Helgarpósturinn - 02.04.1987, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 02.04.1987, Blaðsíða 8
Samkvæmt ákvörðun Steingríms Hermannssonar, for- sætisráðherra, hefur Framkvœmdasjóöur Islands milli- göngu um útvegun 130 milljón króna erlends láns til að auðvelda hlutafjáraukningu Arnarflugs. Þeir sem kaupa hlutabréf í félaginu gefa út skuldabréf til tíu ára, en þurfa ekki að greiða af því fyrstu tvö árin. Framkvæmdasjóður íslands lánar hins vegar Arnarflugi andvirði seldra hluta- bréfa strax, með veði í bréfunum. Þessar 130 milljónir króna bætast nú við þær 2,5 millj- ónir bandaríkjadala sem ríkissjóður gekk í ábyrgð fyrir í apríl á síðasta ári. Heildarskuldbindingar ríkisins vegna Arnarflugs eru því orðnar hátt í 230 milljónir króna. eftir Gunnar Smára Egilsson myndir Jim Smart Eignir Arnarflugs voru metnar á um 275 miUjónir króna um síðustu áramót, samkvæmt upplýsingum Hardar Einarssonar, stjórnarfor- manns félagsins. Skuidir félagsins voru hins vegar rúmur hálfur millj- arður króna. Eiginfjárstaðan var neikvæð um 235 milljónir króna, samkvæmt heimild. Ef tekst að selja hlutabréf fyrir 115 milljónir króna á þessu ári eins og stefnt er að, verður eiginfjárstaðan enn neikvæð um 120 milljónir króna. Samkvæmt þessu er enn langt í land að Arnar- flug eigi fyrir skuldum sínum. Þrátt fyrir stöðu félagsins beitir ríkið nú Framkvæmdasjóði fyrir sig til að fjármagna hlutafjáraukning- una. Samkvæmt lögum um sjóðinn . er honum ætlað að hafa miliigöngu um lántökur fyrir fjárfestingasjóð- ina. Þó innan lánsfjáráætlunar, eða annarra laga. Það eru tæp tvö ár síðan Fram- kvæmdasjóður var færður undir forsætisráðuneytið. Áður hafði sjóð- urinn verið hiuti Framkvæmda- stofnunar og heyrt með því móti beint undir Alþingi. Steingrímur Hermannsson, forsætijráðherra, mælti fyrir þessum bwytingum á sínum tíma og taldi þá «ð þær stuðl- uðu að heilbrigðari aáskiptum ríkis- i ins af atvinnuvegunum. Fram- , kyæmdasjóði var ætiað að hætta af- , skiptum af einstökum fyrirtækjum, en vera þess í stað einskonar bak- hjarl fjárfestingasjóðanna. í stjórn 8 HELGARPÓSTURiN^ sjóðsins sitja Þórdur Fridjónsson, . forstjóri Þjóðhagsstofnunar, Tóm- as Arnason, seðlabankastjóri og Sigurgeir Jónsson, ráðuneytis- stjóri fjármálaráðuneytisins. Þeir eru allir skipaðir af Steingrími Hermannssyni. Nú tveimur árum síðar situr sjóð- urinn fastur í tveimur af verstu mál- um íslensks viðskiptalífs. VAR RÍKISSJÓÐUR LÍKA BLEKKTUR? Sjóðurinn á 98,5% í Álafossi, sem rambar á barmi gjaldþrots, eins og greint var frá í síðasta Helgarpósti. Stjórn sjóðsins stendur nú í samn- ingaviðræðum við Iðnaðardeildir Sambandsins um hugsanlegan sam- runa Álafoss við SIS. Áður hafði stjórnin reynt að fá Iðnþróunarsjóð til að létta oki Álafoss af sér. Það gekk ekki og nú er nokkuð ljóst að samningaviðræðurnar við Sam- bandið munu takmarkast við ein- staka þætti í starfsemi