Helgarpósturinn - 07.01.1988, Síða 8

Helgarpósturinn - 07.01.1988, Síða 8
FJOLMIÐLABYLTINGIN ÉTUR BÖRNIN SÍN Samdráttur hjá öllum Ijósvakamidlunum. Uppsagnir, styttri dagskrá, ódýrari dagskrárgerð og sparnaður. Fjölmiðlaveislan búin. Komið að skuldadögunum. Starfsmenn Ríkisútvarpsins vinna nú að sparnaðar- áætlunum. Útsendingartími sjónvarpsins verður styttur. Aðhald verður aukið á rás tvö og gömlu gufunni. Á sama tíma verður kostnaður skorinn niður hjá Stjörnunni og starfsmönnum sagt upp. Stöd tvö hefur sagt upp mörgum tæknimönnum og mun auk þess leita frekari sparnaðar- leiða. Rekstrarhagnaður Bylgjunnar á árinu 1986 endur- tók sig ekki á síðasta ári og mun ekki gera það í náinni framtíð. Það virðist því sem fjölmiðlabyltingin sé byrjuð að éta börnin sín. Af upptalningunni hér að ofan má sjá að hún heggur ekki að einum umfram annan. Markaðurinn virðist einfaldiega ekki standa undir öllum þessum útvarps- og sjónvarpsstöðvum. EFTIR GUNNAR SMÁRA EGILSSON Á síðasta ári fóru allar deildir Rík- isútvarpsins umtalsvert fram úr fjár- hagsáætlunum. Á þessu fyrsta heila ári sem stofnunin þurfti að taka tillit til samkeppni minnkuðu auglýs- ingatekjur hennar um ein þrjátíu prósent. Afnotagjöldin hækkuðu síðastliðið sumar, rúmu ári frá því þau hækkuðu síðast. En þó tekjurn- ar hafi dregist saman óx starfsemin. Það varð því mikið tap á starfsem- inni þetta fyrsta samkeppnisár í sögu Ríkisútvarpsins. Á þessu ári verður þessum tap- rekstri mætt með sparnaði og sam- drætti. í ljósi reynslu síðasta árs verður útsendingartími sjónvarps- ins styttur, dagskrá rásar tvö ein- földuð og sparnaði beitt í rekstri rás- ar eitt. Stefnt er að því að reka allar deildir án halla. Áuk þess bíður stofnunarinnar gjalddagi tapsins frá árinu 1987. Áhrif fjölmiðlabyltingarinnar á Ríkisútvarpið eru því samdráttur. GLÆSTU ÁRIN AÐ BAKIÁ BYLGJUNNI Bylgjan, elsta „frjálsa" útvarps- stöðin, stendur sig einna best nýju Ijósvakamiðlanna. Á árinu 1986 skilaði rekstur hennar umtalsverð- um hagnaði. íslenska útvarpsfélag- ið nýtur enn þessarar góðu afkomu á því ári. Það er þó fyrirsjánlegt að afkoma síðasta árs verður fjarri því jafn góð. Samkvæmt upplýsingum Olafs Njáls Sigurðssonar, fjármálastjóra Islenska útvarpsfélagsins, stendur fyrirtækið vel. Það væri þó Ijóst að ekki yrði um neina útvíkkun á starf- seminni að ræða og aðhaldi yrði beitt til að minnka kostnað. Lítið sem ekkert fengist af auglýsingum á tímanum frá sjö á kvöldin og fram á næsta morgun og kostnaðarsöm dagskrárgerð á þeim tíma ómögu- leg. „Einu tekjur okkar eru auglýs- ingatekjur og við verðum að sjálf- sögðu að taka mið af því í rekstrin- um,“ sagði Ólafur Njáll. Aðspurður sagði Ólafur að þetta þýddi þó ekki endilega að allir dagskrárliðir þyrftu að standa undir sér sjálfir með auglýsingatekjum. Stöðvarnar hefðu enn eitthvert svigrúm til að útvarpa efni án þess að auglýsingar í þvi stæðu undir framleiðslukostn- aði. STJARNAN DREGUR SAMAN SEGLIN Á Stjörnunni, sem hóf útsending- ar í sumar, stendur fyrir dyrum sam- dráttur. Starfsfólki