Helgarpósturinn - 02.04.1987, Blaðsíða 40

Helgarpósturinn - 02.04.1987, Blaðsíða 40
 eftir Kristján Kristjánsson myndir Jim Smart Hétatorg 8. Byggingarár: 1928. Eigandi: Jónas Hvannberg, skókaupmaður og kona hans Guðrún. Arkitekt: R§tur Ingi- mundarson, fyrrum slökkviliðsstjóri í Reykjavík. Rétur var ekki lærður arkitekt en var hins vegar húsasmiður. Húsid mjakast upp, gleypir mig, gleypir hann, söng Spilverkid hér um árid og Pokka- bótin segir frá litlum kössum á lœkjarbakka. Hús hafa þannig ordid mörgum yrkisefni og sumir hafa þad reyndar ad starfi adyrkja hús, heita þá arkitektar og vilja láta list síns tíma lifa í húsinu, eins og hún lifir í málverkinu og bókinni, kvikmyndinni eda leikritinu. Hver tími á sín hús, hvert hús sinn tíma og stundum þegar þau verða óskaplega gömul og hafa far- id fram úr sínum tíma eru þau söfn til sögu sjálfs sín og fólksins sem hefur búid íþeim. Illu heilli passa þau samt ekki alltafinn ískipulag- id og verda aö hverfa og um leið er eins og lítill hluti afsögunni detti út og eyöa komi þar sem áður stóö hús. Allir þurfa þak yfir höfuðið var einhverju sinni sagt, gott ef það var ekki bara í sjónvarps- auglýsingu þegar þær voru enn svart/hvítar og frekar í upplýsingaformi, tilkynningar, heldur en auglýsingar með nútímalagi. í þessu felast þó sannindi því allir þurfa þak yfir höfuð- ið. Hitt er annað mál hvernig þak menn vilja hafa ofar höfði sínu, sumir láta sér nægja hið einfaldasta og gera til þess engar aðrar kröfur en að það haldi vatni og vindum. Aðrir vilja að það sé ekki einasta til þess að halda veðrinu úti, heldur hafi líka fagurt útlit og sé hverjum þeim sem sér augnayndi. Allt frá þvi maðurinn skreið úr helli sínum og fór að byggja sér hús til að búa í, hafa húsin verið eitt af því sem mestu máli hefur skipt í tii- veru hvers og eins, heimiiislaus maður er lítt til eftirbreytni og börn alast upp við það, a.m.k. hér á landi, að enginn sé maður með mönnum nema hann eigi að minnsta kosti íbúð og auð- vitað helst af öllu hús. Þessi krafa hefur lagt margan góðan mann í rúmið eða valdið slíku hugarangri að menn hafa ekki borið sitt barr eftir. Ófáir hafa eytt bestu árum ævi sinnar í að koma sér upp húsnæði þar sem þeir geta átt sér einkalíf, verið eins og þeim er eiginlegt í faðmi þeirra sem allt skilja og vita en láta það ekki hafa áhrif á sig þó einhverjum kunni að þykja neikvæðar gjörðir manna á opinberum vettvangi. Hús eru þannig griðastaður, ekki einasta gegn óblíðri veðráttu, heldur líka óblíðum samborgurum, í sínu eigin húsi getur hver ver- ið eins og hann vill og þarf ekki að spyrja einn Sóleyjargata 3. Byggingarár 1925. Eiganéi: Kristján G. Gíslason, heildsali. Arkitekt: Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins. Húsið lét byggja Oddur Hermannsson, ráðuneytisstjóri í atvinnumálaráðuneytinu, en þegar hann féll frá bjó þar bróðir han&pJón, sem var toll- og lögreglustjóri. Stærð: Grunnflötur 90 fm., efri hæð 72 fm. 40 f^LGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.