fyrirtækj- anna. Framkvæmdasjóður kemst því ekki hjá að leggja umtálsverðar fjárhæðir í Álafoss, ef koma á því frá gjaldþroti. Hrikaleg staða Arnarflugs er flest- um kunn. Samkvæmt Herði Einars- syni, stjórnarformanni, voru nýju hluthafarnir blekktir á sínum tíma. Þær upplýsingar sem þeir fengu um rekstur félagsins snemma á síðasta ári hafa reynst rangar. Sá rúmlega 40 milljón króna hagnaður sem gert var ráð fyrir á síðasta ári, reyndist verða að 120 milljón króna tapi. Samkvæmt þessu var ríkissjóður sömuleiðis blekktur í apríl á síðasta ári til að ganga í ábyrgð fyrir 2,5 milljón dollara láni, með frægu veði í kaupleigusamningi Arnarflugs í Boeing 737. Munurinn er hins vegar sá að þær 96 milljónir króna sem nýju hluthafarnir lögðu í fyrirtækið eru nú glataðar. Ríkisábyrgðasjóð- ur gæti hins vegar rekið vélina næstu tvö árin, keypt hana þá og síðan selt til að reyna að bjarga ein- hverju af þeim fjármunum sem ríkið lagði til Árnarflugs í vor. En hver blekkti hvern? FORSÆTISRÁÐHERRA MEÐ PUTTANN Á PÚLSINUM ALLAN TÍMANN Þegar söguþráðurinn, eins og Kristinn Sigtryggsson, fram- kvæmdastjóri Arnarflugs lýsti hon- um fyrir Helgarpóstinum í gær, er hafður í huga verður málið kannski enn flóknara. Kristinn sagði að nýju hluthafarn- ir hefðu lagt áform sín um að ganga inn í félagið á hilluna, eftir að hafa kannað stöðu þess og rekstur. Þeir hefðu hins vegar lýst því yfir við stjórnmálamenn að þeir hefðu hug á að kaupa eignir félagsins þegar það kæmi tii gjaldþrotaskipta, að því tilskildu að þeim væri úthlutað flugrekstrarleyfum Arnarflugs til Evrópu. Þetta hefðu stjórnmála- ‘mennirnir ekki viljað fallast á, en boðið þess í stað ríkisábyrgð á 2,5 milljón dollurum ef hluthafarnir gengju inn í félagið. Öðruvísi fengju þeir ekki leyfin til Evrópu. Það varð því úr að nýir hluthafar tóku yfir Arnarflug með 96 milljón króna framlagi. Þegar staða fyrir- tækisins um síðustu áramót varð ljós, töidu þeir að ábyrgðin fyrir því hvernig komið var lægi ekki síður hjá ríkinu. Þeir gengu því í sömu stjórnmálamenn og þeir höfðu átt í viðræðum við um vorið og fengu þá til að samþykkja að fjármagna nýja hlutafjáraukningu. Kristinn vildi ekki tilgreina við hvaða aðila í stjórnkerfinu Arnar- flugsmenn hafi samið. En heimildir Helgarpóstsins segja að Steingrím- ur Hermannsson, forsætisráðherra, hafi róið að því öllum árum í vor að forða Arnarflugi frá gjaldþroti. Steingrímur barðist á sínum tíma fyrir kaupum Arnarflugs á eignum Icecargo, fyrirtækis Kristins Finn- bogasonar, framkvæmdastjóra Tím- ans. Flugleyfin til Evrópu fylgdu með í þeim kaupum, þrátt fyrir kröftug mótmæli margra aðila. Árn- arflug yfirtók óheyrilegar skuldir Icecargo við Útvegsbankann og Landsbankann í þessum kaupum. Með þessu greiddi Arnarflug flug- leyfin til Evrópu dýru verði. Tap fé- iagsins frá 1982, þegar kaupin á lce- cargo voru gerð, nemur samtals yfir hálfum milljarði króna. FRAMKOMIN