á ALÞINGI - 11 ÞING- MENN FALLA - 7 ÖRUGG SÆTI FOKIN SONUR ALBERTS NÆÐI ÞINGSÆTI Samkvæmt skoðanakönnun Helgarpóstsins vantar Sjálfstæðis- flokkinn og Borgaraflokkinn aðeins einn þingmann til þess að mynda hreinan meirihluta á Alþingi Islend- inga. Þingmannafjöldi Sjálfstæðis- flokksins er samkvæmt þessum nið- urstöðum alls 17 þingmenn, en- Borgarafiokkurinn fengi 15 þing- menn. Til þess að ná meirihluta í báðum deildum þingsins þarf 33 þingmenn. Stjórnarandstaða hægri flokk- anna tveggja liti þá þannig út: Al- þýðuflokkur 10 þingmenn, Alþýðu- bandalag 10 þingmenn, Framsókn- arflokkur 6 og Kvennalisti 5. Þessar niðurstöður leiða í ljós, að á Alþingi í haust myndu 22 nýir þingmenn taka sæti þar, en 12 þing- menn sem eru í framboði til endur- kjörs myndu falla út af þingi, meðal annarra flokksformennirnir Jón Baldvin Hannibalsson í Reykjavík og Steingrímur Hermannsson í Reykjanesi og aðrir þaulsetumenn á þingi. Þessir útreikningar eru byggðir á könnun á fylgi flokkanna, sem Skáís vann fyrir Helgarpóstinn sl. sunnu- dag. Niðurstöður eru nokkuð í dúr við útkomu annarra kannana, sem gerðar hafa verið „á hátindi tilfinn- ingabylgjunnar", eins og pólitíska andrúmsloftið hefur verið kailað síðustu dægrin. Könnun Heigarpóstsins náði til alls landsins og urðu niðurstöður í sem stærstum dráttum eftirfarandi, þegar spurt var um hvaða flokk fólk hygðist kjósa: Allt landiö. AlþýíKjftokkur Pwuriaéfcnarflokkur MMMwndalag % af heild % þeirra sem tóku afstöðu 15.5 10.3 24,9 16.3 8,4 21.6 34,8 10,1 6,8 16,3 10,6 5,5 14,1 Ejir er Sjálfstæðisflokkurinn st»rsti fiokkurinn með Borgara- flokkinn á haelunum, en þar á eftir koma allaballar með örlitlu meira fylgi en kratar og Framsókn með aum 10%. Kvennalistinn er styrkur í smæð sinni. I könnun blaðsins voru 800 spurð- ir og skiptum við landinu að vanda í Reykjavík, Reykjanes og svo lands- byggðina. Sundurgreindar niður- stöður eru í töflum 3—5. Athyglisverðustu niðurstöðurnar eru að sjálfsögðu gífurlegt fyigi Borgaraflokksins, sem ekki var einu sinni búinn að birta stefnuskrá sína þegar könnunin var gerð og svo fylgistap sjálfstæðismanna. Þá virð- ast kratar tapa á tilkomu Borgara- flokksins og enn frekar framsóknar- menn, sem eru samkvæmt þessu komnir niður fyrir 10% fylgi á lands- vísu og eru á svipuðu róli og Kvennalistinn. Alþýðubandalagið má vel við una miðað við hræring- arnar og er nú aftur komið upp fyrir krata. Reiknimeistari HP pældi í tölun- um og reiknaði eftir því, sem unnt er hvernig þingsæti skiptust, eins og sjá má í töflu II. Við viljum hins veg- ar gera þann fyrirvara, að þessir út- reikningar eru í sumum tilvikum anzans ári nærri ágizkunum. Hvað um það. Lítum á mannskap- inn. Nýju andlitin á Alþingi sam- kvæmt þessu yrðu eftirtalin: __ Frá Borgaraflokki: Guðmundur Ágústsson, hrl., Aðalheiður Bjarn- freðsdóttir, verkakona, Benedikt Bogason, verkfræðingur og Ásgeir Hannes Eiríksson (uppbótarmaður), öll úr Reykjavík. Ingi Björn Albertsson, fram- kvæmdastjóri (föður síns) af Vestur- landi, Andrés Magnússon, yfirlækn- ir úr Norðurlandi vestra, Guðmund- ur Lárusson, deildarstjóri, úr Norð- urlandi eystra, Ingvar Níelsson, verkfræðingur úr Austurlandskjör- dæmi, Óli Þ. Guðbjartsson, skóla- stjóri og Ólafur Granz af Suðurlandi, Júlíus Sólnes, verkfræðingur, Hreggviður Jónsson, framkvæmda- stjóri, Kolbrún Jónsdóttir, skrifstofu- maður og Ragnheiður Ólafsdóttir úr Reykjaneskjördæmi. (Albert Guð- mundsson yrði sá eini, sem áður hefur vermt sæti á Alþingi úr nýja flokknum.) Frá öðrum flokkum væru þessir nýliðar: Sigbjörn Gunnarsson verzl- unarmaður úr N-E og Jón Sæmund- Miöaö við skoöanakönnun HP, sem gerð var á sunnudag, þegar tilfinningahiti mun hafa verið töluverður með þjóðinni, á meira en einn