Helgarpósturinn - 15.04.1987, Qupperneq 15
SVART-HVITIR
lávaröar
HP á morgunverðarfundi með Lucas lávarði af
Chilworth og rjómanum úr íslenska viðskipta-
lífinu
Lucas lávarður leyfir gestum „morgunverðarfundarins" að heyra speki um viðskipti landanna á hljómþýðri
millistéttar/bankastjóralegri Lundúnamállýsku. Næstur honum fundarstjórinn Jóhann Ólafsson formaður
Verslunarráðsins.
islenskir „aðalsmenn". Frá vinstri: Jónas Haralz, bankastjóri Landsbankans, Jón H. Bergs, forstjóri Slátur-
félags Suðurlands, Ingimundur Sigfússon, forstjóri Heklu og Sigurður Helgason, stjórnarformaður Flug-
leiða. Ahrifamikill „saumaklúbbur" þetta.
Ekki amalegur hópur þetta. Frá vinstri Axel Gislason, aðstoðarforstjóri SlS, Haukur Hjaltason, forstjóri
Dreifingar hf., örn Johnson, forstjóri Skorra hf., Gfsli V. Einarsson hjá Mata hf., og Sveinn Björnsson frá
viðskiptaráðuneytinu.
Ragnar Halldórsson, „greifinn af Álveri" og Hörður Sigurgestsson, „hertoginn af Eimskip". Óumdeildir
herrar I ríkidæmum slnum . . .
Þetta var morgunverðarfundur og morgunverður auðvitað óhjákvæmilegur. Lengst til hægri er Kjartan örn
Kjartansson frá Asiaco, en aftastir standa Páll Sigurjónsson hjá Istaki hf., og Jónas Haralz frá Landsbank-
anum.
HELGARPÓSTURINN 15