Helgarpósturinn - 15.04.1987, Qupperneq 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjóri:
Halldór Halldórsson
Ritstjórnarfulltrúar:
Helgi Már Arthursson
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Blaðamenn:
Anna Kristine Magnúsdóttir
Friðrik Þór Guðmundsson
Gunnar Smári Egilsson
Kristján Kristjánsson
Jónína Leósdóttir og
Óskar Guðmundsson.
Ljósmyndir: Jim Smart.
Otlit: Jón Óskar Hafsteinsson
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson.
Skrifstofustjóri:
Garðar Jensson.
Auglýsingastjóri:
Hinrik Gunnar Hilmarsson
Auglýsingar:
Sigurður Baldursson
Dreifing:
Garðar Jensson
(heimasími: 74471)
Guðrún Geirsdóttir
Afgreiðsla:
Bryndls Hilmarsdóttir
Ritstjórn og auglýsingar
eru að Ármúla 36, Reykjavík sími
681511. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36, sími 681511.
Útgefandi: Goðgá h/f
Setning og umbrot:
Leturval s/f.
Prentun: Blaðaprent h/f.
LEIÐARI
Dymbilvikan
fyrir kosningar
Ráskahátíðin sem nú fer í hönd er að því
leyti óvenjuleg að strax að henni lokinni fylgja
kosningar til Alþingis sem eru ef til vill meira
spennandi, harðari og örlagaríkari en oft áður
í sögu lýðveldisina Nú takast á fleiri flokkar
en nokkru sinni þar sem nærfellt þúsund
manns eru til kallaðir á meðan þeim sem
verða útvaldir fjölgar ekki nema um þrjá. Svo
virðist sem kosningabaráttan snúist að
mörgu leyti um menn frekar en málefni.
Mönnum er stillt upp við vegg en stefnur
undanskildar — og í örvæntingu gripið til
stórra orða, stóradóms. Harkan sem færst
hefur í leikinn síðustu viku fyrir kosningar á
eftir að verða óvægnari sem nær líður kjör-
degi. Og örlögin nálgast, örlög flokka, stefna
og manna.
Sú óvægna og hörkulega mynd sem kosn-
ingabaráttan hefur tekið á sig á þessum síð-
ustu dögum er íhugunarefni einmitt þegar
páskahátíðin fer í hönd. Páskahátíðin í sinni
upprunalegu mynd ertími sigurs. Hún er sig-
urhátíð kristinna manna. Upprisa Krists á
þriðja degi, páskadegi, er til vitnis um að Ijós-
ið yfirvann myrkrið, gleðin sorgina og það
góða hið illa. íslendingum, sem eru kristin
þjóð, er hollt að hafa þetta í huga nú sem
endranær. Nú þegar flokkshollusta, stefnur
og kapp fær menn svo auðveldlega til að
kveða upp dóma yfir náunganum, feer þá til
að lítillækka skoðanir annarra í hita augna-
bliksins, er hollt að hugsa til meginatriðanna
í kenningu Krists: umburðarlyndis og ná-
ungakærleiks.
Trúin er ekki orðin tóm. Kenningar kristn-
innar — og reyndar annarra þeirra útbreiddu
trúarskoðana sem við þekkjum — eru í lang-
flestum tilvikum mikil lífssannindi sem hverj-
um manni er gott að staldra við og hugsa til
með jöfnu millibili, Nú um páska gefst flestu
fólki gott næði til að huga að þeim þáttum í
eigin fari og samfélagsins alls sem betur mega
fara; huga til dæmis að þeim gildum sem
gera okkur að manneskjum, því sem við vilj-
um vera þekkt fyrir og þekkja aðra fyrir. Þess-
ar og álíka hugsanir þurfa vitaskuld ekki endi-
lega að tengjast trúarskoðunum, heldur ein-
faldlega manngæsku. Það er svolítið undar-
legt, en oft er sagt um páska, að þá eigi fólk
að vera gott hvert við annað — eins og það
eigi að vera eitthvað öðruvísi við fólk aðra
daga.
Því hefur verið haldið fram að manngæska,
umburðarlyndi og hjálpsemi við náungann
séu eðlisþættir sem hafa verið á undanhaldi
á síðustu árum, en óvægin framagirni og
harka í mannlegum samskiptum séu frekar
tekin í sátt en áður. Sveigjanleiki er ekki leng-
ur af hinu góðu og eftirgjöf beinlínis ill. Það er
trú margra að stífni sé besta leiðin til árang-
urs. Þessi hugsunarháttur leiðir vafalítið ekki
til annars en árekstra manna í millum og dreg-
ur fram alla verstu eðliseiginleika þeirra, svo
sem óhróður, öfund og grimmd. Það er eftir-
tektarvert að þessara eiginleika verður mjög
vart hjá fólki nú í dymbilvikunni — og er
ástæðan augljós, svo sem greint var frá í
fyrstu. Harkan hleypur með menn í gönur í
kosningaslagnum, það er nánast öllu fórnað,
jafnvel mannkostum, fyrir atkvæði, fyrir völd.
