Helgarpósturinn - 15.04.1987, Síða 27

Helgarpósturinn - 15.04.1987, Síða 27
LISTAP Sumir bresta í grát ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur eins og kunnugt er boðið hingað í tilefni 85 ára afmælis Halldórs Lax- ness, Dramaten frá Svíþjód með söngleikgerð Atómstöövarinnar, En liten ö í havet. Við það færist Yerma eftir Garcia Lorca aftur hjá stofnun- inni og er nú stefnt að frumsýningu þann 15. maí. Þessi sýning hefur stöðugt verið að þróast og breytast á æfingartímanum og nú hefur þátt- takendum fjölgað uppí 40. Búið er að ráða söngvara og dansara til að taka þátt í sýningunni og má þar nefna Signýju Sœm. sem kemur frá Vínarborg, en eftir því sem fregnir herma hefur Signý vakið mikla at- hygli fyrir söng sinn þar ytra. Jó- hanna Linnet mun einnig syngja í sýningunni en hún tekur nú þátt í uppfærslu Islenska dansflokksins, Eg dansa vid þig sem þykir vera af- burða vel heppnuð. Þess má og geta að miklar líkur eru á að leikstjóri Yermu, Þórhildur Þorleifsdóttir, verði orðin þingkona þegar að frumsýningunni kemur og er það víst í fyrsta sinn sem þingmaður leikstýrir hjá Þjóðleikhúsinu, en ein- hverjir slíkir hafa áður skrifað verk fyrir það. LISTAHÁTÍÐ hefur ákveðið að efna til samkeppni um varanlegt listaverk í tengslum við komandi Listahátíd 1988. Verkið á að vera skúlptúr sem ætlunin er að nota sem vörumerki hátíðarinnar, auk þess sem það verður fjölfaldað og notað til að veita verdlaun og viöur- kenningar í sínu smærra formi en einnig er gert ráð fyrir að verkið bjóði uppá möguleika til stækkunar. Forráðamenn hátíðarinnar telja að Listahátíðin sé meira augnayndi og þess vegna verði varanlegt listaverk til að varðveita minningu þessarar tíundu hátíðar. Verðlaunaupphæðin nemur 250.000 krónum og það er fyrirtækið Nathan og Olsen sem gefur verðlaunaféð í tilefni 75 ára afmælis fyrirtækisins. Verðlaunin verða afhent í tengslum við opnun Kvikmyndahátíöarinnar og þá verð- ur um leið opnuð sýning á verkum þátttakendanna í samkeppninni. í dómnefndinni verða þau Jón Þórar- insson, framkvæmdastjóri Listahá- tíðar, Bera Nordal listfræðingur og Jón Gunnar Árnason myndhöggv- ari. Egg-leikhúsið á leið á gríðarlega mikla lista- hátíð í Brighton Egg-leikhúsiö hefur þrátt fyrir ungan aldur skapaö sér sérstööu í íslenskum leikhúsheimi, og reyndar um víöa veröld. Þetta eins-manns leikhús Viöars Eggertssonar er eitt af þeim óvenjulegri í heiminum og um leiö eitt af þeim athyglisverö- ustu. Egg-leikhúsinu hefur verið boðið á mikla listahátíð sem haldin verður í Brighton, Englandi, þann 1.—24. maí næstkomandi. Þessi hátíð er haldin í 21. skipti nú í ár og að þessu sinni er áherslan á norræna list sem er einskonar þema hátíðarinnar. Af hálfu fslendinga er Egg-leikhúsið og driffjöður þess, Viðar Eggertsson, gestur hátíðarinnar, sem er sú stærsta sem haldin er í Englandi. Viðar sagði að ástæða þess að hann væri boðinn á þessa hátíð væri sú að framkvæmdastjórinn hefði séð verk hans, fyrst einleikinn í Edinborg 1983 og síðan Skjaldbakan kemst þangað líka á leiklistarhátíð í Kaup- mannahöfn í fyrra. Hann hreifst mjög af leikritinu, hafði reyndar áð- ur hrifist af einleiknum og viljað fá Viðar til að koma en hann alltaf neitað, þartil nú að honum barst boð um að koma ekki einvörðungu með einleikinn, heldur líka verk Árna Ibsen, Skjaldbakan kemst þangað