hefur verið sagt upp og dagskrá öll verður einfölduð. Ástæða þess að Stjarnan stendur hallari fæti en Bylgjan og Ljósvak- inn er sú, að Stjarnan nýtur ekki þess forskots sem Bylgjan fékk. Stofnkostnaður leggst því af fullum þunga á reksturinn á þessum hörðu samkeppnistímum. „Meðan við erum bundnir af nið- urgreiddum auglýsingum Ríkisút- varpsins er ekki við því að búast að reksturinn gangi átakalaust," sagði Ólafur Hauksson, útvarpsstjóri Stjörnunnar. „Hins vegar má við því búast að hagur útvarpsstövanna vænkist þegar söluskattur leggst á dagblaðaauglýsingar. Það mun bæta samkeppnisaðstöðu þeirra." Varðandi framtíðina í útvarps- rekstrinum sagði Ólafur Njáll, fjár- málastjóri íslenska útvarpsfélags- ins, að bjartari tímar væru ekki í sjónmáli. „Nema ef útvarpsstöðvunum fækkar. Þær eru nú þegar of marg- ar.“ Markús Örn Antonsson útvarps- stjóri sagði í samtali við Helgarpóst- inn að ekki stæði til að draga saman seglin á rás tvö og rás eitt. Sparnaði yrði þó beitt. Dagsskrá einfölduð um kvöld og á næturnar á rás tvö og reynt yrði að nota beinar útsending- ar meira en verið hefði á rás eitt til að spara tæknivinnu. Þá yrði stefnt að því að auka samkeyrslu á rásun- um tveimur og auk þess yrði endur- flutningur á efni aukinn. SJÓNVARPIÐ STYTTIR DAGSKRÁNA Unnin dagskrárgerð hefur verið aðal rásar eitt. Aukning á þáttum sem útvarpað er beint mun draga úr þessu sérkenni. Þá mátti á Markúsi skilja að stefnt væri að því að láta létta tónlist rúlla á rás tvö án kynn- ingar. Þó yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi verið sparir á nákvæma útlistun á aðferðum til sparnaðar og borið fyrir sig að enn væri ekki að fullu gengið frá fjárhagsáætlun fyrir næsta ár má af ummælum þeirra ráða að landsmenn geti átt von á einfaldara útvarpi. Pétur Guðfinnsson, framkvæmda- stjóri Ríkissjónvarpsins, sagði í sam- tali við Helgarpóstinn að enn væri ekki að fullu Ijóst hvernig staðið yrði að sparnaði þar á næsta ári. Þó væri ljóst að dagskráin yrði stytt. Ut- sendingum yrði hætt um ellefu á kvöldin á virkum dögum en um eða eftir miðnætti um helgar. Þessi sam- dráttur kæmi þó fyrst og fremst nið- ur á erlendu efni. íslensk dagskrár- gerð héldi hlut sínum að mestu. Nið- urskuröur á því sviði beindist eink- um að léttara efni, spurninga- og rabbþáttum. Bæði Markús og Pétur neituðu því að til stæði að segja upp fastráðnu starfsfólki, en hins vegar mætti bú- ast við því að einhverju af lausráðnu fólki yrði sagt upp. STÖÐ TVÖ NEITAR UPPSÖGNUM Hans Kristján Árnason, einn eig- enda Stöðvar tvö, neitaði því sömu- leiðis að starfsmönnum stöðvarinn- ar hefði verið sagt upp störfum. Þessi fullyrðing stangast þó á við það sem þeir starfsmenn Stöðvar tvö sem Helgarpósturinn ræddi við sögðu. Ymist hafði þeim verið sagt upp eða séð uppsagnarbréf starfsfé- laga sinna. Einn starfsmannanna orðaði það svo að miðað við þann fjölda sem sagt hefði verið upp væri erfitt að sjá hvernig Stöð tvö ætlaði að standa undir dagskrárgerð, umfram SJÖBÍLARNIR Á ÞURRT! Niðurstaðan að líkindum ,,árbœtur“. Þingmaður