Helgarpósturinn - 07.01.1988, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 07.01.1988, Blaðsíða 24
UM HELGINA Leikfélag Reykjavíkur hefur „ver- tíö" sína í Leikskemmunni viö Meist- aravelli á sunnudaginn meö frum- sýningu á nýjum íslenskum söngleik eftir löunni og Kristínu Steinsdæt- ur. Heitir hann Síldin er komin og eru tónlist og söngtextar eftir Val- geir Guðjonsson Að sjálfsögöu er uppselt á frumsýninguna en næstu sýningar veröa þriöjudaginn 12.1. og fimmtudaginn 14.1. í Iðnó veröur Dagur vonar Birgis Sigurðssonar sýndur nk. miðvikudagskvöld, Hremming veröur á fjölunum í kvöld og á laugardagskvöldið, jólaleikrit LR, gamanleikurinn Algjört rugl, veröur sýnt annaö kvöld, sunnu- dagskvöldiö 10.1. og þriöjudags- kvöldiö 12.1. og hiö sívinsæla leikrit Þar sem djöflaeyjan rís verður næst sýnt í leikskemmu LR á miðviku- dagskvöldiö 13.1. Þaö er uppselt á Bílaverkstæði Badda, sem sýnt er á litla sviöinu í Þjóöleikhúsinu, fram til 24. janúar sem og á Vesalingana, nema þá á efstu svölum. Síöustu sýningar standa nú yfir á Brúðarmynd eftir Guömund Steinsson, en næstu sýn- ingar á þvi verki eru á laugardags- kvöldið og á föstudag í næstu viku, 15.1. Einn af yngri þáttageröarmönnum Stjörnunnar er Kjartan Guðbergs- son, en hann verður meö þátt annaö kvöld frá kl. 22—03 þar sem hann leikur hressilega tónlist fyrir hlust- endur. Það verður Árni Magnússon sem kyndir upp fyrir laugardags- kvöldiö, en þáttur hans er á dagskrá Stjörnunnar frá kl. 19—22 laugard. 9.1. Um þessarmundirsýnirLeikfélag Akureyrar söngleikinn Pilt og stúlku sem byggist á skáldsögu Jóns Thoroddsen, í leikgerð eins niöja hans, Emils Thoroddsen. Alþýðuleik meö söngvum kallaði Emil leikgerö sína þegar hún kom fyrst fram fyrir u.þ.b. fimmtíu árum. Það er Borgar Garð- arsson sem leikstýrir verkinu, kom sérstaklega frá Finnlandi til aö taka aö sér stjórnina, en þar starfar hann dags daglega. Verkið verður sýnt í kvöld, fimmtudagskvöld, og annaö kvötd kl. 20.30, á laugardaginn kl. 18.00 og sunnudaginn kl. 16.00 og vilja leikfétagsmenn nyröra vekja athygli á breyttum sýningartíma. Á laugardagskvöldiö veröa stór- tónleikar í Háskólabíói og hefjast þeir kl. 21.30. Tónleikarnir eru haldnir á vegum Samtaka um byggingu tón- listarhúss og hafa yfirskriftina Ger- um drauminn að veruleika. Á annaö hundraö þekktir íslenskir tónlistar- menn koma fram og gefa þeir allir vinnu sína. Meöal atriöa á tónleik- unum er flutningur lagsins Söngs um draum, sem Gunnar Þórðarson hefur samiö sérstaklega til styrktar byggingu tónlistarhússins. Lagiö verður bæöi flutt af söngvurum og svo í lokin af fullskipaðri Sinfóníu- hljómsveit íslands. Marga góöa gesti mætti nefna til sögunnar en hér verður látiö nægja aö geta Kórs Langholtskirkju, Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur, Mezzoforte, Kristins Sigmundssonar og Bubba Morthens. Fyrir popp- og rokkað- dáendur veröur svo án efa rúsínan í pylsuendanum endurkoma sjálfs Þursaflokksins, en hann kemurfram í fyrsta sinn í langan tíma. Kynnir veröur svo hæstvirtur menntamála- ráöherra, Birgir ísleifur Gunnars- son. í kvöld er á dagskrá Bylgjunnar þáttur Júliusar Brjánssonar sem heitir því ofur venjulega nafni „Fyrir neðan nefið". Júlíus fær til sin góöan gest sem viö vitum þvi miður ekki hver veröur. Á laugardaginn veröur gaman aö henda út jólatrénu og pakka niður jólaskrautinu undir tón- list sem Ásgeir Tómasson velur frá kl. 12.10—15.00, en sá tími ætti aö duga flestum til að koma heimilinu í venjulegt horf. Á sunnudagskvöldið kl. 21 verða