líka. Þetta er feikna mikii listahátíð, vettvangur fyrir alla list, ekki ein- vörðungu leiklist. Af gestum má nefna flautuleikarann heimsfræga James Galway, fiðluleikarann Anne- Sophie Mutter, sænsku Drottning- holmóperuna sem flytur m.a. Don Giovanni, sýningu á verkum hins þekkta norska listmálara Frans Widerberg, finnska dansarann Jorma Uotinen o.fl. o.fl. Viðar sagði að það væri sér og Egg-leikhúsinu vissulega mikill heiður að vera boðið á hátíðina og vonandi íslandi líka. Það væri skemmtilegt að vera þarna með þessu liði öllu og þetta gæfi tækifæri á að leika verkin, því þau hefðu ekki gefist hér á landi. Viðar verður einn á sviðinu í báð- um verkunum, eins og venjulega í einleiknum, en að þessu sinni verð- ur útvarpstæki í hlutverki Ezra Pound, í Skjaldbökunni, en það er einmitt Árni sem talar fyrir munn Ezra í verkinu, auk þess að vera leik- stjóri. Reykvíkingar ættu að muna þetta verk vel því það gekk hér fyrir fullu húsi um árið en varð að hætta vegna húsnæðisleysis. Hitt verkið, hinn svonefndi einleikur nefnist á enskunni, því máli sem Viðar leikur á á hátíðinni, „Nor I... But...“, og er einskonar tilbrigði við Beckett. Það hefur þegar hér er komið sögu verið leikið 222. fyrir 221 áhorfanda, einu sinni kom enginn. Einleikurinn er eins og áður sagði tilbrigði við Beckett og í honum spinnur Viðar textann af fingrum fram í hvert skipti og leitast með þeim hætti við að ná fram þeim sérstöku áhrifum sem hver áhorfandi hefur á leikar- ann og verkið. Að sögn Viðars hafa viðbrögð áhorfenda verið ákaflega misjöfn, sumir hafa brostið í grát og þurft að hugga þá eftir sýninguna og enn aðrir hafa séð úr leikritinu hin ýmsu fyrirbrigði. Viðar sýndi fyrst einleikinn á Nýlistasafninu við Vatnsstíg og ætlaði sér aldrei að sýna hann aftur en raunin hefur orðið önnur því honum hefur verið boðið á hverja stórhátíðina á fætur annarri, þrátt fyrir að hann hafi í fæstum tilfellum þegist boðið þar sem hann segist ekki vilja gera það að ævistarfi að leika fyrir einn mann í helli. Eins og áður sagði leikur Við- ar á ensku á hátíðinni og það er Martin Regal sem þýðir verk Árna Ibsen, en texti einleiksins er eðli- lega ekki þýddur. Að lokum er rétt að grípa niður í umsögn í dagskrá hátíðarinnar um Viðar Eggertsson og leikhús hans, Egg-leikhúsið. „Hann er án efa ein af hinum stóru stjörnum í norrænni leiklist, en vinnur samt sem áður í evrópskum nútímastraumum í leikritagerð." -KK. TONLIST Hljómsveitarstjóravandi eftir Atla Heimi Sveinsson Sinfóníuhljómsveit íslands er góð hljómsveit, miklu betri en flestir halda. Hún hefur líka mikla vaxtarmöguleika, getur orðið hljómsveit á heimsmælikvarða, ef rétt er á málum hennar haldið. Hljómsveitin er nokkuð misjöfn, eftir því hver stjórnar henni. Mér finnst að hljómsveitin standi nú á tímamótum: hún er góð — og það nægir ekki í listinni — hún þarf að verða frábær. Það er enginn hörg- ull á starfskröftum í framtíðinni. Tónlistarskólinn hefur útskrifað fjölda efnilegra tónlistarmanna á undanförnum árum, sem nú stunda framhaldsnám erlendis í bestu skólum heims. Saga Sinfóníunnar er rysjótt. Hún varð allt í einu til, að frum- kvæði nokkurra hugsjónamanna eins og Ragnars í Smára, en án nokkurs rekstrargrundvallar. Rík- isútvarpið tók hana upp á sína arma, og þannig tórði hún árum saman. En loks, fyrir nokkrum ár- um, voru sett lög um