á meðal kaupenda. Bifreiðaeftirlitið sinnir ekki gœðaeftirliti. Sjórinn á við neysluvatn í Keflavík? Dómsmálaráðuneytið vill forðast viðskiptadeilur. Á verkstæðinu Skiptingu í Keflavík fór í gær fram skoð- un á fjórum hinna umdeildu Subaru-bíla, sem nokkrir Keflvíkingar hafa keypt ódýrt eftir að bílarnir höfðu lent í sjó- og vatnsskaða í Noregi. Hinir japönsku framleiðend- ur bílanna, íslenskt umboðsfyrirtæki þeirra og Félag ís- lenskra bifreiðaeigenda hafa mótmælt því harðlega að bílar þessir, á þriðja hundrað, fái skoðun og skráningu hér á landi. Innflytjendur hafa fært fram gagnrök og fengið bílana skoðaða — jafnvel eftir þrýsting velunnara í áhrifastöðum. Líkleg niðurstaða: Bíiarnir fá skráningu eftir að tilteknar úrbætur hafa farið fram. EFTIR FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON MYND JIM SMART Subaru-bílarnir voru teknir til skoðunar þvert ofan í fyrri yfirlýs- ingar Bifreiðaeftirlitsins um að svo yrði ekki gert — þegar innflytjendur bílanna tóku að færa rök fyrir sinum málstað og frammi fyrir því að Mitsubishi-bílar sem lentu í sama óveðursskaða höfðu hlotið blessun bifreiðaeftirlitsins. Innflytjendur Subaru-bílanna eru 4 einstaklingar sem stofnuðu sérstaklega fyrirtækið Hagport í þessu skyni. Þeir eru Margeir Margeirsson, Jón Sigurðs- son, Ragnar Karlsson og Jakob Traustason. Þessir menn höfnuðu tilboði framieiðendanna um að greiða þeim 1,7 milljónir dollara fyr- ir þessa alls 235 bíla eða um 60 millj- ónir króna. Það gerir um 255 þús- und krónur á bíl. Hagport hefur þeg- ar samið um sölu á allmörgum þess- ara bíla til einstaklinga, sem nú telja sig mögulega verða af góðum við- skiptum. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum HP mun einn þessara væntanlegu kaupenda vera Júlíus Sólnes, þingmaður Borgarflokksins í Reykjaneskjördæmi, en ekki tókst að fá þetta staðfest hjá þingmannin- um sjálfum. VERRI EN TRABANT? Þótt ætla mætti að búið væri að segja allt sem þyrfti, þegar framleið- endur vörunnar, sérlegir umboðs- menn hennar og neytendasamtökin FÍB leggjast svo hart gegn þessum bílum, er það ekki svo. Björn Frið- finnsson, aðstoðarmaður dóms- málaráðherra, sagði að ólíkar full- yrðingar hefðu komið fram um ástand bílanna og það eina sem hægt væri að gera að svo stöddu væri að skoða þá vandlega. Það yrði að gæta jafnræðis og ráðuneytið vildi ekkitilanda sér í viðskiptadeil- ur. „Grundvallaratriðið er þetta: Við höfum á undanförnum árum tekið á móti notuðum bílum i stórum stíl. Enginn veit um ástand þeirra og sumar tegundir bannaðar sums staðar, t.d. Trabant. Við erum ekki í stakk búnir til að blanda saman skráningu og gæðaeftirliti, en höf- um leitast við að ganga úr skugga um að öryggisbúnaður bíla sé í lagi og endist a.m.k. fram að næstu skoðun. Það eru alltaf tvær hliðar á öllum málum, þessir aðilar sem þú nefndir halda fram hlutum sem við höfum vottorð upp á að eigi ekki endilega við rök að styðjast, t.d. kemur fram að sýni tekin úr skott- um þessara bíla hafi sýnt að salt- magnið hafi ekki verið meira en