haldnir tónleikar í Norræna húsinu, þar sem Þóra Johansen leikur á sembal og syntheziser og Maarten Van der Valk á slagverk. Tónleikarnir eru haldnir á vegum Musica Nova og þar veröa flutt verk eftir Þorkel Sig- urbjörnsson, Rachaix, Barberg Woof, Lárus H. Grímsson og Louis Andriessen, en í síöastnefnda verk- inu leika Anna Guöný Guðmunds- dóttir á píanó og Þóra Fríða Sæ- mundsdóttir á selestu. Með allt á þurru heitir íslensk sjónvarpsmynd sem ríkissjónvarpið sýnir í kvöld, fimmtudagskvöld. Myndin er gerö aö tilstuðlan áfeng- isvarnaráðs og segir frá þrítugum manni, Agli aö nafni, sem er giftur, tveggja barna faöir. Allt virkar eöli- legt á yfirborðinu en drykkjuskapur Egils skyggir þó á aö myndin sé full- komin. Fylgst er meö þvi hvernig hann missir smátt og smátt stjórn á drykkjunni og áhrifunum sem þaö hefur á daglegt líf hans, fjölskylduna og vini. Aö lokinni sýningu myndar- innar stýrir Ingimar Ingimarsson umræðum i sjónvarpssal, en þangaö geta áhorfendur svo hringt og borið fram spurningar varðandi áfengissýki. Annað kvöld er á dag- skrá rikissjónvarpsins bandarísk sjónvarpsmynd frá 1984 sem heitir Astin brúar bilið. Þar segir frá ung- um lögfræöingi og samstarfskonu hans sem fella hugi saman og veldur þaö vinum þeirra og vandamönnum áhyggjum, enda konan „eldgömul" eöa fjórtán árum eldri en maðurinn. Eitthvaö til aö hafa áhyggjur af ha? Athyglisverður þáttur, Göturnar i bænum, í umsjón Guðjóns Friðriks- sonar sagnfræðings, verður á dag- skrá ríkisútvarþsins nk. laugardag, 9. janúar, kl. 16.30. Lesari í jtættinum veröur Hildur Kjartansdóttir. í kvöld, fimmtudagskvöld 7. jan- úar, kl. 20 verður opnuð sýning á lokaverkefnum nýlega útskrifaöra arkitekta í húsi Arkitektafélags ís- lands, Ásmundarsal, Freyjugötu 41. Slíkar sýningar hafa verið árviss viö- buröur síöustu ár, en þar gefur aö líta lokaverkefni fólks sem á að baki langt nám í ólíkum skólum og ólíkum löndum, því eins og kunnugt er fer engin kennsla í arkitektúr fram hér á landi. Höfundarnir munu kynna verk sín í tengslum viö sýninguna, helm- ing verkanna í kvöld og hinn helm- inginn næstkomandi fimmtudag, 14. janúar. Sýningin verður opin virka daga kl. 17—21 og um helgar frá 14—18, en henni lýkursunnudag- inn 17. þ.m. Arkitektarnir sem verk eiga á sýningunni eru: Andrés Narfi Andrésson, Hafdis Hafliðadóttir, Halldóra Bragadóttír, Helgi Mór Halldórsson, Hjördís Sig- urgísladóttir, Ólöf Flygenring, Pálmi Guðmundsson og Ragnar Ólafsson. Annaö kvöld, föstudagskvöld 8.1., verður opnuö sýning í Galleri Svörtu á hvitu á vatnslitamyndum Guömundar Thoroddsen. Guö- mundur stundaöi nám viö Myndlist- arskólann í Reykjavík á árunum 1974—76 og í París 1976—78. Um fjögurra ára skeið nam Guömundur við Ríkislistaakademiuna í Amster- dam en er nú búsettur í París þar sem hann starfar sem myndlistar- maöur. Sýningin stendur til sunnu- dagsins 17. janúar. Fyrstu áskriftartónleikar Sinfóníu- hljómsveitar íslands veröa haldnir í kvöld í Háskólabíói. Þar veröurfrum- flutt hljómsveitarverk eftir Pál P. Pálsson, „Hendur", en Páll mun enn- fremur stjórna hljómsveitinni. Ein- leikari veröur breski pianóleikarinn John Ogdon Auk verks Páls veröa á efnisskránni hljómsveitarverkiö Karnival í París eftir norska tónskáld- ið Johan Svendsen og píanókonsert nr. 2 eftir Brahms viö einleik Johns Ogdon. Frægöarferill Ogdons hófst fyrir alvöru áriö 1962 er hann hlaut fyrstu verölaun í Tchaikovski-keppn- inni í Moskvu, þá aðeins 24 ára að aldri. Hann leikur jöfnum höndum klassíska Vínartónlist, rómantíska tónlist