Helgarpósturinn - 15.04.1987, Side 36
Ung fyrirsaeta, Guðrún Ragna Ingvadóttir sem er aðeins 5 ára gömul núna. Hún tók prófið sitt fyrir ári... „Þessi námskeið hafa ekkert með fegurð að gera," ségir Kolbrún Aðalsteinsdóttir kennari.
FJÖGURRA ÁRA FYRIRSÆTUR
• uppbygging sjálfsímyndar • mörg módelanna tannlauso fegurðin kemur innan frá
Úti í hinum stóra heimi er þad
daglegur uidburdur að börn sýni
fatnaö á tískusýningum. Hér á
landi er það öllu sjaldgœfara og
óneitanlega vekur það eftirtekt
þegar lítil börn koma fram eins og
þrautþjálfað sýningarfólk. Nýlega
var auglýst námskeið hjá Módel-
mynd þar sem kynnt var að skól-
inn hefði á sínum vegum módel
frá 4 ára aldri. Stjórnandi Módel-
myndar er Kolbrún Aðalsteins-
dóttir danskennari sem rekur einn-
ig dansskólann Dansnýjung og
leituðum við til hennar með þœr
spurningar sem vakna við lestur
slíkrar kynningar.
Sjálf starfaði Kolbrún sem sýn-
ingarstúlka áður og hefur unnið
við danskennslu sl. fimmtán ár. Þá
hóf hún að kenna börnum dans
en það var fyrir fjórum árum sem
hún kynntist fyrst tískusýningum
barna: „Þá var ég stödd á nám-
skeiði í Bretlandi, þangað sem ég
fer tvisvar á ári,“ segir Kolbrún.
„Ég sá þar prógramm fyrir tísku-
sýningar barna, kynnti mér það
og leist svo vel á að ég ákvað að
prófa þetta hérna heima. í fyrstu
kenndi ég þetta eingöngu innan
skólans hjá mér, en þetta varð svo
vinsælt að til mín hringdu mæður
sem spurðu hvort þessi námskeið
væru eingöngu ætluð nemendum
innan Dansnýjungar. Þá auglýsti
ég út á við, mest af tillitssemi, en
námskeiðin fylltust strax. Ég er
ekki með stóra hópa því númer
eitt, tvö og þrjú rek ég dansskóla.
Fjöldi nemenda á módelnám-
skeiðunum er mismunandi eftir ald-
ursflokkum, um það bil 8 börn í
hópi 4—6 ára og 10—14 börn hjá
þeim 13—14 ára. Hvert námskeið
varir í sex vikur, klukkutími í senn
í viku hverri, en mismunandi ald-
urshópar taka prófið saman vegna
þess að krakkarnir verða að geta
staðið sig með sjálfstæða tískusýn-
ingu. Þá þurfa minnst þrír hópar
að vinna saman svo þau geti skipt
um fatnað milli atriða."
Aðspurð hvort meira væri um
að steipur sæktu slík námskeið
svarar Kolbrún: ,,Já, það er alltaf
meira af stelpum á þessum nám-
skeiðum, en það er mjög ánægju-
legt að sjá hvað strákar eru í mik-
illi framför á þessu sviði og þá í
öllum aldurshópum." — En hvern-
ig gengur að láta svona lítil börn
hlýða? Er nokkuð hægt að ætlast
til að 4 ára börn gangi í takt og
þar fram eftir götunum?
„Já, já, það gengur mjög vel að
láta þau hlýða!“ segir Kolbrún.
„Ég tel að börnin þurfi fyrst og
fremst að bera virðingu fyrir
kennara sínum og þá er eftirleik-
urinn auðveldur. Alla mína tíð hef
ég reynt að koma fram við börn
og unglinga eins og ég sé ein af
þeim en ekki yfir þau hafin."
— En hvernig eru námskeiðin
byggð upp?