t.d. í neysluvatninu í Keflavík!" ÖRYGGIS H AGSMU NIR — MARKAÐSHAGSMUNIR í harðorðri grein í Morgunblaðinu í gær heldur Júlíus VífillIngvarsson, framkvæmdastjóri Ingvars Helga- sonar hf., umboðsfyrirtækis Subaru á Islandi, því fram að umboðsaðil- arnir í Noregi hafi gert þá kröfu gagnvart tryggingafélaginu ytra að bílarnir yrðu eyðilagðir eftir að þeir hefðu verið bættir. Björn sagði þvert á móti að tryggingafélagið hefði lýst því yfir að ef ætti að borga bílana að fullu áskildi það sér rétt til að gera við bílana það sem það vildi. Þannig stendur fullyrðing gegn fullyrðingu á flestum sviðum þessa máls. í samtali við HP sagði Haukur Ingibergsson, forstjóri bifreiðaeftir- litsins, að tvær mismunandi fullyrð- ingar hefðu verið settar fram um ástand Subaru-bílanna. „Annars vegar segir framleiðandinn að þess- ir bílar séu ekki í lagi en hins vegar segja innflytjendurnir og eigendur bílanna að þeir séu í lagi. Við erum að skoða þá með tilliti til þessara fullyrðinga. Eigendurnir vilja meina að afstaða framleiðandans mótist ekki af öryggishagsmunum, heldur að þeir séu sagðir ónýtir af mark- aðshagsmunum og þeir spyrja sem svo, að úr því þeir eru taldir ónýtir, hvers vegna þeir yfirhöfuð voru settir á flakk. Við vitum ekki ástæð- una fyrir því og dæmum ekki um, en eftir stendur hvað framleiðand- ann varðar að bílarnir voru látnir af hendi og eignarhaldið komið í ann- arra hendur. En auðvitað er yfirlýs- ing framleiðandans fyllstrar athygli verð, jafnt sem þær fullyrðingar að öryggishagsmunir séu notaðir sem tylliástæða. Við högum skoðuninni mjög nákvæmlega, það er okkar að sjá um að bílarnir fullnægi öryggis- reglum um ökutæki." BIL BEGGJA — ÚRBÆTUR Mitsubishi-bílarnir hlutu blessun bifreiðaeftirlitsins eftir stranga skoðun án athugasemda og taldi Haukur að báðar tegundir hefðu lent í ámóta skaða. Guðni Karlsson, forstöðumaður tæknisviðs bifreiða- eftirlitsins, annaðist skoðun Subaru- bilanna í Keflavík í gær, þar sem sér- staklega var hugað að undirvögn- um og rafkerfi fjögurra bíla og sýni tekin af feiti og öðru slíku. Bílarnir koma til Reykjavíkur í dag til fram- haldsrannsóknar og mun niður- staða liggja fyrir á morgun í fyrsta lagi. Hvorki Haukur né Guðni vildu spá um endanlega niðurstöðu, sögðu kostina ekki annaðhvort eða, því alveg eins kæmi til greina að settar yrðu kröfur um einhverjar úr- bætur. Virðist sá möguleiki vera sterkur inni í myndinni að farin verði þessi leið í þessu viðkvæma máli. Björn Friðfinnsson neitaði því al- farið að um nokkurs konar pólitísk- an þrýsting væri að ræða í þessu máli, en viðurkenndi að ýmsir þing- menn hefðu rætt þessi mál við dómsmálaráðherra á þingi og nokkrir einstaklingar haft sama- band við ráðuneytið — með misjafn- ar skoðanir. HÆTTULEGRI EN FLUGVELAR Bifreiðaeftirlit ríkisins er að von- um í erfiðri aðstöðu í þessu máli, sem er einsdæmi hér á landi. Stofn- unin bíður í ofvæni eftir því að fá al- mennilega skoðunarstöð í gagnið og varla að hún geti talist fær um að n 8 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.