þriðji þingmanna margt ólært í þingstörfum. ur Sigurjónsson úr N-V, báðir fyrir krata, Ásmundur Stefánsson, ASI og Kristinn Gunnarsson, bókhaldari af Vestfjörðum, Unnur Bragadóttir, Austfjörðum og Margrét Frímanns- dóttir af Suðurlandi fyrir allaballa og svo þær Þórhildur Þorleifsdóttir og Kristín Einarsdóttir úr Reykjavík og Málmfríður Sigurðardóttir, N-E fyrir Kvennalista. Fallkandídatarnir yrðu þessir: Jón Baldvin Hannibalsson for- maður Alþýðuflokksins, Steingrím- ur Hermannsson formaður Fram- Ef kosið væri til sóknarflokksins, Skúli Alexanders- son (G), Eggert Haukdal (D), Árni Johnsen (D), Egill Jónsson (D), Guð- mundur Einarsson (A), Gunnar Schram (D), Jón Kristjánsson (B), Stefán Guðmundsson (B) og Davíð Aðalsteinsson (B) og Stefán Valgeirs- son (áður B), sem býður fram sjálf- stætt nú. Þá eru nokkrir frambjóðendur, sem að öllu óbreyttu hefðu átt að teljast nokkuð öruggir á þing, en eru úti þessa dagana. Þeir eru: Guðmundur G. Þórarinsson (B), Pétur Bjarnason, sem tók sæti Stein- gríms formanns fyrir vestan, Guðni Ágústsson (B), sem tók sæti Þórarins Sigurjónssonar á Suðurlandi, Ellert Eiríksson (D), sem náði 4. sæti á lista sjálfstæðismanna í Reykjaneskjör- dæmi, Vilhjálmur Egilsson (D), sem tók við af Eyjólfi Konráði í N-V, Geir Haarde (D), sem færðist upp í 6. sæti sjálfstæðismanna í Reykjavík eftir brotthlaup Alberts og Valgerður Sverrisdóttir frá Lómatjörn, sem skipar annað sæti Framsóknar í N-E. Að lokum skal á það bent fyrir þá, sem hafa gaman af því að rýna í töl- ur, að í Suðurlandskjördæmi er Borgaraflokkurinn stærri en Sjálf- stæðisflokkurinn og fær tvo þing- menn kjörna en Þorsteinn Páísson yrði eini þingmaður sjálfstæðis- manna í kjördæminu. En allt er þetta nú breytingum undirorpið. -H.H. I Fylgi stjórnmálaflokkanna í % Ef kosið væri til Ef kosið væri til Alþingis núna, hvaða Alþingis núna, hvaða Alþingis núna, hvaða flokk myndirðu kjósa? flokk myndirðu kjósa? flokk mvndirðu kjósa? Landsbyggðin: % þeirra sem tóku afstöðu Reykjavík: % þeirra sem Reykjanes: % þeirra sem Alþýðuflokkur 15,1 tóku afstöðu tóku afstöðu Framsóknarflokkur 18,7 Alþýðuflokkur 12,8 Alþýðuflokkur 20,7 Bandalag jafnaðarm. 0,5 Framsóknarflokkur 3,7 Framsóknarflokkur 5,2 Sjálfstæðisflokkur 21,9 Bandalag jafnaðarm. 0,5 Bandalag jafnaðarm. 0,0 Alþýðubandalag 18,7 Sjálfstæðisflokkur 26,2 Sjálfstæðisflokkur 28,4 Kvennalisti 5,5 Alþýðubandalag 15,0 Alþýðubandalag 13,8 Flokkur mannsins 0,0 Kvennalisti 12,3 Kvennalisti 7,8 Framboð Stef.Valg. 0,9 Flokkur mannsins 1,6 Fl. mannsins 1,7 Þjóðarflokkur 2,7 Borgaraflokkur 27,8 Borgaraflokkur 22,4 Borgaraflokkur 16,1 Óákveðnir o.fl. 38,9 Óákveðnir o.fl. 34,2 Óákveðnir o.fl. 29,8 A B D G S V Reykjavík 12,8 3,7 26,2 15,0 27,8 12,3 Reykjanes 20,7 5,2 28,5 13,7 22,4 7,8 Vesturland 18,5 17,8 21,9 15,5 18,4 5,1 Vestfirðir 24,7 18,6 31,7 16,4 — 5,6 Norðurland vestra 10,1 24,1 21,0 18,9 18,3 4,6 Norðurland eystra 15,8 16,3 20,1 19,7 14,3 5,9 Austurland 7,4 24,3 16,5 30,1 12,9 5,9 Suðurland 14,9 16,5 24,0 13,8 25,4 5,4 Landið allt 15,5 9,7 25,2 16,1 22,1 8,7 Þessi tafla sýnir hlutfallslegt fylgi þeirra flokka, sem náðu árangri í þessari skoðana- könnun, miðað við þá sem afstöðu tóku. II Skipting þingsæta A B D G S V Reykjavík 2 0 4+1 2+1 4+1 2+1 Reykjanes 2 0 3 1 2+2 1 Vesturland 1 1 1+1 0 1 0 Vestfirðir 1 1 1+1 1 — 0 Norðurland vestra 0+1 1 1 1 1 0 Norðurland eystra 1+1 1 2 1 1 0+1 (F) Austurland 0 1 1 2 0+1 0 Suðurland 1 1 1 1 1+1 0 Landið allt 10 6 17 10 15 5 Þannig skiptast þingsætin. Þar sem plúsmerki er sett við er um að ræða jöfnunarsæti. F er tákn fyrir „flakkarann", 63. þingsætið, sem félli f hlut Málmfríðar Sigurðardóttur á Kvennalista í Norðurlandi eystra. 6 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.