Páskahelgi
á Lœkjarbrekku
Verid uelkomin til okkar um helgina
Viö höfum opid:
Skírdag frá 11.30-23.30
Föstudaginn langa 15.00—22.00
Laugardag 10.00—23.30
Páskadag 15.00-22.00
Annan páskadag 11.30—23.30
Auk hins fjölbreytta matseöils hússins
bjóöum viö sérstaka hátíöarrétti og
kaffiueitingar
LEIÐRETTING
I smáfrétt í 13. tbl. HP var skýrt
frá því, að Þorvaldur Lúðvíksson,
hrl., hefði verið skipaður nýr for-
stöðumaður Sjúkrasamlags Reykja-
víkur. Þá var þess getið, að Þorvald-
ur væri móðurbróðir Davíðs Odds-
sonar. Allt var þetta rétt.
Hitt var rangt, að það hafi verið
Davíð sjálfur, sem skipaði Þorvald. í
stjórnarnefndinni var gengið til at-
kvæða um nokkra umsækjendur. Af
fjórum viðstöddum stjórnarmönn-
um, tveimur sjálfstæðismönnum,
einum krata og einum allaballa,
greiddu allir viðstaddir Þorvaldi
Lúðvíkssyni atkvæði sitt. Davíð
Oddsson kom hvergi nærri enda
hefur hann ekki völd til þess að
stýra gjörðum yfirstjórnar Sjúkra-
samlagsins. — Ritstj.
LAUSN Á SKÁKÞRAU?
49 Tuxen
Lausnin er einföld og rökrétt:
1. Bf6 (hótar De5 mát)
1. - Bd6 2. Dg8
1. - d6 2. Dc8
50 Sveinn Halldórsson
1. Ha2 ab3 2. Kxb3 og 3. Dal
1. — Ke2 2. Ka3+ Kxf3 3. Da8
ÍÞRÓTTIR
Bylgjan að pakka niður
Þau meinlegu mistök áttu sér stað
við vinnslu síðasta blaðs að íþrótta-
þátturinn varð af yfirnáttúrulegum
orsökum hreinlega útundan og skil-
ur enginn neitt. Sem betur fer birtist
spá undirritaðs hjá keppinautunum
á Alþýðublaðinu og þar af leiðandi
frammi fyrir alþjóð, formleg og
skjalfest! Framundan er 30. umferð
fjölmiðlakeppninnar, aðeins 4 um-
ferðir eftir. Staðan er sú að Bylgjan
er langefst með 174 rétta, DV 166,
Tíminn 164, Morgunblaðið 162,
Dagur 161, HP 159, RÚV 158 og
Þjóðviljinn 155. Þannig að fyrir utan
yfirburði Bylgjunnar hefur keppnin
verið og er enn spennandi. í mini-
Aston Villa—Everton
Leicester—West Ham
Liverpool—N.Forest
Luton—Coventry
M.City—Watford
N ewcastle—M .U td.
Norwich—Sheff.Wed.
Q.P.R.—Chelsea
Wiml’don—Arsenal
Leeds—Ipswich
Reading—Portsm.
Sheff.Utd.—Oldham
keppninni er staðan eftir 28 umferð-
ir 155:152 fyrir AB og 5 umferðir eft-
ir.
Spámaður HP gerir fyrir næstu
helgi ráð fyrir aðeins 5 heimasigrum
í einfaldri fjölmiðlaspá, 3 jafnteflum
og 4 útisigrum. Seðillinn er tvíræð-
ur og óvænt úrslit víða í sjónmáli,
eins og reynslan hefur verið síðustu
tvær leikhelgar.
HP óskar Bylgjumönnum fyrstur
keppenda til hamingju með sigur-
inn og góða ferð á verðlaunaleikinn
á Wembley, að sjá lið undirritaðs,
Tottenham, gjörsigra Coventry.
-fþg
2 2
1 1
1 1
1 1
2 x2
x lx
1 1
X lx
1 lx
2 1x2
2 2
x 1x2
6-8-5 (1-6-4) 8-4-6 (6-2-1) 10-20-70
8-6-4 (4-1-6) 4-6-8 (2-1-7) 55-20-25
12- 3-3 (6-1-3) 5-3-9 (2-4-3) 60-30-10
13- 4-1 (4-5-2) 2-6-9 (4-1-4) 55-25-20
6-5-6 (0-4-5) 4-4-10 (3-2-4) 15-40-45
8-4-6 (4-4-2) 1-8-7 (4-3-2) 40-40-20
8- 9-1 (4-5-1) 2-4-10 (2-1-5) 65-25-10
9- 54 (5-3-3) 5-6-6 (6-2-2) 3540-25
94-4(4-5-1) 6-5-7(l-3-5) 4040-20
124-2 (4-3-1) 5-6-7 (5-24) 35-30-35
9-3-5(5-14) 5-6-6 (6-2-2) 20-15-65
9-7-2 (5-3-3) 8-3-6 (6-2-2) 30-35-35
Skýringar: Fyrst koma leikir helgarinnar. Þá kemur árangur heimaliðs
heima en innan sviga árangur heima og að heiman í síðustu leikjum. Þá
kemur árangur útiliðs úti en innan sviga árangur heima og að heiman í síð-
ustu leikjum. Þá eru framreiddar prósentulíkur á úrslitum að mati spá-
manns. Þá kemur einföld fjölmiðlaspá en að síðustu breytileg kerfisspá.
10 HELGARPÓSTURINN