og slavneska, en þó e.t.v. fyrst og fremst tónlist tuttugustu aldar tónskálda. — Tónleikarnir hefjast í Háskólabíói kl. 20.30. Sá sem horföi á Dagfarsprúða morðingjann á Stöð 2 á sunnudags- kvöldiö síöasta lætur sig örugglega ekki vanta fyrir framan skjáinn næsta sunnudagskvöld kl. 22.05. Þá verður sýndur síðari hluti kvikmynd- arinnar og sjálfsagt vilja fæstir missa af aö sjá hvernig í ósköpunum maö- urinn loksins fannst eftir fimm ára leit. Viö vekjum einnig athygli á Nærmynd Jóns Óttars Ragnars- sonar á sunnudagskvöldið kl. 20.55. í þetta sinn ræöir Jón Óttar viö Helgu Björnsson fata- og búninga- hönnuö sem starfað hefur hjá hinum þekkta tískuhönnuði Louis Feraud í París. P-leikhópurinn frumsýndi í gær verk Harolds Pinter Heimkomuna í húsi íslensku óperunnar. Þetta er meö betri verkum Pinters og leikar- arnir i þessari uppfærslu sérstaklega valdir með tilliti til reynslu. Sjá nánari umfjöllun í Listapósti. Sniðugur fugl sundfuglinn. Ekki mikill galleríamaður segir Gudmundur Thoroddsen sem opnar 8da jan. í Gallerí Suörtu á hvítu. Gallerí Svart á hvítu, sem stendur viö Óöinstorg, er nú aö flytjast bú- ferlum og kemur til meö aö standa í nœsta nágrenni viö hin nýju húsa- kynni Listasafns Islands, nánar til- tekiö á horninu á Laufásvegi og Skálholtsstíg. Þaö er aöeins ein sýn- ing eftir í húsakynnum gallerísins viö Oöinstorg og er þaö sýning Guö- mundar Thoroddsen sem kemur meö myndirnar sínar alla leið frá París, þar sem hann er búsettur að öllu jöfnu. Guðmundur mætir til leiks með fjöldann allan af vatnslitamyndum og hann sagði í óformlegu spjalli við HP að það mætti segja að myndirn- ar skiptust gróflega í tvo efnis- flokka. Annars vegar væri myndröð af dýrlingum, inspíreruð af rússn- eskum íkonum, og hins vegar væri þetta hans eigin draumaveröld, til- finningar sem hann reyndi að tjá í myndum sínum en væru að vísu vel dulbúnar. Hann sagði einnig að þessari draumveröld tilheyrðu fugl- ar, fiskar, bátar, skip, enda væri hon- um sjórinn mikilvægur. Fuglinn væri líka einhvers konar tákn fyrir frelsið, bætti hann við, og þegar maður siglir hefur maður ekki ann- að á að horfa en öldurnar og fugl- ana. Svo er sjófuglinn líka meistara- smíð, hann getur allt í senn; verið á landi, synt í sjónum, kafað og flogið. Sniðugur fugl. I myndunum eru líka eldgos en Guðmundur sagðist ekki halda að það gerði myndirnar neitt sérís- lenskar, það væri alls ekkert sérís- lenskt í þeim, þetta væru mest hugarórar. Guðmundur sagðist hafa málað allar myndirnar í París síðastliðið haust, a.m.k. svo til allar, en ekki vildi hann kannast við að Frakkar eða Frakkland hefðu haft nein áhrif á myndefnið. Hann sagði að Frakkar væru mest í einhvers konar teikni- myndasögum um þessar mundir. Annars fylgist ég lítið með, sagði hann svo, ég er ekki mikill gallería- maður, fer sjaldan á söfn. Nei, ég er ekki hræddur um að einangrast neitt þrátt fyrir að ég fylgist lítið með öðrum myndlistarmönnum, kannski mætti ég samt gera meira af því að umgangast þá. Annars er listalífið í París orðið sterílt af því það eru svo miklir peningar í spil- inu, allt snýst um þá. Það sem heillar mig í sambandi við París er fyrst og fremst mannlífið; kaffihúsin, barirn- ir og göturnar, fólkið sem þarna kemur saman frá ólíkum heims- hornum. í öllu þessu hafi skiptir kannski mestu að leita að því sem er í manni sjálfum og reyna að koma því frá sér. Guðmundur opnar sýningu sína á föstudagskvöldið 8da og hún stend- ur til sunnudagsins 17da. 24 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.