starfsemi hennar, sem eru góð, svo langt sem þau ná. Þrátt fyrir erfiðar ytri aðstæður, blómstraði hin listræna hlið, ekki vegna aðstæðnanna heldur þrátt fyrir þær. Það var einkum tveimur mönnum að þakka: Norðmannin- um Olav Kielland, sem dreif upp Sinfóníuna á fyrstu árum hennar, og snillingnum Bohdan Wodiczko frá Póllandi, sem með ósveigjan- legri listrænni stefnufestu gerði Sinfóníuna að þeirri skrautfjöður sem hún er í menningarlífi okkar. Þeir helguðu hljómsveitinni nær allan sinn tíma og hrifu heima- menn með sér. Björn Ólafsson konsertmeistari var stoð og stytta starfseminnar framan af, og sama er að segja nú um eftirmann hans Guðnýju Guðmundsdóttur, sem er stórfiðlari í fremstu röð. Síðan Wodiczko hætti hefur enginn hljómsveitarstjóri lagt al- varlega rækt við hljómsveitina. Karsten Andersen og Jean Pierre Jaquillat voru aðalstjórnendur í hálfu starfi. Það er margt gott um þá báða að segja, en ferill þeirra hér var aukabúgrein. Samt batn- aði hljómsveitin, og það var mest að þakka ungum, bráðflinkum hljóðfæraleikurum sem komu til starfa. Haft er að orðtaki, að engin hljómsveit sé betri en fram- kvæmdastjórn hennar en það hef- ur Sinfónían okkar löngu afsann- að. Ráðherrar hafa oftast skipað flokksgæðinga sína í stjórn hljóm- sveitarinnar en ekki fagmenn. En það er hefð í íslensku menningar- lífi; pólitískt varðhundakerfi. í fyrra var reynt að ráða aðalhljóm- sveitarstjóra, að undangenginni furðulegri skoðanakönnun. Hver fagmaður sá að Trikolidis hafði ekki þá hæfileika til að bera sem með þurfti. Það voru klíkusjónar- mið og kunningsskapur sem réðu, en ekki listrænir þankar. Stjórn hljómsveitarinnar var ekki ákvörðunarhæf og spilararnir neituðu að vinna undir stjórn þessara manna. Nú er mikið rætt um að ráða að- alhljómsveitarstjóra og eru eink- um þrír menn nefndir: Frank Ship- way, Petri Sakaari og Paul Zukof- sky. Þeir hafa allir getið sér gott orð hér. Menn verða að gera sér grein fyrir því hvert hlutverk aðalhljóm- sveitarstjóra er og hvað hann verður að hafa til brunns að bera. Ég held að við þurfum á ungum manni að halda, með metnað sem fer saman við hagsmuni okkar, þannig að staðan í Reykjavík geti orðið honum stökkpallur til frek- ari frama. Hann verður að eyða meginhluta tíma síns hér og hafa mikil völd. I tónlistarlífi okkar er mikið smákóngaveldi, eins og á öðrum sviðum mannlífsins. Og það hefur nær undantekningar- laust skaðað heildina og viðhaldið útnesjamennsku. Aðalhljómsveitarstjóri á að leggja fram ítarlega starfsáætlun til nokkurra ára og að henni sam- þykktri verður stjórn hljómsveit- arinnar og spilararnir að styðja hann með ráðum og dáð. Mér finnst Paul Zukofsky koma helst til greina af þeim þremur sem nefnd- ir hafa verið. Við þekkjum hann og hann þekkir okkur. Hann hefur unnið frábært starf með Sinfóníu- hljómsveit æskunnar. Um listræna hæfni hans og metnað efast eng- inn. Sinfónían hefur leikið frábær- lega undir hans stjórn eins og ný- útkomin hljómsveitarplata sann- ar. Hann hefur nýlega tekið við ábyrgðarmikilli stöðu hljómsveit- arstjóra við virtasta tónlistarskóla Bandaríkjanna. En — (já þetta mikla en) kannski þykir hann „erfiður", ekki nógu „skemmtileg- ur“ eða þá ekki nógu snobbaður. Kannski er hann einfaldlega of góður fyrir okkur. HELGARPÓSTURINN 27

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.