„Fyrst byrja börnin á að ganga í
takt við tónlist. „Fatamódel" verða
að hafa takt. Síðan læra þau upp-
setningar á sporum og læra þrjár
mismunandi innkomur, sportfatn-
að, sparifatnað og skólafatnað. Við
spjöllum líka heilmikið saman til
dæmis um uppbyggingu sjálfsí-
myndarinnar, feimni, óöryggi og
fleira í þeim dúr. Að námskeiði
loknu förum við á „prófstað" þar
sem þau æfa sig á sviði. Að lokum
taka þau svo prófið sjálft á þeim
stað og þá fyrir fullu húsi af fólki.
Það eru þær stundir sem ég er
einna ánægðust með; þegar
börn frá 4ra ára aldri geta komið
fram alein og sýnt þá.“
— Er mikið beðið um börn á
tískusýningar?
„Það verður auðvitað að líta á
að markaðurinn er ekki stór, en
það er von mín og trú að leitað
verði meira eftir nýju fólki og nýj-
um andlitum í framtíðinni. Hins
vegar hef ég alveg ákveðnar skoð-
anir á því hvar henti þörnum að
koma fram og sýna. Ég er alveg á
móti því að lítil börn séu að sýna
á vínveitingahúsum því börn og
vín fer ekki saman. Því miður
virðist sem íslendingar geti ekki
skemmt sér nema hafa vín um
hönd og það þykir mér miður og
myndi þess vegna ekki stuðla að
því að börn frá mér sýndu á tísku-
sýningum að kvöldi til.“
— En eru lítil börn sátt við að
hreyfa sig á ákveðinn hátt?
„Já, þau eru mjög sátt við það,
þetta er þeim eðlilegt. Það er auð-
velt að kenna þeim að fara fjögur
spor til hægri, fjögur fram og
brosa til vinstri! Þau gera þetta
alveg eins og á að gera og gengur
vel.“
— Er með þessu móti verið að
byggja upp þá ímynd hjá börnum
að „fegurð sé fyrir öllu"?
„Nei — síður en svo. Þessi nám-
skeið standa ekki í neinu sam-
bandi við fegurð. Hér er verið að
þjálfa börnin upp í að koma fram,
vinna bug á feimni og byggja upp
sjálfsímynd sína. Ég er alveg hörð
á því að allir hafa gott af að læra
að koma fram, læra að starfa í
hópi og bera virðingu fyrir sjálfum
sér og öðrum. Hvernig getur fólki
dottið í hug að þetta hafi eitthvað
með fegurð að gera? Mörg „mód-
elanna" eru meira að segja tann-
laus!“
— Fipast þau aldrei, detta eða
eitthvað þess háttar?
„Það gerist ekki oft á æfingum
— en þegar þau eru farin að sýna í
alvöru hefur það komið fyrir! Þá
flækjast litlir fætur og þau detta
en þá eru þau orðin svo þjálfuð að
þau láta það ekkert á sig fá.
Standa bara upp, dusta af fötunum
og halda áfram eins og ekkert hafi
í skorist!"
— í framhaldi af því að börn eru
í ríkari mæli farin að sýna fatnað,
hefur þú þá trú á því að hér verði .
tekin upp fegurðarsamkeppni
barna eins og tíðkast í Bandaríkj-
unum?
„Nei, það ætla ég rétt að vona
að verði aldrei. Það er ekkert eins
mannskemmandi fyrir börn og að
ala upp í þeim að fegurðin eigi að
vera í fyrirrúmi. Það er alveg af
og frá að ég sé að ala þessi við-
horf upp í þeim börnum sem eru
á námskeiðum hjá mér. Það er
einmitt þvert á móti: Við förum
inn á það í námskeiðunum að feg-
urðin kemur innan frá — hvernig
við erum sjálf. Það er sú fegurð
sem á að rækta."
leftir Önnu Kristine Magnúsdóttur mynd Jim Smartl
INNRÖM lliill IKI alhliða innrömmun, smellurammar, 1IVIUIM TILB. ÁLRAMMAR Kl
OPIE NÆb f LAUGARDAGA TIL KL. 16.00 BÍLASTÆÐI
36 HELGARPÓSTURINN