GAGNRÝNI HUNSUÐ Þær 130 milljónir sem Fram- kvæmdasjóður hefur nú verið skuldbundinn til að Iána til Arnar- flugs eykur lánveitingar hans um 30% miðað við það sem honum var ætlað í lánsfjárlögum. Umfang Framkvæmdasjóðs var minnkað til mikilla muna í síðustu lánsfjáriögum. Samkvæmt þeim er gert ráð fyrir að úr honum verði lán- aðar tæplega 700 milljónir. í fyrra lánaði sjóðurinn hins vegar yfir 3,1 milljarð króna. Þá fór hann um 900 milljónir króna fram úr lánsfjáráætl- un. Af því voru 288 milljónir króna milliganga um erlend lán til ein- stakra fyrirtækja, þar af 120 milljón- ir króna til Áiafoss. Stór hluti af umsvifum Fram- kvæmdasjóðs snýst því um þjónustu við vandræðabörn íslensks við- skiptalífs. Öfugt við það sem var fyr- irætlað þegar sjóðurinn var færður undir forsætisráðuneytið, þá hefur sjóðnum nú verið beitt til að borga upp taprekstur einstakra fyrirtækja. Fyrir hálfum mánuði birti Gísli Maack, fyrrverandi verkefnastjóri Arnarflugs, grein í Morgunblaðinu þar sem hann varaði fólk við að kaupa hlutabréf í Arnarflugi. í grein sinni færði hann rök að þessum varnaðarorðum, en enn sem komið er hafa forráðamenn Arnarflugs ekki svarað gagnrýni Gísla svo full- nægjandi teljist. Með hliðsjón af ábyrgðum ríkissjdðs í félaginu er ekki síður hægt að krefja forráða- menn hans svara við gagnrýni Gísla. GLATAÐAR INNEIGNIR TALDAR TIL EIGNA Gísli Maack hélt því fram í grein sinni að núverandi forsvarsmenn Arnarflugs veittu blekkingum til að fá nýja aðila til liðs við sig í vonlaus- an rekstur. Hann hvatti fólk til að kanna nánar eignastöðu félagsins. Spurði meðal annars hvort útistand- andi skuld Arnarflugs vegna flugs milli Kúbu og Ítalíu væri færð til eignar hjá félaginu. Einnig hvort inneign Árnarflugs hjá Libya Arab Airlines væri færð til eignar, en Gísli taldi slíkt óeðlilegt vegna hugsan- legrar mótkröfu sem líbanska flug- félagið ætti á Arnarflug vegna samningsbrota. Þá spurði Gísli hvort von væri á bakreikningum vegna viðskipta Arnarflugs við United Aviation Services. Þegar Helgarpósturinn bar þessa þætti undir Kristin Sigtryggsson, framkvæmdastjóra Arnarflugs, sagði hann að hluti útistandandi skuldar Arnarflugs vegna Kúbu- flugsins væri færður til eignar, en hins vegar væri ekki gert ráð fyrir greiðslum af þessari skuld á greiðsluáætlunum næstu tvö árin. Varðandi hin tvö atriðin sagði Krist- inn að líklegt væri að ágreiningur um þau færi fyrir dómstóla, en Arnarflugsmenn teldu sig hafa góða stöðu í þeim báðum. Af svörum framkvæmdastjórans má ráða að ýmislegt réttmætt hafi verið í gagnrýni Gísla Maack. Það margt að eðlilegt er að krefja for- ráðamenn félagsins skýrra svara. HUGSANLEGUR HAGN- AÐUR í STAÐ NEIKVÆÐS EIGINFJÁR Stuttu eftir að grein Gísla birtist auglýstu Arnarflugsmenn hlutabréf til sölu með heilsíðu auglýsingu í DV. Þar voru kostir þess að gerast hlut-

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.