Helgarpósturinn - 15.04.1987, Síða 41

Helgarpósturinn - 15.04.1987, Síða 41
„Hversu svört sem skýin kunna að vera er öruggt að sólin mun skína á ný". Jóna Dóra Karls- dóttir og Olga G. Snorradóttir, upphafsmenn um félagsskap syrgjenda. og hugsa: Nei ég nenni bara ekki að detta nið- ur! Það er hægt að Iæra á þetta..." Vikulegir fundir syrgjenda. Er það upp- byggilegt — er nokkuð rætt um annað en sorg? Þær brosa: „Jú, jú, við tölum um heilmikið annað. Auðvitað koma upp tilfinningar og við tárumst — sem er bara gott vegna þess að grát- urinn losar mann við svo margt. Þessir fundir hafa verið okkur öllum ómetanlegir og hafa styrkt okkur mikið. Það er ólýsanlegur stuðn- ingur í því að tala um þessi mál við þá sem hafa upplifað þau sjálfir og vita hvað þau eru. Það er alveg sama hversu góða vini eða fjölskyldu maður á: Ef fólk hefur ekki upplifað sorgina getur það ekki sett sig inn í hana. Það getur verið allt af vilja gert og vill manni vel en ein- hvern veginn er það ekki eins...“ Nœsta skrefið segja þær vera ráðstefnu um sorgina. Ráðgert er að hún verði haldin í byrj- un maí og ætla þær að tilkynna símanúmer þar sem væntanlegir þátttakendur geta látið skrá sig: „Það er ómögulegt að segja hversu margir mæta á svona ráðstefnu," segja þær. „Það voru haldnar tvær svona ráðstefnur í vet- ur fyrir heilbrigðisstéttirnar en það hefur aldrei verið gert neitt svona fyrir aðstandend- ur. Við vonumst líka til að geta stækkað þenn- an hóp okkar og haft jafnvel símatíma viku- lega í framtíðinni, þangað sem fólk getur leit- að til okkar. Við höfum fengið vilyrði fyrir hús- næði og vonum að af því verði, því það hefur sýnt sig að syrgjendum veitir ekki af þeim stuðningi sem þeir geta fengið. Þetta yrði auð- vitað sjálfboðavinna hjá okkur en við erum ekki enn farin að hugsa fyrir fjármögnun á húsnæðinu. í Bretlandi til dæmis greiðir ríkið húsnæði fyrir svona félagsskap og það væri ekki óeðlilegt að það sama yrði gert hér. Það eru í rauninni svo mörg atriði sem þarf að ieysa úr, til dæmis er dauðsfall í heimahúsi eitt þeirra. Það er ekki uppbyggjandi fyrir að- standendur að fá rannsóknarlögreglu heim til sín skömmu eftir að maki eða börn hafa látið lífið. Þetta er eitthvað það ómanneskjulegasta sem gert er og þessu þarf að breyta. Það þarf ekki aðeins styrk í sorginni, maður þarf að læra að lifa lífinu upp á nýtt, og læra að sætta sig við að lifa með sorginni. Þetta prógramm miðast allt við það að vera öðrum stoð.“ Og einmitt á svipaðan hátt lýkur bókinni „Good Grief": „Það er rangt að ætlast til að fólk geti óstutt tekist á við sorgina. í gegnum aldirnar hefur fólk fundið nýjan og óvæntan styrk í orðunum ,,Ég er alltaf með þér“. Þess vegna segjum við: „Syrgið — ekki eins og þeir sem eiga enga von“ en ef þú syrgir einhvern, syrgðu þá eins og þú þarft. Þegar við förum aftur að horfast í augu við raunveruleikann sjáum við að við þurfum ekk- ert að óttast. Við getum lifað lífinu aftur. Við getum meira að segja elskað það á ný. Um tíma fannst okkur lífið ekki þess virði að lifa því. Nú hafa skýin færst úr stað og sólargeislarnir gægjast fram — stutta stund í fyrstu. Og vonin verður að nýju hluti af okkur.“ Jóna Dóra hefur lokaorðið: „Við viljum segja við þá sem eru í mikilli sorg í dag: Þetta er ekki ómögulegt og það birtir upp á ný. Hversu svört sem skýin virðast vera núna er öruggt að sólin skín á ný.“ HELGARPÓSTURINN 41

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.